Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1996, Qupperneq 35
LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1996
43
Kosningabaráttan að hefjast í Bretlandi:
Norma, eiginkona Johns Majors, forsætis-
ráðherra Bretlands, er einkar sparsöm kona.
Hún notar t.a.m. sama tepokann oftar en einu
sinni og frystir afganga frekar en að henda
þeim.
Cherie, eiginkona Tonys Blairs, leiðtoga
Verkamannaflokksins, er snillingur í að búa
til fljótlegar fjölskyldumáltíðir og hún nýtur
þess að prjóna fallegar peysur.
Nú eru aðeins um sjö mánuðir til kosninga
í Bretlandi og leiðtogar tveggja stærstu stjóm-
málaflokka landsins beita öllum ráðum til að
gera kjósendum ljóst hvaða vindar það eru
sem fleyta þjóðarskútunni áfram. Eiginkonur
þeirra hafa þar veigamiklu hlutverki að
gegna.
Fréttaljós á
laugardegi
íhaldsmenn, sem nú eru við stjórnvölinn,
em þess fullvissir að Norma hali inn atkvæði
hjá konum úr miðstétt vegna stöðu sinnar
sem hin dæmigerða húsmóðir. Hún er tveggja
barna móðir sem hvatti eiginmann sinn til
dáða á meðan hann klifraði upp metorðastig-
ann í stjórnmálmn.
Verkamannaflokkurinn segir hins vegar að
staða Cherie sé dæmigerð fyrir líf nútíma-
kvenna í dag. Auk þess að vera lögfræðingur
í fremstu röð sér hún að mestu um heimilis-
störfin og uppeldi barnanna þriggja.
Ólíkur bakgrunnur
Barátta eiginkvennanna verður hörð og erf-
ið því fjölmiðlar koma til með að fylgja þeim
eftir hvert fótspor og rýna í hvert smáatriði -
háralit, klæðnað og annað í þeim dúr.
Norma veitti fjölmiðlum nýverið sitt fyrsta
viðtal, sex árum eftir að eiginmaðurinn tók
við völdum i Downingstræti 10.
„Mér líkar vel að vera heimavinnandi hús-
móðir,“ sagði hin 54 ára eiginkona forsætis-
ráðherrans sem hefur sl. ár verið að skrifa
bók um opinberan sumarbústað forsætisráð-
herrans, Chequers.
Norma er svo handlagin að John hringdi oft
í hana á fyrstu hjúskaparárum þeirra og bað
hana um aðstoð.
„Það slokknuðu öll ljós, hvað á ég að gera?“
spurði hann eitt sinn þegar öryggi sprakk.
Cherie, sem þykir heldur róttækari en eig-
inmaðurinn, Tony Blair, hefur haldið sig bak-
sviðs hingað til en hún tók stórt skref inn í
heim fjölmiðlanna er hún stýrði september-
hefti tímaritsins Prima sem fjallar um hár-
tísku og matargerð. Lesendur Prima voru
upplýstir um að Tony væri mjög laginn við að
bursta skó en hann væri ekki i nánu sam-
bandi við þvottavél heimilisins.
Fjölskyldan skiptir þær
mestu máli
Þó að bakgrunnur Normu og Cherie sé ólík-
ur hvað varðar menntun og starfsreynslu, svo
og pólitíska afstöðu, þá eiga þær ýmislegt
sameiginlegt.
Hvorug þeirra átti von á því að verða eigin-
kona flokksleiðtoga í stjórnmálum. Báðum
flnnst þeim erfitt að vera í sviðsljósi fjölmiðl-
anna og það tók þær langan tíma að sætta sig
við að vera almenningseign. Fjölskyldur
Normu og Cherie er það sem skiptir þær
mestu máli.
Norma segir það hafa verið mjög erfitt þeg-
ar John var kosinn til valda í nóvember árið
1990. Þar með
var Margaret
Thatcher velt úr
sessi eftir 11 ára
veru í Down-
ingstræti 10.
„Þetta var allt
svo nýtt fyrir
mér og það var
enginn sem gat
leiðbeint mér
eða gefið góð
ráð. Það var lið-
inn langur tími
frá því að síðast
hafði verið for-
sætisráðherra-
frú,“ sagði
Norma í viðtali
fyrir stuttu.
Fjölmiðlamir
voru með and-
styggilegar at-
hugasemdir i
hennar garð,
sögðu hana ein-
falda og fylgja
manni sínum i
blindni. Þeir
gagnrýndu hana
t.a.m. harðlega
stuttu eftir að
Major komst til
valda fyrir að
koma fram opin-
berlega í sömu
dragtinni tvo
daga í röð.
„Þetta var
hræðilegt og
auðvitað var
dragtin líka
hörmuleg að
þeirra mati. Mér
hefur þó tekist i
tímans rás að að-
laga mig breytt-
um aðstæðum,
annars væri lífið
óbærilegt," sagði
Norma, eiginkona forsætisráðherra Breta, hefur helgað eiginmanninum líf
sitt og hvatt hann tii dáða allt frá því hann byrjaöi að feta sig upp metorða-
stigann i stjórnmálum.
Cherie, eiginkona Tonys Blairs, leiðtoga Verkamannaflokksins, er lögfræðingur í góðri stöðu og
sér auk þess aö mestu leyti um börn og bú meðan eiginmaðurinn einbeitir sér að því að koma
flokki sínum til valda. Á myndinni má sjá hvar þau hjónin taka létta sveiflu á þingi Verkamanna-
flokksins í september sl.
Norma sem þó hefur reynt að láta lítið fara
fyrir sér. Hún kaus t.d. frekar að búa í húsi
þeirra hjóna í Huntingdon en að flytja til
London þar sem John er alla virka daga.
Ekki „forsetafrúr" að hætti
Bandaríkjamanna
Cherie Blair og fjölskylda hennar býr í
grennd við Downingstræti og segir Cherie að
þau muni flytja ef Verkamannaflokkurinn
sigrar í kosningunum. Hún segir mikilvægast
að halda fjölskyldunni saman og að lifa sem
eðlilegustu lífi.
Það sagði Norma líka árið 1990 en Cherie
ætti að hafa öðlast nægilega mikla reynslu í
þessum efhum til að vita að ekkert verður
eins ef Tony Blair kemst til valda.
Þrátt fyrir að Cherie hafi ekki veitt fjölmiðl-
um viðtöl hefur það ekki komið í veg fyrir að
hægrisinnaðir blaðamenn hnýsist í fortið
hennar og reyni að færa sönnur á að hún sé
„leyni-kommi“ og andsnúin sókn eiginmanns-
ins inn á miðju stjórnmálanna. Þeir hafa hins
vegar orðið að láta sér nægja að agnúast út í
fataval hennar. Hún átti t.a.m. slæman dag
þegar hún mætti á veðreiðar iklædd stígvél-
um sem þóttu mjög hlægileg. Einnig hafa fjöl-
miðlar skopast að innilegum stuðningi henn-
ar við eiginmanninn opinberlega, hve augna-'
ráð hennar er aðdáunarfullt og brosið breitt.
Það er ljóst að þær stöllur eiga eftir að vera
í sviðsljósinu í hinni hörðu kosningabaráttu
sem í hönd fer í Bretlandi en þrátt fyrir þá
miklu athygli sem fjölmiðlar veita þeim
Normu Major og Cherie Blair eru þær stað-
ráðnar í að forðast að vera „forsetafrúr" að
hætti Bandaríkjamanna. Reuter
Hlutverk eiginkvenna
leiðtoganna veigamikið