Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1996, Blaðsíða 38
voru lykilmenn á fyrsta borði
Rússar uröu efstir, Úkraínumenn
hrepptu silfur og Bandaríkjamenn
bronsverðlaun, með hagstæðari
stigatölu en Englendingar, sem
urðu jafnir þeim að vinningum.
Þessi varð niðurstaða ólympíuskák-
mótsins í Armeníu. íslendingar
voru nálægt þvi að komast á verð-
launapall - deildu þriðja sæti fyrir
lokaumferðina en lentu þá móti
ólympíumeisturunum, Rússum,
sem reyndust erfiðir mótherjar.
Fróðlegt er að skoða frammistöðu
einstakra skákmanna sigursveit-
anna en hún var ærið misjöfn.
Rússar stilltu upp þéttu og jöfnu
liði en verulega kom á óvart að
Vladimir Kramnik á 2. borði stóð
sig síst sveitarmanna - fékk 50%
vinningshlutfall úr 9 skákum. Best-
um árangri náði Kasparov, sem
komst á skrið eftir rólyndislega
hyrjun og hlaut 7 vinninga úr 9
skákum.
Vassily Ivantsjúk bar höfuð og
herðar yfir Úkraínumenn, með 8,5
v. af 11 á fyrsta borði.
Árangur armarra sveitarmanna
var jafn en það er sammerkt með
úkrainsku sveitinni og þeirri rúss-
nesku að allir sveitarmenn stóðu
fyrir sínu.
Annað verður uppi á teningnum
þegar litið er til baridarísku og
'ensku sveitanna. Boris Gulko, á
fyrsta borði með Bandaríkjamönn-
um, varð að láta sér lynda einn
vinning úr fimm skákum. Það er
meö ólíkindum að þrátt fyrir þetta
alhroð Gulkos, skyldu Bandarikja-
menn hreppa bronsverðlaun.
Yermolinsky, á 2. borði, bætti
frammistöðu Gulkos að nokkru
leyti upp með 8 vinningum af 11 og
jafngóð frammistaða annarra sveit-
armanna reyndist góður stuðning-
ur.
Góð frammistaða ensku sveitar-
innar vekur einnig athygli, því að
varamennimir tveir, Julian Hodg-
son og Stuart Conquest, fengu ekki
að spreyta sig nema í sex skákum
samanlagt og uppskeran varð held-
ur rýr, eða tveir vinningar. Mathew
Sadler, á 4. borði, gerði meira en að
vega þar upp í móti, með 10,5 vinn-
inga úr 13 skákum. Short, Adams og
Speelman, náðu einnig prýðilegri
frammistöðu á efstu borðunum
þremur, þótt ekki jafnaðist það á
viö árangur Sadlers.
Skoðum árangur einstakra kepp-
enda sigursveitanna:
1. Rússland V. Fj- Hlutf.
1. Kasparov 7 9 77,8
2. Kramnik 4,5 9 50,0
3. Dreev 5 8 62,5
4. Shvidler 8,5 11 77,3
5. Bareev 7,5 10 75,0
6. Rublevsky 6 9 66,7
Heild 38,5 56 68,8
2. Úkraína
1. Ivantsjúk 8,5 11 77,3
2. Malanjúk 5,5 9 61,1
3. Romanishin 5 9 55,6
4. Novikov 4 8 50,0
5. Onitjúk 6 10 60,0
6. Savsjenko 6 9 66,7
Heild 35 56 62,5
3. Bandaríkin
1. Gulko 1 5 20,0
2. Yermolinsky 811 72,7
3. DeFirmian 6 11 54,6
4. Kajdanov 7 11 63,6
5. Benjamin 5 8 62,5
6. Christiansen 7 10 70,0
Heild 34 56 60,7
4. England
1. Short 7 12 58,3
2. Adams 7,5 13 57,7
3. Speelman 7 12 58,3
4. Sadler 10,5 13 80,8
5. Hodgson 1,5 4 37,5
6. Conquest 0,52 25,0
Heild 34 56 60,7
Við höfum þegar séð dæmi hér í
DV um taflmennsku Kasparovs á
mótinu - enn tókst honum að sýna
fram á yfirburði sina og náði besta
hlutfalli i sigursveitinni. Lokin á
skák hans við Yermolinsky voru
skemmtileg. Kasparov hafði hvitt og
átti leik í þessari stöðu:
Umsjón
Jón LÁrnason
49. Ha7!
Býður upp á peðið á g4 og svartur
stenst ekki freistinguna:
49. - Dxg4? 50. Db8! Hd7
Augljóslega eini leikurinn -
svartur ætlar að svara 51. Ha8 með
51. - Hf7 og gæta bús og barna.
51. f3!
- Skyndilega áttar bandaríski
stórmeistarinn sig á því að 51. - Df5
er svarað með 52. g4! og drottningin
missir vald á hróknum. Svartur
gafst því upp.
Jafrian velta verðlaunasæti á
ólympíumótunum á úrslitum í
nokkrum síðustu umferðunum.
Ekki síst er spennan mikil í loka-
umferðinni, þar sem hálfur vinning-
ur til eða frá getur skipt sköpum.
Mótið í Erevan var engin undan-
tekning frá þessu og setti tauga-
spenna mark sitt á taflmennsku
keppenda, þegar blásið var í her-
lúðra í síðasta sinn.
Grípum niður í keppni Banda-
ríkjamanna og Georgíumanna. Stað-
an er úr skák stórmeistaranna Nick
de Firmian (Bandaríkin), sem hafði
hvítt og átti leik, og Surab Azmaip-
arashvili (Georgíu):
Flestir voru farnir að spá jafn-
tefli, á þeim forsendum að ólíklegt
væri að hvítum tækist að vinna
með tvo riddara gegn hrók með að-
eins þrjú peð eftir á kóngsvængn-
um. En með næsta leik sínum lagði
de Firmian lævísa gildru fyrir and-
stæðing sinn:
45. Re3 Hc-b6? 46. Hxf5!
Ef nú 46. - gxf5 47. Rxf5 og svart-
ur er mát! Georgíumanninum er
bersýnilega brugðið við þessi
óvæntu umskipti og fer nú endan-
lega á taugum ... og nú lagði svartur
niður vopn. Ef 47. - Kg7 48. Re6+
Kg8 49. Hf8 mát.
íslendingar töpuðu með minnsta
mun fyrir Rússum í lokaumferðinni
en ef dæmið hefði snúist við, hefði
3. - 5. sæti orðið lokaniðurstaðan.
íslenska sveitin var þó aldrei ná-
lægt því að sigra en jafntefli lá þó í
loftinu. Spennandi skák Jóhanns
Hjartarsonar við Shvilder réð þar
mestu en Jóhann hratt sókn Rúss-
ans skemmtilega og margir spáðu
honum sigri. Sjálfur sagði Rússinn
eftir skákina að trúlega hefði taflið
verið tapað, ef Jóhann hefði hitt á
besta leikinn rétt áður en tíma-
mörkunum var náð.
Hvítt: P. Shvilder (Rússlandi)
Svart: Jóhann Hjartarson
Sikileyjarvörn.
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rc6 5. Rc3 Dc7 6. Be2 a6 7.
0-0 Rf6 8. Khl d6 9. f4 Be7 10.
Be3 0-0 11. Del Bd7 12. Dg3 b5
13. e5 dxe5 14. fxe5 Rxe5 15. Bh6
Re8 16. Bf4 Bd6 17. Re4 Rc4 18.
Bxc4 Bxf4 19. Hxf4 Dxc4 20. Rg5
e5
21. Hh4 exd4 22. Hxh7 d3 23.
Hh4 Dc6 24. Dxd3 g6 25. Rh7 Rf6
26. Rxf8 Hxf8 27. Hfl Bc8 28. Df3
Dxf3 29. Hxf3 He8 30. Kgl Rg4 31.
h3 Re3 32. Hhf4 f5 33. c3 Rc4 34.
Hf2 Hel+ 35. Kh2 Bb7 36. Hd4
Be4 37. a4 Re3 38. axb5 axb5 39.
b3g5
Rétt er 39. - Bd5! nú, eða í næsta
leik, með mjög góðum vinnings-
möguleikum á svart.
40. Ha2 Kf7 41. Hd6! Bxg2 42.
Hxg2 Rxg2 43. Kxg2 He2+ 44. Kf3
Hh2 45. Kg3 Hc2 46. Hd5 Hxc3+
47. Kg2 Hxb3 48. Hxf5+ Kg6 49.
Hc5 Kh5 50. Hc8 He3 51. Hb8 He5
52. Hb6 Hc5 53. Kg3 Hc3+ 54. Kh2
Hb3 55. Kg2 b4 56. Kf2 Hhl 57.
Kg3 Hb2 58. Kf3 b3 59. Kg3 Hbl -
og jafritefli samið.
Norðurlandamót
grunnskólasveita
íslendingum gekk ekki sem
skyldi á Norðurlandamóti grunn-
skólasveita, sem fram fór í Æfinga-
skólanum um síðustu helgi. Jets-
mark-skólinn frá Danmörku bar sig-
ur úr býtum með 12,5 v. af 20 mögu-
legum, Sviar urðu í 2. sæti með 10,5
v., Finnar í 3. sæti með 10 v., Digra-
nesskóli í Kópavogi varð í 4. sæti
með 9,5 v., Æfingaskólinn, Reykja-
vík, í 5. sæti með 9 v. og Norðmenn
vermdu neðsta sætið með 8,5 v.
Danska sigursveitin var jafnsterk
og hreppti enginn Dananna borða-
verðlaun. Bragi Þorfinnsson, Æf-
ingaskólanum, stóð sig best allra á
1. borði, með 4 v. af 5 mögulegum.
Spennandi
deildakeppni
Fyrri hluti deildakeppni Skák-
sambands íslands fer fram um helg-
ina og verður teflt í Faxafeni 12 í
Reykjavík. Skákmenn frá öllu land-
inu taka þátt í keppninni en augu
flestra munu beinast að baráttunni
í 1. deild, sem verður trúlega tví-
sýnni en nokkru sinni fyrr.
Taflfélag Reykjavíkur, sem hefur
titil að verja, hefur nú misst marga
stigahæstu skákmennina.
Forráðamenn félagsins eru þó
ekki af baki dottnir þrátt fyrir mót-
lætið og hyggjast flytja inn erlent
vinnuafl. Einnig hefur heyrst að
Taflfélag Garðabæjar muni leita út
fyrir landsteinana að alþjóðlegum
meistm-um til að styrkja sveitina.
Fyrsta umferð var tefld í gær-
kvöldi en áfram verður teflt í dag,
laugardag, kl. 10 og 17 og á morgun,
sunnudag, hefst taflið kl. 10 árdegis.
íbrídge_
Islandsmótið í einmenningi 1996:
Arnar G. Hinriksson íslandsmeistari
íslandsmótið í einmennings-
keppni var haldið um sl. helgi í
Bridgehöllinni við Þönglabakka.
Arnar G. Hinriksson frá ísafirði
sigraði naumlega eftir harða bar-
áttu við Þóri Leifsson og Erlend
Jónsson. Amar hlaut 1924 stig, Þór-
ir 1909 og Erlendur 1889.
Aðspuröur sagði Amar að lánið
hefði leikið við sig og það hefðu
frekar verið makkerar sínir en
hann sem hefðu sýnt snilldartakta.
Þeir sem þekkja hins vegar betur til
vita að Amar og nýlátinn makker
hans, Einar, skipuðu sér oft í raðir
efstu spiiara, bæði í íslandsmótum
og stórmótum Flugleiða.
Það er hins vegar alkunna að þeir
sem eru með spilin skora yfirleitt
betur en hinir þegar um ein- eða tví-
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
menningskeppni er að ræða. Bygg-
ist það ekki síst á því að vörnin er
erfiðari þáttur spilsins og ekki síst
þegar menn em óvanir saman, eins
og títt gerist í einmenningskeppni.
Án þess að ég vilji draga úr sigri
Amars þá vildi svo til að hann sat
fast í norður allan tímann í síðustu
lotunni og spilagjöfin var þannig að
n-s voru með opnun í 23 spilum af
30, ýmist annar hvor eða báðir.
Við skulum skoða spil frá síðustu
setunni í mótinu þar sem makker
Arnars, ungur spilari frá Grinda-
vík, vann mótið fyrir hann!
N/Allir
4 ÁD965
•4 G96
♦ K7
* ÁK8
* K87
V K87
* ÁDG4
* G63
4 G1042
«4 Á4
4 10653
4 542
Norður Austur Suður Vestur
1 spaði dobl 2 spaðar 3 hjörtu
3 spaðar 4 hjörtu dobl pass
pass pass
Eins og komið hefir fram sat Arn-
ar í norður en í suður var ungur
spilari frá Grindavík, Gunnlaugur
Sævarson. A-v vom Þorsteinn Krist-
mundsson og Gísli Ólafsson. Það er
ljóst að vestur verður að segja þrjú
hjörtu strax því annars er hætt við
að sagnir deyi. Reyndar varð raun-
in sú þar sem Þórir Leifsson sat í
norður. Þar gengu sagnir eins en
þegar vestur sagði pass urðu tveir
spaðar lokasögnin sem unnust slétt.
Það er erfitt fyrir austur að passa
þrjá spaða, hvað þá að dobla, sem
hefði verið toppskor.
Vömin var hins vegar einfold, n-
s hirtu sína fjóra toppslagi og Amar
íslandsmeistaratitilinn í leiðinni.
Arnar G. Hinriksson frá ísafiröi sigr-
aöi naumlega á íslandsmótinu í ein-
menningskeppni.
4 3
«4 D10532
4 982
* D1097