Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1996, Page 42

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1996, Page 42
50 LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1996 Strandir: Góð þátttaka í gönguferðum „Á Ströndum gefst ferðamönnum góður kostur á að njóta útivistar, náttúran er falleg og kyrrðin heill- andi. Óvíða er t.d. hægt að ganga frá fjöru upp að jöklum á jafn skömm- um tíma og í gegnum jafn fjölbreyti- legt gróðurkerfl og þar.“ Svo segir í ritinu Ferðaþjónusta og þjóðmenning sem Jón Jónsson, þjóðfræðingur frá Steinadal, vann í samstarfi við Héraðsnefnd Stranda- sýslu, með styrk frá Nýsköpunar- sjóði námsmanna, og kom út sl. vet- ur. í samantekt Jóns er fjallað um flesta þætti er lúta að ferðaþjónustu. Á þessu sumri voru svo stigin fyrstu skreftn með útkomu atburða- dagatals. Þar voru m.a. kynntar nokkuð á annan tug skipulagðra gönguferða með fararstjóra um nokkra staði víðs vegar um sýsluna sem þekktir eru fyrir sérkenni og Hér má sjá 40 ferðalanga sem tóku þátt í gönguferð fyrir svonefndan Stiga, á milli Koilafjarðar og Bitrufjarðar. DV-mynd GF sögulega viðburði fyrr á tímum. Þar er af miklu að taka, auk skoðunar- og skemmtiferða um eyjar og annes. Við þá áætlun var að öllu leyti stað- ið, og þó heldur betm-, þar sem þessi nýjung féll bæði gestum og heima- mönnum afar vel i geð. Kynning og leiðsögn um höfuð- stað sýslunnar, Hólmavík, og næsta nágrenni var á hendi Brynjólfs Sæ- mundssonar, leiðsögumanns á Hólmavík. Mikil þátttaka var í flest- um þessara ferða og ánægja fólks mikil. -GF Vasa- og töskuþjófnaðir: Nokkur ráð ferðamönnum til verndar Svona útlítandi er ekki ráðlegt fyrir ferðamenn að fá sér labbitúr. DV-mynd GF Það er ekki auðvelt að vara sig á vasaþjófum enda eru þeir margir nánast snillingar í „iðn“ sinni. Samt sem áður eru það nokkur at- riði sem gott er að hafa í huga, eign- um sínum til verndar, enda gera þau vasaþjófunum skuggaverk sín erflðari. - Skildu dýrmæta skartgripi eftir heima eða í öryggisgæslu á hótel- inu. - Taktu ljósrit af öllum mikilvæg- um skjölum og pappírmn, eins og t.d. vegabréfi, ferðatékkcmúmerum og flugfarseðlum. Hafðu ahritin á þér en geymdu fnunritin á öruggum stað. - Notaðu peningabelti eða önnur þunn veski sem geyma má undir fötum. Ekki þykir ráðlegt að nota utanáliggjandi magatöskur. - Hafðu reiðufé, lykla, greiðslu- kort og skjöl á þér sjálfum, og þá helst í framvösum. Geymdu slíkt í töskum eða bakpokum. - Ef þú þarft að leggja handtösku eða bakpoka frá þér á gólfíð hafðu fótinn þá inni í ólinni. - Hafðu myndavélina ekki hang- andi um hálsinn eða dinglandi í hendinni. Láttu hana ekki sjást og heldur engar ljósmyndatöskur sem líta út fyrir að kosta skildinginn. - Ef ókunnugur bendir þér á að þú sért með blett á fötunum skaltu láta sem þú sjáir það ekki. Þetta er víðfræg vasaþjófabrella. Þýtt og endursagt úr Condé Nast Traveler. -ggá \ _ Singapore enn á toppnum í nýrri alþjóðlegri könnun, sem gerð var um bestu flugfé- lögin, kom í ljós að Singapore Airlines telst enn best en það hefur verið í toppsætinu frá 1989. í öðru sæti kemur svo Swissair. í næstu sætum sitja Virgin Atlantic, Qantas, British Airways, SAS og KLM. Það vek- ur athygli að Flugleiðir eru 120. sæti og skjóta þar mörgum stærri flugfélögum ref fyrir rass. í könnuninni voru gefin stig fyrir gæði matar, þægindi og þjónustu. Fundað um ferðamál Hótel Ólafsflörður og ferða- málaráð Ólafstjarðarbæjar ;: efndu nýlega til fundar um Ólafsfjörð sem ferðamannastað. Nokkrir aðilar úr ferðamanna- iðnaðinum mættu og dvöldu i þar í tvo daga. Þessir aðilar, þar á meðal hugsanlegir fjár- festar, fóru víða um til að skoða 1 ijörðinn og það sem hann hefúr | upp á að bjóða. Þátttakendur I voru m.a. frá ferðaskrifstofum, , Byggðastofnun, Upplýsinga- I þjónustu ferðamála á Akureyri, I auk Halldórs Blöndals sam- :í gönguráðherra. Ferðaþjónustan í Lónkoti: Stærsta tjald á landinu I Á hænum Lónkoti í Sléttuhlíð hefur undanfarið verið unnið að þvi að sjóða saman og reisa jámgrind sem ætlað er að bera uppi stærsta tjald sem reist hefur verið á fastri grind hér á landi. Byggingarlagið er með þeim hætti að gólfpláss fæst á tveimur hæðum. Lægra gólfið myndar meginrýmið, það er steypt- ur hringlaga flötur sem er hugsaður fyrir ýmsar skemmtanir, s.s. kóra, hljómsveitir, sjónleiki og sýningar. Efra gólfið umlykur hið neðra og er ætlað áhorfendum. Einn aðalinn- gangur er að hringnum en sitt hvor- um megin verða hliðarinngangar. Sextán súlur munu bera jámgrind- ina uppi, helmingur þeirra i jaðri sviðsins en hinar í jarðhringnum sem uppgröfturinn myndar. Að sögn Ólafs Jónssonar í Lón- koti mun Seglagerðin Ægir sauma dúkinn og setja hann á næsta vor. Dúkurinn verður að stofni til grænn en með hvítum röndum á milli. Þannig á útlitið að vera í sátt við umhverfið og einnig ætti birta og hitastig að vera hæfilegt. Ólafur telur líklegt að þetta mannvirki verði um 600 fermetrar að stærð. Þama verður reynt að notast við byggingarefni sjálfrar náttúrannar sem mest, veggir em úr sjávargrjóti og slípaðri sjávarmöl og gras allt í kring. Sefnt er að því að taka hring- inn í notkun við formlega athöfn um sólstöður næsta sumar. Hring- urinn verður aðeins í notkun að sumarlagi því dúkurinn verður tek- inn af á haustin í framtiðinni. Verkið er tileinkað þjóðsagnaper- sónunni séra Hálfdáni galdraklerki sem þjónaði á prestssetrinu Felli í Sléttuhlið á síðari hluta 15. aldcir og fyrri hluta þeirrar sextándu. Jökull Jónsson, Ólafur Jónsson, Jón Guðnason og Þorvaldur Oskarsson unnu við að sjóða saman járngrindina. Hér eru þeir við innganginn í hring- inn. DV-mynd ÖÞ Enn meiri munaður Það er ekki nóg með að jap- anska flugfélagið Japan Air- lines bjóði upp á reyktan lax og kampavin heldur ætlar það að ganga enn lengra til að gera fyrsta farrýmis farþegum lífið létt. Nú er | verið að ráð- gera ný sal-1 erni sem munu koma til með aö kosta 95 þús- und dollara eða tæplega | 6,4 milljónir króna stykk- ið. Fyrsta | flugleiðin, sem verður | þessa munaðar aðnjótandi, er Tokyo-New York. Salernin eru töluvert stærri en þau hefö- bundnu, vatnið í vöskunum rennur mun lengur, róleg tón- list mun óma i hátölurum, ljós-. in eru dempuð og speglar eru á þrjár hliðar. JAL er ekki fyrsta flugfélagið til að reyna að lokka farþega með bættri salernisað- stöðu. Japan AirSystem, sem sinnir aðallega innanlandsflugi, byrjaði að bjóða upp á sérstök dömusalerni í mars sl. í öllum sínum vélum. Þar má finna blómamynstur, snyrtivörur og skreytingar úr þurrkuðum jurt- Bestu borgirnar í sömu könnun var spurt um bestu borgirnar til að dvelja í. Er þá tekið mið af veitingastöð- um, menningarlífi, fegurö, gest- risni íbúa o.fl. Sidney í Ástralíu trónir þar á toppnum en í næstu sætum eru San Francisco, Queenstown á Nýja- Sjálandi, Flórens, New Orleans, Róm og París. Ógestrisnasta borg í heimi var talin vera Atl- antic City í Bandaríkjunum. Suður-Afríka vinsæl Suður-Afríka hefur mjög ver- ið að sækja í sig veðrið hvað varðar ferðamannafjölda og hafa þeir streymt í auknum mæli til landsins eftir að al- þjóðaviðskiptabanninu var aflétt og stjórn Nelsons Mand- ela tók við. Suður-Afríka þykir bjóða upp á gott loftslag, falleg- ar strendur, hagstætt verðlag og fjölbreytt dýralíf. Virgin Atl- antic flugfélagið hefur ákveðið að bregðast við aukinni eftir- spum og flýgur nú flugleiðina London-Jóhannesarborg þrisvar í viku. Meira um Suður-Afríku Jóhannesarborg þykir ein af hættulegustu borgum heims og í kjölfar aukins ferðamanna- straums hafa yfirvöld haft áhyggjur af aukinni glæpaöldu. Því hefur þeirri nýbreytni ver- ið komið á að ferðamenn geta kallað til sérstaka „ferða- mannalögreglu" sem tekur að sér að fylgja ferðamönnum á milli staða auk þess að hafa sér- stakt eftirlit á götunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.