Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1996, Blaðsíða 15
LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1996
15
0
Astfanginn og frátekinn
„Mér er sagt að ég sé rómantísk-
ur og ég held það sé rétt en það
brýst aðallega út í tónlistinni hjá
mér. Ég er sjálfur ekki jafn rómant-
ískur. Sumir ganga um með þær
ranghugmyndir að halda að ég sé
alltaf rosalega ástfanginn en það er
náttúrlega ekki rétt,“ segir Amþór.
Amþór viðurkennir þó að hann
sé ástfanginn og búi með sænskri 27
ára söngkonu sem heitir Teresa
Ingemarsdottir. Þau hafa verið sam-
an í eitt og hálft ár. Amþór segir að
þau hafi ekki hugsað sér að gifta sig
og hann segist alls ekki vilja binda
sig með giftingu fyrir þrítugt þó
margir kunningjar sínir á íslandi
séu trúlofaðir á þessum aldri. Það
er ekkert skrítið þó Amþór vilji
ekki gifta sig strax því um þessar
mundir getur hann valið úr stúlk-
um í Stokkhólmi og víðar og þar er
litið á hann sem kyntákn. Stelpum-
ar snúa sér við á götu en eru of vel
upp aldar til þess að hlaupa á eftir
honum.
„Ég finn stundum fyrir því að
Teresa er eldri en ég en það háir
ekki sambandi okkar. Það getur aft-
ur á móti verið erfitt að vera í sama
bransa ef annað fær athygli á
ákveönum tíma en ekki hitt og svo
öfugt. En maður verður að hjálpast
að og hugsa vel hvort um annað. Ef
það gleymist vill allt fara í vitleysu.
Þaö er ekki alltaf gott að hafa sama
áhugamálið.“
Vikulega í sjónvarpi
„Ég finn aöeins fyrir því að vera
þekktur í bænum. Yngra fólk þekk-
ir mann, sem er auövitað eðlilegt.
Allt í einu er manni boðið út um allt
og má gera alls konar hluti. Það er
þetta sem fylgir þessu. Ég finn þó
engan mun á sjálfum mér,“ segir
Amþór.
„Það er bara gaman þegar stelp-
umar labba á eftir mér. Ég er
ánægður með að fólki finnist tón-
listin skemmtileg og vilji hlusta á
hana,“ segir Amþór.
Byriaði að semja sem
unglingur
„Ég hef verið í tónlistarskóla frá
því ég var tíu ára og ég sótti einnig
tónlistarmenntaskóla. Ég byrjaði að
semja lög þegar ég var fjórtán eða
fimmtán ára. Eitt eða tvö laganna á
nýja diskinum em frá þeim tíma en
hin hef ég samið á síðustu áram,"
segir Arnþór en hann leikur á bassa
og hijómborð.
Að sögn Amþórs er mikið af
söngfólki af Norðurlandi i ættinni
hcms en móðurbróðir hans, Sigfús
Amþórsson, starfsmaður RÚV, er
til dæmis lagasmiður.
Amþór hefúr leikið körfubolta
frá níu ára aldri en hann segir
soultónlistina fylgja körfuboltanum.
Á körfuboltamyndböndum heyrði
hann tónlistina og það kom af sjálfú
sér að hann færi að semja þessa teg-
und tónlistar.
„Ég get ekki unnið með þessa teg-
und tónlistar á íslandi því hún hef-
ur ekki náð neinum vinsældum
þar.“
Amþór spilar enn þá körfu þegar
hann hefúr tíma. Eitt aðaláhugamál
hans er veiðimennska og honum
finnst mjög gaman að veiða. Það
áhugamál getur hann einungis
sfimdað á íslandi og segir ekkert
jafnast á við það.
„Um þessar mundir leik ég mér
mikið á Intemetinu og spjalla við
fólk víða um heim. Einnig nota ég
mér það til þess að fá ýmiss konar
upplýsingar. Ég hef kynnst fólki í
Bandaríkjunum en ég hef ekki hitt
það enn þá.
Ég gef bráðlega út nýja smáskífú
og mér hefur tekist að lifa af tónlist-
inni en það er mjög gaman að mað-
ur skuli geta gert það strax. Ég vinn
talsvert mikið, ég spila með öðrum
og vinn mikið í stúdíóinu. Ég stefni
að því að halda áfram og spila um
allt land í kjölfar plötunnar. Eftir
það ætla ég að byrja á næstu plötu
sem mig langar til þess að taka upp
í New York. Ég þekki marga sem
hafa tekið upp plötur sínar þar en
það gefur víst mikinn innblástur að
búa þar,“ segir þessi ungi íslending-
ur. -em
ODSO4
1 SMÁVARA^
Oryggisljós fyrir
r heimilið
VERÐLISTI
1. Hjálmur fyrir örbylgjuofn, 28 cm. Kr. 120,-
2. Pottur, 4,3 I, steypt járn. Kr. 1.750,-
3. 2 stórir álpottar, þvermál 28 og 30 cm. Kr. 2.390,-
4 tll 7. Kökuform, teflonhúðuð, 4 gerðir. Verð frá kr. 490,- stk.
8. Steikarpanna, teflonhúðuð, 2 (setti, 22x26 cm. Kr. 1.190,-
9. Glerkrukka með korktappa. Kr. 470,-
10. LJós með skynjara, vlrka aðelns f myrkri. Verð frá kr. 2.250,-
11. Handmálað mokkakaffisett fyrlr 6. Kr. 1.220,-
12. Silfurkökudlskur, 49,5x35,5 cm. Kr. 790,-
13. Silfurkertastjakl fyrir 3 kertl. Kr. 1.690,-
14. Salt- og piparsett, sllfur. Kr. 550,-
15. Hvítar stálhillur, 5 hillur. Kr. 2.590,-
16. Sllfurmokkakaffisett. Kr. 1.820,-
17. Silfurgrind fyrir ristað brauð. Kr. 520,-
18. Silfurtertuspaðl, lengd 29 cm. Kr. 520,-
19. Silfurkökutöng, lengd 26 cm. Kr. 520,-
20. Hnffastandur með 14 hnífum og skurðbrettl. Kr. 2.580,-
21. Steikarsett. Kr. 590,-
22 tll 25. Áhaldagrlndur úr viöl. Verð frá kr. 230,-
26. Tréskurðbrettl, 36x20 cm. Kr. 620,-
27. Tréskurðbrettl, 14x28 cm. Kr. 220,-
28. Eldhúsrúllustandur úrtré. Kr. 170,-
29 tll 31. Bastkörfur f Ift. Verð frá kr. 120,-
32. Expert-Line
Hleðsluskrúfjárn og borvél í tösku, 12 v, með hleðslutæki.
5 ára reynsla á (slandi. Verð kr. 8.200,-
33. Lyklaskápur úr tré. Kr. 730,-
34. Fatasnagar úr tré, margar stærðlr. Verð frá kr. 150,-
35. Fatastandur út tré. Kr. 2.100,-
36. Skóburstunarkassi úr tré. Kr. 2.100,-
37. WC-seta úr elk með koparlömum. Kr. 2.550,-
38. WC-sett. Kr. 3.250,-
39. Þvottasnúrur, útdraganlegar. Kr. 690,-
40. Þvottaklemmukarfa með klemmum. Kr. 190,-
41. Sokkaupphengi fyrir 24 pör. Kr. 350,-
42. Plastkarfa, samanleggjanleg. Kr. 390,-
43. Skóhllla á hjólum fyrlr 6 pör. Kr. 1.720,-
44 tll 47. Vinylborðdúkar fyrir köntuð eða hrlnglaga borö. Verð frá 190,-
48. Gaskvelkjari. Kr. 290,-
49. Pitsuhnffur. Kr. 120,-
50. Sturtubarkar, lengd 150-200 cm. Verð frá kr. 760,-
51. Sturtuhausar, hvítir eða króm. Verð frá kr. 370,-
52. Sturtustangarsett, krómað. Verð frá kr. 2350,-
53. Baökarsmottur. Kr. 1070,-
54. Skrúfjárnasett, 20 stk. Kr. 1.450,-
55. Tangasett. Kr. 1.370,-
tryggi
GEYMIÐ AUGLYSINGUNA
Síðumúli 34 (Fellsmúlamegin) - sími 588 7332