Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1996, Blaðsíða 18
18
LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1996
Dagur í lífi Bessa Bjarnasonar leikara:
„Kennir fjórum trúðum
sem alltaf eru óþekkir"
Bessi Bjarnason ieikari er kennari í Trúðaskólanum sem sýnt verður í Borgarleikhúsinu. DV-mynd ÞÖK
„Ég vaknaði klukkan hálíhíu til
að fara í laugina áður en ég mætti á
æfingu klukkan tíu. Allir dagar hjá
mér byrja á að ég fer í Laugardals-
laugina, ég nærist á því allan dag-
inn að synda 300 metra. Síðan brun-
aði ég á æfingu í Borgarleikhúsinu
klukkan tíu og var á æfingu til tvö
en þá var pása fram til kvölds en þá
tók við önnur æfing.
Nú er ég að leika trúð, ég hef
aldrei gert það áður. í verkinu
stjóma ég trúðaskóla, ég er kennar-
inn og er með fjóra aðra trúða sem
eru að læra og eru alltaf óþekkir.
Þeir eru alltaf að detta og rekast á
með höfuðið. Leikritið er eftir Karl
Waechtal og Ken Campbell og Gísli
Rúnar bætti um betur og aðlagaði
fyrir íslenska áhorfendur og var
það allt til bóta. Þetta er geysilega
vandasamt og erfitt og tímafrekt og
leikstjórinn er mjög nákvæmur með
allt.
Að venju byrjaði æfingin þennan
morgun á því að það voru gefnar
nótur, þannig að það fóru kannski
tveir tímar af æftngimni í að laga
það sem fór úrskeiðis á æfingunni
kvöldið áður. Æfingin gekk mjög
vel, nú er að koma að frumsýningu
og það var svo margt að koma sem
við höfum verið að reyna að ná. í
hléinu fór ég yfir tíu blaðsíður af
nótum sem leikstjórinn var búinn
að skrifa niður sérstaklega. Ég fór
vel yfir það og svo reyndi ég bara að
hvíla mig.“
Gráta og hlæja
„Þetta leikrit er erfiðara núna en
oft áður því að maður kann ekkert
að leika trúða. Það er svo ólíkt okk-
ur íslendmgum að vera með svona
leikrit, að minnsta kosti hef ég ekki
lent í því áður og ég er búinn að
leika í 40 ár. Maður hefur leikið í
Litla Kláusi og stóra Kláusi, Kar-
demommubænum og Dýrunum í
Hálsaskógi og það er ailt öðruvísi,
bara venjuleg bamaleikrit. En þama
em ailir að detta, rekast á, hendast á
hurðir, gráta og hlæja. Það gerist
allt þarna og það er svolítið öðm-
vísi.
Á æfingunni núna voru fjórir
krakkar og svolítið af fullorðnu fólki
og vora börnin komin mjög fljótt
leikurunum til hjálpar ef þeir vora
að fela sig eða eitthvað slíkt. Maður
getur reynt að ímynda sér hvað
skeður þegar það verður fullt hús af
börnum. Þau vilja svo gjarnan taka
þátt og þá geta leikaramir reynt að
láta þau hætta þvi annars tekur sýn-
ingin aldrei enda og það gengur ekki
upp með aðra sýningu um kvöldið.
Það er matarhlé klukkan 12 og þá
foram við í mötuneytið og gleypum
í okkur. Við komumst ekki neitt þar
sem við eram í búningunum og svo
þurfum við að hlaupa til að máta
hárkollur eða eitthvað þannig að
það er alltaf eitthvað sem truflar
mann og maður er á spani allan
tímann. f hléunum reynir maður
stundum að fara í bankann og gera
ýmislegt sem þarf að gera.
Siðan er að stilla sig inn á seinni
æfinguna enda er þá ekkert gefið
eftir, þá þarf að koma með þetta allt
rétt og gera leikstjóranum til hæfis
eins og hægt er.“
Frí milli æfinganna
„Það er ekkert fiölskyldulíf hjá
leikuram, við erum að allan daginn.
Núna er ég orðinn gamall þannig að
ég tók frí þama á milli æfinga.
Hefði ég verið á fullu eins og ég var,
þá hefði ég verið að hlaupa í útvarp-
ið eða sjónvarpið, farið í gervi þar
og gert hitt og þetta milli æfinga. Þá
losnaði maður ekki allan daginn og
fyrir sýningu fór maður og tróð
upp,“ segir hinn ástsæli leikari
Bessi Bjarnason og kveðst hafa
komið heim af seinni æfingunni rétt
fyrir miðnætti.
Bessi er um sjötugt og því að
miklu leyti hættur að leika. Hann
er þó í báðum stóru leikhúsunum
núna, í „Þrek og tár“ í Þjóðleikhús-
inu og Trúðaskólanum í Borgarleik-
húsinu.
Finnur þú fimm breytingar? 382
Mér er sama hvað þú segir, Sigga, ef þú segir ekki já þá kasta ég mér
út um gluggann.
Nafn: _
Heimili:
Vinningshafar fyrir þrjú hundruð áttugustu og
fyrstu getraun reyndust vera:
Ásdls Steingrímsdóttir Friðrik Óskar Egilsson
Framnesvegi 63 Stífluseli 14
101 Reykjavík 109 Reykjavík
Myndimar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar hetur er að gáð kem-
ur í ljós að á myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt. Finnir þú
þessi fimm atriði skaltu merkja við
þau með krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt nafni þínu
og heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
SHARP vasadiskó með útvarpi, aö
verðmæti kr. 4.900, frá Bræðrunum
Ormsson, Lágmúla 8, Reykjavík.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr.
1.790. Annars vegar James Bond- bók-
in Gullauga eða Goldeneye eftir John
Gardner og hins vegar bók Luzanne
North, Fín og rík og liðin lík.
Vinningamir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 379
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík