Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1996, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1996, Side 26
26 enning LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1996 UV Ármann Jakobsson og Sverrir bróðir hans urðu eftirlæti þjóðar- innar þegar þeir sigruðu við þriðja mann í Spumingakeppni framhalds- skólanna ár eftir ár. Þeir völdu hug- vísindi að loknu stúdentsprófi; Sverrir sagnfræði og. Ármann ís- lensk fræði með bókmenntir að kjör- sviði. Á laugardaginn var útskrifaðist Ármann með eitt hæsta meistara- próf sem um getur við Háskóla ís- lands, en mesta athygli vekur að hann fékk einkunnina 10 fyrir meistaraprófsritgerð sína. Okkur lék forvitni á að kynnast svo merki- legri ritsmíð nánar og spurðum Ár- mann um hvað hún væri. Hvernig á konungur að vera? „Ritgerðin heitir 1 leit að konungi - konungsmynd íslenskra konunga- sagna, og nafnið gefur eiginlega nið- urstöðuna. Ég held að íslendingar hafi skrifað konungasögur á 12. og 13. öld vegna þess að þeir voru að leita sér að konungi. Goðaveldið var á heljarþröm, alls staðar í grann- löndunum var konungsveldi, og þeir skrifa konungasögur til að átta sig á fyrirbærinu, athuga hvort íslenskt samfélag hafl þörf fyrir það. Þó að erfitt sé að ákvarða aldur hverrar sögu nákvæmlega sýnist mér hug- myndimar verða skýrari í yngri sögum, fyrir utan Sverris sögu; hug- myndafræðin í henni er pottþétt þó að hún sé gömul.“ - - Og hvemig vilja íslendingar hafa konung? „Þeir leggja áherslu á sömu dyggðir og aðrir Evrópubúar á þess- um tíma. Það er mun fleira sem er sameiginlegt meö þessum hugmynd- um hér og úti í Evrópu en sérstakt. Höfundar flestra sagnanna eru vel inni í evrópskum hugmyndum um hvernig konungar eigi að vera. ís- lendingar vora ekki afdalaþjóð á þessum tíma, þeir tóku við nýjum hugmyndum eins og við Blur og Pulp núna. Og svo lögðu þeir heil- mikið til sjálfir, því konungasögum- ar vinna úr þessum hugmyndum, og þær eiga sér ekki nákvæma hlið- stæðu neins staðar. Svo kalla ég ritgerðina í leit að konungi vegna þess að íslendingar „Ég held að íslendingar hafi skrifaö konungasögur á 12. og 13. öld í leit að konungi. Goöaveldiö var á heljarþröm, alls staöar í grannlöndunum var konungsveldi, og þeir skrifa konungasögur til aö átta sig á fyrirbærinu, athuga hvort íslenskt samfélag hafi þörf fyrir þaö,“ segir Ármann Jakobsson. DV-mynd Pjetur viska, styrkur, stilling og réttlæti, hinar fiórar veraldlegu höfuðdyggð- ir á miðöldum, og það má skoða mikið af umfjöllun um konunga í ljósi þeirra. Það er sýnt fram á visku hins góða konungs, styrk og still- ingu, og réttlætið er allar dyggðim- ar samanlagðar; summa þeirra. Hinn fullkomni konungur hefur þær allar, en marga konunga vantar upp á dyggðirnar. Haraldur harðráði er skemmtilegur kóngur, hann er bæði vitur og sterkur en vantar svolítið upp á stiUinguna, og þar með vantar réttlætið, því hann getur ekki hamið sig nógu vel. Og Danakonungar em ekki vitrir. En í raun og vem getur enginn jarðneskur konungur verið fullkom- inn, og þeim er aldrei lýst sem al- fullkomnum. Það er aðeins konung- urinn á himnum. Hann er sá sem þeir reyna að líkjast. Ólafur helgi kemst næst því að vera fullkominn; kannski er hann hafður lítill og dig- ur til þess að hann keppi ekki við hinn hæsta í útliti. Ég skoðaði líka tengsl konungsins við landið og þegna sína og komst að því að í mörgum konungasögum em konungarnir í eins konar tómarúmi, tengjast ekki við neitt. En í Heimskringlu og Morkinskinnu, sem er uppáhaldssagan mín, em þeir sýndir í samskiptum við land og fóik.“ Fyrsta íslenska yfirlitsrannsóknin „Það sem er nýtt hjá mér er eigin- lega þrennt, og þá fyrst að ég skuli yfirleitt rannsaka konungasögur, það hafa íslendingar ekki verið dug- legir við. Seinustu fimmtíu árin hafa flestar konungasagnarannsókn- ir verið gerðar í útlöndum, og þær eru ekki margar. Svo hafa íslending- ar ekki gert heildarrannsókn á kon- ungasögum, ég verð fyrstur til þess í marga áratugi. Nokkur dæmi em um að menn hafi skoðað gömlu sög- umar saman en flestar stórar athug- anir á seinustu ámm hafa verið um eina sögu. Það þriðja er aö skoða hugmynda- heim þessara sagna, ekki rittengsl eða eitthvað slíkt. Það er skrýtið að enginn skuli hafa gert það fyrr. Mín niðurstaða er eiginlega sú að kon- Ármann Jakobsson, dúx á meistaraprófi í HÍ, skrifaði um leit íslendinga að konungi: skrifa konungasögur eingöngu á þjóðveldis- öld. Þegar þeir fá konung þá hætta þeir að skrifa þær. Eftir það em aðeins Flateyjarbók og yngri safnrit skrifuð, allar helstu konung- asögur vora skrifaðar á goðaveldisöld. í lýsingu konungsins var lögð áhersla á marga þætti. 1 fyrsta lagi þurfti kóngurinn aö bera af í útliti. Flestir em hávaxnir, og hár og augu eru mjög áberandi. Þeir áttu að hafa mikið hár - sköllóttur konungur gengur hélst ekki - og hvöss augu. Útlitið er ekki alveg samræmt, en því er alltaf lýst, og það er stað- næmst við hárið og augun, hversu sterkur hann sé og hversu hávaxinn. En það em alltaf undantekningar. Ólafur helgi er tO dæmis fyr- irmyndarkonungur þó að hann sé riðvaxinn meðalmaður samkvæmt lýsingu. Fjórar höfuðdyggðir Svo er lýst dyggðum konungsins. Þær em ungurinn sé skilgreinandi fyrir þessa tegund sagna, að það sé ekki hægt að fjalla um bók- menntategundina nema út frá fyrirbærinu konungi, og það hafði ekki verið gert hér á landi áður. En menn hafa gert það erlendis, það era heilmiklar kóngarannsóknir þar. Saxo hefur til dæmis verið skoðaður í þessu Úrval notaðra bíla á góðum kjörum! Ath! Skuldabréf til allt að 60 mánaða. Opíö: virka daga kl. 9-18 laugardaga kl. 10—17 Jafnvei engin útborgun. ____________________________. Visa/Euro greiðslur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.