Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1997, Qupperneq 24
LAUGARDAGUR 22. FEBRUAR 1997
24 *'
~k
'mlist
Islensku tónlistarverðlaunin 1997:
Byijaði á lágstemmdum nátum
- segir Jónatan Garðarsson, formaður framkvæmdastjórnar ÍTV
„íslensku tónlistarverðlaunin
hafa þá þýðingu að þau marka
árið sem er að líða. Þau eru í raun-
inni merk, söguleg heimild um
það sem er efst á baugi í tónlistar-
lifinu á hverjum tíma,“ segir Jón-
atan Garðarson, formaður fram-
kvæmdanefndar íslensku tónlist-
arverðlaunanna 1997. Þau voru af-
hent með viðhöfn í fjórða sinn síð-
astliðið fbnmtudagskvöld á Hótel
Borg og óhætt er að segja að
hljómsveitin Botnleðja hafi verið
nafn kvöldsins. Sveitin hreppti
titlanna flytjandi/hljómsveit árs-
ins, hún átti geislaplötu ársins
(Fólk er fífl) og telst eiga lag ársins
en það heitir Hausverkun. Emili-
ana Torrini var kjörin söngkona
ársins og Páll Rósinkranz er
söngvari ársins. Flestir eru senni-
lega sammála því að þessir aðilar
séu „góðir tónlistarmenn sem gera
áhugaverða og eftirminnilega
hluti.“ það eru m.a. þeir kostir
sem Jónatan telur að þeir sem
hreppi íslensku tónlistarverðlaun-
in þurfi að hafa til að bera.
Valið var erfitt
Jónatan segir að það hafi verið
afar erfítt að gera upp á milli tón-
listarmannanna i ár. „Það vafðist
dálítið fyrir fólki að velja á milli
því að gróskan er svo mikil og það
er mikið af frambærilegu listafólki
sem kom til greina.“ Þetta kom
best fram í flokknum „Geislaplata
ársins“. Þar var ekki hægt að til-
nefna fímm efstu plöturnar þannig
að menn gripu til þess ráðs að hafa
þær sjö. „Það var mjög mjótt á
mununum hjá mörgum og jafnvel
voru menn að tala um að fjölga
flokkum en það verður að fara var-
lega í slíkt, þótt ég taki ekki af-
stöðu til þess hver hefði átt að
Jónatan Garðarsson segir að íslensku tónlistarverölaunin hafi þróast mikið
á þeim fjórum árum sem þau hafa veriö veitt.
DV-mynd ÞÖK
Heppnir lesendur DV.
Fá alla diskana sem tilnefndir voru
Gífurlega góð þátttaka var með-
al lesenda DV í að velja þá sem fá
íslensku tónlistarverðlaunin 1997.
Hundruð þeirra sendu inn at-
kvæðaseðla og ríkir mikil ánægja
meðal aðstandenda keppninnar
vegna þessara góðu viðbragða. Af
þeim detta fimm i lukkupottinn og
fá þær sjö geislaplötur sem til-
nefndar voru sem besta geisla-
plata ársins.
Þau heppnu eru: Ömólfur Lár-
usson, Laufengi 152, Reykjavík;
Reykjavík; Ásthildur Ámadóttir,
Hólabraut 11, Keflavík, og Elísa-
bet Guðnadóttir, Kveldúlfsgötu 16,
Borgamesi.
Um er að ræða geislaplötumar
Seif með Páli Óskari, Mermann
með Emilíönu Torrini, Fólk er fífl
með Botnleðju, I Believe in You
með Páli Rósinkranz, Eins og er
með Stefáni Hilmarssyni, Köld
era kvennaráð og Ómissandi fólk
með KK og Magnúsi Eiríkssyni.
-JHÞ
Karl E. Kristjánsson, Bjargar-
tanga 2, Mosfellsbæ; Anna Lára
Guðfinnsdóttir, Bakkaseli 11,
hreppa titlana enda ekki með at-
kvæðisrétt. Ég er hins vegar
ánægður með hvernig tókst til
með framkvæmdina í ár.“
Jónatan bætir því reyndar við
að það sé hans skoðun að það
verði að skilja að „Flytjanda árs-
ins“ og Hljómsveit ársins." Þetta
stafi af því að „Flytjandi ársins“
sem ætti að vera einstaklingur
sem hafi skarað fram úr á ein-
hvern hátt sé ekki endilega með-
limur hljómsveitar. „Einstakling-
arnir virðast falla í skuggann af
hljómsveitum í þessum sameigin-
lega flokki," segir Jónatan.
Á leið í sjónvarpið
Hann segir að íslensku tónlist-
arverðlaunin hafi byrjað smátt.
„Þetta byrjaði sem nokkurs konar
innanfélagsmót hjá FÍH 1994. Svo
komu fulltrúar fleiri faghópa inn í
framkvæmdina. Þetta er á
stöðugri uppleið, umfangið er að
verða meira og framkvæmdin að
verða betri en við höldum áfram
að vinna að því að bæta hana.“
Hann segist finna fyrir miklum
áhuga á því hjá þeim sem hafi
helgað sig tónlist og öðrum að veg-
ur íslensku tónlistarverðlaunanna
verði sem mestur.
Að sögn Jónatans hefur það ver-
ið stefnan ffá byrjun að koma
keppninni i sjónvarp. „Fyrst verð-
ur að móta vel reglur, umgjörð og
framkvæmd keppninnar áður en
það skref verður stigið til fulls.“
Jónatan bætir þvi við að skrefið
verði líklegast stigið á næsta ári.
Mikill blómi
Hann segir að íslenskt tónlistar-
lif hafi verið með miklum blóma
og út hafi komið gríðarlega mikið
af tónlist. Allt í allt hafa komið út
um 200 geislaplötur hér á landi
undanfarið ár og af þeim eru
sennilega 130-140 með nýupptek-
inni tónlist. Breiddin í þessari út-
gáfu er afar mikil, allt frá djassi,
poppi, pönki og klassík yfir í kór-
atónlist. Hann bendir einnig á að
það sé allur gangur á því hve mik-
il vinna liggi á bak við plöturnar
og hve margir og sterkir aðilar
standi að þeim. „Stundum er um
einherjaverk að ræða þar sem
platan hefur ekki verið lengi í
smíðum en einnig er að finna plöt-
ur þar sem margir hafa unnið
lengi að þeim. Útgáfan er auðvitað
misjöfn að gæðum en það sem
stendur upp úr er að gróskan er
gríðarleg, það er óhemjumikið af
nýjum nöfnum sem hafa komið
fram að undanförnu."
Hjálpar erlendis
Jónatan telur að sennilega séu
að éiga sér stað enn ein kynslóða-
skiptin í íslensku tónlistarlifi.
„Það eru að birtast tónlistarmenn
sem eiga eftir að láta til sín taka á
nýrri öld sem er skammt undan.“
Jónatan segir að erlendir fjöl-
miðlar sýni íslensku tónlistarverð-
laununum alltaf töluverðan áhuga.
Til að mynda hafi MTV Europe-
sjónvarpsstöðin tvisvar sinnum
sent hingað sjónvarpslið til þess
að fjalla um sigurvegarana. Sú
stöð fær líka alltaf lista þar sem
sigurvegararnir eru taldir upp.
„Það má því segja að þau gegni
líka því hlutverki að benda erlend-
um fjölmiðlamönnum á hverjir
standi í fremstu röð hér á landi og
hverja sé gott að fjalla um,“ segir
Jónatan að lokum.
-JHÞ
Diskódrottningin Helga Möller og stórsöngkonan hógværa, Emilíana Torrini,
hafa báöar heillaö tónlistarglaða íslendinga. Hér afhendir Helga Emilíönu
verölaun fyrir aö vera söngkona ársins.
Steinunn Óskarsdóttir afhendir Önnu Halldórsdóttur viöurkenningu. Anna
var valin bjartasta vonin.