Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1997, Qupperneq 36
48
*
LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 1997
Ferðakynningar ferðaskrifstofanna á sunnudaginn:
Umtólf þúsund manns komu
á skrifstofuna í Lágmúla
- segir Goði Sveinsson, sölu- og markaðsstjóri Úrvals-Útsýnar
„Þaö gætir greinilega meiri bjart-
sýni hjá fólki nú, en á ferðakynn-
ingu okkar á sunnudaginn mættu
tæplega 12 þúsund manns, en það
var auövelt að telja hópinn, því að
við afhentum hverjum og einum
skafmiða," segir Goði Sveinsson,
sölu- og markaðsstjóri hjá Úrvali-
Útsýn.
Goði segir að þegar örtröðin var
mest hafi verið samfelld biðröð all-
an hringinn í kringum húsið að
Lágmúla 4 þar sem ferðaskrifstof-
an er til húsa og síðan út á bíla-
stæði. Lang mestur áhugi hafi
reynst fyrir ferðum til Portúgals og
J síðan til Mallorka, en einnig fyrir
sumarhúsadvöl í Hollandi, Dan-
mörku, dvöl í Flórída og víðar og
gengið hafi verið frá hundruðum
bókana.
Ferðaskrifstofurnar leggja mikla
áherslu á að fá fólk til að bóka sem
fyrst sumarleyfisferðir sínar og hjá
Úrvali-Útsýn nefnist opnunartil-
boðið stökkpallur. Hann gildir um
ferðir til Portúgals eða Mallorca.
Verðið er lágt en því til viðbótar fá
viðkomandi að vita 10 dögum fyrir
- brottför á hvaða hóteli þeir lenda,
sem ræðst af bókunarstöðu hótel-
anna hverju sinni. Þannig geta
stökkpallskaupendur átt von á því
að lenda inni á mjög dýru fimm
stjörnu hóteli í tvær vikur fyrir
rúmlega 40 þúsund krónur, en hins
vegar aldrei rýrara hóteli en þeim
ódýrustu sem ferðaskrifstofan
skiptir viö.
Meðal nýrra staða sem boðið
verður upp á í sumar hjá ferðaskrif-
stofunni nefnir Goði eyna Krít og
Kyrrahafsströnd Mexíkó, en tveggja
vikna ferð þangað með öllu inni-
foldu, þ.e. flugi, Fimm stjörnu gist-
ingu, öllu fæði, veitingum, sporti og
skemmtunum kostar 140 þúsund
krónur á mann.
* Útibú stóru ferðaskrifstofanna,
Samvinnuferða-Landsýnar og Úr-
vals-Útsýnar úti um land voru opin
á sunnudag og var að sögn þeirra
Helga Péturssonar hjá S-L og Goöa
Sveinssonar mjög mikil aðsókn til
þeirra á sunnudag, eins og til höfuð-
stöðvanna í Reykjavík. Þeir eru
sammála um að fólk sé almennt
miklu bjartsýnna í sambandi við
ferðalög en verið hefur undanfarin
ár.
í myndatexta í DV á mánudag
féllu niður orð, þannig að sagt var
að Goði Sveinsson væri fram-
kvæmdastjóri Úrvals-Útsýnar.
Standa átti framkvæmdastjóri sölu-
og markaðssviðs og er beðist vel-
virðingar á því.
-SÁ
%
Mikill ferðahugur sveif yfir vötnum í miöbæ Reykjavíkur og víðar um borgina og landið sl. sunnudag þegar ferða-
skrifstofurnar kynntu sumaráætlanir sínar. Starfsmenn ferðaskrifstofanna brugðu sér í allra kvikinda líki í tilefni
dagsins og hér er einn þeirra að skemmta litlum dreng fyrir utan höfuöstöðvar Samvinnuferða-Landsýnar í Austur-
stræti. Sá litli virðist þó ekki vita almennilega hvaðan á sig stendur veðrið í atganginum. DV-mynd Hilmar Þór.
Ferðast að vetri um Suðurland
DV, Suðuriandi:___________________
„Þetta eru fræ sem við erum að
sá og við uppskerum voncindi á
næstu árum,“ sögðu nokkrir að-
standendur átaks sem ferðaþjón-
ustuaðilar á Suðurlandi hafa efnt
til meö það að markmiði að auka
ferðamannastraum á svæðið yfir
vetrartímann.
Þótt flestir ferðamenn heimsæki
Suðurland árlega telja þessir aðil-
ar að enn megi auka nýtingu á
þeirri uppbyggingu sem lagt hefur
verið í og horfa þar til vetrartím-
ans. Meðal þess sem boðið er upp á
eru jeppaferðir, heimsóknir í
ferðamannafjós, ferðir á Skeiðarár-
sand og skoðunarferðir í elsta bæj-
arfélag landsins, Eyrarbakka.
Fyrst í stað er boðið upp á gistingu
og ferðir bæði frá Selfossi og Vík í
Mýrdal. Ferðaskrifstofumar Suð-
urgarður og Háland-grænn ís á Sel-
fossi hafa tekið að sér að skipu-
leggja ferðir fyrir einstaklinga og
hópa á þessum vannýtta tíma sem
jafnframt getur verið töfrandi og
skemmtilegur.
-JÞ
Skálaö í mjólk á hlööubarnum í ferðamannafjósinu á Laugarbökkum í Ölfusi. Frá vinstri eru Kristinn Bergsson, sem
er með jeppaferöaútgerö, Anna Árnadóttir frá Suðurgarði, Svanur Gísli Þorkelsson frá Háland-green ice, Guðmund-
ur Þorvaldsson, starfsmaður ferðamannafjóssins, og Siguröur Jónsson, yfirmaður feröaþjónustu KÁ. DV-mynd jþ
Fleiri bókanir
Færeyjar berjast hart fyrir
þvi að auka ferðamannastraum-
inn til eyjanna og útlitið er
bjart í ár. Bókanir í ferðir til
Færeyja í sumar hafa aldrei
verið fleiri þótt skammt sé liðið
á þetta ár. Færeyingar héldu
nýverið ferðaráðstefnu í Kaup-
mannahöfn og 43.000 manns
mættu til að kynna sér það sem
Færeyingar hafa upp á að
bjóða.
Kirkjubær lagfærður
Eitthvert þekktasta mann-
virki í Færeyjum er kirkjubær
sem byggður var á 13. öld, en
hann hefur mikið aðdráttarafl
• ‘Um
fyrir ferðamenn. Hann þarfnast
lagfæringar og eyjaskeggjar sjá
loks fram á að fé fáist í þær lag-
færingar á árinu. Stólar, sem
notaðir voru í kirkjunni frá og
með 14. öld en fluttir til Dan-
merkur á 19. öld, veröa senni-
lega fluttir heim til Færeyja og
settir upp í kirkjunni á ný.
Tónlistarhátíð
Færeyingar ætla að halda
djass- og blúshátíð i Þórshöfn
dagana 15.-18. október næst-
komandi. Tónleikar verða bæði
haldnir utan- og innanhúss og
um 25 hljómsveitir verða á há-
tíðinni.
Færeyingar eru langt komnir
með þróun í farsímamálum og
varla finnst sá blettur á eyjun-
um þar sem ekki er hægt að ná
sambandi við mann í gegnum
farsíma.
Fjárhagsvandræði
Tretyatov Gallery-safnið í
Moskvu, sem er það stærsta
sinnar tegundar sem sýnir rúss-
nesk listaverk, er nánast gjald-
þrota og hugsanlegt er að loka
verði safninu af þeim sökum.
Stjóm safnsins getur ekki greitt
rafmagnsreikning vegna skertra
styrkja frá hinu opinbera í land-
inu. Hugsanleg skammtímala-
usn á vandanum er sú að hafa
ljósin slökkt í sýningarsölum
þegar fólk er ekki inni í þeim.
Fyrir því eru fordæmi í öðram
söfnum í Rússlandi sem eiga í
sömu erfiðleikum.
Mannskæð snjóflóð
Snjóflóð urðu fimm manns aö
aldurtila í svissnesku öipunum
um síöustu helgi. Fimm manns
létu einnig lífið í snjóflóðum
um helgina í frönsku ölpunum
og Pýreneafjöllum.
Skemmdarverk
Baska
Ferðamenn sem leggja leið
sína á slóðir Baskahéraðanna á
Spáni eru varaðir við hryðju-
verkum ETA-samtaka Baska og
beðnir um að vera á verði gegn
öllu grunsamlegu athæfi. ETA-
samtökin, sem berjast fyrir
sjálfstæði Baskaliéraðanna, til-
kynntu nýverið að þau ætluðu
að endumýja kraftinn í hryðju-
verkum sínum gagnvart ferða-
mönnum tfl að leggja áherslu á
kröfur sínar. í síðasta mánuði
voru 5 sprengjur ETA- samtak-
anna gerðar skaðlausar í Ma-
dríd, sem ætlað var að skaða
ferðamenn.