Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1997, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1997, Page 20
20 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1997 T">"\7" fréttir □upplýstir skipskaðar við íslandsstrendur: Sleifarlag við rannsóknir sjóslysa Skipskaðinn þegar kúfiskskipið Öðufell ÞH fórst skammt frá Langa- nesi á þriðjudagskvöld hefúr vakið á ný upp spumingar um þá stöðu sem uppi er þegar litið er til öryggismála sjómanna og árangurs af rannsóknum sjóslysa. Margir hafa oröið til þess að gagnrýna rannsóknir þessara mála sem sagðar eru í mesta ólestri þegar um er að ræða stærri mál. Þrátt fyrir góðan vilja einstakra nefndarmanna í sjóslysanefnd til að vinna vel virðist svo sem nefndin ráði ekki við þau við- fangsefhi sem inn á borð hennar koma. Þannig er itrekað um að ræða mál sem afgreidd eru án þess að nið- urstaða sé viðunandi. Það má segja nefndinni til vorkunnar að hún hefur aðeins 7 milljónir króna á ári til ráð- stöfunar til þess að rannsaka öll mál, stór og smá. Sláandi dæmi Á þessari stundu liggja fjrir tvö skýr dæmi um skipskaöa við íslands- strendur þar sem sjóslysanefnd hefur engar skýringar getað gefið fremur en þeir skipveijar sem komust af. Fyrst ber að telja eina skuttogarann sem sokkið hefur við ísland. Krossnes SH fórst í ágætu veðri á Halamiðum í febrúar 1992 með ------------------- þeim afleiðingum að fjórir menn úr áhöfninni fórust en níu manns var bjarg- að. Engin skýring er til á því af hveiju skipið fór niður á ör- skammri stundu en giskað er á að _____________________ skrokkur þess hafi opnast og það þannig fyllst af sjó. Sé það rétt er ljóst að skoðun þáverandi Siglingamálastofnunar hefur verið mjög ábótavant. Engin leið var talin til að skoða skipið á svo miklu dýpi en það liggur á rúmlega 300 metrum. Æsumálið er enn óupplýst þrátt fyrir að lagt hafi verið í kostnað sem nemur 20 til 30 milljónum króna. Skipsflakið, sem liggur á aðeins 76 metra dýpi í Amarfírði, hefur enn að geyma öll þau svör sem nauðsynlegt hefur verið að fá til að varpa ljósi á ástæður mannskaðans sem varð á sól- björtum júlídegi fyrir rétt tæpu ári. Stjómvöld hafa lagt í gifurlegan kostnað við rannsókn þess slyss og leit að líkum skipveija með þeim ár- angri einum að lík skipstjórans fannst. Barátta Kolbrúnar Sverris- dóttur, ekkju skipstjórans, hefur vak- ið þjóðarathygli en hún hefur krafist skýrra svara um það hvað hafl gerst. Rúmum níu mánuðum eftir slysið var breskt köfúnargengi fengið til lands- ins til að kafa niður í skipið en sá leið- angur hefur engu skilað í þágu rann- sóknarinnar Eftir stendur reikningur sem í heildina er vart undir 25 millj- ónum króna. Þetta er á bilinu 8 til 10 milljónum meira en islenska fyrir- tækið Djúpmynd vildi fá fyrir að taka skipið á þurrt. Það bendir því allt til þess að málið sé eitt allsheijarklúður. Þriðja og nýjasta dæmið um sjóslys er þegar Öðufellinu hvolfdi skyndi- lega á heimleið úr veiðiferð. Skipið, sem stundaði kúfiskveiðar eins og Æsa, var talið traust sjóskip og skip- skaðinn kom áhöfn og öðram því í opna skjöldu. Öll þessi sjóslys eiga það sameiginlegt að skipin hafa farist við kjöraðstæður og sokkið á örfáum mínútum. Sú staðreynd að áhöfn Öðu- fells slapp með skrekkinn snýst ekki um annað en heppni og þeirra eigið þrek. Sleifarlag „Stefnumörkunin er í rúst. Það er sleifarlag ráðandi alls staðar þegur kemur að rannsóknum á sjóslysum. Það er miklu markvissari rannsóknir þegar um er að ræða flugslys. Það er í raun óveijandi fyrir þjóð sem bygg- ir svo mikið á siglingum og sjó- Innlent fréttaljós á laugardegi Reynir Traustason mennsku að hafa ekki þessa hluti í lagi,“ segir áhrifamaður innan sjó- mannasamtakanna. Kristján Pálsson alþingismaður, sem hefur staðið í fremstu röð þeirra alþingismanna sem vilja efla sjóslys- arannsóknir og fyr- irbyggjandi þætti, tekur í sama streng. „Það hefur alltaf verið mín skoðun að ekki eigi að spara fé til rannsókna sjó- slysa. í mínum huga er eina leiðin til að fækka sjóslysum sú að upplýsa um or- sakir. Það þurfa að vera ákvæði í tryggingaskilmálum sem gera útgerð- um skilt að ná upp skipum af hafs- botni, sé þess nokkur kostur,“ segir Kristján. Kjartan Hauksson kafari segir fyrirtæki sitt, Sjóverk ehf., geta náö Oöufelli af hafsbotni. Öðufellið liggur á um 140 metra dýpi en Æsa á 70. Fyrirtækið á von á köfunarútbúnaöi sem gerir kleift að kafa niöur á allt að 200 metra. Þá segir hann mögulegt að vera niöri í allt aö 8 klukkustundir í senn. Bresku kafararnir sem köfuðu í Æsu gátu veriö hámark 20 mínútur í kafi í senn. DV-mynd JAK Flugslys rannsökuð „Þó svo menn hafi sýnt elju við að upplýsa flugslys og í engu til sparað þá er eins og sjómennskan hafi ekki náð sama vægi þar sem leitað er ástæðna. Ég hef fulla trú á því að menn hafl séð sig um hönd eftir Æsu- málið og trúi ekki öðru en ráðuneytið fari nú á fúllt að rannsaka málið og ná skipinu upp. Það er grundvallarat- riði við rannsókn málsins,“ segir Kristján. Sá Ööufell örlagadaginn Það er einkennileg tilviljun að dag- inn sem Öðufell fórst var Kristján á ferðalagi í Bakkafirði og sá þá Öðufell Frá blindköfun bresku kafaranna niður aö flaki Æsu. DV-mynd Hiimar Þór reiðu. í þessu felst meðal annars að hér verður köfunarkúla ásamt af- þrýstiklefa. Þetta er búnaður sem er mun fúllkomnari og öruggari en sá búnaður sem notaður var við köfún Bretanna í Æsu. Við erum þegar bún- ir að festa okkur þennan búnað er- lendis og ég fer á næstunni til að ganga frá kaupum á honum. Þar með erum við í stakk búnir til að kafa nið- ur á allt að 200 metra dýpi. Þá gerir búnaðurinn okkur kleift að dvelja neðansjávar samfleytt i allt að 8 klukkustundir í senn. Hefði þessi búnaður verið til staðar þegar kafað var í Æsu þá hefði mátt ljúka köfun- arþættinum á einum degi i stað þeirra 5 til 6 köfunardaga sem fóm i þetta. Það er gífurlega áríðandi að nýta sem best þá fáu góðviðrisdaga þegar hægt er að kafa á opnu hafi,“ segir Kjartan. Ákvörðun strax Kjartan segir að nauðsynlegt sé að hafa ákveðinn fyrirvara verði tekin ákvörðun um að ná upp flaki Öðu- fehs. „Það er sennilegt að við þyrftum mánuð í undirbúning að sjálfú verk- inu. Þá má ætla að annan mánuð þurfi í að vinna verkið. Það leikur enginn vafi á því að hægt er að ná skipinu upp,“ segir Kjartan sem stað- ið hefur að björgun flestra þeirra skipa sem tekin hafa verið upp síð- ustu ár. Alls hefúr hann náð upp níu skipum fyrir tryggingafélög, allt niður á 60 metra dýpi. Stærsta skipið sem hann hefur sótt var 90 tonna stálbátur sem er lítið minna skip en Æsan. Fyr- irtæki Kjartans ræður yfir pramma og spilbúnaði auk alls annars búnað- ar sem þarf til að ná skipum. Líkleit Hann segir köfúnina í Æsu litlu hafa skilað í þágu rannsóknarinnar. „Það fór megnið af orkunni i leit að líkunum. Rannsóknarþátturinn varð því minni en efni stóðu til,“ segir að veiðum. „Þetta var örfáum klukkustundum áður en skipið fórst. Ég var einmitt að horfa á þennan háa gálga sem gnæfði yfir allt,“ segir hann. Hægt að ná Æsu Kjartan Hauksson, kafari og eig- andi köfunarfyrirtækisins Sjóverks ehf., segir mögulegt að ná upp hvort sem er flaki Æsu eða Öðufells. Hann segir að þrátt fyrir að Öðufell liggi á helmingi meira dýpi en Æsa, eða 140 metrum, sé gerlegt að ná skipinu upp. „Fyrirtæki mitt var í samstarfi við bresku kafarana vegna Æsumálsins. Það hefur verið ákveðið að við verð- um með búnað til djúpköfunar hér til ■ ■ ■ 21. febrúar 1992 Togarinn Krossnes SH lagðist á hliðina á Hala- miðum og sökk á örfá- um mínútum. Fjórir ‘ menn fórust : en mu *r -w komust af. 25. júlí 1996 Kúfiskbáturinn Æsa ÍS lagðist á hliðina og sökk á örfáum mínútum. Tveir menn fórust en fjór- ir komust af. 1. júlí 1997 Kúfiskbátnum Öðufelli ÞH hvolfdi skyndilega á beinni siglingu suður af Langanesi. Þrír skipverjar komust af við illan leik. Kjartan sem aðspurður segir að alltaf hafi verið mögulegt að ná Æsunni upp. Kjartan segir slæmt að biða með ákvarðanir um að rannsaka skip á hafsbotni, hvort sem um er að ræða að ná þeim upp eða rannsaka þau á staðnum „Það safnast mikil druila á og í skipin sem gerir okkur mjög erfitt fyr- ir. Því fýrr sem teknar era ákvarðan- ir um það hvað gera skal því auðveld- ara og ódýrara er að takast á við verk- efnin,“ segir hann og nefiidi að það sem stóð mest í vegi fyrir bresku köf- urunum hafi verið drulla sem þyrlað- ist upp og huldi mönnum sýn. Blindköfun Kjartan vildi ekki gefa upp hver kostnaður væri við að ná Öðufellinu af hafsbotni. DV hefur þó heimildir fyrir þvi að þar sé um að ræða tölu öðrum hvorum megin við 25 milljónir króna eða sömu upphæð og blindköf- un bresku kafaranna og aðrar rann- sóknir á Æsuslysinu hafa þegar kost- að. Það er sama hvemig litið er á mál- in, rannsóknir sjóslysa á íslandi eru gersamlega ófúllnægjandi. Þrátt fyrir góðan vilja einstaklinga innan sjó- slysanefndar er lítill árangur sjáan- legur af starfi hennar. Margir hafa orðið til að gagnrýna framkvæmda- stjóra nefndarinnar sem þeir segja ekki valda starfinu. Þar hefúr verið bent á yfirheyrslur vegna Æsuslyss- ins en í sjóprófum kemur skýrt fram hversu pirrað áhöfiiin var á spuming- um framkvæmdastjórans. Þannig fengust svör við spumingum um halla skipsins á einhverjum tíma- punkti á þann hátt að einn skipverj- inn sagðist ekki hafa verið með halla- mál á sér. Eftir að DV benti á hversu takmarkaðar yfirheyrslumar hefðu verið þar sem ekki var talað við menn sem gjörþekktu Æsu verður að segja sjóslysanefnd til hróss að þá tók nefhdin við sér og boðaði fyrrverandi skipstjóra og vélstjóra til yfirheyrslu. Þeim yfirheyrslum lauk örfáum dög- um áður en Öðufellið fórst. Óánægðir nefndarmenn DV hefur heimildir fyrir því að sumir núverandi og fyrrverandi nefndarmanna séu mjög ósáttir við framkvæmdastjómina og telji rann- sóknir oft byggðar á lítt ígranduðum ályktimum fremur en ítarlegum al- hliða rannsóknum. Hvað varðar klúðrið í kringum rannsókn Æsu- málsins þá er vitað að sjóslysanefnd vildi láta taka skipiö á þurrt og rann- saka þannig hvað gerst hefði. Þar stóð samgönguráðherra í vegi þótt hann heimilaði síðar fjárútlát til breska leiðangursins. Áhugasvið ráðherra Hvaða ástæður hann hafði til þess skal ósagt látið en einn heimildar- manna DV segir áhugamál ráðherr- ans ekki liggja á þessu sviði sam- göngumálanna. Hans áhugasvið séu fyrst og fremst samgöngur á landi og í lofti. Það sé því fyrst og fremst þekk- ingarskortur og slæmir ráðgjafar sem valdi því í hvaða farveg málið hafi I farið. Ýmislegt bendir til þess að ástæður þeirra þriggja sjóslysa sem hér hafa verið nefiid megi rekja til ófullkom- inna vinnubragða Siglingastoftiunar við eftirlit eða stöðugleikamælingar. Þá má vera ljóst að bæði Æsa og Öðu- fell voru með stöðugleika sem ekki I stóðst hámarkskröfur, hvað sem gögn > sýndu. Úr þessu fæst þó varla skorið § endanlega nema lyfta skipunum af hafsbotni og mæla að nýju við allar hugsanlegar aðstæður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.