Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1998, Side 60

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1998, Side 60
Fjórfaldur i. vinningur jjyrír kl.2o:2o cTTWíl^urtltiy FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið I hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Eldur í Breka VE: Áhöfnin í mikilli hættu „Þaö er alveg ljóst að áhöfnin var ■í mikiUi hættu. Ef skipverjar hefðu ekki náð tökum á eldinum strax hefði getað farið mjög illa. Þeir náðu hins vegar fljótt að kæfa eld- inn með því að loka vélarrýminu. Þeir telja að olíurör hafi farið í sundur, olían spýst á vélina og þannig kviknað í,“ segir Kristján Helgason, skipstjóri á Sigli SI, sem kom fyrstur til hjálpar þegar eldur kom upp í Breka VE í gærmorgun. Óhappið varð um 120 sjómílur suð- vestur af Reykjanesi. Skipið sendi út neyðarkall klukk- an 9.50 í gærmorgun. Þá voru skip og þyrlur sendar til aðstoðar. 25 mínútum síðar tilkynnti skipstjóri Breka að áhöfnin hefði slökkt eld- inn. Hann kom upp í vélarrými skipsins og var mikill reykur um borð. 17 manna áhöfn skipsins slapp öll ómeidd. í gærkvöld var Siglir að draga Breka til hafnar. -RR Flutt fyrir Georg: Tæplega aðgerðir í kjölfar fréttar DV í gær um ein- kennisklædda lögreglumenn sem stóðu í búslóðarflutn- jngum fyrir settan lögreglustjóra, Georg Kr. Lárusson, hefúr heyrst að hann hafi boðist til að láta færa sig í embætti í kjöl- far málsins. Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra veit ekki til þess. „Slíkt erindi hefur ekki komið til min,“ segir hann. Aðspurður hvort hann teldi ástæðu til aðgerða af hálfu ráðuneytisins sagði hann: „Nei, það efast ég um. Ég get bara ekkert um það sagt.“ -sf Þorsteinn Páisson. Bílheimar ehf S. 525 9000 FÆCiT bA SENPI3ÍLL MBÐ SLÁUM LJÓSUM? Heimsókn forseta íslands til Lettlands lauk í gær. Hér má sjá forsetann í þjóðlegum dansi Letta ásamt Halldóri Ásgrímssyni utanrikisráðherra. Forsetahjón- in halda áleiðis til Litháen í dag. DV-mynd GTK Stórfelld brot á skatta- lögum og fjárdráttur Eiríkur B. Böðvarsson fram- kvæmdastjóri hefur verið dæmdur í níu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir stórfelld brot á skattalögum, fjárdrátt og skilasvik. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Vest- fjarða. Ákærði framdi brot sín í rekstri Niðursuðuverksmiðjunnar hf. á ísafirði, sem úrskurðuð var gjald- þrota í október 1992. Þá framdi hann einnig brot í rekstri Útgerð- arfélagsins Iðunnar ehf. á ísafirði, sem úrskurðað var gjaldþrota í október 1996. Ákærði er dæmdur fyrir fjárdrátt, með því að hafa sem framkvæmdastjóri Niðursuðuverk- smiðjunnar, á árunum 1990 og 1991, dregið félaginu og notað í rekstur þess fé sem haldið hafði verið eftir við útborgun launa til starfsmanna til greiðslu þeirra til lífeyrissjóða. Um er að ræða samtals rúmlega 2,7 milljónir króna. Þá er ákærði dæmdur fyrir tugmilljóna skila- svik. Ákærði skuldum vafinn í niðurstöðu dómsins segir að ákærði lagði sitt af mörkum til að brot hans yrðu upplýst. Einnig gerði ákærði sér far um að bæta úr skaðlegum afleiðingum brotanna, m.a. með margra milljóna króna greiðslum eftir gjaldþrot Niður- suðuverksmiðjunnar. Það er vegna ábyrgða, sem ákærði hafði tekist á hendur fyrir hlutafélagið, og skila á vangoldnum vörslusköttum tengdum rekstri Útgerðarfélagsins Iðunnar eftir gjaldþrot þess. Loks lítur dómurinn á það að ákærði er enn í dag skuldum vafinn vegna framangreindra ábyrgða. Ákærði er dæmdur í níu mán- aða skilorðsbundið fangelsi. í dómsorðum segir að fresta skuli fullnustu refsingar og hún niður falla að tveimur árum liðnum frá dómsbirtingu haldi ákærði al- mennt skilorð almennra hegning- arlaga. Ákærði skal greiða allan sakarkostnað, þar með talin sak- sóknarlaun 100 þúsund krónur og málsvamarlaun 150 þúsund. Jónas Jóhannsson héraðsdómari kvað upp dóminn. -RR Móðirin fær drengina Dómur í undirrétti í bænum Skive í Danmörku úrskurðaði í gær að islensk móðir fengi tvo syni sína, 3ja og 7 ára, afhenta. Drengimir hafa verið í Dan- mörku hjá föður sínum sem einnig er íslenskur. Faðirinn fór með drengina úr landi 3. mars sl. án samþykkis móðurinnar. „Það hefúr náðst dómsátt í málinu. Foreldrarnir hafa báðir forsjá yfir börnunum. Þetta mál fjallar eingöngu um afhendingu á böraunum. Faðirinn fór með bömin ólöglega úr landi. Móðirin má sækja bömin nk. föstudag. Hún er undirbúa för sina til Dan- mörku til að ná í börnin og koma með þau aftur heim til íslands. Þetta mál hefúr tekið óratíma í danska dómskerfinu," segir Ósk- ar Thorarensen, lögmaður móð- urinnar. -RR Veðrið á morgun: Veður á mánudag: Hæg vestlæg átt Á morgun er spáð fremur hægri vestlægri átt. Sums staðar verða skúr- ir vestan til en viða léttskýjað á Suðaustur- og Austurlandi. Hiti verður 6 til 15 stig, hlýjast suðaustanlands. Hlýjast sunnan til Spáin á mánudag er hæg norðlæg átt. Yfirleitt verður léttskýjað en hætt við síðdegisskúrum. Hiti verður 4 til 14 stig, hlýjast sunnan til. Veðrið í dag er á bls. 65.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.