Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1998, Blaðsíða 59
LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1998
71
Umferðar-
átak
lögreglu
Dagana 20. til 27. október nk.
munu lögreglulið á Suðvestur-
landi gangast fyrir umferðar-
átaki. Að þessu sinni munu
lögregluliðin beina athygli
sinni að akstri við gatnamót,
notkun stefnuljósa, Jjósabúnaöi
ökutækja, gangandi vegfarend-
um og notkun endurskins-
merkja.
„Nú þegar hausta tekur er
mikilvægara en nokkru sinni
að hafa ljósabúnað ökutækja í
góðu lagi. Þvi eru ökumenn
hvattir til að sjá til þess að svo
sé og eins eru gangandi vegfar-
endur hvattir til aö nota endur-
skinsmerki. Þá mun lögregla
fylgjast sérstaklega með því
hvernig réttur gangandi veg-
farenda er virtur," segir Karl
Steinar Valsson aðstoðaryfir-
lögregluþjónn.
-RR
Strandasýsla:
Vaxandi framkvæmdir til sveita
DV, Hólmavík:______________________
Eftir mikla deyfð og nánast kyrr-
stöðu í allmörg ár hafa framkvæmd-
ir i húsbyggingum hafist á ný í
sveitum Strandasýslu. Einkum hafa
það verið byggingar útihúsa - þó
hafa íbúðarhús einnig verið byggð
hin síðustu ár.
Á þessu sumri hafa veriö byggð
fjárhús á þremur jörðum auk einn-
ar vélageymslu. í öllum tilvikum
hafa hinar nýju fjárhúsbyggingar
komið til viðbótar sams konar bygg-
ingum sem fyrir voru á jörðunum.
Að sögn Brynjólfs Sæmundsson-
ar héraðsráðunautar mun viðbótar-
rýmið fyrst og fremst vera hugsað
til að skapa aukin þægindi við hirð-
inguna og betri búnaður verður til
að nýta húsdýraáburðinn en verið
hefur. Greinilega megi þó merkja að
nokkrir bændur séu í fjölgunarhug-
leiðingum og eigi margir til þess
rými í byggingum sem fyrir eru á
jörðunum.
Sauðfé er að fjölga í sýslunni. Því
hefur fjölgað á milli áranna 1996 og
1997 um 500 fjár og fátt bendir til
annars en að sú þróun haldi áfram
við heldur batnandi aðstæður. -GF
Nýtt fjárhús á Felli í Broddaneshreppi í byggínguen það tekur um 200 fjár. Mennirnir á myndinni eru Magnús Sig-
urðsson bóndi og Guðjón Magnússon smiður. DV-mynd Guðfinnur
Jafnréttisráð veitti í fyrradag árlega vjðurkenningu fyrir framtak til jafnréttismála. Að þessu sinni var það Reykjavík-
urborg sem hlaut viðurkenninguna. Á myndinni er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri með staðfestingu þess
að borgin skari fram úr í jafnréttismálum. DV-mynd Pjetur
Bridgefálag
A fimmtudagskvöldum er alltaf spil-
aður eins kvölds tvímenningur hjá
Bridgefélagi Breiðfirðinga. Eftirtal-
in pör náðu hæsta skorinu fimmtu-
dagskvöldið 22. október:
Guðlaugur Sveinsson-
Lárus Hermannsson 106
Gunniaugur Karlsson-
Ásmundur Örnólfsson 98
Ólöf H. Þorsteinsdóttir-
Sveinn R. Eiríksson 84
Kristinn Kristinsson-
Vilhjálmur Sigurðsson jr. 83
Sigurjón Sigurðsson-
Alfreð Kristjánsson 81
Hl hamingju með afmælið 25. október
95 ára
Sigmar Benediktsson, Breiðabliki, Svalbarðsstrandai'hreppi.
85 ára
Lýður Brynjólfsson, Heiðarvegi 59, Vestm.eyjum.
80 ára
Björndís Þórunn Bjarnadóttir, Hjallaseli 55, Reykjavík.
70 ára
Ásgeir Pálsson, Flúðaseli 52, Reykjavík. Ástríður Elin Björnsdóttir, Sporðagrunni 11, Reykjavík. Eiríkur Eyjörð Jónsson, Grenivöllum 16, Akureyri. Sigríður L. Bergmann Ránargötu 26, Reykjavík. Sverrir Ólafsson, Aðalstræti 112A, Patreksfirði.
60 ára
Anna Björk Guðbjömsdóttir, Háahvammi 7, Hafnai-firði. Heba Guðmundsdóttir, Hagamel 8, Reykjavík. María Luisa Gíslason, Bauganesi 39, Reykjavík. Þórarinn Björn Gunnarsson, Hraunbæ 116, Reykjavík.
50 ára
Álfheiður Friðþjófsdóttir, Bylgjubyggð 10, Ólafsfirði. Erling Ragnarsson, írabakka 22, Reykjavík. Ósk Maren Guðlaugsdóttir, Hjallavegi 62, Reykjavík. Reynir P. Ingv' oson, Undirhlíð 6, Selfossi. Sigríður B. Guðmundsdóttir, Sunnubraut 21, Búðardal. Sæmundur Jónsson, Lækjarbraut 14, Laugarvatni. Valgerður Marinósdóttir, Malarási 5, Reykjavík.
40 ára
Anna Þórný Annesdóttir, Álfabergi 6, Hafnarfirði. Árai Þorgilsson, Tjamarlundi 11 C, Akureyri. Ásgeir Friðgeirsson, Bergstaðastræti 6, Reykjavík. Baldvin Valdemarsson, Hindarlundi 1, Akureyri. Nicholas Anthony Cathcart, Vallarási 5, Reykjavík. Vilhelm Páll Pálsson, Víðigrund 6, Sauðárkróki.
7/////////////////////Í
staðgreiðslu- og greiðslu
Smaauglysingar
550 5000