Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1999, Síða 6
wammmmmmmmmsm
6
LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 1999 1*>V
átlönd
stuttar fréttir
Útlendingar kosta sitt
Útlendingar kosta hiö opinbera
í Danmörku rétt rúma eitt hund-
rað milljarða íslenskra króna á
ári og sú tala á eftir að hækka
um hálfan annan milljarð á ári.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
danska innanríkisráðuneytisins
um útgjöld vegna útlendinga og
flóttamanna sem ekki hafa
danskan borgararétt.
Jospin ræðir Korsíku
Lionel Jospin, forsætisráð-
herra Frakklands, hefur boöað
þingmenn frá
Korsíku, þar á
meðal þjóðem-
issinna, til
fundar við sig
13. desember.
Þar á að ræða
þær ógöngur
sem stjórn-
málalíf á eyjunni er komið í
vegna herskárra sjálfstæðis-
sinna sem hafa lengi staðið fyrir
ýmsum ofbeldisverkum. Þetta
verður í fyrsta sinn sem þjóðem-
issinnar hafa verið boðaðir til
fundar í forsætisráðuneytinu.
Sex fundnir látnir
Sex hafa fundist látnir í rúst-
um fjölbýlishússins í WOhelms-
burg í Austurríki sem hrundi til
grunna i gassprengingu í fyrra-
kvöld. Þriggja er enn saknað og
hafa björgunarmenn gefið upp
alla von um að finna þá á lífi
undir rústunum.
Frakkar flokka sorp
Sífellt fleiri frönsk heimili
flokka nú sorpið sem til fellur.
Samkvæmt nýrri könnun sögð-
ust 64 prósent heimila hafa sett
gier tii hliðar i fyrra, 36 prósent
gömul blöð og 24 prósent notaðar
rafhlöður.
Biðja guð um rigningu
Sýrlendingar flykktust í bæna-
hús landsins í gær til að biðja
æðri máttarvöld um rigningu.
Sýrlendingar hafa orðið fyrir
þungum búsifjum á árinu vegna
gríðarlegra þurrka.
Úsbekar kjósa
Þingkosningar verða í Ús-
bekistan á morgun. Stjómmála-
skýrendur segja að þær muni
tæplega verða til þess að efla
tengsl þessa fjölmennasta fyrrum
Sovétlýðveldis í Mið-Asíu viö
umheiminn.
Heimsendamenn teknir
Gríska lögreglan handtók í
gær sextán félaga í heimsenda-
sértrúarsöfnuði sem gmnaður er
um að ætla að fremja ofbeldis-
verk um áramótin til aö flýta fyr-
ir endurkomu Krists.
Færri þorskar úr sjó
Þorskveiðikvótar í Norðursjó á
næsta ári verða mun minni en
þeir vom á árinu sem er að líða,
eða 81 þúsund tonn á móti rúm-
lega 130 þúsund tonnum. Alþjóða-
hafrannsóknarráðið lagði til að
kvótinn yrði minnkaður.
Schröder skammar
Gerhard Schröder Þýska-
landskanslari gagnrýndi bresk
stjómvöld í gær
fyrir að skaða
Evrópusamband-
ið með óbilgimi
sinni í samn-
ingaviðræðum
um skattamál.
Kanslarinn not-
aði tækifærið og
ítrekaði í ræðu í þýska þinginu
hversu gott sambandið við
Frakka væri.
Nálgast Grozní
Rússneskar hersveitir komust
skrefinu nær því að umkringja
Grozní, höfuðborg Tsjetsjeníu, í
gær þegar þær lögðu undir sig
nágrannaborgina Argún. And-
spyma uppreisnarmanna
múslíma í lýðveldinu gegn sókn
Rússa hefur farið vaxandi að
undanfomu.
Fjórtán mánaöa vopnahléi baskneskra skæruliða lokið:
Þúsundir gegn of-
beldisverkum ETA
Spánverjar flykktust í þúsunda-
tali út á götur borga og bæja í gær
til að lýsa yfir andúð sinni á því að
basknesku skæruliðasamtökin ETA
skyldu hafa bundið enda á fjórtán
mánaða vopnahlé sitt.
Mótmælendur um aUan Spán
virtu fimm mínútna þögn til að mót-
mæla áformum ETA um að hefja á
ný vopnaða baráttu fyrir sjálfstæði
Baskalands.
Lögreglan var alls staðar með
mikinn viðbúnað og Spánverjar
höfðu þungar áhyggjur af því hvar
skæruliðar myndi láta til skarar
skríða fyrst.
Ríkisstjóm mið- og hægriflokk-
anna hvatti landsmenn tU að sýna
stiUingu. Stjórnvöld sögðu lögregl-
una tUbúna tU að svara ETA-liðum
í sömu mynt ef þeir létu verða af
því að gera árásir.
Mariano Rajoy menntamálaráð-
herra sakaði ETA um vopnaða fjár-
búar San Sebastian f Baskalandi
Spánar fjölmenntu á mótmælafundi
gegn ofbeldisverkum skæruliða.
kúgun. „Spánverjar munu aldrei
sætta sig við það sem ETA er að
reyna að þvinga upp á þá,“ sagði
ráðherrann í viðtali við spænska
ríkisútvarpið.
Skæruliðar ETA kenna stjórn-
völdum um að hvorki hefur gengið
né rekið í friðarumleitunum.
„Vopnahléinu er lokið. Enn einu
sinni búum við við ógnir hryðju-
verkamanna," var tilkynnt í
spænska sjónvarpinu á miðnætti í
fyrrinótt.
MikU spenna var í Baskalandi í
gær þótt þar væri aUt með kyrrum
kjönim. Margir Baskar urðu við
áskorunum um að safnast saman
við ráðhús borga héraðsins og bæja
og á helstu torgum tU að krefjast
þess að ETA lýsti aftur yfir vopna-
hléi. Stuðningsmenn ETA létu
einnig í sér heyra og sögðu að frið-
ur næðist aðeins með sjálfsákvörð-
unarrétti Baska.
Rúmlega fimmtíu þúsund manns komu saman á Venceslas-torgi í Prag í gær til aö krefjast afsagnar forsætisráöherra
Tékklands, jafnaöarmannsins Milosar Zemans, og Vaclavs Klaus, leiötoga stjórnarandstööunnar. Skipuleggjendur
mótmælanna, sex fyrrum námsmenn sem leiddu mótmælaaögeröirnar gegn kommúnistastjórninni 1989, krefjast
þess aö nýir leiötogar taki viö stjórnartaumunum til aö búa Tékkland undir aöild aö Evrópusambandinu.
Poul Nyrup Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur:
Vissi ekki að pabbi var
félagi í nasistaflokknum
Faðir Pouls Nyrups Rasmussens,
forsætisráðherra Danmerkur, gekk
í nasistaflokkinn á stríðsánmum.
Poul Nyrup greindi frá þessu i
morgunþætti sjónvarpsstöðvarinn-
ar TV2 í gær. Sjálfur frétti Nyrup
ekki af þessu fyrr en fyrir þremur
vikum þegar Frank Aaen úr Eining-
arlistanum skýrði honum frá því.
Frank Aaen sagði forsætisráð-
herranum frá þessu eftir að hann
rakst á nafn föður hans í gömlum
skjölum um félaga í danska nasista-
flokkinum. Poul Nyrup kaus sjáifur
að gera upplýsingar þessar opinber-
ar.
„Mér fannst ég ekki geta setið á
þessum upplýsingum. Og þetta kom
af stað miklum keðjuverkunum í
minum eigin hluta,“ sagði forsætis-
ráðherrann í viðtalinu við TV2. „Ég
vissi ekki aö faðir minn var félagi í
nasistaflokknum. Ég vissi að hann
hafði unnið í Þýskalandi. í þá daga
var það jú þannig að vildi maður
tryggja afkomu sína varð maður að
gera það sem manni var sagt.“
Poul Nyrup sagði að hann ætti
erfitt með að trúa þessu upp á föður
sinn.
„Það eina sem ég veit er að í þess-
um skjölum er nafn föður míns. Og
ég verð að segja að það er ekki faö-
ir minn sem stendur þar. Þetta pass-
ar alls ekki við skoðanir mínar. Og
ég held ekki að þetta muni breyta
skoðunum mínum á föður mínum
sem mér þykir mjög vænt um. En
það er ljóst að ég er tilneyddur að
leita svara við spumingunni hvers
vegna,“ sagði danski forsætisráð-
herrann í viðtalinu.
Poul Nyrup Rasmussen þarf nú aö
leita svara í fortíöinni um aöild föö-
ur síns aö danska nasistaflokkinum.
Samkomulag í
burðarliðnum
á fundi WTO
Búist var við að Bill Clinton
Bandaríkjaforseti myndi skerast
persónulega í leikinn til að ná
samkomulagi á ráðherrafundi
Heimsviðskipta-
stofiiunarinnar
(WTO) sem átti
að ljúka í
Seattle í nótt.
Síðdegis í
gær benti margt
til að viðskipta-
ráðherrar aðild-
arlanda WTO
myndu koma sér saman um nýja
: lotu samningaviðræðna um auk-
i ið frelsi í heimsviðskiptum.
; Stjómarerindrekar óttuðust þó
: margir aö ekki næöist jafnmikill
árangur og að heföi verið stefnt.
Samningamenn sátu á fundum
'f alla aðfaranótt föstudagsins til að
i setja niður dagskrá nýju við-
t ræðulotunnar sem búist er við að
I, standi í þrjú ár.
Mjög dró úr mótmælaaðgerð-
unum sem settu dagskrá funda-
| haldanna í Seattle mjög úr skorð-
i um fyrri hluta vikunnar.
Grænlenskir
launþegar eign-
ast lífeyrissjóð
Grænlendingar hafa nú eign-
ast fyrsta lífeyrissjóð sinn. Þar
með hefur langþráður draumur
grænlenska alþýðusambandsins
ræst, að því er danska fréttastof-
an Ritzau segir.
Danska fiármálaeftirlitið hefur
; úrskurðað að Lífeyrissjóður
;; launþega, eins og hann heitir,
uppfylli öll skilyrði sem honum
' em sett.
Þar með fá ellefu þúsund græn-
í lenskir launamenn tækifæri til
að leggja i lífeyrissjóð og drýgja
’ þar með eftirlaunin sem þeir fá
frá hinu opinbera.
ISæskjaldbakan
fær kolkrabba
Sæhrakna og langt aö komna
sæskjaldbakan sem rak á land á
vesturströnd Jótlands fyrr í vik-
; unni er í gjörgæslu í sædýrasafn-
inu í Charlottenlund. Þar er hún
í sérstöku keri með 25 gráða
heitu vatni. Dýrið er 30 sentí-
metra langt og vegur þijú kíló.
Gæslumennimir gera vel við
skjaldbökuna og gefa henni með-
al annars að eta sykurlegna kol-
krabba. Að sögn Lars Olsens,
I starfsmanns sædýrasafnsins, er
* allt útlit fyrir að skjaldbakan
spjari sig, að því er segir í skeyti
frá dönsku fréttastofunni Ritzau.
Dýralæknir frá dýragarðinum
J í Kaupmannahöfn skoðaði skjald-
( bökuna á fimmtudag og komst að
raun um að hún væri með
lungnabólgu. Læknirinn gaf
3 henni sýklalyf og vítamín-
f sprautu. Óvíst er hvort dýrið lifi
f hremmingamar af.
Saksóknari spá-
j ir I Helmut Kohl
Saksóknari í Bonn, fyrrum
■ höfuðborg Þýskaiands, sagðist í
| gær vera að
íhuga hvort
hefja ætti rann-
| sókn á þætti
Helmuts Kohls,
E; fyrrum kansl-
ara, i fjármála-
| hneyksli sem
| lýtur að fjár-
: mögnun flokks
j kristilegra demókrata á sextán
í; ára valdaferli Kohls.
í tilkynningu frá skrifstofu
f saksóknarans kom fram aö kann-
að yrði hvort Kohl hefði brotið
| lög með umráöum sínum yfir
' fjölda leynireikninga sem pen-
ingagjafir til flokksins vom lagð-
ar inn á.