Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1999, Side 74
LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 1999 JLí"V
>82 myndbönd
>
Myndbanda
GAGNRÝNI
Perdita Durango
Sannkölluð ofbeldisdýrkun
irkirk Þessi mynd er orðin alræmd fyrir að vera alveg sérstaklega
hrottafengin. Að vísu er otbeldið í henni mun minna en i meðal-
hasar frá Hollywood en það er miklu beinskeyttara. Göldrum, kynlífi og alls
konar óeðli er tvinnað saman við ofbeldið þannig að úr verður sannkölluð of-
beldisdýrkun, svo svakaleg að maður verður nánast höggdofa. Rífast má um
siðferðislegan tUvistarrétt slíkrar myndar en því er ekki að neita að hún er
mjög áhrifamikU. Myndin eltist svolítið við sjáifsmeðvitund með því að visa
nokkrum sinnum í afþreyingarmenningu nútímans, sérstaklega í skondnu
lokaatriði.
Rosie Pérez er sennUega í besta hlutverki ferUs síns sem hörkukvendið
Perdita Durango. Javier Bardem í hlutverki ástmagar hennar, voodooprests-
ms og glæpamannsins Romeo Delorosa, skyggir þó á hana og aUa aðra með
magnaðri frammistöðu, og man ég ekki eftir svo ofsafengnum leik í langan
tíma. Hann slær auðveldlega út Woody Harrelson í NBK og jafnvel Robert
Carlyle í Trainspotting. Myndin fer ansi langt á góðum leikurum, skrautlegri
persónusköpun og tryUtu hasarofbeldi. StórskemmtUeg tónlist ber myndina
síðan upp í hágæðaflokk þar sem hámarkinu er náð með meistara Screamin’
Jay Hawkins sem einnig leUcur eftirminnUegt aukahlutverk. Perdita Durango
er sem sagt feikiöflug, áhrifamikU og vel gerð mynd en efniviðurinn er slík-
ur að hún er aðeins fyrir vönustu ofbeldisáhorfendur.
Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Alex De La Iglesia. Aðalhlutverk: Rosie Pérez og
Javier Bardem. Bandarísk/mexíkönsk/spænsk, 1997. Lengd: 126 mín. Bönnuð inn-
an 16 ára. -PJ
EDtv
/mm
Rómantík í beinni
iddf Ed Pekumy (Matthew McConaughey) lifir við
fyrstu sýn ekkert sérlega áhugaverðu lífi. Hann er
orðinn þrítugur en vinnur á vídeóleigu á daginn og spUar
bUjarð og drekkur bjór á kvöldin ásamt bróður sínum Ray
(Woody Harrelson). Þegar sjónvarpsstöðin TrueTV tekur
þá ákvörðun að sjónvarpa beint frá lífi hans daginn út og inn verður líf Eds
skyndUega einkar spennandi. Sjónvarpsáhorfendur fylgjast dolfallnir með
hverju skrefi hans en ekki líður á löngu þar tU Ed fær sig fúilsaddan af sjón-
varpsvélunum.
Það fer vart á milli mála að EDtv sækir i kjölfar vinsælda The Truman
Show (lUct og nafn sjónvarpsstöðvarinnar gefúr tU kynna). Ásamt Pleasant-
vUle (sem er þeim betri) mynda þær háifgerða undirgrein sem skoðar mark-
visst stöðu sjónvarpsins í samfélaginu á áhugaverðan máta. Þess ber þó að
geta að EDtv er öUu grunnhyggnari en hinar tvær og jaðrar við að vera dæmi-
gerð rómantísk kómedia. Því verður þó ekki neitað að hún er óvenju skemmti-
leg sem slík og sjónvarpspælingamar gefa henni þrátt fyrir aUt aukið vægi.
Svo er bara að vona að framhald, BEDtv, skUi sér á skjáhm.
Útgefandi: ClC-myndbönd. Leikstjóri: Ron Howard. Aðalhlutverk: Matthew McCon-
aughey, Jenna Elfman, Woody Harrelson, Elizabeth Hurley, Rob Reiner, Dennis
Hopper og Martin Landau. Bandarísk, 1999. Lengd: 118 mín. Öllum leyfð. -bæn
Cruel Intentions
Ríkar rottur
m
ififif Þessi mynd byggist lauslega á franska bók-
menntaverkinu Les Liaisons Dangereuses, eins
og fræg HoUywood-mynd með Glenn Close, John Mal-
kovich og MicheUe Pfeiffer í aðalhlutverkum. Sú nefnd-
ist Dangerous Liaisons og fylgdi bókinni í meginatrið-
um,en Crael Intentions staðfærir söguna í bandaríska
nútíð. Sebastian og Kathryn era ríkar rottur, gjörspUlt stjúpsystkin sem leika
sér að öðra f'ólki. Þau veðja um hvort Sebastian takist að forfæra dóttur skóla-
stjórans en hún er gáfúð, faUeg og heUbrigð ung stúlka með yfirlýst áform um
að vera hrein mey á brúðkaupsdaginn. Sebastian leggur undir bifreið sína og
Kathryn likama sinn. Myndin blandar saman ýmsum ólíkum kvikmyndastefn-
um - dramatik, ástarsögu, gríni, samfélagsádeUu, harmsögu og jafnvel sál-
fræðitryUi, að ógleymdum hinum hefðbundnu unglingamyndum. Hún fer ansi
vel af stað með gráglettinn siðspUIingarhúmor og er bara ansi töff í sínum
perra- og óþverraskap. Henni gengur siðan misjafnlega að ljá ólikindalegum
persónum sínum mannlegar tilfmningar og tapar svolítið leUígleðinni og sann-
færingarkraftinum í lokin. Það breytir því ekki að myndin er að mestum hluta
ansi skemmtUeg og vel leikin af ungum og upprennandi leikurum. Reese
Witherspoon er frábær að vanda, Sarah MicheUe GeUer kemur á óvart með
glettilega góðum leUc og Ryan PhiUippe tekst vel að halda sínu.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Roger Kumble. Aðalhlutverk: Ryan Phillippe, Sarah
Michelle Geller og Reese Witherspoon. Bandarísk, 1999. Lengd: 94 mín. Bönnuð inn-
an 12 ára.-PJ
The Deer Hunter
Áveiðum
ifififif Þótt The Deer Hunter sé um margt byltingar-
kennd kvikmynd er frásagnarbygging hennar
sígUd í aUa staði. Henni er skipt i þrjá nokkuð vel að-
greinda hluta: byrjun, miðju og endi! Fyrst kynnumst við
félögunum Michael (Robert De Niro), Nick (Christopher
Walken) og Steven (John Savage) og vinum þefrra í iðn-
aðarbæ í Pennsylvaníu. Þótt ýmislegt gangi á í lífí þeirra er það uppfuUt af
sakleysi og gleði sem brotin er á bak aftur í öðram hlutanum. Félagamir
halda tU Víetnam þar sem ógn styijaldarinnar skUur eftir djúp ör bæði á lík-
ama og sál. Síðasti hlutinn gerir að lokum grein fyrfr heimkomunni og erfið-
leikunum sem fylgja því að takast aftur á við samfélagið. Þótt þessi uppbygg-
ing sé dæmigerð er rétt að nefna að aUir hlutamir era álíka langir meðan í
nýlegum stfíðsmyndum sem Saving Private Ryan og jafnvel Thin Red Line er
nær eingöngu einblínt á miðhlutann - hina eiginlegu styrjöld. í meðfórum The
Deer Hunter er stríð miklu meira en átök stríðandi aðUa. Það er samfélagsá-
stand sem nær langt út fyrir átakasvæðin og er tU staðar löngu eftir að bar-
dögum lýkur. Frábær leikarahópur gerir áhrffum þessa ástands mögnuð skU.
Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Michael Cimino. Aðalhlutverk: Robert De Niro,
Christopher Walken, John Savage og Maryl Streep. Bandarísk, 1978. Lengd: 178
mín. Bönnuð innan 16 ára. -bæn
Reese Witherspoon:
Stefnir á toppinn
Reese Witherspoon er aðeins 23
ára gömul en hefur þó verið að leika
í kvikmyndum í tæpan áratug og
má þegar greina þrjú mismunandi
skeið á leikferli hennar. Fyrst lék
hún saklausa stelpukrakka i hug-
ljúfum myndum, tók siðan U-beygju
og hlóð sakleysið kynferðislegum
undirtónum í myrkum og ofbeldis-
ftUlum myndum áður en hún braust
inn í Hollywood-senuna. Undanfar-
in ár hefur hún leikið í mark-
aðsvænni myndum sem hafa gengið
vel án þess að nein þeirra hafi sleg-
ið eftirminnilega í gegn. Hún telst
því vart stórstjama þótt samband
hennar og annars ungs og upprenn-
andi leikara, Ryans Phillippe, hljóti
reglulega umfjöllun í slúðurdálkun-
um. Hún hefur þó óneitanlega bæði
útlitið og hæfileikana með sér svo
að þess verður væntanlega ekki
langt að bíða að hún leggi heiminn
að fótum sér.
Saklaust barn
Reese Witherspoon hefur verið í
bransanum frá barnsaldri. Hún
stundaði fyrirsætustörf og lék í
sjónvarpsauglýsingum frá sjö ára
aldri. Hún lék í kapalsjónvarps-
myndinni Wildflower árið 1991 og
þreytti frumraun sína i kvikmynd-
um seinna sama ár í The Man in the
Moon. Hún var aðeins 14 ára gömul
en vakti strax athygli gagnrýnenda
fyrir góðan leik i hlutverki sveita-
stelpu sem uppgötvar ástina í fyrsta
skipti. Næstu tvö árin lék hún í
nokkrum sjónvarpsmyndum og
kvikmyndum, þ. á m. hlutverk 12
ára gamallar hippastelpu í Jack the
Bear, og aðalhlutverk í Disney-
brúaði fyrir hana bilið milli jaðar-
mynda og sölumynda. Myndin var
frumleg og tilraunakennd en gekk
samt mjög vel í áhorfendur og
Witherspoon hlaut enn og aftur lof
fyrir túlkun sína á vergjörnu syst-
urinni. Síðastliðið ár hefur henni
svo loks tekist að komast í fremstu
röð ungra leikkvenna með hlutverk-
um í Cruel Intentions og skólakosn-
ingamyndinni Election. Sérstaklega
hefur Cruel Intentions náð
miklum vinsældum en
þar lék hún á móti
kærasta sínum til
tveggja ára, Ryan
Phillippe. Hún
giftist honum í
júní í sumar
og átti með
honum dótt-
ur, Ava
Elizabeth
Phillippe, í
septem-
ber. Reese
Wither-
spoon
og
Ryan
Phillippe
eru eitt
af umtöl-
uðustu
pönm-
um í
Hollywood og varla dregur öll sú at-
hygli úr vinsældum hennar. Ryan
Phillippe virðist vænsti drengur en
hið sama er varla hægt að segja um
ýmsa þá karlmenn sem persónur í
myndunum hennar hafa verið i
tygjum við, sbr. myndir eins og
S.F.W., Freeway, Fear og jafnvel
Cruel Intentions. Ekki batnar
ástandið í næstu mynd hennar,
American Psycho, þar sem hún leik-
ur kærustu raðmorð-
ingja en myndin er
væntanleg á
næsta ári.
-PJ
Plesantville. Reese Witherspoon
ásamt Tobey Maguire.
myndinni A Far off Place þar sem
hún lék stelpu sem þarf að ferðast
yfir Kalahari-eyðimörkina í fylgd
búskmanns eftir að faðir hennar er
drepinn af veiðiþjófum.
Kynþokkafullur táningur
En nú var Reese Witherspoon að
stálpast og vildi ekki festast i sak-
lausu Disney-ímyndinni. Árið 1994
lék hún í SFW, svartri ádeilu á
stjömudýrkun, fullri af oíbeldi og
klúru orðbragði. Hún lék skóla-
stelpu sem er tekin i gíslingu ásamt
kjaftforum strák (Stephen Dorff)
sem er gerður að stjörnu í kjölfarið.
1996 lék hún síðan í tveimur mynd-
um af dekkri sortinni. Önnur þeirra
var Freeway, nútímaútfærsla af
Rauðhettuævintýrinu, full af ofbeldi
og kynferðislegum tilvísunum. Hin
var Fear þar sem hún lék kærustu
afbrýðisams stráks (Mark Wa-
hlberg) sem reynist illa truflaður á
geði. Freeway hlaut góða dóma hjá
gagnrýnendum, Fear síðri en náði
nokkrum vinsældum . hjá ungling-
um. Reese Witherspoon þótti sýna
afar góðan leik og haföi nú hlaðið
kynþokka og beittari persónuleika
undir unglegt og sakleysislegt útlit
og fas.
Ungstjarna
Það hlaut þó að koma að því að
hún fengi tækifæri i dýrari og vin-
sælli myndum. Pleasantville (1998)
Myndbandalisti vikunnar
SÆTI FYRRI VIKA VIKUR A LISTA TITILL j ÚTGEF. TEG.
1 ' 1 2 Tnie crime j Wamer Myndir Spenna
2 Nf 1 Cruel intentions Skifan Spenna
3 3 2 Resurrection i Myndform Spenna
4 2 3 Forces of nature j CIC Myndbönd Gaman
5 4 3 Ljfe is beautiful Skffan Garnan
( 5 6 Arlinton raod Háskóiabió Spenna
7 NÝ 1 Wing commander ] SAMMyndbönd Spenna
8 6 5 CMI artion CIC Myndbönd Spenna
9 9 2 Plunkett&MacLeane Háskólabíó Spenna
10 7 4 Whoaml J Skifan Spenna
11 12 2 Happlness j Skffan j Ðrama
12 Nf ; 1 [ Perdita Durango Háskólabíó Spenna
13 8 8 8mm i Skffan Spenna
14 14 1 6 i At first sight j Wamer Myndir ] Drama
15 10 I 1 Austin Powers II i m j Myndform Caman
16 15 4 Jack Frost 1 Wamer Myndb Gaman
17 16 6 The deep end of the ocean J Skífan Drama
18 13 5 Message In a bottle j Wamer Myndir Drama
19 11 11 Payback Wamer Myndir Spernu
20 Nf 1 HuriyBuriy Hátktlafrfff Drama