Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2000, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2000, Side 18
i. fjölskyldumál LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2000 T>1T Framhjáhald Traust og trúnaður eru grund- vallaratriði í hverju sambandi. Samt vitum við að bæði karlar og konur brjóta þennan trúnað. Og stöðugt fleiri sem leita sér ráðgjaf- ar út af erfiðleikum í hjónabandi og sambúð gera það vegna framhjá- halds. Fæstir eru kannski hissa á þessu. Það kostar bæði vilja og staðfestu að vera trúr. Og þó að vilji og staðfesta séu fyrir hendi þá dragast bæði karlar og konur oft að öðrum en maka sínum, gefa öðrum auga „svona í mesta sakleysi". *** Það væri e.t.v. allt í lagi að við- urkenna þessa staðreynd, það eitt og sér myndi fyrirbyggja framhjá- hald. Því oft er það einhver óljós spenningur sem er kveikjan að framhjáhaldinu, spenningur sem aftur breytist í samviskubit og van- líðan hjá mörgum eftir að framhjá- haldið hefur átt sér stað. Framhjá- hald er eitt það versta sem komið getur fyrir samband og leiðir margt illt af sér. Það ætti þess vegna enginn að hafa framhjáhald í flimtingum eins og stundum heyr- ist. Framhjáhald hefur eyðilagt aflt of mikið bæði fyrir einstaklingum og heilu fjölskyldunum.Stundum halda menn því fram að hliðarspor í hjónabandinu sé nú bara ágætt og til þess fólgið að hleypa nýjum eldi í kulnaðar glæður. En svo er ekki. Þegar traustið er rofið eiga flestir erfitt með að vinna sig út úr ástandinu sem skapast. Öll berum við ákveðnar væntingar til hjóna- bands og sambúðar. En lifið verður sjaldan eins og væntingamar sem við gerum okkur til þess. *** Ástarbriminn og spenningurinn sem við fundum fyrir í upphafi sambúðarinnar eða þegar við fyrst urðum ástfangin minnkar með tím- anum ef við gerum ekkert í mál- inu. Vani hversdagsins fyllir dag- ana og næturnar með. Og flestir hafa í nægu að snúast. Bömin, vinnan, áhugamálin og heimilis- haldið tekur allan tímann frá okk- ur og lítill tími er aflögu fyrir ást- arsambandið. Þannig líður mörg- um á vissum tímabilum lífsins. Bæði konur og karlar geta meðvit- að og ómeðvitað óskað sér innst inni annarrar tilvem en þeirrar sem hér var dregin upp. Þau vilja lifa fjölbreyttara lífi, vilja hafa spennu og eftirvæntingu í tilver- unni og spyrja sig :„Var þetta allt og sumt sem lifið hafði upp á að bjóða“? Áhrif frá fjölmiðlum ýta undir óánægjuna . Margir gefast upp á því að finna það sem þeir eru að leita að í því sambandi sem þeir eru í en telja sér trú um að grasið sé grænna hinum megin við læk- inn. Og þar með verður framhjá- haldið staðreynd. *** Þeir sem síðan hafa haldið fram hjá maka sínum bera margir þá reynslu með sér í gegnum tilver- una sem þunga byrði. Vonbrigðin með sjálfan sig og samviskubit gagnvart makanum verður að sári sem seint grær. Flestir komast að því að þegar þeir ætla sér að snúa aftur til maka síns þá er það horfið sem þeir einu sinni áttu. Eftir framhjáhald breytist sambandið við makannn algjörlega, ef það þá ekki leysist upp. Trúnaður er sem fyrr segir grundvallaratriði í hverri sambúð og hverju hjóna- bandi. Ef við treystum hvort öðru þá getur það gefið okkur tækifæri til að upplifa ríkt og heitt ástarsam- band með hvort öðru. Ef trúnaður Þórhallur Heimisson ríkir styrkist ástin og getur staðist erfiðleikana sem enginn sleppur við. Ef trúnaður ríkir getum við auðveldlega staðist allar freistingar þegar þriðji aðili kitlar hégóma- gimdina. Þá fáum við kraft til þess að láta okkar eigin ákvarðanir „Stundum halda menn því fram aó hliðarspor í hjónabandinu sé nú bara ágœtt og til þess fólgiö aö hleypa nýjum eldi í kuln- aðar glœöur. En svo er ekki. Þegar traustiö er rofiö eiga flestir erfitt meö aö vinna sig út úr ástandinu sem skapast. “ ráða vali okkar í lífinu þar sem ekkert „bara gerist svona óvart“. Við berum ábyrgð á eigin gjörðum. Og ef traustið er sterkt veljum við að halda fast i það sem við eigum, fyrir okkur sjálf, fyrir maka okkar og fyrir fjölskyldu okkar. fimm breytingar Myndimar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum ver- ið breytt. Finnir þú þessi fimm at- riði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okk- ur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigur- vegaranna. 1. verðlaun: United-sími með símanúmerabirti frá Sjónvarpsmiðstöðinni, Siðumúla 2, að verðmæti kr. 6.990. 2. verðlaun: Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr. 1570, Sekur eftir Scott Turow og Kólibrísúpan eftir David Parry og Patrick Withrow. Vinningarnir veróa sendir lieim. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 547 c/o DV, pósthólf 5380, 125 Reykjavík Finnur þú fimm breytingar? 547 BRETLAND SKÁLDSÖGUR - KIUUR: 1. Tom Clancy: Rainbow Six. 2. Danielle Steel: The Klone and I. 3. Dick Francis: Reld of Thirteen. 4. Ruth Rendell: A Sight for Sore Eyes. 5. Sebastian Faulks: Charlotte Grey. 6. James Patterson: When the Wind Blows. 7. Elvi Rhodes: Spring Music. 8. Chariotte Bingham: The Kissing Garden. 9. Nicholas Evans: The Loop. 10. Jane Green: Mr Maybe. RIT ALM. EÐLIS - KIUUR: 1. Amanda Foreman: Georgina, Duchess of Devonshire. 2. Chris Stewart: Driving over Lemons. 3. Tony Adams o.fl.: Addicted. 4. Anthony Beevor: Stalingrad. 5. Frank McCourt: Angela's Ashes. 6. Bill Bryson: Notes from a Small island. 7. John Gray: Men Are from Mars, Women Are from Venus. 8. Richard Branson: Losing My Virginity. 9. Simon Winchester: The Surgeon of Crowthorne. 10. Tony Hawks: Around Ireland with a Fridge. INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR: 1. Dick Francis: Second Wind. 2. Thomas Harris: Hannibal. 3. Danielle Steel: Granny Dan. 4•. Roddy Doyle: A Star Called Henry. 5. Penny Vincenzi: Almost a Crime. 6. Ruth Rendeli: Harm Done. 7. lain Banks: The Business. 8. Jill Cooper: Score! 9. Kathy Reichs: Death Du Jour. 10. Elizabeth George: In Pursujt of the Proper Sinner. INNBUNDIN RIT ALM. EÐLIS: 1. Alex Ferguson: Managing My Life. 2. John Humphrys: Devil’s Advocate. 3. Simon Singh: The Code Book. 4. Bob Howitt: Graham Henry; Supercoach. 5. Brian Keenan o.fl.: Between Extremes. 6. Lenny McLean: The Guv'nor. ( Byggt á The Sunday Tlmes) BANDARÍKIN SKÁLDSÖGUR - KIUUR: 1. Anita Shreve: The Pilot’s Wife. 2. Tom Clancy: Rainbow Six. 3. Penelope Fitzgerald: The Blue Rower. 4. Arthur Golden: Memoirs of a Geisha. 5 Judy Blume: Summer Sisters. 6. Patricia Cornwell: Point of Origin. 7. Rebecca Wells: Divine Secrets of the Ya-Ya Sisterhood. 8. Margaret Truman: Murder at Watergate. 9. Sidney Sheldon: Tell Me Your Dreams. 10. Tami Hoag: Still Waters. RIT ALM. EÐLIS - KIUUR: 1. Robert C. Atklns: Dr. Atkins’ New Diet Revolution. 2. Frank McCourt: Angela’s Ashes. 3. John Berendt: Midnight in the Garden of Good and Evil. 4. Michael R. Eades o.fl.: Protein Power. 5. John E. Sarno: Healing Back Pain. 6. Jared Diamond: Guns, Germs and Steel. 7. Sebastian Junger: The Perfect Storm. 8. Adeline Yen Mah: Falling Leaves 9. William L. Ury: Getting Past No. 10. Gary Zukav: The Seat of the Soul. INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR: 1. Patricia Cornwell: Black Notice 2. Thomas Harris: Hannibal. 3. Meilssa Bank: The Girl's Guide to Hunting and Rshing 4. Jeffery Deaver: The Devil's Teardrop. 5. Tim F. LaHaye: Assasins. 6. Catherine Coulter: The Edge. INNBUNDIN RIT ALM. EÐLIS: 1. Suzanne Somers: Suzanne Somers'Get Skinny on Fabulous Food. 2. Mitch Albom: Tuesdays with Morrie. 3. Christopher Andersen: Bil! and Hillary: The Marriage. 4. Bill Philips: Body for Life. 5. H. Leighton Steward o.fl: Sugar Busters. 6. Sally Bedell Smith: Diana, in Search of Herself. (Byggt á The Washlngton Post)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.