Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2000, Blaðsíða 30
LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2000 ] .' \
• sviðsljós
Frú Sting fær skömm í hattinn
Það getur verið mjög vanþakklátt
starf að gefa út bækur og það hefur
áreiðanlega verið útgefandi eða höf-
undur sem fyrstur samdi orðatil-
tækið að kasta perlum fyrir svín.
Þetta hefur frú Trudie Styler í
Bretlandi fengið að reyna en hún
hefur nýlega gefiö út glæsilega mat-
reiðslubók með fjölda gimilegra
uppskrifta og fjölda forkunnarfag-
urra mynda. í stað þess aö taka bók-
inni fegins hendi, hnýta á sig svunt-
una og hefjast handa við matargerð
láta gagnrýnendur sér fátt um finn-
ast og gera grin að bókinni og segja
að hún sé einskis virði og sóun á
pappír.
Nú er rétt að skýra frá því að frú
Trudie Styler er ekki bara einhver
húsmóöir heldur eiginkona rokkar-
ans, trilljónamæringsins og um-
hverfisvinarins Sting sem heitir
reyndar réttu nafni Gordon Styler.
Þau hjónin búa á risavöxnu mið-
aidasetri á Englandi þar sem þau
rækta allt sitt grænmeti sjálf,
kryddjurtir og sækja sína eigin
viliibráð í skóglendið og mýramar
kringum setrið. Þetta heitir víst að
* lifa af landsins gæðum og er sann-
kölluð paradís í augum margra sem
aðhyllast hollt lífemi og lífrænt
ræktað gras og soddan fóður.
Frú Sting hefur sem sagt sett
saman mikinn doðrant sem heitir
The Lake House Cookbook og er
gríðarmikil að vöxtum, prýdd fjölda
mynda. Frúin hefur helst verið
gagnrýnd fyrir að bókin sé að mestu
leyti innantómur þvættingur um al-
genga hluti sem byggist á þeim leiða
misskilningi hennar að fólk hafi
áhuga á þvi hvað hún borðar þó að
maðurinn hennar hafi samið vinsæl
lög.
Frú Sting skrifar engar uppskrift-
ir í bókinni og eldar reyndar aldrei
sjálf. Það verk er í höndum Joseph
Sponzo sem er sérstakur mat-
reiðslumeistari þeirra hjónanna.
Hann semur uppskriftimar og gefur
góð ráð. Það þykir stór galli á bók-
inni að flestar uppskriftanna inni-
halda eitthvert ferskt hráefni sem
vex á lóðinni hjá Sting-hjónunum og
því talið útilokað að venjulegt fólk
geti nokkru sinni nýtt sér matseðl-
ana hjá þeim.
Það að bókin sé sóun á pappír er
sérlega neyðarlegt fyrir Sting-fjöl-
Eiginkona Stings, stórsöngvara og trilljónamærings, fær slaka dóma fyrir matreiöslubók sína.
TILKYNNING TIL
HÚSBYGGJENDA
Samkvæmt lögum um Qarskipti sem tóku gildi
síðustu áramót enda heimtaugar
fjarskiptafyrirtækja í húskassa en lagnir inn-
anhúss frá húskassanum eru á ábyrgð hús-
eiganda. Staðsetning húskassa og lagnir skulu
vera í samræmi við samþykkta uppdrætti af
viðkomandi byggingu.
Með þessari breytingu er staðfest að sam-
keppni skuli ríkja um innanhúslagnir og munu
aðrir aðilar en Landssími íslands hf. eftirleiðis
geta boðið húsbyggjendum þjónustu sína á
þessu sviði.
Póst- og fjarskiptastofnun mun setja reglur um
frágang húskassa og lagna í þeim tilgangi að
tryggja vernd fjarskipta og aðgang hinna ýmsu
fjarskiptafyrirtækja að húskössum og lögnum.
Að öðru leyti vísast til byggingarreglugerðar.
skylduna því fjölskyldufaöirinn hef- þurft nokkur tré til að koma upp-
ur látið sig vemdun regnskóga og skriftum frú Sting á þrykk.
skóga heimsins almennt sérstaklega
varða en hætt er við að fella hafi
mk ' m?- * Æ ■ : • . \
Michael Caine stórleikari er mjög mótfallinn því aö striplast í kvikmyndum.
Vill ekki sýna
á sér rassinn
Michael Caine er þekktur bresk-
ur leikari sem átt hefur farsælan
feril þrátt fyrir óreglusamt lífemi.
Hann er sennilega einna þekktastur
fyrir leik sinn í kvikmyndinni Ríta
gengur menntaveginn eða Educat-
ing Rita sem naut mikilla vinsælda
fyrir nokkrum árum.
Caine hefur að hætti margra stór-
stjama sest niður við fótskör ævi-
söguritara og fest æviferil sinn
þyrnum stráðan á blað. í bókinni,
sem nýlega er komin út og Michael
Freedland hefur fært í letur, lætur
Caine móðan mása um margt sem
viðkemur kvikmyndum og kvik-
myndaleik.
Hann segist vera algerlega á móti
nektarsenum í kvikmyndum og
hafa reynt eftir fremsta megni að
koma sér undan því að striplast um
á hvíta tjaldinu á fæðingarfötunum
einum.
„Naktir karlmenn eru afskaplega
óvirðuleg sjón og beinlínis hlægileg-
ir. Ég ber virðingu fyrir leiklistinni
og ég lærði ekki erfitt fag í 20 ár til
þess eins að láta fólk glápa á rass-
inn á mér.“
Eflaust deila margir þessum skoð-
unum með Caine en vonandi er það
ekki útbreidd skoðun meðal kvenna
að berir karlar séu hlægilegir. Það
finnst karlmönnum áreiðanlega
ekki skemmtileg tilhugsun.
JAMÚÁR