Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2000, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2000, Qupperneq 23
lO'V LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2000 Ragnar Ágúst Ragnarsson f fangi móöur sinnar, Vaigeröar Ágústsdóttur. Af- inn, Ágúst Sigurösson aö Geitaskaröi, og langamman, Valgeröur Ágústs- dóttir, fyrrum húsfrú aö Geitaskaröi, horfa á barniö. DV-mynd MÓ Ágúst og Valgerður: Sömu nöfn Á jólum var Ragnar Ágúst Ragnars- son skírður að Geitaskarði I Langa- dal. Ekki væri það fréttnæmt nema vegna þess að afi hans heitir einnig Ágúst, og langafi hans var Ágúst B. Jónsson á Hofi í Vatnsdal. Móðir drengsins heitir Valgerður Ágústs- dóttir frá Geitaskarði, ber nafn ömmu sinnar - og langamma drengsins hét í sex ættliði einnig Valgerður. Hún var dóttir Ein- ars á Bólu í Skagafirði. Hafa nöfnin Ágúst og Valgerður því gengið til skiptis óslitið í sex ættliði. Skimarkjóllinn sem barnið skrýdd- ist er aldargamall, var fyrst notaður árið 1900 þegar langömmubróðir barnsins, ísleifur Ámason lagapró- fessor, var skírður. Kjóllinn var saumaður af langalangömmu bams- ins. -MÓ Heimsmeistarakeppni á Netinu: Bandaríkin sigruðu Rússland í úrslitaleik Einn af síðustu viðburðum ársins og aldarinnar var heimsmeistara- keppni í bridge, sem spiluð var á Net- inu, og reyndar var þessi keppni óvenjuleg hvað það snerti að engir keppenda snertu spil né sáu andstæð- inga eða makker. Hins vegar gátu bridgespilarar víðs vegar um heiminn, sem höfðu aðgang að Netinu og Okbridge, séð úrslita- leikinn með eigin augum. Eitt hundr- að sjötíu og sjö sveitir frá 33 löndum byrjuðu keppnina og Bandaríkin og Rússland voru tvö eftir í lokin. Sviðið var því sett fyrir spennandi úrslitaleik sem hefði getað vakið heimsathygli á dögum kalda stríðsins. Núna var það hins vegar áhugaverður úrslitaleikur vegna þess að bæði liðin höfðu á að skipa heimsfrægum bridgemeisturum. í liði Bandaríkj- anna voru m.a. tveir heimsmeistarar, Paul Soloway og Eric Rodwell, af mörgum taldir tveir af bestu spilurum heimsins. Og í liði Rússa voru spilar- ar sem höfðu staðið í toppbaráttunni bæði í Ólympíumótum og Evrópumót- um. Enda fór svo að þegar einvígið var hálfnað voru Rússamir yfir, 56-45. Seinni hálfleikur var hins vegar ein- stefna Bandarikjamanna sem unnu einvígið með 123 gegn 69. Heimsmeistarar Bandaríkjamanna eru, auk þeirra ofannefndu, Martin Seligman, Doug Simson, John Schuler og Michael Crawford. Við skulum skoða eitt spil frá úr- slitaleiknum þar sem ekki er laust við að bridgeguðinn hafi verið Banda- ríkjamönnum hjálplegur. V/Allir * DG976432 *K83 108 * - * K 6542 * D62 * K9843 é A5 •f D7 4- AG9753 * AD6 Bridge Stefán Guðjohnsen Bæði Soloway og Rússinn Gromov opnuðu á fjórum spöðum eftir að vestur hafði sagt pass. Rússinn Petrounin passaði með suðurspilin meðan Seligman sagði fimm hjörtu sem líklega var spurning um hjartafyrirstöðu. Það var nóg fyrir Soloway sem stökk í slemmuna, hafandi hjartafyrir- stöðuna. Gromov var fljótur að vinna geimið en Soloway þurfti að fá 12 slagi. Hann drap tígulútspilið á ás- inn og kastaði tígli í laufásinn. Síðan trompaði hann lauf og spil- aði hjarta á drottninguna. Hún átti slaginn og Soloway spilaði meira hjarta. Austur drap áttu blinds með tíunni og spilaði laufi. Soloway trompaði, trompaði síðan hjartakóng og lagði niður spaðaás. Þegar kóngurinn kom í þá var þessi heppnisslemma í húsi. Það vekur hins vegar áhugaverða spurningu ef austur hefði byrjað með hjartaás. Nú þarf Soloway ekki að trompa hjartatapslaginn og getur því svínað fyrir tromp- kónginn. Enginn veit hvað hann hefði gert, nema hann sjálfur, og líklega hefði hann spilað með lík- unum og svínað. Fyrir mörgum árum skilgreindi einn af bestu bridgemeisturum heimsins, Victor Mitchell, góða slemmu á þá leið „að góð slemma væri slemma sem ynnist" og það á við í ofangreindu tilfelli. ELANTRA ER KRAFTMESTI BILLINN I SINUM FLOKKI VERÐ FRA KR. 1 BEINSKIPTUR Hyundai Elantra er með 116 hestafla 16v vél sem þýðir að enginn bill í sama stærðarflokki er jafn kraftmikill. Þar að auki er enginn á jafn góðu verði. Staöalbúnaöur: ABS hemlalæsivörn, 2 loftpúðar, útvarp/kassettutæki m/4 hátölurum, samlæsingar, vökva- og veltistýri, rafknúnar rúður, bensínlok opnanlegt innanfrá, litað gler, samlitir stuðarar, stafræn klukka, tvöfaldir styrktarbitar í hurðum, snúningshraðamælir, haldari fyrir drykkjarmál, krumpusvæði, barnalæsingar, hæðarstillanleg öryggisbelti og margt fleira. HYunoni meir%öl,u

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.