Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2000, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2000, Síða 28
Össur Skarphéðinsson þingmaður ræðir vanda og fylgishrun Samfylkingarinnar, mistök ríkisstjórnar- innar, baráttuna fyrir því barnaláni sem hann á nú að fagna og hvaða forsendur þurfi til að hann taki að sér að leiða Samfylkinguna inn í framtíðina. „Það kom mér talsvert á óvart að sjá stuðning Margrétar og Sighvats á baksíðu DV í fyrradag," segir Össur Skarphéðinsson þingmaður en þessa dagana lýsir hver þingmaður Sam- fylkingarinnar á eftir öðrum yfir stuðningi við hann til að leiða fylk- inguna áfram inn í framtíðina. Hann segir þó að eftir jólin hafi fólk byrjað að ræða þessa hugmynd við hann en það hafi aðeins verið á rabbstigi. „En þegar fólk úr forystusveit Samfylkingarinnar kemur að máli við mann hlýtur maður að hugsa það alvarlega," segir Össur og bætir því við að í því samhengi þyki honum skemmtilegt hversu margir úr Al- þýðubandalaginu hafi komið að máli við hann. En þegar Össur er spurður hvort hann ætli að taka forystuhlut- verkið að sér er ekki aö heyra á hon- um að það sé það sem hann langar mest til að gera í lífinu. „Þegar við Ámý, konan mín, fór- um síðastliðið sumar út í þá baráttu að ná í yngri dóttur okkar til Kól- umbíu var það ósagður samningur milli okkar að ég hefði töluverðan tíma til að sinna barnauppeldinu á næstu árum. Árný er vísindamaður í fullu starfi og gegnir vegna þeirra trúnaðarstörfum út fyrir ísland. Við erum bæði 46 ára gömul og það hefur verið löng og mikil barátta hjá okkur að eignast börn. Nú þegar þau eru komin hafa þau forgang. Það er því ljóst að ákvörðun um að ég taki að mér forystuhlutverk í Samfylking- unni verður ekki tekin nema í sátt við Árnýju og við munum vissulega íhuga stöðuna mjög vel.“ Þegar Össur er spurður hvort Sam- fylkingunni sé við bjargandi svarar hann því til að víst sé hún í miklum vanda. „Það leiðir hana enginn út úr þeim dimma dal sem hún er stödd í nema maður sem mikil og breið sam- staða ríkir um. Hvort sú samstaða er fyrir hendi mun ráða miklu um af- stöðu mína. Þetta er ekki staða sem ég hef sóst eftir og sérstaklega ekki næstu sex árin.“ Vandinn hefur falist í skorti á leiðtoga Hvað telur þú þurfa til til þess að leiða Samfylkinguna út úr þessum Sólargeislarnir Ingveldur og Birta voru fljótar að ná saman og eins og lítilla systra er siður er ekki eftir neinu að bíða með að þjarma svolítið að stóru systur. DV-myndir Teitur dimma dal? „Fjölmiðlar hafa búið til forystu- stjórnmál. Þeir hafa skapað umhverfl þar sem samskipti milli fólksins og flokkanna eru í skilaboðum sem ber- ast frá forystumönnunum. Þeim flokkum sem hafa sterka leiðtoga hef- ur því gengið ágætlega. Vandi Sam- fylkingarinnar er sá að það hefur ekki náðst samstaða um leiðtoga, ein- faldlega vegna þess að þetta hefur ekki verið flokkur. En nú ætla menn að stofna formlegan flokk og kjósa forystu fyrir þinglok og það mun skipta miklu um framhaldið. Sömuleiðis þarf hinn nýi flokkur að setja sér ákaflega skýra forgangs- röðun og leggja áherslu á fá en stór mál í stað þess - eins og var í kosn- ingabaráttunni - að vera með mörg mál en fátt sem stendur upp úr. Einn vandinn var hin gagnkvæma virðing flokkanna sem stóðu að fram- boði Samfylkingarinnar og varð til þess að þeir vildu ekki styggja hver annan. Það var því erfitt að leggja fram skarpar áherslur á málefnin og þau hurfu inn í bakgrunninn." Eins og hvað? „Ég nefni sem dæmi það mál sem er nú i brennidepli, afstöðuna til flsk- veiða. Við lögðum ekki nógu sterka áherslu á auðlindagjald. Nú er þetta Vatneyrarmál komið upp, þar sem kemur í Ijós að ákvæði laganna brýtur í bága við stjórnarskrá og fátt sem virðist geta bjargað því nema auðlindagjald í einhverri mynd.“ En var ekki stefnuskrá Samfylk- ingarinnar einn allsherjar „popúl- ismi?“ „Stefnuskráin snerist fyrst og fremst um það að verið var að reyna að finna einhvern sameiginlegan flöt á stefnu þriggja flokka. Þessu ætlum við að breyta með því að stofna nýj- an flokk sem byggir á hugsjónum flokkanna þriggja, með heildstæðri stefnu þar sem forgangsmálin eru skýr.“ Ægivald Sjálfstæðisflokksins Hvaða forgangsmál? „Stjórnun fiskveiða, umhverfis- mál, afstaða til einkavæðingar, auk- inn jöfnuður og afstaðan til Evrópu. Ég er algerlega sannfærður um að mikil eftirspum verður eftir flokki eins og Samfylkingunni á næstu árum til þess að brjóta upp það ægi- vald sem Sjálfstæðisflokkurinn er bú- inn að koma sér upp og stappar nær einveldi eins manns. Ást'andið er ein- faldlega orðið þannig að venjulegir borgarar eru hræddir við að tjá skoð- anir sem eru í andstöðu við þessa herra af ótta við að þeir verði beittir refsiaðgerðum. Þar nægir að nefna sem dæmi mál séra Arnar Bárðar. Annað dæmi eru athafnamenn sem seilast tfl áhrifa en njóta ekki vfldar valdsherranna. Það liggur við að þeir séu lagðir í einelti. Þessi ofurtök hafa smitast um allt þjóðfélagið. Við sjá- um þetta birtast best í Sjónvarpinu þar sem flokkurinn ræöur öllu, frá þáttagerð til frétta og menn eiga erfitt með að halda hlutleysi þar.“ Fjórar ástæður fyrir fylgis- hruni Samfylkingarinnar Hverjar telur þú helstu ástæðum- ar fyrir stöðugu fylgishruni Samfylk- ingarinnar i skoðanakönnunum frá því um kosningar? „Þær era flórar. í fyrsta lagi, skort- ur á kjömum leiðtoga sem samstaða er um. í öðru lagi, vöntun á því að búið sé að stofna formlegan flokk úr þessum þremur til flórum hreyfing- um sem að Samfylkingunni standa. 1 þriðja lagi hefur skort að draga upp skarpa stefnu með fáum en einfóld- um þáttum sem þjóðin kallar á; þ.e.a.s. skýra stefnu í fiskveiðistjórn- un, þar sem við hefðum alla burði til að verða forystuflokkur, og skýra stefnu í umhverfismálum. Sá flokkur sem ég vil vera i er ákaflega grænn í eðli sínu og sú stefna verður að vera skýr. I flórða lagi er alveg ljóst að það er mun erfiðara að bræða saman nýja hreyfmgu en menn töldu. Það tók Mitterrand tíu ár að steypa sam- an einingum á vinstri væng franskra stjórnmála og skapa þann sterka jafnaðarmannaflokk sem til er í dag. Það tók breska Verkamannaflokkinn meira en áratug að breytast í þann flokk sem Tony Blair tók við úr höndum Neils Kinnock og Blair full- komnaði síðan með góðum árangri. Það er því ekkert skrýtið að það taki meira en ár að gera Samfylking- una að sterkum flokki. Mistökin sem við gerðum voru þau að við héldum að það tæki styttri tíma - og gáfum kjósendum þau skilaboð. En það vantar enn þá líminguna til að festa þessa flokka saman og vegna þess hve ung hreyfmgin er er hún illa í stakk búin tfl að taka áföllum." Tókum örlögin í okkar hendur „Við höfðum öll miklar væntingar í sambandi við kosningarnar en feng- um ekki þá niðurstöðu sem við vænt- um. Gagnvart kjósendum unnum við ekki rétt úr þeirri niðurstöðu. Ég held hins vegar að það sé mikill þróttur í grasrótinni og ég held að ef okkur tekst að ná hópnum okkar aft- ur, þá verði hægt að leysa mikla orku úr læðingi og gera góða hluti, hver sem kemur til með að leiða Samfylk- inguna." Nú beinast öll spjót að þér. Eftir hverju ertu að bíða? „Ég var búinn að setja mér aðra stefnu og hún snýr að flölskyldulífi. Ég hvorki get né vil taka aö mér for- ystuhlutverkið nema niðurstaðan verði sú, eftir ítarlega athugun, að það geti samræmst fiölskyldulífi mínu. Ef það verður ekki hægt þá tek ég það ekki að mér.“ Én þú varst í reynd tilbúinn til þess í prófkjörsslagnum og kosninga- baráttunni í vor. „Staðan hefur breyst hjá mér síð- an. Við Árný slógumst við barnleysi í flöldamörg ár. Ég er búinn að búa í fínu hjónabandi í aldarfiórðung, þar af barnlaus í tuttugu ár, og þegar ég lít til baka þá er ég mjög stoltur yfir því að við Ámý skyldum taka örlög- in að þessu leyti í okkar hendur. Við hreinlega breyttum þeim. Það er mjög erfitt að horfast í augu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.