Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2000, Qupperneq 31

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2000, Qupperneq 31
LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2000 friðsljós m ■ É i Kurteisin of dýr Faye Dunaway hefur heldur betur innsiglað orðstír sinn sem duttlungadrottning sýndar- veruleikans 1 henni Hollywood. Það var á dögunum að leikkon- an, sem var nýlega útnefnd sem mesta pest kvikmyndaheims- ins, samþykkti að mæta í sjón- varpsviðtal - sem líklega var fyrir henni bara tækifæri til að gera líf allra sem stóðu að þætt- inum að hreinu víti. Og það gerði hún. Hún byrjaöi á því að reka forðunarmeistarann sem átti að sjá um að andlitið á henni héldist á skjánum og krafðist þess að fá að sparsla sjálf upp i hrukkurnar. Síðan heimtaði hún að einhver yrði ráðinn tU að bera töskumar hennar, annar til að skreppa heim tU hennar til að sækja þennan eina hárblásara sem hún samþykkir að nota. Næst kom krafan um að enn einn skyldi ráðinn tU að sækja fótin hennar í þurrhreinsun og siðan lét hún tökuliðið biða eftir sér í tvær klukkustundir. En þá mætti hún líka í settið og ku hafa verið svo flott að liðið gleymdi að anda. „AUir“ voru sammála um að hún hefði verið „töfrandi" á skjánum, er haft eftir einum viðstöddum svo það má segja að aUt sé gott sem end- ar vel. Kurteisin hefði hins veg- ar getað orðið henni dýrkeypt. Stærðin sem skiptir máli Það ku ekki vera miklir kær- leikar á miUi leikkvennanna ít- urvöxnu, Rosie O’DonneU og Roseanne. Báðar eru þær með kjaftaþætti í sjónvarpinu og nota þættina tU að senda hvor annarri tóninn. Á dögunum sáuð þó heldur betur upp úr þegar Rosie játaði að vera í hönk yfir athugasemd Rose- anne. Sú siðarnefnda hafði sagt: : „Munurinn á þáttunum okkar er sá að ég hef misst 65 pund og hún hefur bætt þeim á sig.“ Þetta varð tU þess að Rosie fór á einhvern gígantískan hraðmegrunarkúr og hefur nú misst 16 pund. í stað þess að láta Roseanne koma sér í slíkt uppnám hefði líklega verið sniðugra hjá Rosie að benda á að hinn raunveru- !legi munur á þáttunum væri sá að hennar þáttur hefði sjö sinn- um meira áhorf en þáttur Rose- anne. í hinum harða sjónvarps- heimi Bandaríkjanna er það eina stærðin sem skiptir máli. Vill undir hnrfana Það er nú aUt í lagi að vera með komplexa en að vera með komplexa að óþörfu er út í hött. Sannast það best á Friends-skvísunni Courteney Cox Arquette. Nú eru hún og eigin- maðurinn, David Arquette, komin í fýlu hvort út í annað vegna þess að þau geta ekki komist að sameigin- legri niðurstöðu um löngun hennar tU þess að fara i plastaðgerð. Cour- teney sem er 35 ára álítur að aldurs- munur þeirra (David er 27 ára) sé stórmál og hún er tilbúin tU þess að leggjast undir hnífinn til að reyna að nálgast hann í aldri, sama hvað almanakið segir. Að vísu ætlar hún ekki að láta taka upp á sér aUt and- litið heldur aðeins að láta snyrta og slétta augnumbúnaðinn. „Ég sé ekk- ert að því,“ segir konan. En eiginmaðurinn hefur aðra skoðun. Allar hans kærustur hafa verið eldri en hann og honum hrýs hugur við því að einhver fari að pjakkast með hnífa í kringum aug- un á frúnni, einkum vegna þess að honum finnst konur verða fallegri með aldrinum. Þrátt fyrir þetta hefur Courteney ekki gefið sig. Maður skyldi nú halda að hún myndi hoppa og skoppa af kæti yfir því að fá að eld- ast með reisn og verða þar með lit- in marglyftum öfundaraugum ann- arra leikkvenna sem gjarnan vUdu vera í hennar sporum. Cinde^ella BYOIMG MESSAGE Laugavegi 83 • Sími 562 3244

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.