Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2000, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2000, Side 10
10 11 1 ' 1 —-- DV Útgáfufélag: Frjáls fjölmiölun hf. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjórar: Jðnas Kristjánsson og Óli Björn Kárason Aöstoóarritstjóri: Jónas Haraldsson Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiðsla, áskrift: Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: Frjáls fjölmiðlun hf. Filmu- og plötugerö: ísafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf. Áskriftarverð á mánuði 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr. m. vsk., Helgarblaö 250 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endur- gjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Óvirkar almannavamir Viöbrögð almannavarna við jarðskjálftanum fyrir viku voru nánast engin. Veðurstofan vanmat skjálft- ann, öryggisfjölmiðlar tóku sumpart seint og sumpart alls ekki við sér, björgunarsveitir voru ekki kallaðar út og neyðarstöðin á Laugalandi var ekki opnuð. Atburðarásin varð eins og ekkert skipulag almanna- varna við jarðskjálftum væri til. Varnaraðgerðir komu smám saman eins og af sjálfu sér, þegar stundarfjórð- ungarnir voru farnir að líða hver af öðrum og menn átt- uðu sig smám saman á umfangi vandans. Veðurstofan hafði ekki dómbæran mann á jarð- skjálftavakt og hélt fram, að jarðskjálftinn væri ekki nema brot af því, sem hann reyndist vera. Réttar frétt- ir af styrkleikanum komu fyrst frá Bandarikjunum og síðan frá óháðri jarðskjálftastofu á Selfossi. Veðurstofan er fjölmenn stofnun með hverjum sér- fræðingnum upp af öðrum. Ódýrara væri að semja við ellilaunafólk um að fylgjast í vaktavinnu með heimasíð- um bandarískra veðurstofa og ýta á viðeigandi hnappa, þegar þar er sagt frá hamförum á íslandi. Ekkert sjálfvirkt kerfi fór af stað til að koma upplýs- ingum á framfæri í síopnum fjölmiðlum ríkisins. Lög- reglan benti á útvarpið, sem hafði lítið til málanna að leggja, meðan starfsmenn þess flýttu sér í vinnuna. Rík- issjónvarpið hafði bara áhuga á fótbolta. Engin sjálfvirk öryggistenging fór í gang, þannig að fréttir kæmu til bráðabirgða beint frá Almannavörnum eða Veðurstofunni meðan fréttamenn væru á leiðinni í vinnuna, enda var alls enginn á vakt á fyrri staðnum og enginn kunnáttumaður á hinum síðari. Á Suðurlandi hafa verið æfð viðbrögð við stórum skjálftum. Enginn setti þessi viðbrögð í gang að þessu sinni. Öryggismiðstöðin á Laugalandi var aldrei opnuð, þótt hún væri nálægt þungamiðju atburðanna. Kalltæki björgunarsveitamanna þögðu þunnu hljóði. Enginn reyndi að hringja skipulega á bæi til að kynna sér, hvort slys hefðu orðið eða fólk lent í sjálf- heldu. Engin tilraun var gerð til að fara skipulega milli bæja til að kanna, hvort björgunaraðgerða væri þörf. Það var eins og allir væru að horfa á fótbolta. Árvökulir björgunarsveitamenn urðu sjálfir að koma sér á framfæri og forvitnast um, hvort ekki væri eitt- hvað fyrir þá að gera. Þannig liðu fyrstu klukkustund- imar meðan smám saman var að koma í ljós, að við höfðum verið heppin að þessu sinni. Atburðarásin var nákvæmlega eins og engar al- mannavarnir væru til í landinu, engin skipulögð neyð- aráætlun með fyrir fram ákveðnu ferli ákvarðana og aðgerða. Menn tóku smám saman við sér, spiluðu eftir eyranu og fóru ekki eftir áður þjálfuðu ferli. Þetta vekur spumingar um, hvort við þurfum að kosta Almannavarnir af opinbem fé, hvort við þurfum að kosta jarðskjálftavakt af opinbem fé, hvort við þurf- um að kosta öryggisfjölmiðla af opinberu fé? Fengist betri þjónusta með því að bjóða hana út? Auðnuleysi kerfisins um síðustu helgi kom að ofan. Það voru miðstöðvar helztu þátta almannavarna, sem bmgðust. Almennir björgunarsveitamenn voru reiðu- búnir og almenningur hafði burði til að bjarga sér. Fólk náði sér í réttar fréttir á bandarískum heimasiðum. Það merkilega er, að trausti rúið kerfi almannavama hagar sér eins og ekkert hafi í skorizt og gerir enga tilraun til að finna, hvers vegna það fraus. Jónas Kristjánsson ________________________________________________LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2000 Skoðun DV Hægri jaðarpólitík Pat Buchanan hefur verið óþreyt- andi málsvari þeirra afla, sem lengst eru til hægri í bandarískum stjómmál- um. Hann hlaut þjálfun sína í pólitísk- um bellibrögðum í forsetatíð Richards Nixons í upphafi 8. áratugarins: Þá fékk hann það hlutverk að breiða út óhróður um frambjóðendur demó- krata. Buchanan varð síðan þekktur fyrir að taka þátt í forkosningum repúblikana fyrir forsetakosningamar 1992 og 1996 og sem stjómandi um- ræðuþáttar um stjómmál á sjónvarps- stöðinni CNN. Nú hyggst hann bjóða sig fram til forseta á vegum Umbóta- flokksins sem Ross Perot, fyrrverandi forsetaframbjóðandi, stofnaði. Ekki er svo að skilja að Buchanan eigi ein- hvem möguleika sigri, enda mun bar- áttan standa milli frambjóðenda stóm flokkanna, þeima A1 Gore, varaforseta og George W. Bush, ríkisstjóra í Texas. En framboð Buchanans utan Repúblikanaflokksins er táknræn fyrir það umrót, sem nú einkennir hægri væng stjómmálanna. Mikil gerjun á sér nú stað yst á hægri væng bandarískra stjórnmála enda hefur Repúblikanaflokkurinn leitað æ meira inn á miðjuna í þeirri von að hreppa forsetaembættið í nóvember. Hægri maðurinn Pat Buchanan hefur sagt skilið við Repúblikanaflokkinn og býður sig fram til forseta undir merkjum Umbótaflokksins. Breytt valdahlutföll Eftir að kalda stríðinu lauk hafa erkiíhaldsmenn átt sífellt erfiðara með að fóta sig í bandarískum stjómmálum enda var baráttan gegn kommúnism- anum eitt helsta sameiningartákn þeima. í fyrsta lagi hefur boðskapur þeirra um menningar- og félagshnign- un, sem rekja megi til þjóðfélags- strauma 7. áratugarins, ekki hlotið hljómgrunn meðal kjósenda. í annan stað hefúr góðærið í Bandaríkjunum gert það að verkum að yfirlýsingar þeirra um þörfma á stórfelldum niður- skurði í ríkisfjármálum hljómar ósannfærandi enda hafa repúblikanar á þingi sagt skilið við þá stefnu. í þriðja lagi hafa þeir þurft að sætta sig við miðjumann sem forsetaframbjóð- anda Repúblikanaflokksins. Það að vera hófsamur repúblikani með ættarnafnið Bush var nógu slæmt. En í þeirra augum tók steininn úr þegar John McCain virtist um tima eiga möguleika á að hljóta útnefningu repúblikana. Einn helsti andlegi leiðtogi banda- rískra hægri manna, William Kristol, lýsti því þá yfrr að sú íhaldsstefna, sem kristallast hafði í árangurslausu for- setaframboði Barrys Goldwaters árið 1964 og tók á sig fullskapaða mynd með sigri Ronalds Reagans árið 1980, væri dauð úr öllum æðum. Því fer viðs fjarri en staðreyndin er engu að síður sú að hægri vængur Repúblikanaflokksins fer þar ekki lengur með hugmyndafræðilegt for- ræði. Hófsamari repúblikanar stjóma mörgum áhrifamestu fylkjum og borg- um Bandaríkjanna og þeir hafa forðast að taka upp umdeild baráttumál gegn fóstureyðingum, samkynhneigðum og innflytjendum. Til að bregðast við þessu áhrifaleysi hafa ýmsir róttækir hægri menn leitað á ný mið. Eitt dæmi þess er Buchanan: Hann hefur ekki að- eins yfirgefið Repúblikanaflokkinn, heldur einnig tekið yfir Umbótaflokk Perots þar sem fyrir er fólk af allt öðm pólitísku sauðahúsi. Buchanan hefur safnað um sig hópi harðra stuðnings- manna, sem líkja má við „nútíma- svartstakka" að því er varðar foringja- hoilustu. Gagnrýni Buchanans á hemaðar- íhlutun NATO á Balkanskaga og refsi- aðgerðimar gegn Irak átti þátt í því að hann myndaði bandalag með róttækri vinstri konu, Lenoru Fulani! Varla þarf að taka það fram, að slíkt pólitískt samstarf hefði verið óhugsandi fyrir tíu árum. Erlend tíöindi Valur Ingimundarson stjórnmála- sagnfræöingur Fulani berst fyrir flestu þvi sem Buchanan er andvígur: Hún er sósí- alisti, vill rýmka innflytjendalöggjöf- ina og taka upp baráttu gegn kynþátta- hyggju og styður fóstureyðingar. En hún hafði sama markmiö og Buchan- an: að ná áhrifum í Umbótaflokknum til að komast á blað í forsetakosning- unum. Þegar upp var staðið reyndist Buchanan henni yfirsterkari: Hann hyggst gera flokkinn að hrein- ræktuðum hægri flokki. Nú hefur Ful- ani sagt skilið við Buchanan og sakað hann um pólítíska þröngsýni. Hann hafi t.d. ekki sinnt höfuðmarkmiðum bandalags þeirra að berjast fyrir breyt- ingum á fjármögnun kosninga og gegn alþjóðavæðingu og utanríkisstefhu Bandaríkjastjómar. Staða Buchanans Fátt bendir til þess að framboð Buchanans hafi bein áhrif á kosninga- úrslitin í nóvember. Búast má við að hann fái í mesta lagi 5% atkvæða. En það verður forvitnilegt að fylgjast með því hver áhrifm verða á bandaríska hægri pólitík. Það er allt annað að skipuleggja kosningabaráttu en halda fLokki eins og Umbótaflokknum saman milli kosninga. Það fékk öfgamaðurinn George Wallace, ríkisstjóri í Alabama, að reyna þegar hann bauð sig fram sem málsvari „Suðurríkjagilda“ í for- setakosningunum árið 1968. Fylgi flokks hans fór úr 13,5% árið 1968, í 0,21% árið 1976 og 0,05% árið 1980. Frambjóðandi Kommúnistaflokks Bandaríkjanna fékk jafnmikið fylgi það ár. Spumingin er því sú hvort þeir sem em yst á hægri væng í bandarískum stjómmálum reyni að skipuleggja bar- áttu sina utan Repúblikanaflokksins eða hvort klofningsöfl, eins og ýmsir kristilegir hópar, sem styðja nú Buchanan, snúi aftur til fóðurhús- anna. kjarnflauga samningur , t Sjaðu...! Loksins skotmark sem við getum hitt. V fr

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.