Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2000, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2000, Side 20
20 Helgarblað LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2000 DV u JL ■JLafsteinn Guðbjömsson hefur starfað sem heílari fyrir Sálar- rannsóknarfélag íslands í rúm tíu ár. Stór hluti starfsins er beiðni um tyrir- bænir frá veiku fólki. Ennfremur hef- ur aukist að leitað sé eftir aðstoð þar sem fólk verður vart við eitthvað sem það finnur fyrir heima hjá sér. Það getur verið allt frá því að hiutir fari á hreyfingu, kveikt sé á rafmagnstækj- um eða skrúfað frá krönum, einnig kemur fyrir að fólk finni fyrir ein- kennilegum óþægindum eða kulda- hrolli. Einnig kemur fyrir að beðið sé um hjálp fyrir böm sem sjá eitthvað sem aðrir sjá ekki og þau eru hrædd við. Algengt er að böm séu skyggn á vissum aldri. Rennur upp fyrir mér „Það er ákaflega erfitt að útskýra skyggni, þetta er mjög ómyndrænt efni. Ég gæti til dæmis beðið fólk um að leyfa mér að finna hvemig það upp- lifir ástina, þaö er ekki hægt. Þetta er huglæg tiifmning. Ég er reyndar með ákveðið kerfi sem ég er búinn að koma mér upp þegar ég tala við þá þama hinum megin. í vissum skiln- ingi em þetta sýnir, ég bið um upplýs- ingar, síðan bíð ég í smástund og svo fara að renna fyrir mér myndir í hug- anum sem ég hef enga stjóm á. Þetta stendur stutt yfir og myndimar fara yfirleitt mjög hratt hjá. Þetta em leift- ur, en þeim fylgir gríðarlegt magn upplýsinga sem ég er oft lengi að vinna úr. I mínum huga er þetta það sem kallað er skyggni." Fjarlægðir og tungumál skipta engu máli „Ég sit yfirleitt heima hjá mér í friði og ró, vel undirbúinn og virðist geta fengið upplýsingar í gegnum mín sambönd hinum megin. Ég þarf ekki að þeytast um allar sveitir, það er nóg að fólk hringi í mig. Samband mitt við hinn heiminn er kannski ekki ólikt því og þegar fólk talar í farsíma. í dag ætti fólk í raun að vera betur í stakk búið til að skilja svona mál. Tæknin er orðin svo fullkomin að fjarskipti eru í raun ekkert mál. Þetta em bara fjar- skipti án farsíma. Það þekkjast heldur ekki nein landamæri í sambandi við miðilsskap eða handanheiminn, ég er að biðja fyr- ir látnu og þurfandi fólki um allan heim. Það er mikið haft samband við mig frá Dulræn fyrirbæri: Ásóknir og Jjp iarðbundnar verur •J . _. .. kvæmt mál að ég vil ekki láta hafa nokkuð eftir mér um það. Það má ef til vill orða þetta þannig að það sem er hinum megin er líka hér, þetta er í raun spegilmynd. Það er hægt að hækka og lækka í ljósinu báð- um megin, ef þú finnur einhvem sora hér þá finnur þú hann líka hinum megin. Fólk sækir oft sína heim þegar það fer yfir og getur því verið áfram i sinni óreglu ef það vill.“ Ásóknir og jarðbundnar verur „Skipta má ásóknum og jarðbundn- um vemm í mismunandi hópa eða flokka. í fyrsta lagi em það svipir sem sjást á sveimi og em ekki sálir manna heldur eterlíkamar sem losna frá and- lega líkam- - viðtal við Hafstein Guðbjömsson heilara Hinir látnu eru ekki í kirkju- görðum „Andstætt því sem margir halda þá hafa hinir látnu engin sérstök tengsl HEALER PRACI'ITIONER ASSOCIATION LNTERNATIONAL ia Northcote Sireet. Cardiff. CF2 3BH REGISTERED CHARTTY No: 507420 Certificaíed Healer latsniH Bilblarassaa UH •»? RENEWABLE ANNUALLY Víöa um heim er heilun viðurkennd starfsgrein. Hafsteinn er meðlimur í alþjóöasamtökum heilara. Norður- löndunum, Evrópu og Bandaríkj- unum. Þetta virk- ar í gegn- um öll landamæri, fjarlægðir og tungu- mál skipta engu máli. Það breytir engu hvort ég er að biðja fyrir Hol- lendingi eða Ameríkana, þetta em huglæg áhrif sem birtast i tilfinning- um. Ástin er alveg eins í Hollandi, Ameríku og á íslandi. Mér er leyft þetta til þess að koma fólki út úr einhverju ástandi sem það er fast i. Fólk getur lent í alls konar hremmingum, bæði stómm og smáum. Til dæmis hringdi einu sinni í mig kona utan af landi. Hún dofnaði öll upp öðm hvom á nóttunni og gat ekki hreyft sig. Hún lá bara hreyfingarlaus en sá fyrir sér mann sem stóð yfir henni. Þegar ég fór að spyijast fyrir um þetta kom í ljós að tengdafaðir hennar, sem látist hafði af slysfórum, var að heimsækja hana en gat ekki náð sambandi. Konan upplifði þetta sem doða og máttieysi en hinn látni var að reyna að koma til hennar upp- lýsingum um ljósmynd sem hann vildi koma á framfæri." Enn á steinöid „Að vissu leyti má segja að við séum enn á steinöld hvað þessi mál varðar. Fólk hefur til dæmis haft sam- band við presta þegar svona atvik hafa komið upp en það skilar yfirleitt litl- um árangri. Þetta er reyndar svo við- anum fara flakk ar og á þeg- fólk deyr. Þess- ir eterlík- amar eiga að tengjast andlega líkaman- um en gera það ekki. Et- erlikamar sækja sér oft kraft til fólks sem ekki er í andlegu jafnvægi og til bama og unglinga. Ná- vist þeirra virkar oft sem kuldi eða hrollur. í öðru lagi eru það jarðbundnar ver- ur sem skiptast í þrjá undirhópa. Það er fólk sem ekki veit að það muni lifa dauðann af og getur því ekki skilið hvað hefur gerst, skilur ekki að það sé látið og finnst það enn eiga heima meðal hinna lifandi. Þetta fólk er ósátt við þær breytingar sem hafa átt sér stað og því fylgir oft alls konar brak og bank og hlutir eiga það til að hreyfast úr stað þegar þetta fólk er að láta vita af sér. Svo er til fólk sem veit að það er lát- ið en hefur áhuga á að láta lifandi fólki í té upplýsingar og frnnst því áríðandi að vekja á sér athygli. Einnig er til látið fólk sem reynir að ná stjóm á lifandi fólki til að gera það sem hinn látni vildi gera í lifanda lífi. Þetta er stundum kallað ásókn. Það er því áríðandi fyrir alla sem em að fikta við andleg mál, t.d. anda- glas, eða opna sig andlega að gera það ekki nema undir stjóm þjálfaðs fólks og læra að vemda sig vel.“ við kirkjugarða. Þeir hafa margsinnis sagt okkur það og þeir skilja satt að segja ekkert í þessu kirkjugarðadálæti í fólki. En það em til eterlíkamar sem þvælast um, þetta em tóm hylki sem em hvorki sálin né nokkuð annað. Þetta em alveg meinlaus fyrirbæri, ekki til nokkurra hluta skaðleg og eyð- ast smám saman. Það kemur fyrir að fólk sér þeim bregða fyrir og þeir geta alveg eins verið í kirkjugörðum eins og annars staðar.“ Skipt um húsnæði Fólk verður oft fyrir dulrænni reynslu þegar það skiptir um húsnæði og breytir engu hvort um er að ræða gamalt eða nýtt húsnæði. Það hefur til dæmis ýmislegt gengið á í nýrri hverf- um borgarinnar að undanfomu. Fólk ætti hiklaust að taka mark á þeirri tilfinningu sem það fær fyrir húsnæði þegar það er að velja. Ef fólki finnst andinn í húsinu góður finnur það fyrir góðum áhrifum og ætti þvi að velja eftir því.“ Óútkljáð mál „Einu sinni hafði samband við mig fólk og bað mig að skoða einkennilega atburði sem áttu sér stað heima hjá því. Það var verið að fikta í hurðar- húnum og stundum kviknaði á video- tækinu af sjálfu sér. Fólkið varð líka vart við bank og alls konar skark í húsinu. Þegar ég fór að athuga þetta kom í ljós að þama var á ferðinni maður sem alla sína tíð hafði verið mjög skipulagður. Hann vildi koma því á framfæri að hann hefði arfleitt fólkið að bíl og pappíramir lágu inni í geymslu óhreyfðir. Þetta mál hafði verið óútkljáð innan fjölskyldunnar og valdiö deilum. Pappíramir fundust eftir þetta og málið leystist farsæl- lega.“ Ósofandi í svefnherberginu „Fyrir nokkrum árum keyptu eldri hjón lítið, fallegt hús úti á landi. Þau vom mjög ánægð með að flytja í húsið en komust fljótlega að því að það var ósofandi i svefnherberginu fyrir þyngslum og óþægindum. Þetta var reyndar alveg að fara með þau. Að lok- um hringdu þau til mín og báðu mig að vita hvort það væri eitthvað þama inni sem sem ekki ætti að vera þar. Ég skoðaði þetta með minni skyggni og komst að því að þama var ekki neitt óhreint. Ég sá aftur á móti lang- veika konu, hún hafði legið þama veik lengi og þjáðst mikið. Hún hafði reyndar veslast þama upp ein eftir að maður hennar dó. Húsið hafði svo ver- ið sett á sölu eftir að konan dó. Konan sem var mjög þrjósk hafði neitað að yfirgefa húsið og afþakkað alla hjálp. Hún þjáðist mikið og átti mjög erfitt bæði andlega og líkamlega. Þetta ástand sat svo eftir sem hugform í herberginu. Til þess að ná svona hugformum út þarf að gera eitthvað andstætt því sem þar hefur farið fram. Það er til dæmis gott að spila nokkuð kröftuga tónlist eða fjöruga. Tónlistin hreyfir við svona ástandi og hreinsar það út. Það em bylgjur í tónlist sem hafa áhrif á þessi hugform og leysa þau upp. Ég hvatti fólkið til að spila hátt mikið af tónlist í svefnherberginu þegar það væri ekki heima. Það skiptir miklu máli að fólk spili glaðlega og hressa tónlist sem lyftir andanum. I svona tilfellum má hún alls ekki vera niðurdrepandi eða tregafull. Svoleiðis tónlist má aftur á móti nota til að ná róandi ástandi. Þessi aðgerð skilaði að lokum ár- angri, það tók að vísu nokkra mánuði að losna alveg við þetta.“ Það drekkur enginn í gegnum annan mann „Einu sinni hafði samband við mig fólk sem hafði nýlega flutt í raðhúsaí- búð í gömlu hverfi í Hafnarfirði. Fólk- ið fann fyrir miklum þyngslum i hús- inu og fannst erfitt að vera í því, sér- staklega í stofunni. Það kom jafnvel fyrir að það fann fyrir reykingalykt. Að lokum hafði það samband við Sál- arrannsóknarfélagið og bað um að þetta yrði hreinsað út, eins og það orð- aði það. Ég kíkti á þetta og komst að því að þama inni sátu bara rónar og sukklið, dóparar og hálfgert útigangs- fólk. Þetta fólk haiði eins og oft vill vera dáið úr sukki eða verið af þeim mannfélagsstiga. Þetta fólk sem var látið hafði fylgt fyrri íbúum hússins sem sjálfir höfðu verið í sukki. Svona verar sækjast eftir vimunni og sogast því að fólki sem stundar slíkt lífemi. Sumir halda því fram að verið sé að drekka í gegnum fólk, ég er algerlega á annarri skoðun. Það drekkur enginn í gegnum annan mann. Þeir sem eru hinum megin og eru enn þá óupplýst- ir eða hvemig á að orða það sækja f fé- lagsskapinn þar sem sukkið fer fram. Með því að vera í návist við sukkið upplifir það áhrifm, um leið og fólk hættir sukki hverfur það á brott. í tiifellinu sem hér um ræðir neit- uðu sukkverumar aftin- á móti að fara, þær vildu halda uppteknum hætti og voru því að pirra nýju íbúana og reyna að koma þeim út. Það reyndist auðvelt að koma þessum sukkvemm út þar sem þær höfðu enga krafta tO að streitast á móti. Verumar hreinlega gufuðu upp eftir að búið var að biðja þá hinum megin um að hleypa þeim út.“ Fólk misjafnlega næmt „Fólk sem deyr skyndfiega eða ótímabært og er ósátt við það getur lent i miklum vandræðum við að kom- ast yfir og þar sem lifandi fólk er mjög misjafnlega næmt finnur það mismik- ið fyrir áhrifum þess. Einu sinni gerðist það að manni nokkrum úti á landi fannst eins og það væri alltaf lagst ofan á hann á nóttinni, svona rétt eftir miðnætti. Honum fannst eins og hann væri að kafna eða þá að það væri einhver að kyrkja hann. Hann fann fyrir miklum þyngslum, svita og auknum hjartslætti. Þetta ástand stóð yfirleitt í klukkutíma og fjaraði þá út. Kona mannsins sem svaf við hliðina á hon- um varð aftur á móti aldrei vör við neitt. Þegar ég fer að skoða þetta er mér sýnt tveggja hæða gamalt timburhús, gult að lit, sem nokkuð er farið að láta á sjá. Ég hef samband við manninn og bið hann að spyrjast fyrir um þetta hús. Kemur þá í ljós að húsið sem búið var að rifa stóð á bílastæði þar sem maðurinn lagði bílnum sínum. Nokkmm árum áður en húsið var rif- ið hafði ungur maður hengt sig þar í æðiskasti. Sá sem fyrirfór sér var greinfiega mjög ósáttm- við það og gat ekki losað sig frá staðnum. Eftir að ég bað um að hann yrði sóttur og færður inn í ljósið hættu ásóknimar eins og skot. Maðurinn sem fyrir ásókninni varð var í raun að upplifa henginguna aft- ur og aftur, nótt eftir nótt.“ Langtíland Hafsteinn tekur starf sitt mjög al- varlega og vill í raun sem minnst tala um það. Hann er meðlimur í breskum samtökum sem nefnast Christian Healers Society og hefur réttindi til að starfa sem heilari þar. Hann segir að í Bretlandi sé heilun viðurkennd starfs- grein og hafi heilarar leyfi til að starfa inni á sjúkrahúsum. En hér á landi sé enn langt í land að fagið hljóti opm- bera viðurkenningu. -Kip

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.