Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2000, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2000, Side 21
21 LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2000 X>V_________________________________________________________________________________________________Helgarblað Dulræn fyrirbæri: - blessunarorð breyttust í blótsyrði Trú á drauga og draugagang er almennari en ætla mætti í fyrstu. Sumir drauga hafa öðlast lands- frægð eins og djákninn á Myrká og Miklabæjar-Sólveig. Minna þekkt- ir draugar eru til dæmis Hofstaða- móri, Hvítárnesvofan, Latínu- draugurinn, Flöskudraugurinn og Loðni maðurinn. Hofstaðamóri er afturgenginn sauðamaður sem hengdi sig á Hof- stöðum í Svarfaðardal. Þeir sem séð hafa til hans segja að hann sé fremur ógeðslegur með reipi um hálsinn og tunguna lafandi í öðru munnvikinu. Hvítámesvofan er kvenkyns og verður hennar stundum vart, eink- um í efri kojunni í innra herberg- inu í sæluhúsi Ferðafélags ísland í Hvítámesi. Latínudraugurinn er afturgeng- inn stýrimaður af hollenskri skútu. Þegar líkið rak á land var hárið alltaf öðrum megin og augun til húsa við Hverfisgötu er sagt að ritvélar ráðuneytisins hafi stund- um farið að pikka sjálfar eftir að rökkva tók og fámennt var í hús- inu. Einnig eru til hús þar sem draugagangs hefur orðið vart tíma- bundið en þá er skarkárum eða ærsladraugum kennt um. Höföadraugurinn Höfði er líklega frægasta drauga- hús í Reykjavík. Húsið var reist 1909 sem íbúðarhús fyrir franska konsúlinn á íslandi. Einar Bene- diktsson, skáld og framkvæmda- maður, bjó í húsinu um tíma og vilja margir tengja reimleikana við fylgju hans. En það er ekki fyrr en um 1950 að verulega fer að bera á draugagangi i Höfða og gekk svo mikið á um tíma að sendiherra Breta, sem bjó þar, flutti út og seldi húsið. Siðan hafa ýmsir þóst verða varir við eitthvað á sveimi í Höfða. Dlllonshús / febrúar áriö 1953 áttu sér staö hörmulegir atburöir í þessu húsi. inn á heimilinu, sem var 35 ára gamall lyfjafræðingur, eitraði fyrir konu sína, sjálfan sig og þrjú börn á aldrinum þriggja til sex ára. Á náttborði húsbóndans fannst glas merkt: „Eitur“ og bréf frá honum. í bréfinu stóð að hann væri dauð- vona vegna veikinda og að hann gæti ekki hugsa sér að skilja kon- una og börnin eftir. Dillonshús var á sínum tíma flutt upp á Árbæjarsafn og hafa starfsmenn safnsins oft orðið varir við umgang og óróleika í því. Lifa góðu lífi Af ofangreindu ætti að vera ljóst að draugar og draugagangur lifa enn góðu lífi i íslensku samfélagi þrátt fyrir aUt umtal um að fólk trúi ekki lengur á það. Fólk trúir kannski ekki lengur á drauga en innst inni er það jafnhrætt við þá og áður. Kip Dulræn fyrirbæri: Beðið fyrir látnum - bamið varð skyndilega hrætt að tLlefnislausu I janúar 1997 hafði kona sem heit- ir Anna Guðrún samband við Haf- stein og bað hann að biðja fyrir syni sinum sem var rúmlega tveggja ára gamall. Hún hafði tekið eftir því barnið varð stundum skyndilega hrætt að tilefnislausu. Taldi hún að drengurinn yrði hræddur vegna einhvers sem hann sæi. Hafsteinn tók málið fyrir og bað fyrir drengnum. Hann varð þá var við það sem drengurinn sá og reyndist það vera karlmaður á þrí- tugsaldri. Maðurinn var góðlegur að sjá og auðsjáanlega ekki farinn fyrir löngu eftir klæðaburði hans að dæma. Hefur Hafsteinn því næst samband við Önnu Guðrúnu og seg- ir henni að hér sé ekki um neitt illt að ræða, maðurinn þurfi bara á hjálp að halda. Nokkrum dögum seinna hefur Anna Guðrún aftur samband viö Hafstein og segist hún þá vera búin að tala við aðra íbúa í húsinu en hún býr ásamt syni sín- um í nýlegri blokk. Hafði komið í ljós að fleiri íbúar í blokkinni höfðu sömu sögu að segja og einnig íbúamir í næstu blokk. Við nánari athugun kom í ljós að maður á þrí- tugsaldri, sem unniö haföi hjá verk- takanum sem byggði blokkina, hafði orðið fyrir vinnuslysi og lát- ist. Hann hafði verið giftur og tveggja barna faðir. Bað Hafsteinn fyrir honum og meðan á því stóð sá hann tvær bjartar verur koma til mannsins. Taka verumar sín undir hvom handlegg hans og leggja af stað með hann upp á lítinn bala en þetta er fyrir Hafsteini allt eins og í móðu. Skyndilega sér Hafsteinn skil á móðunni og er eins og komið sé upp úr vatni. Blasir þá við hon- um mjög skýrt landslag með falleg- um görðum og tjömum. Það sem vekur mesta athygli hans er fallegt stórt hús sem minnir mest á heilsu- hæli. Er honum þá sagt að þetta sé staður þar sem tekið er á móti fólki eða sálum sem ekki séu búnar að átta sig á því að þær séu látnar. Hvarf svo þessi sýn en eftir sat vissa fyrir því að sál þessa manns myndi farnast vel i nýjum heim- kynnum. Hann fengi hjálp og fræðslu til þess að komast yfir það slys sem hann lenti í og þá sorg sem því fylgdi að hverfa svo snögg- lega frá konu og börnum. Hafsteinn hafði samband við Önnu Guðrúnu nokkrum dögum seinna og hafði sonurinn ekki orðið var við neitt óvenjulegt eftir þetta né síðan. -Kip ur þótti honum kalt í húsinu. Skömmu eftir að hann leggst til hvílu finnst honum eins og konan komi aftur inn í húsið og skiptir engum sköpum að hún ræðst á hann og reynir að hafa hann und- ir. Takast þau á alla nóttina og seinna sagði maðurinn að hann hefði verið dauðhræddur um að hún myndi drepa sig. Undir morg- un tekst þó manninum að losa sig undan taki konunnar og sleppa út. Hann fór strax til lögreglunnar og sagði sögu sina og var honum fylgt að húsinu. Þegar þangað var kom- ið og saga hans athuguð nánar fannst lik konu, sem látist hcifði daginn áður, liggjandi á gólfinu og greinileg merki um átök. Hólavallagarður Svo virðist sem draugagangur sé nokkuð algengur í nágrenni við gamla kirkjugarðinn við Suður- götu og vilja sumir meina aö það sé i raun ekki hægt að búa í hverf- inu vegna reimleika. Til dæmis má nefna að fólk hefur heyrt óútskýr- anlegan vungang í gömlu slökkvi- stöðinni við Tjarnargötu og í hús- um við Tjarnagötu og Hólatorg. Eigendaskipti eru tið í sumum húsum í hverfmu, til dæmis á Ásvallagötu. Dillonshús í febrúar árið 1953 áttu sér stað hörmulegir atburðir í húsinu að Suðurgötu 2 í Reykjavík. Húsbónd- Reykjavíkurdraugar í Reykjavík eru nokkur hús sem fræg eru fyrir draugagang og mörg önnur þar sem menn telja sig hafa oröið vara við eitthvað skrýtið eða óútskýranlegt. Sagt er að Amdal, fyrsti hús- vörðurinn í húsi Kennaraháskól- ans við Stakkahlíð, gangi þar aft- ur. Almennt er hann talinn góðvilj- aður og gangi hægt um, það er einna helst að menn heyri frá hon- um kamelhósta annað slagið. Á meðan menntamálaráðuneytið var Kennaraháskóli íslands Sagt er aö Arndal, fyrsti húsvöröurinn í húsi Kennaraháskóians viö Stakkahlíö, gangi þar aftur. Höföi Höfðadraugurinn er líklega eini íslenski draugurinn sem öölast hefur heims- frægö. höfðu verið étin úr tóftunum af marflóm. Skömmu eftir að líkinu var holað í jörðina fór að bera á reimleikum, sem fólust í því að höfuð stýrirmannsins sást mynd- ast úr eldglæringum. Ýmislegt var reynt til að kveða drauginn niður en ekkert gekk og var þvi kennt um að hann skildi ekki íslensku. Að lokum var fenginn prestur til að ávarpa drauginn á latínu og hef- ur hans ekki orðið vart síðan. Flöskudrauginn er að finna í Naustvíkum á Ströndum og heyra menn stundum glamrið í honum þar sem hann ráfar um með striga- poka fullan af tómum brennivíns- flöskum. Sagt er að Loðni maðurinn sem rak á Meðallandsfjöru hafi verið með klær á öllum fmgrum og tám og líkami hans kaíloðinn. Útfór hans snerist öll við, grallarinn varð að klúrasta guðlasti og bless- unarorð breyttust í blótsyröi. Þeg- ar síðast sást til Loðna mannsins var hann að berja kirkjuna að utan með spýtum úr líkkistunni sinni. Höfðadraugurinn er líklega frægastur íslenskra drauga þar sem hann var mikið í erlendum fjölmiðlum meðan á fundi þeirra Reagans og Gorbatsjofs stóð. Franski spítalinn Líkhús franska spítalans í Reykjavík stóð við Lindargötu þar sem Tónmenntaskólinn er nú til húsa. Sagan segir að utanbæjar- maður sem nýkominn var í bæinn hafi verið á ferð um Lindargötu í leit að gistingu. Mætir hann konu sem gefur í skyn að hann eigi að fylgja sér og gerir hann það. Kon- an vísar honum inn i lítiö hús og bendir honum á rúm eða öUu held- ur borð sem hann getur lagt sig á. Síðan fer hún. Maðurinn telur sig lánsaman að fá svefnstað en held-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.