Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2000, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2000, Page 32
32 LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2000 DV Helgarblað Stjórnarformaður íslands Vil lá me - Benedikt Sveinsson, stjórnarformað ur Sjóvár-Almennra, Eimskips, SR- mjöls og Marels, í DV-viðtali um hlutabréfamarkaðinn, völd, áhrif og ættarveldi Benedikt Sveinsson Hann segist ekki gefa mikiO fyrir vangaveltur um hvort hann sé valdamesti maöur í íslensku viöskiptalífi. Hann segist fyrst og fremst vilja láta gott af sér leiöa í íslensku atvinnulífi. Benedikt Sveinsson er rúmlega sextugur lögfræö- ingur sem býr í Garðabæ og spilar golf í tómstundum sinum. Þetta er lýsing sem á vissulega viö þann Bene- dikt sem þetta viðtal er við en fer samt hvergi nærri því að lýsa honum. Benedikt Sveinsson er stjórnarformaður Eimskips, Sjóvár-Almennra, SR-mjöls og Marels. Hann situr auk þess í stjóm Flugleiða og er einnig samkvæmt venju stjórnarformaður dótturfyr- irtækja Eimskips. Hann lét fyrir tveimur árum af emb- ætti oddvita meirihluta sjálfstæðismanna í Garðabæ eftir 12 ára setu í bæjar- stjórn og tók heiðurssætið á listanum. Benedikt útskrifaðist úr lagadeild HÍ 1964 og tók fljótlega að reka eigin lög- fræðistofu sem hann starf- rækti fram til 1982. Foreldr- ar Benedikts voru Helga Ingimundardóttir og Sveinn Benediktsson. Sveinn var „Ég vissi hvað sneri fram og aft- ur á skipi og lærði mikið af Björg- vini. Samanlagt þekktum við marga útgerðarmenn." Sjóvá-Almennar eru stærsta tryggingarfyrirtæki landsins, stofn- aðar 1989 þegar Sjóvátryggingafélag- ið rann saman við Almennar trygg- ingar. „Almennar tryggingar voru al- menningshlutafélag sem Sjóvátrygg- ingafélagið var ekki. Þar voru mun færri hluthafar. Faðir minn vann lengi og náiö með Halldóri Þor- steinssyni í Háteigi sem var einn stofnenda félagsins og faðir minn var stjómarformaður í áratugi en þegar hann lést var ég beðinn að koma inn í hans stað.“ Engin eigendaskipti á dagskrá Benedikt, móðir hans og systkini eiga samanlagt 18,6% í Sjóvá-Al- mennum. Fyrirtækið er metið á ríf- lega 25 milljarða miðað við gengi á Opna tilboðsmarkaðnum en hefur nú verið skráð á Verðbréfaþinginu. Þegar fréttist af fyrirhugaðri skrán- ingu í vetur hækkaði gengi bréfa í félaginu talsvert eða um 50 prósent frá áramótum. Ekki stendur til að auka hlutafé i félaginu og því vakn- ar sú spurning hvort breytingar verði á eignarhlutfollum við að opna félagið en félagið mun almennt vera talið góður fjárfestingarkostur og því ólíklegt að núverandi eigend- ur séu fúsir til að selja. „Ég veit ekki til þess að neinir af núverandi hluthöfum vilji selja sinn umsvifamikill útgerðarmað- ur, atvinnurekandi og at- hafnaskáld, litríkur per- sónuleiki og baráttumaður. Hann var bróðir Bjarna for- sætisráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins og Pét- urs bankastjóra og sendi- herra, svo lauslega sé drep- ið á ættir Benedikts. „Ég fór eins og aðrir ungir náms- menn í vinnu á sumrin, yflrleitt hjá föður mínum við síldarsöltun, oftast á Raufarhöfn. Faðir minn gerði þetta á eigin áhættu og vann að þessu af miklum krafti og þetta voru mín fyrstu kynni af íslensku atvinnulífi." Byrja&l á planinu Benedikt hefur lengi verið tengd- ur sjávarútveginum sterkum bönd- um. Fyrstu árin eftir að hann hóf lögfræðistörf vann hann jafnframt sem skoðunarmaður fyrir erlenda sUdarkaupendur og naut þekkingar sinnar af sUdarplönunum hjá foður sínum. Síðar fékkst hann mikið við skipasölu I samvinnu við Björgvin Jónsson, alþingismann frá Seyðis- flrði. Fyrirtæki á hinum svokallaöa „gráa markaöi“ hafa notiö mikilla vinsælda og bréf í fyrirtækjum eins og deCode og Oz veriö mjög eftirsótt. Benedikt segir aö Sjóvá hafi fariö varlega í kaup í slíkum fyrirtækjum en kannast viö aö fyrirtækiö eigi bréf í deCode. hlut. Félagið á sjálft um 10% eign- arhlut og það stendur til að selja eitthvað af honum tU að koma á við- skiptum með bréf- in. Þetta skref er stigið tU þess að auka upplýsinga- Uæði og gagnsæi viðskipta með bréf í félaginu en ég geri ekki ráð fyrir að stefna félagsins og starfsemi breyt- ist neitt við þetta.“ Sjávarútvegur {{óð fjárfest- ng Sjóvá-Almennar eiga hlut í 16 fyrir- tækjum sem skráð eru á Verðbréfa- þingi, þar af nokkrum sjávarút- vegsfyrirtækjum. Benedikt situr í stjóm Burðaráss, fjárfestingarfélags í eigu Eimskips sem hefur verið iðiö við að kaupa í sjávarút- vegsfyrirtækjum, og hann stjórnar einnig SR-mjöli sem framleiðir lýsi og mjöl og gerir út skip. Er sjávar- útvegur góð fjárfesting? „Það ætla ég rétt að vona. Þetta er undirstöðuatvinnugrein okkar og meðan er í lagi með sjávarútveginn er í lagi með efnahagslífið. Það er rétt að gengi margra sjávarútvegs- fyrirtækja hefur lækkað frá áramót- um en sveiflur fylgja greininni og munu aUtaf gera.“ Varast „gráa“ markaðinn Eru fyrirtæki eins og Sjóvá íhaldssamt í sínum fjárfestingum? „Það má kannski segja það. Við höfum lagt áherslu á að eiga hlut í grónum fyrirtækjum. Þegar Sjóvá keypti rúmlega 4% hlut í Eimskip af ríkissjóði 1985 var hlutabréfamark- aður ekki til á íslandi svo við vor- um ekkert sérstaklega íhaldssamir að því leyti." Fyrirtæki á hinum svokallaða „gráa markaði" hafa notið mikilla vinsælda og bréf í fyrirtækjum eins og deCode og Oz veriö mjög eftir- sótt. Benedikt segir að Sjóvá hafi farið varlega i kaup í slíkum fyrir- tækjum en kannast við að fyrirtæk- ið eigi bréf i deCode. „Við höfum helst haldiö okkur við fyrirtæki sem eru skráð á Verð- bréfaþinginu." Er siðferðið í molum? Hlutabréfamarkaður á íslandi hefur vaxiö hröðum skrefum, sér- staklega síðustu 5-6 árin. Nokkrir hafa orðið til þess að gagnrýna sið- ferði í viðskiptum með hlutabréf og nægir að vitna til Benedikts Jó- hannessonar, framkvæmdastjóra Talnakönnunar og stjórnarfor- manns nokkurra fyrirtækja, sem sagði í lok mars að siðferði í við- skiptum væri áfátt og stór hluti við- skipta með hlutabréf hérlendis væri með þeim hætti að ekki yrði liðið erlendis. Ert þú sammála þessu mati frænda þíns? „Ég veit hvað hann er að tala um. Það hafa verið hnökrar á viðskipt- um á stundum sem stafa af því að menn hafa verið að misnota aðstöðu sína eða reyna að koma höggi á ein- hvern. Þetta er ungur markaður sem á eftir að þróast til betri vegar. Ég vil líta á þetta sem smávægileg umferðaróhöpp og vona að umferð- armenningin fari batnandi og hægt verði að taka á brotum. Ég tel að þetta hafi ekki verið stórt vandamál í samanburði við þann ávinning sem er af þvi að sem flestir eigi hlutabréf og eigi þannig hagsmuna að gæta í atvinnulífinu. Það er það sem er mikilvægast. Stjórnvöld hafa átt sinn þátt í að hvetja til þessarar þátttöku í atvinnulífínu með skatta- afslætti sem er mjög gott og engin ástæða til að fella það niður. Auðvitað þarf viðskiptasiöferði að vera traust og reglur skýrar. Frjáls viðskipti og almenn þátttaka í atvinnulífinu eru þó aöalatriðið." Hver var Sveinn Ben? Sveinn Benediktsson (1905-1979) starfaði við síldarsöltun og útgerð, bæði hjá Óskari Halldórssyni (ís- landsbersa) og Halldóri Kr. Þor- steinssyni. Hann stýrði útgerðum fyrir Reykjavíkurborg en hóf eigin atvinnurekstur af krafti 1947 meö síldarsöltun á Raufarhöfn. Þar stofnaði hann Hafsilfur sem hann átti til 1964 en það sama ár seldi hann Hafölduna á Seyðisflrði sem hann stofnaði 1960. Hann var hlut- hafi í útgerðarfyrirtækjum frá 1935, stjómarformaður og stærsti hluthafi i Sjóvá frá 1964 og sat í stjómum fjölmargra fyrirtækja en einnig í nefndum, ráðum og stjómum fyrir ríki og borg auk þess að vera varaþingmaður og er- indreki hins opinbera í síldarvið- skiptum. Sveinn var kappsamur og litrík- ur maður sem vék sér aldrei und- an deilum og lá ekki á skoðunum sínum og var umdeildur fyrir vik- ið. Hann var ákafur talsmaður frjálsrar samkeppni og baröist gegn einokun og einkasölu í öllum myndum. -PÁÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.