Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2000, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2000, Blaðsíða 50
LAUGARDAGUR 24. JUNI 2000 Tilvera H>V Frakklandi og Bandarikjunum hefur ofl verið stillt upp sem and- stæðum í menningarmálum. Frakk- land er fulltrúi evrópskrar hámenn- ingar sem stendur á gömlum merg, meðan Bandaríkin eru fulltrúar lág- menningar sem á rætur sínar í óupp- lýstum og ófáguðum almúganum. Fátt er Frökkum heilagra en hin rómaða franska matargerðarlist og á fáu hafa þeir meiri skömm en amer- ískri hamborgara- og tómatsósumat- argerðarlist. Hér er rakin saga bandarísks kokks sem kemst i læri til eins af helstu sniilingum franskr- ar matargerðarlistar, hálfhrjálaðs kokks sem í fyrstu líst ekkert á strákinn, en tekur smám saman ást- fóstri við hann, og svo fer að lokum að stráksi verður arftaki meistarans og á auk þess vingott við dóttur hans. Þetfa er klassísk velgengn- issaga um ungan mann sem berst til æðstu metorða á sínu sviði, og síðan er smá-ástarsaga til hliðar. Myndin er ekkert merkilegt sem slík, en natni í persónusköpun nær að lyfta henni upp og leikaramir Eddy Mitchell og Jason Lee ná vel saman í aðalhlutverkunum. Menningará- rekstrarbrandaramir em líka ansi spaugilegir á köflum. -PJ Útgefandi: Háskólabíö. Leikstjóri: Jean-Yves Pitaun. Aöalhlutverk: Jason Lee, Eddy Mitchell og Iréne Jacob. Frönsk, 1998. Lengd: 84 mln. Fyrir alla. Menningar- árekstrar Ameri- can Cuisine ★★★ iftM ★★ American Perfect Gamal- dags- mynd í nýlegu formi. Stíll Alfreds Hitchcocks drepur af myndinni. Það er væntanlega heill- andi og erfitt að láta ekki stíl fyrri leikstjóra hafa áhrif á sig. Geðlæknirinn Jake Nyman er á ferð í Mojave-eyðimörkinni. Óvænt- um gerðum sínum stýrir hann með því að kasta upp tening. Til dæmis á hann að taka uppi þennan eða hinn puttalinginn? Á hann að drepa eða drepa ekki viðkomandi manneskju og þess háttar. í hans augum nálgast það guðlast að taka ekki þátt í leikn- um. Því miður gera ekki allir sér grein fyrir því hver leikurinn er. Helstu persónur fyrir utan geðlækn- inn eru tvær systur og gaur sem hef- ur tekjur sínar af blekkingum. Myndin hefur alla tilburði fínnar spennumyndar. Hins vegar vottar fyrir rótleysi i söguþræðinum. Sök- um fyrmefndra áhrifa Hitchcocks er eins og leikstjórinn velkist í vafa um hvaða leið hann eigi að fara. Fyrir vikið verður síðari hluti myndarinnar hálf dapur. Robert Foster tekst sérlega vel að túlka hinn morðsjúka og stigmögnun geð- veikinnar í honum. Viljirðu drepa tímann og horfa á mynd án stefhu þá er þessi fin. lltgefandi: Myndform. Leikstjóri: Paul Chart. Aöalhlutverk: Fairuza Balk, Robert Forster og Amanda Plummer. Bandarísk, 1997. Lengd: 91 mín. Bönnuö innan 16 ára. Barist fyrir frelsinu Mel Gibson leikur frelsishetjuna Benjamín Martin, stríóshetju sem berst gegn Bretum. The Patriot, epísk stórmynd: Hetja í frelsisstríði The Patriot, epísk stórmynd, sem frumsýnd verður í Bandaríkjunum um helgina, er mikil átakamynd sem gerist í frelsisstriði Bandaríkjamanna gegn Englendingum á átjándu öld. Roland Emmerich (Independence Day, Godzilla), leikstjóri The Patriot, segir að handritið sé besta handrit sem hann hafl lesið en það skrifaði Robert Rodat, sá hinn sami og skrif- aði handritið að Saving Private Ryan. I aðalhlutverki er Mel Gibson sem hefur áður gert garðinn frægan í hlut- verki frelsishetju. Var það í Bravehe- art sem hann leikstýrði sjálfur Myndin býður upp á stórfengleg at- riði og er kannski sú kvikmynd sem á eftir að fylgja í kjölfar Titanic, alla- vega vona framfeiðendur myndarinn- ar það og hafa kostað miklu til að kynna hana sem best fyrir almenn- ingi og eru ósparir á að espa þjóðern- iskennd Bandaríkjamanna. Myndin hefst í Suður-Karólínu 1776. Fyrrum hetja úr franska stríð- inu og indíánastríðinu, Benjamin Martin (Mel Gibson) hefur hætt öllu stríði og bardögum til að geta einbeitt sér að því að koma upp fjölskyldu. Hann finnur sér konu og eignast með henni 7 böm. Þegar eiginkonan fellur frá telur hann meiri ástæðu til að sinna bústörfum og bamauppeldi heldin' en að gegna kalli um herþjón- ustu. Elsti sonur Benjamins, Gabriel, er þó æstur í að skrá sig ameríska frelsisherinn. Hann ætlar að berjast gegn Englendingum, burtséð frá hvað foðurnum finnst. Stríðið er að nálgast og það sem meira er, blóðug átök eiga sér stað, ekki langt frá plantekru Benjamins. Þegar hinn grimmi og miskunnarlausi breski ofursti Tavington (Jason Isaacs) ríður í hlað hjá Benjamin ásamt sérsveit sinni fer allt í bál og brand. Tavington ræðst að fjölskyldu Benjamins og nú verður íjandinn laus. Benjamin ákveður að ganga í lið með syni sínum og stofna þeir öfluga skæruliðasveit sem berst gegn ofurefli breska hersins. mm "'í- W* jmmm aai_ 29 JÚNÍ é 5l*0*l 26- JÚNÍ Heimaskrifstofan skrifboröseining JÚNÍ JÚNl 27 28 Gjafabrét málsverður fyrirZ verðmarti 20.000,- Indesit Frystikista Hbbi IfllSMWÍ filoiiaSaynaf Priðjudagur tasy Coiiodores Miðvikudagu Mánudagur F M 1 O 2 • 2 s tj ö r n u I ö g B R Æ O U ingvar cv Gvin Fimmtudagur 30. JÚNf Ameriskt rúm Becemtet ‘63 Foih Seasons Föstudagur 0mDesiT R N I R arllnd Kópavogi - t —— —— *- simi 544 8800 söludeild li Lagatalið heim til þín HjZ&Silff QRMSSQN Lágmúla 8 • Slml 530 2800 www.ormssoo.ls -frábœrir idruungpr! Hlustaðu eftir lagi dagsins á Stjörnunni á milli kl. 10 og 16. Hringdu í síma 515 6969. Ef þú ert hlustandi númer 10 vinnur þú glæsilegan vinning frá einhverju af neðantöldum fyrirtækjum sem taka þátt með okkur í Lagatali Stjörnunnar. * S0EJ, w W ItitanI 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.