Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2000, Page 51

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2000, Page 51
LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2000 DV Tilvera 59 Belle de jour Bældur kyn- þokki franskr- ar þokkadísar Jæja, hér er komin önnur mynd eftir spænska súrrealistann Luis Bunuel úr ágætu safni Aöalvídeó- leigunnar við Klapparstíg. Belle de jour, sem skartar Catherine Deneu- ve í aðalhlutverki bældrar eiginkonu sem gerist vændiskona, er af mörgum gagnrýnendum talin hreint meistara- verk, og er sjálfsagt ein af þekktustu myndum hans ásamt Le charme discret de la bourgeoisie og Cet obscur objet du désir. Severine er eiginkona læknisins Pierre Serizy. Hún er gullfalleg en kynköld og á erfitt með að sýna manni sínum ástúð þrátt fyrir að henni þyki afar vænt um hann. Hana dreymir dagdrauma um að vera niðurlægð, beitt otheldi og nauðgað. Til að fá útrás fyrir masókískar hneigðir sín- ar fer hún að vinna á vændishúsi þar sem hún notar nafnið Belle de jour. Svo virðist sem þetta beri til- ætlaðan árangur því að samband hennar við eiginmann sinn verður betra og betra. Eftir að hættulegur glæpamaður verður ástfanginn af henni og vinur Pierre heimsækir vændishúsið ákveður hún að hætta, en glæpamaðurinn neitar að taka því og eltir hana heim til hennar. Myndin inniheldur mörg af sér- kennum Bunuels. Fáguð úrkynjun borgarastéttarinnar og bældar og brenglaðar kynferðislegar langanir voru meðal uppáhaldsviðfangsefna hans og honum fannst fátt skemmti- Made Men ★★★ Klassísk glæpa- saga Karlmannlegir menn. Um það er myndin. Hún byijar á staðlaðri tón- list karlmannaímyndar og leggur þar strax línumar. I sama takt er kvenfólkið i myndinni staðlað eftir sömu ímynd. Bill „kjaftur" bar vitni fyrir bandarisk stjómvöld og fyrir vikið fékk hann nýtt nafn og aðstoð frá ríkinu við að koma sér upp nýju lífi á nýjum stað. Hann notaði tækifær- ið og stal slatta af pening frá aðalbóf- anum rétt áður en hann hvarf. Eins og vera ber í hasarmynd þá finna glæponamir hið nýja aðsetur Bill „kjafts“. Þeir em komnir til að ná aftur peningunum og ganga endan- lega ftá Bill „kjafti". Upphefst heil- mikil flækja þar sem glæpahyski sveitarinnar, glæpahyski stórborgar- innar og kjaftur Bills ásamt yfirvöld- um i sveitinni koma við sögu. Svo er bara að sjá hvemig leysist úr flækj- unni. James Belushi sýnir stórleik í þessari mynd. Aftur á móti er Timothy Dalton hálf hallærisleg am- erísk sveitalögga. Nær því þó nokk- uð vel meðvitaður um „breyskleika" sinn. Skemmtileg og spennandi mynd sem er vandlega flækt. -GG Catherine Deneuve Leikur aðalhlutverkiö í Belle de jour. legra en að fletta hulunni af glæsi- legu yfirborðinu og sýna ormagryfj- una þar undir. Til að útskýra brenglaðar hvatir aðalsöguhetjunn- ar fáum við tvö lítil skot úr barn- æsku hennar þar sem eldri maður þuklar á henni og hún neitar sakra- mentinu. Dagdraumasenurnar eru síðan súrrealískar æflngar sem eiga að gefa til kynna hennar innri mann. Myndin endar á einni slíkri sem hægt er að túlka á fleiri en einn veg. Myndin er full af táknum, sum- um hverjum torráðnum, og ekki að- eins sjónrænum táknum heldur einnig hljóðrænum. Leikstjórinn notar enga tónlist í myndinni, en bjöllur og dýrahljóð leika stórt hlut- verk. Þrátt fyrir að vera uppfull af at- hyglisverðum smáatriðum vantar svolítið broddinn í ádeiluna hjá honum og myndin virkar meira sem pervertísk fantasía. Að manni læðist sá grunur að menningarvit- amir sem lofsyngja myndina hvað mest séu bara að fá útrás fyrir klámhundinn í sér á menningarleg- an hátt. Það er þó engin óþarfa nekt í myndinni og allt gert á eins smekklegan hátt og mögulegt er. Það besta við myndina er franska þokkadisin Catherine Deneuve, 23 ára gömul, sem geislar af sakleysi annars vegar og bældum kynþokka hins vegar í besta hlutverki ferils- ins. Eiginlega á hún nánast jafn mikið í myndinni og Bunuel. Luis Bunuel. Aðalhlutverk: Catherine Deneuve, Jean Sorel, Michel Piccoli, Genevieve Page og Pierre Clementi. Frönsk/ítölsk, 1967. Lengd: 100 mín. Pétur Jónasson Skífan. Leikstjóri: Louis Momeau. Aöat hlutverk: James Belushi, Timothy Dalton og Vanessa Angel. Bandarisk, 1999. Lengd: 91 mín. Bönnuö innan 16 ára. ADSL Sítengin meiri hraði sítenging mánaðargjald óháð tengitíma nýtir núverandi símalínu ekki á tali þó tengingin sé í notkun oq hraðara Internet Nýjung - Léttkaup Nú er enn auðveldara að komast í sítengt ADSL samband. ADSL mótald með Léttkaupum Símans. Þú greiðir aðeins 7.200,- út og svo 1.500,- á mánuði í 12 mánuði. Staðgreiðsluverð er 24.000,- Verð miðast við ADSL mótald, við það baetist stofngjald 6000,- og sia, verð frá 900,- ADSL - afhverju að bíða? ÍSLEIMSKT G V A IVI D A Ð Úr nfðsterku, endurunnu Govaplasti og galvaniseruðu prófílstáli. Sérstaklega hentug þar sem mikið mæðir á. Þola að standa úti allt árið. = BERGIÐJAN Víðihlíð við Vatnagarða Símar 553 7131 og 560 2590

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.