Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2000, Síða 12
12
LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2000
Fréttir
DV
Nýjar afhjúpanir um
stórfiska Samaranchs
Juan Antonio Samaranch
Forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar er í nánum tengslum við marga skuggalega athafnamenn. Á meðan á undirbúningi Ólympíuleikanna í Sydney stóð birtust
nýjar upplýsingar um spillingu, mútur og mafíuaðferðir stórfíska í kringum ólympísku leiðtogana.
Samtímis því sem undirbúningur
Ólympíuleikanna var á fullu bárust
nýjar upplýsingar um spillingu,
mútur og mafíuaðferðir ólympísku
leiðtoganna. í tveimur nýútkomn-
um bókum, The Great Olympic
Swindle, eftir Englendinginn
Andrew Jennings, og Der Olymp-
ische Sumpf, eftir Þjóðverjana Jens
Weinreich og Thomas Kistner, er
sagt frá viðskiptum Ólympíuleiðtog-
anna sem þola illa dagsljósið.
Þrátt fyrir vissa hreinsun i Al-
þjóðaólympíunefndinni í fyrra, eftir
mútuhneyksliö í kringum Salt Lake
City, er enn að finna skúrka í kring-
um forseta nefndarinnar, Spánverj-
ann Juan Antonio Samaranch, sem
er orðinn áttræður.
Úsbekinn Gafur Rakhimov vekur
sérstaka athygli þó svo að hann sé
ekki í Alþjóðanefndinni. Rakhimov
er félagi i Ólympíunefnd Úsbekist-
ans. Hann er jafnframt í alþjóðlegri
nefnd áhugahnefaleikamanna.
Á svörtum lista
leyniþjónustunnar
Fyrir viku var honum meinað að
fara inn í Ástralíu þegar hann lenti
á flugvellinum í Sydney. Rakhimov
er á svörtum lista leyniþjónustu-
manna í Bandaríkjunum, Frakk-
landi, Rússlandi og fleiri Evrópu-
löndum.
Hann er þekktur sem bómullar-
barón og grunaður um að vera í
fikniefnamafíunni í fyrrverandi
Sovétríkjunum. Sagt er að ekkert sé
hægt að gera í Úsbekistan án sam-
þykkis Rakhimovs. Samt sem áður
er það mat toppanna í Alþjóða-
ólympíunefndinni að Gafur Rak-
himov eigi að vera á sínum stað í
Sydney.
Andrew Jennings fullyrðir að
ekki hafi verið um lýðræðislega
kosningu að ræða er Rakhimov var
kjörinn í stjórn hnefaleikamann-
anna. Samkvæmt Jennings notaði
Rakhimov fé sitt til að útvega sér
ferðafrelsi í nafni alþjóðlegra
íþrótta.
Gafur Rakhimov hefur heimsótt
bækistöðvar Alþjóðaólympíunefnd-
arinnar í Lausanne í Sviss i fylgd
svissneska athafnamannsins Andr-
és Guelfis sem hjálpaði Samaranch
á toppinn. Guelfi er besti vinur
Samaranch. Hann seldi Alþjóða-
ólympíunefndinni lóðina að Ólymp-
íusafninu í Lausanna á vinarprís.
Guelfi hefur oft heimsótt þjóðarleið-
toga og ólympískar nefndir á Ús-
bekistansvæðinu með Samaranch í
einkaþotu hans. I upphafi síðasta
áratugar var Guelfi meðal þeirra
sem mæltu með því að Tasjkent,
höfuðborg Úsbekistans, fengi að
halda Ólympiuleikana árið 2000.
í gæsluvarðhaldi
Samaranch hefur þessa dagana
engan sérstakan áhuga á að ræða
tengsl sín við Guelfi og þá sem hann
umgengst. Það kemur ekki á óvart
því að Guelfi hefur setið í gæslu-
varðhaldi. Hann er grunaður um
gífurlega spillingu, meðal annars í
Úsbekistan þar sem hann á síðasta
áratug aðstoðaði franska ríkisolíu-
fyrirtækiö Elf/Aquitaine við að
tryggja sér réttindi. Eftir að Guelfi
féll í ónáð sagði hann frönskum
rannsóknardómara frá því hvemig
svartir peningar flæddu um
ólympíska bankareikninga til réttra
aðila.
Juan Antonio Samaranch kvaðst
ekkert hafa vitað hvað fór fram þeg-
ar hann greiddi götu vinar síns,
Andrés Guelfis, í Kákasuslöndunum
með diplómatapassa sinum.
Það virtist bara notalegt að gömlu
herramennirnir tveir skyldu geta
ferðast saman til fyrrverandi Sovét-
ríkjanna þar sem þeir sáust í fylgd
Borís Jeltsíns forseta við ýmis tæki-
færi.
Juan Antonio Samaranch naut
lífsins svo vel í Úsbekistan að hann
veitti forseta landsins, Islam
Kharimov, gullorðu Ólympíunefnd-
arinnar 1992. Víst þykir að
Kharimov hafi átt skilið að fá orð-
una. Hann er nefnilega svo vinsæll
í heimalandi sínu að jafnvel mót-
frambjóðandi hans við forsetakosn-
ingarnar 1999 viðurkenndi feimnis-
laust að hafa kosið hann.
Skuggaleg viöskipti með
íþróttasjóð
Árið 1994 tókst Samaranch að
koma fyrrverandi íþróttamálaráð-
herra Rússlands, Sjamil Tarpitsjev,
í Alþjóðaólympíunefndina. Tar-
pitsjev var vinur Jeltsíns forseta og
var árið 1993 gerður ábyrgur fyrir
landssjóði sem átti að fjármagna
íþróttir í Rússlandi. Sjóðurinn fékk
leyfí til að flytja út hráefni og flytja
inn áfengi og tóbak. Tekjurnar áttu
að renna til íþrótta. Greint var frá
því að um 9 milljarðar dollara hefðu
runnið í sjóðinn á ári í nokkur ár.
Það vakti auðvitað gífurlega athygli
íjölmiðla þegar upp komst að tugum
milljóna af sjóðsfénu hefði verið
varið í vafasöm viðskipti. Tar-
pitsjev var látinn taka pokann sinn
en hann stjórnaði seinna kosninga-
baráttu Jeltsíns.
Meðstjórnandi í sjóðnum, Borís
Fjodorov, kærði sig ekki um það sem
fram fór. Þegar hann fór að gaspra í
fjölmiðlum var ráðist svo harkalega
á hann úti á götu 1996 að hann hlaut
næstum bana af. Hann lést árið 1999
og fannst tveimur dögum eftir andlát
sitt. Hann hafði fengið hjartaáfall að-
eins 40 ára að aldri.
Sjamil Tarpitsjev skipuleggur
marga stóra íþróttaviðburði í Rúss-
landi. Hann er liðsstjóri þeirra sem
taka þátt i Davis Cup tennismótinu.
Þrátt fyrir virðulega stöðu hans er
rússneska pressan óhrædd við að
tengja hann við mafíuna. Orðrómur-
inn um skuggaleg viðskipti Tar-
pitsjevs hefur ekki leitt tO útilokun-
ar hans frá Alþjóðaólympíunefnd-
inni.
Golffélagi einræðisherra
Indónesinn Mohamad Bob Hasan
fékk sæti í nefndinni 1994 eins og
Tarpitsjev. Hann á einnig í vök að
verjast á heimavigstöðvunum. Fyrr
á þessu ári sat hann í gæsluvarð-
haldi í sambandi við réttarhöldin
yfir Suharto, fyrrverandi einræðis-
herra landsins.
Hassan var dyggur stuðnings-
maður Suhartostjórnarinnar. Hann
var golffélagi einræðisherrans.
Hann tók einnig þátt i að koma
milljörðum í hendur fjölskyldu
Suhartos.
Aðalstarf Bobs Hasans var þó
innan timburiðnaðarins. Alþjóðleg
umhverflsverndarsamtök segja
hann ábyrgan fyrir eyðingu regn-
skóga í Indónesíu. í fyrra var talið
að eignir hans næmu um 150 millj-
örðum íslenskra króna.
Samsung-stjóri sakaður um
mútur
Annar ríkismaður i Alþjóða-
ólympíunefndinni er Samsung-for-
stjórinn Lee Kun-Hee. Hann fékk
sæti 1996 samtímis þvi sem hann
var sakaöur í heimalandinu um að
hafa mútað fyrrverandi einræðis-
herrum landsins, Chun Doo Hwan
og Roh Tae Woh, með um 2 milljörð-
um króna. Gullorða Alþjóðaólymp-
íunefndarinnar hafði reyndar veriö
hengd á þá báða.
Lee Kun-Hee nýtur aftur virðing-
ar í Suður-Kóreu. Á þjóðhátíðardag-
inn árið 1997 var hann náðaður af
tveggja ára skilyrðisbundnum fang-
elsisdómi sem hann hlaut árið áður.
Þess þarf ef til vill ekki að geta að
Samsung er einn af stórum styrkt-
araðilum Alþjóðaólympíunefndar-
innar.
í Evrópu óttast margir tengdir Al-
þjóðaólympíunefndinni að annar
Suður-Kóreumaður, Un Yong Kim,
verði forseti nefndarinnar þegar
Samaranch fer frá. Kim hefur loks-
ins tekist að koma taekwondo-sam-
bandi sínu á dagskrána í Sydney.
Þar með getur það vænst að hljóta
um 300 milljarða króna í styrki
fjórða hvert ár. Kim „á“ sambandið
sem hann hefur stýrt frá stofnun
þess 1973.
Fyrrverandi
leyniþjónustuforingi
Sviðsljósið beindist að Kim, sem
var leyniþjónustuforingi á valda-
tíma einræðisherranna, þegar það
komst í hámæli að dóttir hans, sem
er píanóleikari, hefði komið fram
sem einleikari með sinfóníuhljóm-
sveitunum í næstum því öllum
borgunum sem sóttust eftir því að
halda Ólympíuleikana. Sonur Kims
veitti í laumi nefnd frá Salt Lake
City fjárhagsstuðning. Hann gegnir
nú ábatasömu starfi í Bandaríkjun-
um. Un Yong Kim fékk opinberlega
„viðvörun" frá félögum sínum í Al-
þjóðaólympíunefndinni. Hann er nú
farinn að búa sig undir formanns-
kjörið á næsta ári.
Samband hans samþykkti í apríl
síðastliðnum, á sérstökum auka-
stjórnarfundi, að taka fimm menn
til viðbótar inn í stjórnina. Fjórir
þeirra eru reyndar í Alþjóðaólymp-
íunefndinni en hafa engin sérstök
tengsl við taekwondo-íþróttina. Þar
með streyma 300 milljarðar, í formi
sjónvarpspeninga og styrkja, í sjóði
hinnar svokölluðu ólympisku fjöl-
skyldu á fjögurra ára fresti.
Byggt á Jyllands-Posten o.fl.