Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2000, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2000, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2000 Fréttir I>V Tilraun til þorskeldis í Tálknafirði árið 1995: Ofsóknir Fiskistofu eyðilögðu þetta - segir Níels Ársælsson, einn þeirra sem stóðu að Tungueldi s/f Fiskeldistilraun var kæfö í Tálknafirði. „Fiskistofa, og þá sérstaklega fyrr- verandi lögmaður stofnunarinnar, á heiðurinn af því að hafa kæft þessa tilraun í fæðingu og hreinlega lagt okkur í einelti sem leiddi til þess að við slepptum fullt af þorski úr kvínni sem hann var í,“ segir Níels Ársælsson á Tálknafirði, en hann var einn þeirra sem stóðu að einu al- varlegu tilrauninni sem gerð hefur verið til þorskeldis hér á landi. Hún var á vegum fyrirtækisins Tungueldi s/f á Tálknafirði og átti sér stað árið 1995. „Þetta var alvörutilraun og ekkert til sparað. Það var keyptur mikill og góður búnaður og annað leigt sem til þurfti. Við vorum með mjög mikil plön og þar gekk allt eftir þar til Fiskistofa fór að skipta sér af hlutun- um. Við veiddum talsvert af þorski á dragnótarbátnum Bjarma. Þar vor- um við með súrefnisbúnað um borð og fluttum fiskinn lifandi i eldis- kvína. Þetta hafa sennilega verið 10-15 tonn af þorski. Meðalþyngdin á þessum fiski var rétt um 2 kg þegar hann fór í kvína,“ segir Níels. Hann segir að þorskurinn hafi verið alinn á loðnu frá því um sum- arið og fram í desember en þá var meðalþyngd hans orðin talsvert á fimmta kíló. „Þegar farið var að slátra í desember gerði Fiskistofa sér lítið fyrir og færði þetta undir kvóta bátsins. Við lönduðum 13 tonnum af slægðum eldisþorski á Flateyri sem var landað sem eldisfiski úr eldiskvi. En Fiskistofa lét sér ekki nægja að draga kvótann af bátnum þegar fisk- urinn hafði verið veiddur. Þyngingin sem varð á fiskinum í eldiskvinni, þar sem honum var gefið, var einnig dregin frá kvóta bátsins þannig að þetta voru ekkert annað en ofsókn- ir,“ segir Níels. Hann segir að þegar ákveðið var að reyna þetta eldi hefði verið talað við sjávarútvegsráðuneytið og þar hefði mönnum verið tjáð að ekkert væri í lögum um þorskeldi í sjó og ekkert sem bannaði mönnum að flytja fisk lifandi frá einum stað til annars. „Þegar við síðar lönduðum úr kvínni voru eftir í henni um 15 tonn og við slepptum þeim fiski þvi bara í sjóinn. Við urðum fyrir of- sóknaræði Fiskistofu og þar með var gert út um þessa einu alvörutil- raun til þorskeldis í kvíum sem gerð hefur verið hér,“ segir Níels. Þórður Ásgeirsson fiskistofustjóri sagðist nánast ekkert geta tjáð sig um þetta mál en ef sig minnti rétt hefði í þessu tilfelli verið settur fisk- ur í kví sem ekki hefði verið vigtað- ur áður og það kynni að hafa ráðið því hvernig málið var meðhöndlað. „Okkar afskipti af málinu hljóta að hafa mótast af því að þær reglur sem við vinnum eftir hafi ekki boð- ið upp á annað,“ sagði Þórður. -gk Borun í Svartsengi gaf góða raun á 327 metrum: Komu niður á DV. GRINDAVÍK: I Svartsengi er Hitaveita Suður- nesja að láta bora eftir gufu og á miðvikudagsmorgun kom borinn Sleipnir niður á mikla gufuæð á 327 metra dýpi í holu 20. Þegar blaða- maður kom á vettvang voru sér- fræðingar Orkustofnunar að rýna í tölur og línurit og töldu líklegt að Sleipnir væri kominn niður á ákjós- anlegt dýpi og væri það í samræmi við vitneskju þeirra um svæðið en verið er að bora á nánast sama stað og fyrstu holurnar voru boraðar fyr- ir tæpum 30 árum. Þá lét Grindavíkurbær bora tvær holur til reynslu og má segja að það hafi verið upphafið að því stórfyrir- tæki sem Hitaveita Suðurnesja er í dag. Nú er verið að flytja borinn Jötun á 21. holuna vestan við orku- verið og á að bora þar djúpa holu í Ánægjulegur árangur Starfsmenn Orkustofnunar bera saman bækur sínar eftir aö gufan fannst. Þeir eru Ásgrímur Guö- mundsson jaröfræöingur, Ómar Sig- urösson verkfræöingur og Sverrir Þórhallsson verkfræöingur mikla gufuæð allt að 2.500 metra dýpi. Þá kemur svokallaður jarðsjór upp með guf- unni sem nýtist að lokinni orku- vinnslunni í Bláa lónið. Þar sem verið var að bora núna kemur aftur á móti upp hrein gufa, um 230 gráða heit, og verður gufuaflið sem þar fæst notað til að tryggja rekstrarör- yggi orkuvers 5 enn frekar og verð- ur hægt að loka öðrum holum, til dæmis vegna viðhalds. Sverrir Þórhallsson sagði aö þetta væri 20. holan í röðinni og þó allar holur væru taldar með væru tvær óvirkar, eins og t.d. sú 13. sem var aðeins boruð niður á 70 metra dýpi og var aldrei kláruð, þó ekki af hjá- trú. Þá sagði Sverrir að þetta væri áhugaverðasta svæðiö á landinu til að rannsaka jarðhita þar sem svo grunnt er niður á virkjanlegan jarð- hita. -ÞGK DVA1YND ÞORSTEINN G. KRISTJÁNSSON Sleipnir finnur „gull“ Á myndinni eru Margeir Jónsson vörubílstjóri og starfsmenn Vél- smiöju Akraness aö vinna viö rör og í baksýn er borinn Sleipnir. Aðalsteinn Baldursson: Launaliðnum lík- lega sagt upp DV, AKUREYRI: Aöalsteinn Baldursson. „Það er ýmislegt sem bendir til þess að launalið kjara- samninga verka- lýðsfélaganna verði sagt upp í febrúar," segir Aðalsteinn Baldursson, for- maður Alþýðusam- bands Norðurlands, en í kjarasamningunum sem gerðir voru snemma árs voru ákvæði þess efhis að launaliður samninganna væri uppsegjanlegur í janúar árið 2001 gæfu forsendur tilefni til þess. Aðalsteinn segir að staðan í efna- hagsmálunum segi sér að allt hljóti að verða komið á suðupunkt þegar kemur fram í febrúar. „Vextir hafa verið á uppleið og verðbólgan. Þá bendir allt til þess að skattar á verkafólk verði hækk- aðir núna um áramótin með hækkun á útsvarsprósentu úr 12,4 í 12,7% og svo er fyrirhugað að hún hækki aftur i 13,03% um áramótin 2001-2002. Ríkis- stjómin lækkar aðeins tekjuskattinn á móti en það er alveg ljóst að hér er um skattahækkanir að ræða og þær éta upp þær hækkanir sem launafólk er að fá um áramótin. Svo hefur auðvitað veruleg áhrif sú þróun sem orðið hefur á árinu hjá öðrum hópum launafólks og ef opinberir starfsmenn fá nú ein- hverjar hækkanir umfram þann ramma sem búinn var til þá em allar þessar forsendur brostnar. Ef þetta fer sem horfir em sterkar líkur á að launa- lið samninganna verði sagt upp í febr- úar. Þá yröi að endurskoða launaliðinn og annaðhvort gerist það í friði og spekt eða að menn yrðu að fara í að- gerðir til að sækja leiðréttingu," segir Aðalsteinn. -gk Óánægja í ríkisbönkum: Undrast mjög - segir ráðherra í DV í gær lögð- ust tveir útibús- stjórar Búnaðar- bankans gegn sam- einingu ríkibank- anna. DV bar það undir Valgerði Sverrisdóttur við- skiptaráðherra. „Það er von á úr- skurði samkeppnis- ráðs á næstu dögum, þá fyrst getur maður áttað sig á stöðu málsins. Ég er enn með það i huga að sameiningu ljúki fyrir áramót," sagði Valgerður. „Það er ekki síst vegna hvátningar frá bönkunum sjálfum sem út í þetta er farið. Ég undrast því mjög ef kominn er einhver allt annar tórrn innan bank- anna um þetta mál.“ -HKr. Veðrið i kvold I Solíirííaii£iir sjiivarfoll Súld, rigning og slydda Norðaustan 8-13 m/s en heldur hvassara við norðvesturströndina, súld eöa rigning við austurströndina, slydda norðvestan til en skýjað með köflum annars staðar. Hiti veröur O til 7 stig, mildast suðvestanlands. Sólarlag í kvöld Sólarupprás á morgun Síödegisflóö REYKJAVIK 15.35 11.08 16.56 AKUREYRI 14.52 09.52 21.29 Árdegisflóö á morgun 05.20 09.53 Skýringar á veðurtáknum ^^•ViNDÁTT —Hm ^ -10° ^NvViNDSTYRKUR Vroftcr i nnftrum á sokúndu >t‘KUÍ>' 'ð' H0DSKÍRT LÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ :Ö; ALSKÝJAD ij RIGNING SKÚRIR ii "W SLYDDA i Í|í SNJÓKOMA ÉUAGANGUR ÞRUMU- SKAF' ÞOKA VEÐUR RENNINGUR Veðrið a morgun Frost noröanlands Norðaustlæg átt, víöa 13-18 m/s, veröur norðvestan til en heldur hægari í öörum landshlutum. Rigning eða slydda verður með köflum norðan- og austan til en annars skýjaö, frost 0 til 2 stig noröan til en hiti sunnan til. iSSBQUBSilUH 1 Vindur: 8—13 m/» Hiti 2“ tii -2“ Vindur: 10-15 m/s Hiti 2° tii -2° MU’lVÍkllliilglljl Vindur 8-13 mA Hiti 2° «1 -2' Austan- og norftaustanátt, 8-13 m/s. Él austan tll en annars skýjafi moö köflum og víöa vægt frost. Noröaustanátt, 10-15 m/s. Rlgnlng eöa slydda meö köflum sunnanlands en snjökoma eöa él og vægt frost noröan tll. Noröaustanátt meö snjókomu eöa éljum noröan- og austanlands og frostl um allt land. AKUREYRI rigning 5 BERGSSTAÐIR BOLUNGARVÍK skýjaö 3 EGILSSTAÐIR 4 KIRKJUBÆJARKL. rigning 5 KEFLAVÍK rigning 4 RAUFARHÖFN súld 4 REYKJAVÍK skýjað 7 STÓRHÖFÐI skýjaö 6 BERGEN skýjaö 5 HELSINKI rigning 7 KAUPMANNAHÖFN rigning 6 ÓSLÓ alskýjaö 3 STOKKHÖLMUR 7 ÞÓRSHÖFN alskýjaö 8 ÞRÁNDHEIMUR léttskýjaö 1 ALGARVE léttskýjað 17 AMSTERDAM skýjaö 13 BARCELONA skýjað 16 BERLÍN rigning 7 CHICAGO alskýjaö -7 DUBLIN rigning 7 HALIFAX snjóél -11 FRANKFURT alskýjaö 12 HAMBORG skýjaö 11 JAN MAYEN skýjaö -3 LONDON hálfskýjaö 12 LÚXEMBORG skýjaö 11 MALLORCA skýjaö 18 MONTREAL heiöskírt -20 NARSSARSSUAQ skafrenningur 3 NEW YORK snjókoma -1 ORLANDO léttskýjaö 13 PARÍS skýjaö 12 VÍN alskýjað 4 WASHINGTON skýjaö -1 WINNIPEG léttskýjað -26 :
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.