Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2000, Blaðsíða 32
32
LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2000
Helgarblað
ÐV
Teresa Seabolt saknaði tvíburasystur sinnar:
Hætti ekki
fyrr en morð-
inginn fannst
Tviburasysturnar Teresa Sea-
bolt og Lisa Thomas höfðu átt
ólíka ævi. Teresa var skynsöm og
borgaraleg og lifði kyrrlátu fjöl-
skyldulífi með eiginmanni sínum
og börnum. Lisa hafði ekki reiðu
á hlutunum. Þegar hún var ung
hafði hún ánetjast fikniefnum og
hún komst oft í kast við lögin. En
svo hitti hún að þvi er virtist
áreiðanlegan mann, Bryce Thom-
as, sem var olíuverkfræðingur.
Þau giftust og eignuðust tvær dæt-
ur. Teresu var létt því nú fannst
henni sem hún þyrfti ekki að hafa
áhyggjur af systur sinni lengur.
Gleðin varð þó skammvinn því
einn góðan veðurdag hvarf Lisa
sporlaust. Maðurinn hennar hafði
ekki hugmynd um hvert hún hafði
farið. Teresa Seabolt fékk hins
vegar hugboð um að tvíburasystir
hennar væri dáin og að Bryce
Thomas hefði líf konu sinnar á
samviskunni.
Teresa ákvað að upplýsa málið
en lögreglan var ekki hrifin af at-
hafnasemi hennar. Teresu tókst
þó loks að fá Bryce Thomas
dæmdan. Málið var eitt af fáum í
Kaliforníu þar sem kveðinn var
upp dómur vegna morðs þrátt fyr-
ir að ekkert lík hefði fundist.
Dæturnar voru ekki
velkomnar
Teresa og Lisa fæddust 1960.
Þær voru dætur Clydes Seabolts
og Ethel, eiginkonu hans. Fyrir
áttu þau þrjá syni og litlu tvíbura-
dæturnar voru ekki velkomnar.
Bemska þeirra var dapurleg og
einkenndist af áfengisdrykkju for-
eldranna. Faðir þeirra lést 1963 í
átökum á krá. Móðir þeirra lést
nokkrum árum seinna á heimili
fyrir áfengissjúklinga. Bömunum
var komið fyrir hjá ættingjum.
Teresa og Lisa ólust upp saman
hjá ömmu og afa í Oklahoma. Þær
urðu hins vegar jafn ólíkar og dag-
ur og nótt. Teresu gekk vel i skól-
Gafst ekki upp
Teresa Seabolt fann á sér að
eitthnvað hræðilegt hafði komið fyrir
tvíburasystur hennar. Hún réö
einkaspæjara til að leysa málið.
anum en Lisa var villt og skemmti
sér með slæmu strákunum í
bekknum.
Árið 1975, þegar tvíburasysturn-
ar voru 15 ára, sneru þær heim til
Bakersfield, fæðingarbæjar sins.
Lisa átti í erfiðleikum á þessum
árum og reyndi að svipta sig lifi
með því að gleypa verkjatöflur. En
svo hitti hún Bryce Thomas sem
virtist eiga bjarta framtíð í olíu-
bransanum. Hann var þá 25 ára.
Lisa og Bryce gengu í hjóna-
band 1987 og eignuðust fljótt tvær
dætur. Teresu virtist allt ganga
vel hjá systurinni. En þeir sem
þekktu til lifnðarhátta Thomas-
fiölskyldunnar vissu annað. Bryce
Thomas hagaði sér eins og harð-
stjóri heima. Hann var drykkju-
bolti sem misþyrmdi eiginkonu
sinni. Skapofsi hans bitnaði
einnig á dætrunum.
Fékk hugboö um að eitthvaö
hræðilegt hefði gerst
Lisa öðlaðist loks svo mikið
hugrekki að henni tókst að flytja
að heiman með dæturnar. Hún
fann litla íbúð og greindi Teresu
frá málavöxtum. Teresu var
brugðið en samtímis létt. Hún
vildi gjarnan taka að sér dætur
systur sinnar á meðan hún væri
að koma lagi á tilveru sína og
ganga frá skilnaðinum við Bryce.
Þannig var staða mála þegar
systurnar ræddust við í síma 11.
ágúst 1996. Lisa var þá bjartsýn og
glöð og þær ætluðu að hittast til
þess að fara í skógarferð með
börnin. En Lisa mætti ekki á um-
sömdum tíma. Teresa fékk slæmt
hugboð þegar hún hringdi í Bryce
til að spyrjast fyrir um Lisu.
Hann kvaðst ekkert vita um
ferðir hennar. Hann hafði hvorki
séð Lisu né dæturnar síðan þær
yfirgáfu hann. Hann sagði hins
vegar að sér kæmi það ekki á
óvart þótt Lisa hefði leitað til
gömlu hassvinanna sinna. Stuttu
seinna hringdi Bryce örvilnaður
og reiður í Teresu. Hann sagði
„Hann hafði hvorki
séð Lisu né dæturnar
síðan þær yfirgáfu
hann. Hann sagði
hins vegar að sér
kæmi það ekki á
óvart þótt Lisa hefði
leitað til gömlu
hassvinanna sinna.
Stuttu seinna hringdi
Bryce örvilnaður og
reiður í Teresu.“
Lisu hafa yfirgeflð hann vegna
annars manns. Teresa fékk það
hins vegar á tilflnninguna að ör-
væntingin væri uppgerð. Hún
varð næstum viss um að eitthvað
hræðilegt hefði komið fyrir tví-
burasystur hennar.
Hún sagði lögreglunni frá
hvarfi Lisu. Lögreglan hugðist
ekki gera neitt. Það hyrfu svo
margar konur sem kæmu heim
fljótt aftur. Slíkt væri mjög al-
gengt í Kaliforníu.
Komst loks á sporiö
Teresa réð þá einkaspæjara til
starfa. Hún komst inn í íbúð
Bryce á meðan hann var í vinn-
unni. Hún sá tiltölulega nýja blóð-
bletti á dýnunum í svefnherberg-
inu. Hún lét lögregluna strax vita
af því sem hún hafði séð en lög-
reglan vildi samt ekki aðhafast
neitt. Lögreglumennirnir töldu
blettina vera vegna tíðablóðs og
tæplega sönnun um morð.
Nú var Teresa orðin reið. Hún
hélt rannsókn sinni áfram af enn
meiri krafti. Hún fékk félaga í kaf-
araklúbbi til þess að leita í vötn-
um en þeir fundu ekkert. Leit með
sporhundi var einnig árangurs-
laus.
Fjölskyldan í fríi
Lisa og Bryce meö aðra dóttur sína í fríi áður en hræðitegur atburöur
gerðist.
Hamingjusöm á brúökaupsdaginn
Lisa og Bryce gengu í hjónaband í október 1987. Áhyggjum var þá létt af
tvíburasystur Lisu.
Teresa fór aftur á fund lögregl-
unnar og sagði þeim frá hugdettu
sinni. Hún benti á að Bryce
Thomas þekkti til hundraða olíu-
brunna þar sem hann hefði getað
falið lík. Lögreglan sagði það satt
vera en það þýddi samt ekki að
hann væri viðriðinn hvarf eigin-
konu sinnar.
Teresa gafst þó ekki upp. Og
hún komst loksins á sporið. Hún
fann ávísun upp á 200 dollara
falda í bíl mágs síns. Ávísunina
hafði hún geflð Lisu stuttu áður
en hún hvarf. Teresa fékk einnig
samstarfsmenn Bryce Thomas til
að greina frá þvi hvernig hann
hefði glott þegar talið barst að
hvarfi konu hans. Þetta voru ekki
mikilvæg atriði en þau sannfærðu
lögregluna um að ekki væri allt
með felldu. Bryce Thomas var
handtekinn og ákærður fyrir að
hafa myrt Lisu.
Þann 10. mars 1998 mætti Ter-
esa í réttarsalnum. Frásögn lienn-
ar af því hvers vegna hún teldi að
tvíburasystir hennar hefði verið
myrt tók 10 klukkustundir. Lög-
reglan hafði að lokum neyðst til
að rannsaka blóðblettina í svefn-
herbergi Bryces Thomas. Sérfræð-
ingar viðurkenndu að blettirnir
gætu verið vegna ofbeldis. Bryce
Thomas var fundinn sekur um
morð. Honum var mjög brugðið.
Hann hafði reiknað með sýknun
eða að minnsta kosti nýjum rétt-
arhöldum.
Áætlun um nýtt morö
Saksóknarinn
Lia Green saksóknari hrósaði
Teresu fyrir þrautseigju hennar í
leitinni að sannieikanum.
1 nóvember 1998 var Bryce
Thomas dæmdur í 12 ára fangelsi
fyrir að hafa ætlað að ráða Teresu
af dögum. Hann var auk þess
dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir
morðið á Lisu. Saksóknarar í Kali-
forníu útnefndu Teresu sem vitni
ársins. Hún hefur forræðið yfir
dætrum Lisu og ætlar að gera allt
sem hún getur til þess að skapa
þeim öryggi og veita þeim gleði.
Málinu var þó alls ekki lokið. Á
meðan Bryce Thomas áfrýjaði
dóminum og beið svars í fangelsi
var hann svo ógætinn að ræða við
samfanga um áætlun sína um að
myrða Teresu. Hann bað samfang-
ann um að útvega leigumorðingja.
Samtímis greindi Bryce Thomas
frá því hvernig hann hefði myrt
Lisu með öxi og stungið henni of-
an í tóma olíutunnu. Hann heföi
síðan hellt bensíni yfir og kveikt i.
Samfangann hryllti við frásögn-
inni og greindi lögreglunni frá því
sem hann hafði heyrt.
gam.
Sautján ára fórnarlamb morðmgja
Swetlana Rybina var myrt á hrottalegan hátt.