Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2000, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2000, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2000 Helgarblað DV Hátíð Jolin geta farið illa með hjónabandið: ljóss og lögfræðinga - skilnaðir algengir eftir jólaatið Látiö ekki Jóia koma upp á milli Jólaundirbúningurinn ogjólahátíðin sjáif getur gengið nærri hjónabandinu ef hjón eru ekki nægiiega samstiga. Jóliri eru almennt talin vera hátíd Ijóss og friðar, barnanna og fjölskyld- unnar. Þó er svo komið víða í hinum vestrœna heimi að jólin eru helst talin vera hátíð Ijóss og lögfrœðinga sem sérhœfa sig í skilnuðum. Ég á eftir að gera allt fyrir jólin, stynur fólk í vestrænum mötuneyt- um milli þess sem það ræðir um salmonellu, saurgerla, kamfýlu og Creutzfeldt-Jakobs. Hið síðast- nefnda er líkast til alvarlegasta til- brigðið við dauðann. Hvað hjónabandinu viðkemur er dauðinn nokkuð sem alltaf virðist binda jafn endanlegan enda á þau. Hressilegur niðurgangur hefur ekki (að minnsta kosti ekki hingað til) verið orsök margra skilnaða enda ekki gáfulegt að sitja fyrir framan lögfræðinginn með niðurgang á vör- um sem skilnaðarástæðu. Það kemur kannski á óvart að það eru, fyrir utan dauðann, helst jólin sem granda hjónaböndum. Ástæðan er rótið og stressið sem grípur fólk. Góa eða Nói? í Bandaríkjunum er helsta ástæða jólaskilnaða talin sú að í desember þarf að taka margar ákvaröanir. Þá reynir mjög á hjóna- bönd, ekki síst hjá hjónum sem hafa lítil samskipti á öðrum tímum árs- ins. Þá getur gjöfin til Freydisar frænku orðið meiri háttar vanda- mál. Það er nefnilega ekki sama hvort konfektið er frá Góu eða Nóa. Veik eða sterk? Veik hjónabönd einkennast oft af samskiptaleysi og þvi að einföld- ustu mál valda vandræðum. í stað þess að ræða málin til hlítar ákveða hjón að ryðjast áfram með eigin ákvarðanir og skiptir þá engu þótt einhver tár falli. Vond hjónabönd verða hreint helvíti um jólin. Sterk hjónabönd eru í eðli sínu lýðræðisleg. Þar eru vandamálin brotin til mergjar á sænska vísu (ath. ekki miða við Fucking Ámál). Slík hjónabönd blómstra um hátíð- arnar. Þau ná áður óþekktum hæð- um í því þegar ákvörðun um músa- stigastíl ársins er tekin. Allt eða ekkert? Verðgildi jólagjafa er oft mikið þrætuefni. Þá er oft erfiðast að ákvarða hversu miklum íjármunum eigi að eyða í gjafir nánustu ætt- ingja. Fjárhagurinn getur verið erf- iður og þá er ekki auðvelt að ákveða að gefa börnunum minna en í fyrra. Ef hjón ná ekki lendingu í gjafamál- um er voðinn vís. Ef ástandið verð- ur svo slæmt að karlinn eða konan grípur til þess ráðs að gefa „sina eigin“ gjöf til að sýna væntumþykju sína er voðinn vis. Ekki má heldur gleyma gjöf handa makanum. Hún verður líka að vera falleg hversu mikið sem hún kostar. Einnig er gott að ákveða að gjöfin eigi að vera á ákveðnu verðhili. Við viljum jú ekki að hjónakornin fari út að ganga á jóladag, annað í nýju kápunni sinni en hitt með þverslaufuna. Fara eða vera? Þegar nýtt ár gengur í garð eru sum hjónabönd eins og afgangurinn af hamborgarhryggnum: kjötlítil og úldin það sem er. Algengara er að konurnar heimti skilnað frekar en karlarnir. Um leið og seríurnar eru teknar úr sambandi er freistandi að slökkva lika á makanum. Sáttafundir eru á þessu stigi ekki alltaf til þess fallnir að bæta ástand- ið. Hjónaböndin eru komin í ein- stefnugötu sem endar í botnlanga. Samt eru alltaf einhverjar leiðir út úr vandanum ef vitsmunirnir- eru látnir ráða en ekki bara tilfinning- arnar. Þá er mikilvægt að setjast niður og ræða hrylling jólanna og greina hvað gerðist og játa á sig þær syndir sem við á. Ef það er ekki gert þá mun lífið fara í sama farveg fram að næstu stórhátíð þegar sagan end- urtekur sig. Nei eða já Eftir slaginn munu þau hjón sem ætla að hanga lengur saman átta sig á því að einhverju þarf að breyta. Þá gæti byrjað nýtt rifrildi um það að bara annað þurfi að breyta hegð- un sinni en ekki hitt. Skynsamleg- asta niðurstaðan væri þó líkast til sú að samþykkja eina reglu sem fer langt með að bjarga jólaundirbún- ingnum: ekki gera neitt nema bera það undir maka þinn. Með þessari reglu er ekki verið að heimta að makinn ráði öllu heldur einungis verið að biðja fólk um að ræða sam- an og komast að niðurstöðu. Reglan hefur það að minnsta kosti í för með sér að makinn veit af því sem er í vændum en rekst ekki á það fyrir tilviljun. Hjón geta notað árið sem er fram undan til að æfa sig og þá verða næstu jól til fyrirmyndar. -sm SyíAsljos_____________________________________________________________________________ Whitney Houst on reykir enn Bnan May loksins giftur Söngkonan Whitney Houston hef- ur lítið verið í fjölmiðlum á þessu ári fyrir söng sinn en þess meira fyrir eiturlyfjaneyslu sína. Sést hef- ur til hennar í rússi hér og hvar á opinberum vettvangi og ennfremur var vænn baggi af maríjúana hirtur af henni við tollskoðun. Nýlega komu þau hjónin hún og Bobby Brown fram saman i Las Vegas og voru í banastuði. Þau sungu afbragðsvel og töluöu mikið við áhorfendur um alla heima og geima. Meöal annars um erfiðleika sína við að vera laus við eiturlyf og áfengi og töldu sig hafa verið allsgáð í 274 daga þegar þarna var komið sögu. Nú greina blöð frá því að þetta sé allt þvættingur því þau hafi byrjað að drekka strax eftir að sýningunni lauk og sérstaklega tók Bobby hlut- ina með trompi. Whitney fór fljót- lega heim að gæta bús og barna en hann drakk frá sér vit og rænu á hótelherbergi sínu og var seinast stöðvaður i anddyri hótelsins æp- andi ókvæðisorð að gestum. Whitney Houston Söngkonan hefur veriö í sviösljósi ijölmiöia að undanförnu vegna meintrar eiturlyfjaneyslu. Hinn fingralipri gítarleikari Brian May, sem i áratugi hefur leitt hina ofurvinsælu rokkhljóm- sveit Queen til mikillar frægðar og frama, kom mörgum á óvart á dögunum þegar hann gekk í það heilaga. Nú er það ekkert sérstakt undrunarefni að fólk giftist. í hans tilviki er eiginkonan Anita Dobson leikkona sem getið hefur sér gott orð fyrir leik í Eastenders og samband þeirra hefur varað í 12 ár og verið í nokkurs konar trú- lofunarástandi. Það sem vekur undrun er að fáir höfðu trú á að þau myndu stíga þetta skref þar sem samband þeirra hefur verið töluvert stormasamt í mörg ár og verið slitið með reglulegu millibili. Þau ákváðu að láta pússa sig saman í látlausri athöfn á skrif- stofu fógeta í Richmond og í kjöl- farið sigldu þau í brúðkaupsferð um skurði og síki Feneyja eins og milljónir brúðhjóna á undan þeim,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.