Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2000, Blaðsíða 70
V
74
LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2000
Tilverá
s>v
Nýtt á myndbandi:
bærinn í dalnum
Síðasti bærinn í dalnum, sem nú er
kominn út á myndbandi, er rammís-
lenskt og sívinsælt ævintýri eftir Loft
Guðmundsson. Á myndbandinu er það
í leikbúningi Hafnarfjarðarleikhúss-
ins og upptöku Sjónvarpsins.
Sagan segir frá systkinunum Sól-
rúnu og Bergi sem búa í sveit með
pabba sínum og ömmu og leika sér að
legg og skel. En einn daginn vakna
þau upp við vondan draum þegar þau
komast að því að það búa tröll í fjöll-
unum sem eru við það að flæma alla
bændur burt úr dalnum. Það er þá
sem álfamir koma til sögunnar með
hinn ráðagóða Rindil í fararbroddi.
Það hefst spennandi og skemmtileg
barátta og má vart milli sjá hvort liðið
muni sigra þegar tröllin loka börnin
ofan í kistu sem flýgur með þau á
brott.
Þetta er saga sem er þeim ógleyman-
leg sem sáu hana í kvikmynd Óskars
Gíslasonar á sínum tíma, og hér geng-
ur hún í endumýjun lífdaga í leikgerð
Hilmars Jónssonar og Gunnars Helga-
sonar. Leikarar eru Gunnar Helgason,
Björk Jakobsdóttir, María Ellingsen,
Jón Stefán Kristjánsson, Halldór Gylfa-
son og Hildigunnur Þráinsdóttir en Eg-
ill Eðvarðsson stjórnaði þessari vönd-
uðu upptöku Sjónvarpsins. Myndband-
ið fæst í verslunum Bónuss og Hag-
kaups.
Bsm
Le Bossu
Skylmingar og
rómantík
★ ★Á
Le Bossu er
byggð á klassískri,
franskri skáld-
sögu sem er í
anda Skyttnanna
og hefur verið
kvikmynduð
fimm sinnum
áður. Það er
franski leikstjór-
inn Philippe de
Broca sem leikstýrir þessari nýju út-
gáfu og er réttur maður á réttum stað,
enda vanur ævintýramyndagerð á
löngum ferli. Le Bossu, sem Frakkar
tilnefndu fyrir tveimur ámm til níu
Cesar-verðlauna, er ein þeirra kvik-
mynda sem njóta sin best í kvikmynda-
húsum. Þegar hún er komin á sjón-
varpsskjáinn missir hún nokkuð af því
mikilfenglega sjónarspili sem boðið er
upp á og sem aðallega felst í skylming-
um. Le Bossu er hetjusaga. Aðalpersón-
an er snjall skylmingamaður, Lag-
ardere, af lágum ættum, sem vegna
óvæntra atburða verður félagi og vinur
hertogans af Nevers. Þegar iilgjam
frændi hertogans verður honum að
bana og setur eiginkonu hans í stofu-
fangelsi tekur Lagardere ársgamla
dóttur hertogans að sér og heitir því að
hefna húsbónda síns. Frændinn vill
ráða niðurlögum barnsins því það er
réttmætur erfmgi auðæfanna sem
hann hefur eignað sér. Líða nú mörg ár
áður en stund hefndarinnar rennur
upp. Le Bossu er hröð og skemmtileg
en hefur samt einn stóran galla sem er
aðalleikarinn, Daniel AuteuO. Ein-
hvem veginn var hann mest sannfær-
andi þegar hann þurfti að klæða sig í
gervi krypplings. Þá var einkennilegt
að sjá hann aldrei eldast á meðan dótt-
ir hertogans varð að tuttugu ára feg-
urðardís. -hk
Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Phil-
ippe De Broca. Frönsk, 1998. Lengd:
128 mín. Ekki við hæfi ungra barna
Diamonds
Til heiðurs Kirk
★★
-
KIRK DOUG
1 lok
Diamonds
kemur smátexti
þar sem Kirk Dou-
glas er þakkað
gott samstarf —
harla óvenjulegt
að aðallleikaran-
um sé þakkað í
lokin á þennan
hátt. Þetta stað-
festir aðeins það sem mann hafði grun-
að að Diamonds væri eingöngu gerð
þessum aldna stórleikara til heiðurs.
Fyrir nokkmm ámm fékk Kirk Dou-
glas heilablóðfall og missti málið. Af
miklu harðfylgi lærði hann að tala aft-
ur og þó ekki sé hann skýrmæltur í
myndinni þá stendur hann vel fyrir
sínu og hefur enn aðdráttarafl.
í upphafi myndarinnar er Harry,
gamall hnefaleikameistari, að rifja upp
gamla dýrðardaga og við sjáum glefsur
úr gamaili kvikmynd og ljósmyndir.
Hér emm við að sjá Kirk Douglas í
Champions frá árinu 1949, kvikmynd
sem gerði hann frægan. í samtali við
son sinn (Dan Aykroyd) og sonarson
sinn segist hann hafa falið demanta í
húsi sem hann bjó í áður fyrr, demanta
sem séu milljón dollara virði. Nú sé
kominn tími til að sækja þá svo vel geti
farið um hann á heldri manna elli-
heimili. Þremenningamir leggja nú
upp í viðburðaríka ferð tO Reno, með
viðkomu á börum og hóruhúsi þar sem
lengi er dvalið og satt best að segja
lýsti það atriði nokkra hugmyndaleysi
í gerð myndarinnar. Diamonds er ekki
sterk á sveUOiu. AUt er gert tU að láta
hetjuna Kirk Douglas lita sem best út
en maður hefur á tilfmnOigunni að
hann sé ekki eins hraustur og hlut-
verkið gefur tOefni tO. Þetta er meðal
annars ástæðan fyrir því að myndin
nær aldrei flugi - er meðalmennskan
uppmáluð.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: John Mallory As-
her. Bandarisk, 1999. Sýningartími 96 min.
Ekki við hæfi ungra barna.