Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2000, Blaðsíða 12
12
LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2000
Fréttir
DV
Frönsk vopnasamsteypa
sökuð um morð á Taívan
Fyrir sjö árum fannst lík í höfn-
inni í Taipei, höfuðborg Taívans.
Hinn látni reyndist vera Yin Chin-
feng kafteinn. Réttarlæknar töldu
að honum heföu verið veitt banvæn
högg. Aldrei hefur verið upplýst
hver banaði flotaforingjanum. En í
síðustu viku sakaði ráðgjafi forseta
Taivans, Chens Shyuis-Bians,
frönsku vopnasölusamsteypuna
Thomson CSF um að hafa átt aðild
að morðinu.
„Ég er sannfærður um að Thom-
son gegndi lykilhlutverki í morðinu
á Yin,“ sagði ráðgjafi forsetans,
Roger Hsieh, í viðtali við franska
blaðið Libération.
Frakkar höfðu hug á að selja Taí-
vönum sex freigátur. Pólitísk hlið
málsins var hins vegar erfið. Kin-
verjar voru æfir yfir vopnasölu
Frakka til Taívana. Kínverjar lita á
Taívan sem uppreisnareyju. Á Taí-
van gætti andstöðu gegn freigátu-
kaupunum í vissum hópum. Þess
vegna ákvað Thomson-samsteypan
aö múta bæði lykilmönnum í Kína
og á Taívan.
Varaði yfirmenn við
freigátukaupunum
Yin Chin-feng var hins vegar orð-
inn erfiður Frökkunum. Þegar
milljarðasamningurinn hékk enn á
bláþræði hafði Yin varað yfirmenn
sína við meintum göllum á freigát-
unum. Honum var auk þess vel
kunnugt um hvernig Thomson-sam-
steypan hafði mútað mönnum í Taí-
van til að koma samningnum i höfn.
Freigáturnar kostuðu alls 16
milljarða franka. Fullyrt er að
Frakkar hafi greitt 3 milljarða í
mútur til að tryggja sér samning-
inn. Síðasta freigátan var afhent
1998. Margt hefur þótt benda tO að
franskir embættismenn hafi einnig
fengið sneið af kökunni.
í fyrstu neituðu fulltrúar Thom-
sons að tjá sig um ásakanir ráðgjafa
Taívansforseta. Nokkrum dögum
seinna ákvað samsteypan hins veg-
ar að höfða mál gegn Libération.
Freigátumálið var áöur orðið eld-
fimt í Frakklandi. Víst þykir að
Frangois Mitterrand, fyrrverandi
Frakklandsforseti, hafi vitað um þá
víðtæku spillingu sem átti að
tryggja Frökkum samninginn um
sölu á freigátunum sex. Utanríkis-
ráðherra Mitterrands, Roland
Dumas, sem nú er 76 ára, er sterk-
lega grunaður um að vera með
óhreint mjöl í pokahorninu.
Hann vísar öllum sakargiftum á
bug og hefur oft hótað að greina frá
nöfnum þeirra sem tryggöu sér sína
sneið af kökunni með því að fá um-
boðslaun. Það liggur í loftinu að um
háttsetta menn sé að ræða.
Ástkonan fékk Dumas til að
skipta um skoðun
Ástkona Dumas, Christine Devier-
s-Joncour, á árið 1991 að hafa gegnt
lykilhlutverki þegar franska utan-
ríkisráðuneytið skipti um skoðun í
freigátumálinu. Utanrikisráðuneytið
hafði í fyrstu bannað Thomson-sam-
steypunni að selja freigáturnar til
Taívans. Thomson-samsteypan er
sögð hafa fengið aðstoð við þrýsting
á utanríkisráðuneytið frá franska ol-
íufyrirtækinu Elf-Aquitaine sem er
viðriðið eitt mesta spillingarmálið í
Evrópu á síðasta áratug. Það var
einn yfirmanna Elfs, Alfred Sirven,
sem aðstoðaði Thomson-
samsteypuna. Sirven hafði umsjón
með leynisjóðum olíufyrirtækisins.
Um 150 milljónir franka munu hafa
runnið úr sjóöum Elfs í vasa
Christine Deviers-Joncour.
Christine sagði í fyrsta sinn í
fyrra frá því að Dumas hefði verið
viðriðinn lögbrot. Ástarsambandi
þeirra lauk 1997. Grunur leikur á að
Dumas hafi útvegað ástkonu sinni
starf hjá Elf sem þá var ríkisfyrir-
tæki. Það var eins og Christine
hefði varpað sprengju í fyrra þegar
hún greindi frá því að lúxusíbúðin
sem hún keypti í París 1989 heföi í
raun verið gjöf frá Elf til Dumas.
Hún sagði að Dumas hefði fengið
þóknun fyrir að hafa stutt útnefn-
Roland Dumas
Utanríkisráöherrann fyrrverandi
hefur staöfest mútugreiöslur til
ieiötoga Taívans vegna kaupa á
frönskum freigátum.
ingu Loik le Floch-Prigent í for-
stjóraembættið. Christine fullyrti
einnig að Dumas hefði aðstoðað við
að hvítþvo hluta fjárins sem hún
fékk frá Elf. Féð var lagt inn í banka
í Sviss.
Vegna aðildar Christine að spili-
ingarmálum í Frakklandi og vit-
neskju hennar um þau þótti því
ekki undarlegt að hún skyldi birtast
á fréttamannafundi stjórnarand-
stöðuflokksins Nýi flokkurinn í Tai-
van í mars síðastliðnum þegar bar-
áttan fyrir forsetakosningamar þar
stóð sem hæst. Talið er að það hafi
verið Christine sem tók við greiðsl-
unum sem notaðar voru til að
þrýsta á Dumas um að samþykkja
söluna á freigátunum til Taívans.
Nýi forsetinn á Taívan segir fyrr-
verandi stjóm landsins hafa verið
gjörspillta. Hann segir leiðtoga
hennar hafa keypt freigáturnar 1991
á yfirverði þar sem þeir hafi sjálfir
fengið góðar greiðslur undir borðið.
Dumas staðfesti þetta reyndar sjálf-
ur í viðtali við franska tímaritið Le
Nouvel Observateur fyrr á þessu
ári.
Huldu slóðina eftir
morðingann
Gamla stjórnin í Taívan gerði alit
sem hún gat til þess að hylja slóðina
eftir morðingja Yins Chin-fengs.
Nýja stjómin ætlar að reyna að
leysa morðgátuna. Skipuð hefur
verið nefnd sem rannsaka á morðið
og varpa ljósi á spiilingarmál.
Lík Yins fannst þegar daginn eft-
ir að hann var myrtur. Aðstoðarfor-
ingi hans hefur siðan verið dæmdur
í lífstíðarfangelsi fyrir aö hafa tekið
við mútugreiðslum. Talið er að fyrr-
verandi stjómvöld hafi rutt Yin úr
vegi svo að hann kjaftaði ekki frá.
Nýja rannsóknarnefndin hefur þeg-
ar komist að spillingu fimm ann-
arra liðsforingja og fjöldi grunaðra
vex stöðugt.
Lykilhlutverki í mútumálinu
gegnir Andrew Wang, umboðsmað-
ur Thomson-samsteypunnar á
staðnum. Hann flýði frá Taívan
strax eftir morðið á Yin. Talið er að
Wang sé í felum i Bandaríkjunum.
Alþjóðleg handtökuskipun hefur
fyrir löngu verið gefin út á hendur
honum. Þegar Wang stakk af ók
hann tO flugvailarins með Frakkan-
um Jean-Claude Albessard, fulltrúa
Thomsons á Taívan. Frakkinn lét
sig einnig hverfa. íupphafi þessa
árs var tiikynnt um andlát hans.
Það er vegna þessara kringum-
stæðna sem ráögjafi Taívansforseta
sagði í viðtali við Libération að
hann væri sannfærður um að
Thomson-samsteypan væri viðriðin
morðið á Yin.
Yin, sem hafði skrifað gagnrýna
skýrslu um frönsku freigáturnar,
hafði stuttu áður en hann var myrt-
ur sagt við vin sinn að hann væri í
lífshættu. Hann bað vin sinn um að
hefna sín yrði hann fórnarlamb
samsæris,
Talið er að mútufé hafi verið lagt
inn á 300 bankareikninga. Yfirvöld
á Taívan hafa beðið franska banka
um samvinnu svo að varpa megi
ljósi á málið. I bönkunum í París
yppta menn bara öxlum.
Byggt á Politiken, Aftenposten
o.fl.
Ástkonan á fréttamannafundi
Ástkona Dumas, Christine Deviers-Joncour, á fréttamannafundi meö
stjórnarandstööuflokki á Taívan í mars síöastliönum þegar
kosningabaráttan þar stóö sem hæst. Christine veit heilmargt um
spillingarmál franskra embættismanna.