Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2000, Blaðsíða 35
LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2000
35
I>V
Helgarblað
Greind með alvarlegt þunglyndi fyrir
tveimur árum:
Erfitt að
þola minnsta
áreiti
María Arinbjarnar er 27
ára gömul, nemi í tölvu-
frœði í Iðnskólanum í
Reykjavík. Árið 1998 var
hún lögð inn á geðdeild
vegna þunglyndis sem
átti sér langan aðdrag-
anda og einkenndist af
vanlíðan, misnotkun
áfengis og einelti í skóla.
„Ég ólst upp í Garðabæ og gekk
þar í skóla. Ég átti alltaf erfitt með
að fóta mig og komast inn í ein-
hvern félagsskap. Ég var lögð í ein-
elti frá því í bamaskóla og fram
undir lok gagnfræðaskóla þannig
að ég hafði átt við vanlíðan að
stríða mjög lengi áður en ég var
greind þunglynd," segir María.
Maríu sóttist námið alla tíð ágæt-
lega og útskrifaðist sem stúdent frá
Fjölbrautaskólanum í Garðabæ jól-
in 1994.
„Ég var 19 eða 20 ára þegar ég fór
að drekka. Ég held samt eftir á að
hyggja að ég hafi byrjað að drekka
vegna þunglyndis en ekki vegna
áfengissýki."
Árið 1995 innritaðist María í
nám í þjóðfræði við Háskóla ís-
lands og stundaöi námið í tvo vet-
ur. Bakkus var þó aldrei langt
undan og árið 1997 fór hún í áfeng-
ismeðferð á SÁÁ. Eitt leiddi af
öðru og tveimur árum síðar átti
María að baki tvær innlagnir á
geðdeild Landspítalans.
Síöasta skrefið út á
vinnumarkað
„Þegar maður er búinn að vera á
geðdeildum í ákveðinn tíma verður
streitu- og áreitisþröskuldurmn það
lágur að maður þolir ekki minnsta
áreiti, tilfmningalega né líkamlega. Ég
hef ekkert unnið síðan sumarið 1998.
Bæði vegna þess að ég hef ekki treyst
mér til þess hingað til og eins vegna
þess að nú er ég byrjuð í námi í Iðn-
skólanum," segir hún og leggur
áherslu á þörf fyrir klúbb eins og
Geysi þar sem fólk sem útskrifast af
geðdeildum getur komið saman og not-
ið stuðnings hvert frá öðru.
„Ég kynntist Geysi á meðan klúbb-
urinn var enn tO húsa í Hátúninu.
Geysir er í minum huga sá vettvangur
sem brúar bilið fyrir þann sem er að
koma út af stofnun og áður en hann
heldur út i samfélagið. Það sem ég
kann sérstaklega vel við er að í
klúbbnum er maður ekki stimplaður
vegna geðsjúkdóms heldur fær þá
virkni og stuðning sem maður þarf.
Fyrir mig er nóg bara að hafa sig út í
það að mæta í klúbbinn, tala við fólk
eða gera eitthvað annað án þess að
manni séu lagðar ákveðnar skyldur á
heröar."
María horfir björtum augum á
framtíðina þrátt fyrir það sem á und-
an hefur gengið.
„Síðasta skrefið í þessum klúbbi er
auðvitað að fara út á vinnumarkað-
inn. Ég mun halda mínu námi í tölvu-
fræði áfram eftir að kennaraverkfall-
inu lýkur og halda áfram að sækja
Geysi eftir því sem tími gefst til. Ég
hef verið að sérhæfa mig í gagnasafns-
forritun og vil mjög gjaman starfa á
því sviði í framtíðinni.“ -KGP
María Arinbjarnar.
„Þegar maöur er búinn að vera á geödeildum í ákveöinn tíma veröur streitu-
og áreitisþröskuldurinn það lágur aö maöur þolir ekki minnsta áreiti, tilfinn-
ingalega né líkamlega. “ Meö Maríu á myndinni er Ólína Hulda
Guömundsdóttir
Einar Björnsson.
„Ég held persónulega aö i mínu tilfelli megi reka sjúkdóminn til erföa- og umhverfisþátta. Ég passaði einhvern veg-
inn aldrei inn samfélagiö þar sem ég ólst upp. Ég var fyrst sendur til læknis þegar ég var tíu ára gamall
vegna geöræna vandamála. “
Átján sinnum á geðsjúkrahús á fjórum árum:
Vil miðla af eigin
reynslu
Einar Björnsson er 33
ára gamall, fráskilinn
tveggja barna faðir. Fyrir
átta árum greindist hann
með geðhvarfasýki og á
nú að baki hátt á annan
tug innlagna á geðdeildir,
síðast árið 1996.
„Ég held persónulega að í mínu
tilfelli megi reka sjúkdóminn til
erfða- og umhverfisþátta. Ég passaði
einhvem veginn aldrei inn samfé-
lagið þar sem ég ólst upp í Kópa-
vogi. Ég var fyrst sendur til læknis
þegar ég var tíu ára gamall vegna
geðrænna vandamála," segir Einar
en um tvítugsaldur fóru að sækja á
hann sjálfsmorðshugsanir og þung-
lyndi.
„Ég stofnaði ungur til fjölskyldu
eftir að hafa byrjað í menntaskóla
en flosnaði upp frá námi. Ég var
alltaf góður í skóla og hafði lítið fyr-
ir heimanáminu. Ég komst upp með
það í grunnskóla að lesa fyrir próf á
síðustu stundu en ég held að þetta
agaleysi hafi fyrst og fremst orðið
til þess að ég hætti í skóla síðar
meir.“
Greindur með geðhvarfasýki
Einar fór fljótlega að vinna eftir
að skyldu lauk og var meðal annars
til sjós auk þess að vinna bæði hjá
Eimskip og Samskipum.
„Mér gekk mjög vel í vinnu. Fljót-
lega upp úr tvitugu var ég hins veg-
ar kominn út í neyslu á vímuefnum
auk áfengis sem endaði með því að
ég fór í meðferð 25 ára.“
Eftir að Einar var laus undan
viðjum fikniefna og áfengis fóru
geðræn vandamál fyrst að gera vart
við sig fyrir alvöru. Hann var
greindur með mania-depression eða
geðhvarfasýki.
„Ég held að vímuefnaneyslan sem
ég var kominn út í hafi frekar verið
afleiðing heldur en orsök sjúkdóms-
ins. Læknar hafa staðfest að sjúk-
lingum hættir til að nota áfengi sem
höggdeyfi til að jafna út geðsveifl-
urnar og til marks um þetta er ég í
ágætisjafnvægi í dag og fiknin er
ekki lengur til staðar.“
Eftir mikla þrautagöngu og inn-
lagnir frá árinu 1992 fór loks að rofa
til hjá Einari fyrir fjórum árum.
Hafði mínar efasemdir
„Ég var hjá Hvíta bandinu í þrjú ár.
Það er dagdeild sem Landspítalinn rek-
ur á Skólavörðustígnum og þar líkaði
mér ágætlega."
Hjá Hvíta bandinu heyrði Einar
fyrst minnst á klúbbinn Geysi.
„Við sóttum kynningarfund hjá
Geysi. Mér fannst nú ekki mikið til
klúbbsins koma til að byija með og
hafði minar efasemdir en það átti eftir
að breytast."
„Það sem mér fannst jákvætt við
Geysi er að ég gat farið þangað á eigin
forsendum. í dag hef ég mun meira
sjálfstraust en ég hafði áður. Ég hef
bæði verið að skrifa greinar í blöð og
talað fyrir hópi fólks en það er nokkuð
sem ég hefði ekki getað ímyndað mér
að ég ætti eftir að gera.“
í dag er Einar heimavinnandi hús-
faðir auk þess sem hann vinnur fyrir
Geysi. Þá stefnir hann á nám í nálægri
framtíð.
„Ég hef mikinn áhuga á tölvum og
öllu sem þeim viðkemur og stefni á nám
í forritun og kerfisfræði. Ég hef líka
mikinn áhuga á að miðla þeirri reynslu
sem ég hef fengið í gegnum minn sjúk-
dóm og gæti vel hugsað mér að hjálpa
og leiðbeina þeim sem eru að ganga í
gegnum það sama og ég gerði." -KGP
Frábært
verð
2.795 kr
Gervijólatré 60 cm
með Ijósleiðurum
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is