Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2000, Blaðsíða 84
Tré-
húsgögn
í úrvali
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
I hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
Sími 567 4151 & 567 4280
Heildverslun með leikföng og gjafavörur
550 5555
LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2000
Gegn sameiningu:
Dóra hetja
„Ég hef ekki haft undan að taka við
hamingjuóskum frá viðskiptavinum
og samstarfsfólki mínu í bankanum.
Það virðast allir
Dóra
Ingvarsdóttir.
verða sömu skoð-
unar og ég,“ sagði
Dóra Ingvarsdótt-
ir, útibússtjóri
Búnaðarbankans i
Mjódd, sem lýsti
skoðunum sinum
á sameiningu rík-
isbankanna í DV í
gær. Þar dró hún
mjög í efa meintan
ávinning af sameiningu Búnaðar-
banka og Landsbanka og sagði að við-
skiptavinir bankanna yrðu aldrei til
sölu. Líkaði þeim ekki nýr sameinað-
ur banki færu þeir einfaldlega annað.
„Ég held að skoðanir mínar eigi sér
ekki aðeins hljómgrunn í Búnaðar-
'iæ bankanum. Ég tel að það sama verði
uppi á teningnum í Landsbankanum,"
sagði Dóra Ingvarsdóttir í gær. -EIR
Guðjón í leikbann
Guðjón Þórðarson, knattspyrnu-
stjóri Stoke, hefur verið dæmdur í
þriggja leikja
bann fyrir að veit-
ast að dómara
með hrópum, köll-
um og óviðeigandi
munnsöfnuði í
leik Stoke og
Bournemouth 28.
október síðastlið-
inn. Guðjón hefur
14 daga til að
áfrýja dómnum en
ef hann gerir það ekki tekur banniö
gildi á Þorláksmessu þegar Stoke
mætir Wigan. -EIR
Guöjón
Þóröarson.
15
dagar til jóla
jólaíestm kemur i dag
(ccfrfrln / r
#1
wfA
r~\
VAR ÞETTA
KRINGLUKAST?
c 2
Utför hjóna
Hjónin Vilborg Jónsdóttir og Jón Rúnar Árnason, sem léWst í umferðarslysi á Reykjanesbraut 30. nóvember, voru jarðsungin frá Keflavíkurkirkju í gær að við-
stöddu fjölmenni.
Ný hugmynd vegna fyrirhugaðra bygginga á Vatnsendasvæðinu:
Kópavogsbúar kjósi
um skipulagiö
- Reykvíkingar fái að taka þátt í þeirri kosningu
Hrannar B. Arnarsson, formaður
umhverfis- og heilbrigðisnefndar
Reykjavíkur, hefur lagt til í borgar-
stjórn að farið verði fram á við bæj-
aryfirvöld í Kópavogi að þau gefi
Kópavogsbúum kost á að kjósa um
skipulag Vatnsendasvæðisins.
Reykvíkingar fái að taka þátt í
þeirri atkvæðagreiðslu. Bæjarráð
Kópavogs og borgarráð Reykjavíkur
hafa nýverið samþykkt samkomu-
lag um samstarf sveitarfélaganna
um umhverfís- og skipulagsmál við
Elliðavatn.
„Ég varpaði fram þessari hug-
mynd í ljósi þess að við bjóðum
borgarbúum upp á að kjósa um
Reykjavíkurflugvöll og Kópavogsbú-
ar hafa sýnt áhuga á að taka þátt í
þeim kosningum. Þá væri hægt að
sameina þetta,“ sagði Hrannar við
DV. „Það væri eðlilegt að leita eftir
afstöðu borgarbúa til þessa málefnis
en aðalatriðið er að Kópavogsbúar
Hrannar B.
Kópavogsbúar
fái að kjósa.
Siguröur
Afar sérstök
hugmynd.
fái að koma að málinu með beinum
hætti, eins og Reykjavíkurborg býð-
ur Reykvíkingum upp á í stærri
skipulagsmálum. Þetta er viðamikið
mál.“
Hrannar sagði „kristaltært" að
umhverfis- og heilbrigðisnefnd
hefði viljað sjá skipulag Vatnsenda-
svæðisins með öðrum hætti. Hún
hefði gjarnan viljað sjá að miklu
stærri hluti af svæðinu væri
óbyggður og nýttur undir útivist.
Þannig væri það í samþykktum
borgarinnar. Aðspurður um hvort
hann hefði ekki lagt blessun sína
yflr áætlanir bæjaryfirvalda í Kópa-
vogi með því að undirrita sam-
komulagið um umhverfis- og skipu-
lagsmál á Vatnsendasvæði sagði
hann svo ekki vera. Með samkomu-
laginu væri verið að tryggja að líf-
ríkið nyti vafans og farið yrði í
nauðsynlegar rannsóknir til að fyr-
irhugaðar byggingar myndu ekki
skaða það.
„Ég hef ekki fengið neitt frá borg-
arstjóm um þetta efni,“ sagði Sig-
urður Geirdal bæjarstjóri í Kópa-
vogi. „Ég hef ekki heyrt þessa hug-
mynd fyrr og hef ekki hugleitt hana.
Hún er svo frábragðin öllum öðrum
hugmyndum sem ég hef heyrt að
hún þarf góða umhugsun áður en
henni er svaraö."
-JSS
Jóhannesarborg:
Samningur um
losun 12 hættu-
legra efna
Skáldum hent út úr Kringlunni
Nýr samningur um takmörkun og
bann við framleiðslu og losun 12
hættulegra efna verður væntanlega
undirritaður í Stokkhólmi í maí.
Ganga átti frá drögum að þessum
samningi á fundi i Jóhannesarborg í
gær. Hart hefur verið tekist á um
þessi mál á fundinum undanfarna
daga.
Að sögn Magnúsar Jóhannessonar,
ráðuneytisstjóra í umhverfisráðuneyt-
inu, hafa íslendingar lagt ýmislegt til
málanna í þessum efnum. I gær átti
t.d. að ljúka gerð samnings á fundi í
Jóhannesarborg í Suður-Afríku, þar
sem bæði bann og takmörkun er lögð
á framleiðslu og losun 12 hættulegra
efna. „Grunnur að þessum samningi,
sem undirrita á í Stokkhólmi í lok
maí á næsta ári, var lagður að undir-
lagi íslendinga á ráðstefnu um meng-
un hafsins í Reykjavík í mars 1995.“
Díoxín er hliðarefni sem verður til
við notkun margra þessara efna. Hér
á landi er stöðug vöktun og mælingar
á stöðu þessara efna í umhverflnu en
styrkur m.a. PCB og DDT fer að sögn
Magnúsar minnkandi í okkar um-
hverfi. Hann telur samninginn í Jó-
hannesarborg þó mjög mikilvægt
skref í baráttu við eiturefnin. -HKr.
- Sjá nánar fréttaljós bls. 14
Svefn&heiLsa
Öryggisveröir Kringl-
unnar réðust til atlögu við
tvo leikara sem spigspor-
uðu í gær um verslunar-
miðstöðina í gervi Jónasar
Hallgrímssonar og Hall-
dórs Laxness. Skáldin
voru þama á ferð til að
kynna leikritið Skáldanótt
sem sýnt er við miklar
vinsældir í Borgarleikhús-
inu um þessar mundir.
„Jónas Hallgrímsson
snerist til vamar gegn ör-
yggisvörðunum, enda
Jónas
Hallgrímsson
- Steinn Ármann
Magnússon.
skapheitur, og munaði minnstu að
hann félli niður rúllustigann þegar
öryggisverðir sneru hann niður.
Halldór Laxness varðist hins vegar
með orðum en
mátti lúta í lægra
haldi,“ sagði Bene-
dikt Erlingsson,
leikstjóri Skálda-
nætur, eftir átökin
í Kringlunni i gær.
Það var leikar-
inn Þór Tulinius
sem fór um ganga
Kringlunnar í
gervi Halldórs Lax-
ness en Steinn Ár-
mann Magnússon
varðist öryggisvörðunum
Halldór Laxness
- Þór Tulinius.
sem Jónas Hallgrímsson.
„Listin og markaðurinn hafa átt
gott samstarf í Kringlunni og við
höfum leyfi til að kynna verk okk-
ar þar. Öryggisvörðunum í
Kringlunni mun ekki hafa
verið fullkunnugt um þetta
samstarf og þvi fór sem fór.
Forsvarsmenn Kringlunn-
ar hafa nú beðist afsökun-
ar á þessari uppákomu og
er hún tekin gild,“ sagði
Benedikt Erlingsson.
Skáldanótt verður sýnd í
Borgarleikhúsinu í kvöld
og mega leikhúsgestir eiga
von á því að Jónas Hall-
grímsson og Halldór Lax-
beri átakanna í Kringlunni
ness
merki í sýningunni - báðir snúnir
og aumir eftir þetta ævintýri á
göngufór.
-EIR
Í
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i