Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2000, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2000, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2000 Helgarblað Fyrir rétt rúmu ári var klúbb- urinn Geysir stofnaöur hér á landi. Hann býöur upp á stuön- ing og meðferöarúrrœði fyrir fólk sem hefur átt viö geðsjúk- dóma aö stríöa. Hugmyndin er ekki ný af nálinni og byggist á 50 ára gamalli hugmyndafrœöi Fountains House sem varö til í Bandaríkjunum í lok fimmta áratugarins. Nafnið dregið af gosbrunni Það var árið 1949 að hópur sjúk- linga sem var útskrifast af geðdeild- um þar í borg ákvað að stofna með sér samtök sem hefðu það að mark- miði að veita geðsjúkum ákveðið að- hald og aðstoða við að fóta sig á ný í lífinu. Hópurinn byrjaöi á því að hittast reglulega á bókasafni í New York en fljótlega var farið að safna fyrir húsnæði sem varð jafnframt visir að fyrsta Fountain House klúbbnum. Klúbburinn dró nafn sitt af gosbrunni sem var í garðinum. Um 350 klúbbar eru nú starfræktir undir merkjum Fountain House í 23 þjóölöndum, þar af einn hér á landi. Fengu húsnæði í gamalli vélsmiðju Húsnæði Geysis við Ægisgötu í gamla vesturbænum lætur ekki mikið yfir sér séð utan frá séð. Þar var m.a. starfrækt vélsmiðja á árum áður og ef gengið er niður að Mýr- argötu blasa við byggingar gamla Slippfélagsins og Stálsmiöjunnar sem lifa á forni frægð þótt að þeim sæki úr öllum áttum. Eflaust er hús- næði Geysis við Ægisgötu eitt skýrasta dæmið tO marks um það að ferskir vindar blása um þetta gamla iðnaðarhverfi. Inni fyrir er starfsemin í fullum gangi. Erillinn spillir þó engan veg- inn fyrir og það fyrsta sem maður veitir athygli er rólegt og þægilegt andrúmsloftið á staðnum. Ólína Hulda Guðmundsdóttir, annar af tveimur starfsmönnum Geysis, tekur forvitnum blaða- manni opnum örmum og reynist fús til að rekja upphafið að stofnun Geysis á íslandi og hvað Geysir er að bjóða upp á sem er ólíkt öðrum úrræðum sem geðsjúkum á íslandi hefur hingað til staðið til boða. Þrjár tölvur, þrír stólar og kaffikanna „Þetta byrjaði allt saman árið 1997 þegar Anna Valdemarsdóttir, sem nú er framkvæmdastjóri Geys- is, og Anna Guðrún Arnardóttir kynntu sér Fountain House hreyf- inguna og fleiri hugmyndir í Sví- þjóð en þær voru þá báðar starf- andi sem iðjuþjálfar á Kleppsspít- ala. Þessar hugmyndir voru síðan kynntar hér heima og strax frá byrjun leist öllum mjög vel á hug- myndina. Undirbúningurinn var hins vegar langur og tók um tvö og hálft ár. Það var fyrir velvilja Ör- yrkjabandalagsins að okkur var loks útvegað húsnæði, tvö lítil her- bergi í Hátúni 10. Aðstaöan var reyndar mjög lítil. Við vorum með þrjár tölvur í einu herbergi og þrjá stóla og kafFikönnu í hinu herberg- inu,“ segir Ólína og rekur söguna af því hvernig allt upp í 15 manns kúldruðust í 25 fermetra húsnæði en tókst samt að undirbúa starf- semi klúbbsins og semja kynning- arefni og fleira þrátt fyrir rýran húsakost. í janúar í fyrra varð breyting á þegar félagið fékk viðunandi hús- næði við Ægisgötu fyrir tilstilli Reykjavíkurborgar en starfsemi Geysis hefur auk þess verið fjár- mögnuð með framlögum frá ná- grannasveitarfélögunum og úr rik- issjóði. Félagar í klúbbnum tóku virkan þátt í að koma húsnæðinu i stand og húsnæði klúbbsins stækk- aði úr 25 fermetrum í 200 fermetra. „Þetta skipti auðvitað sköpum fyrir okkur og nú heimsækja klúbb- inn allt upp í 90 manns á mánuði. Þar af eru um 50 skráöir félagar og nokkuð minni hópur sem er nokk- urs konar fastur kjami hérna.“ Húsnæði Geysis við Ægisgötu í gamla vesturbænum lætur ekki mikið yfir sér. „Fólk kemur ekki inn sem sjúklingar enda eru ákveönar kröfur geröar til fólks líkt og til þeirra sem eru frískir. Þaö sem einkennir þó Geysi er aö klúbburinn er allt annaö en stofnun. Hér axia allir ábyrgöina, “ segir Jón. Klúbburinn Geysir starfar í anda Fountain House-hugmyndafræðinnar: Vin í vesturbæ við atvinnurekendur. Veikist starfs- maður hlaupi einhver félagsmanna Geysis í skarðið og þar með sé vinnuveitendum tryggð 100 prósent mæting. „Þetta hefur gefist mjög vel og i dag erum við með átta einstaklinga sem eru í vinnu og þrjá sem eru í námi. Annar af bókhöldurum okkar er til dæmis kominn í fulla vinnu hjá Reykjavíkurakademíunni,“ bæt- ir Ólína við og segir að yfirleitt fái flestir félagsmenn fastráðningu að reynslutíma loknum. „Tíminn vinnur með okkur,“ seg- ir hún og bendir á gott atvinnuá- stand og framboð eftir vinnuaíli á meðan Jón hefur aðrar skoðanir á velgengni klúbbsins. „Nei, við erum bara dugleg, fjandakornið," segir hann og vísar í tölur frá Noregi sem sýna að þrátt fyrir mikla eftirspurn eftir vinnu- afli hafi norskum starfsbræðrum þeirra ekki tekist með jafn góðum árangri að koma félagsmönnum út á vinnumarkaðinn. Góður árangur með geðklofa sjúklinga Ólína og Jön eru bæði sammála um að Geysir hafi ótvíræða kosti fram yfir aðrar tegundir af eftirmeð- ferð. „Fólk sem kemur af lokuðum geð- deildum er vant því að aðrir taki ábyrgð á því. í Geysi tekur fólk ábyrgð á eigin lífi og þarf því að vera tilbúið að rétta sig eftir björg- inni,“ segir Ólína. Hún tekur dæmi um jákvæða reynslu af Fountain House hug- myndafræðinni sem kynnt var á ráðstefnu samtakanna í Svíþjóð. „Geðklofi hefur lengi þótt illvigur og illviðráöanlegur sjúkdómur. Á ráðstefnunni kom fram að helm- ingslíkur eru á því að geðklofasjúk- lingar sem sótt hafa Fountain Hou- se klúbba geti stundað 50 prósent vinnu aðeins fimm árum eftir að þeir voru greindir með sjúkdóminn. Þetta er ótrúlegur árangur," segir hún en leggur þó áherslu á að mik- ilvægt sé að ætla sér ekki um of í fyrstu. „Það frjálsræði sem einkennir Geysi er fyrir mestu. Hingað geta menn gengið inn og út án nokkurra skuldbindinga. Það skiptir ekki öllu máli hvort það eru 30 mínútur eöa þrír tímar í vinnu sem menn inna af hendi í klúbbnum á dag ef það leiðir hugsanlega til þess að fólk verður reiðubúið að snúa aftur út í þjóðfélagið. Það er sálarheill ein- staklingsins sem skiptir öllu.“ -Kristján Geir Pétursson - öðruvísi úrræði fyrir geðsjúka Allir axla ábyrgö „En út á hvað gengur starfsemin og hinn venjubundni dagur í Geysi?“ „Við skiptum starfinu í deildir. Hér er starfrækt eldhúsdeild, mót- taka, og skrifstofa þar sem m.a. er gefið út fréttablað. Við höfum hringt í félaga sem eiga erfltt með að vakna á morgnana og biðja um að láta vekja sig. Ef einhver þarf að leggjast inn á sjúkrahús fórum við í heimsóknir á sjúkrahúsin og ef ein- hver er að flytja aðstoðum við hann við flutningana. Bókhald klúbbsins er í höndum félaganna og tveir fé- lagsmanna hafa sótt sérstakt nám- skeið í tölvubókhaldi. Þá höfum við einnig mikil samskipti við klúbba erlendis enda Geysir hluti af alþjóð- legmn samtökum." „Við eigum meira að segja vina- klúbb í Danmörku," bætir Jón Sig- urgeirsson viö, einn félagsmanna Geysis, sem ákveður að blanda sér í umræðurnar. Jón, sem er menntað- ur lögfræðingur, veiktist fyrir 5 árum en hefur undanfarið ár verið virkur félagi í Geysi og tekið þátt innanhússtarfmu auk þess að kynna sér starfsemi Fountain Hou- se í Þýskalandi og Danmörku. „Fólk kemur ekki endilega inn sem sjúklingar enda eru ákveðnar kröfur gerðar til fólks líkt og til þeirra sem eru frískir. Það sem ein- kennir þó Geysi er að klúbburinn er allt annað en stofnun. Hér axla allir ábyrgðina," segir Jón. Tryggjum 100 prósent mætingu Aö sögn Ólínu er ekki aðeins leit- ast við að virkja félaga í starfi inn- an klúbbsins heldur er reynt að ná samningum við atvinnurekendur og koma þannig félagsmönnum út á al- menna vinnumarkaðinn. „Við köllum þetta ráðningu til reynslu þar sem leitað er til at- vinnurekenda eftir áhugasviði um- sækjanda. Við förum okkur þó hægt og æskilegt að félagar séu búnir að vinna innan klúbbsins í einhvern tíma áður en þeira fara út á vinnu- markaðinn. Þegar fólki finnst það tilbúið til að stíga skrefið gerum við samning við atvinnurekendur þar sem umsækjandi skuldbindur sig til að inna af hendi sex til níu mánaða vinnu hálfan daginn. Við bjóðum at- vinnurekendum og starfsmanni upp á ákveðna aðlögun og starfsmaður Geysis fer með nýjum starfskrafti á vinnustaðinn og fylgir honum þar til hann hefur náð ákveðnu öryggi." Ólína bætir við að með þessu móti sé hægt að ná samningum við atvinnurekendur á eðlilegum for- sendum í stað þess að hið opinbera greiði niður hluta launanna tO móts Ólína Hulda Guömundsdóttir. „Hingaö geta menn gengiö inn og út án nokkurra skuldbindinga. Þaö skiptir ekki öllu máli hvort þaö eru 30 mínútur eöa þrír tímar í vinnu sem menn inna af hendi í klúbbnum á dag ef þaö leiöir hugsanlega til þess aö fólk veröur reiöubúið aö snúa aftur út í þjóöfélagiö. “
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.