Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2000, Side 13
LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2000
Fréttir
13
I>V
Innflutningur á skoteldum seinustu fimm árin:
Jafnþungir og 700 meðaljeppar
- þekkist ekki hjá öðrum þjóðum, segir lögreglufulltrúi Ríkislögreglustjóra
Áramótaflugeldar
íslendingar hafa heldur betur látiö hendur standa fram úr ermum þegar kem-
ur aö flugeldum en innflutningur flugelda á ári hverju jókst um 400 tonn frá
1995 til 1999.
Samkvæmt árs-
skýrslu Ríkislög-
reglustjóra fyrir
árið 1999 var magn
innfluttra skotelda
rúmlega 400 tonn-
um meira í fyrra
heldur en árið 1995.
Skoteldar er sam-
heiti yfir flugelda,
blys og sprengjur og
heildarþyngd skot-
eldanna sem fluttir voru inn á þess-
um fimm árum nemur 1.376.216 kíló-
um, eða tæpum 1400 tonnum. Hjá
Bílabúð Benna fengust þau svör að
meðalstór Toyota Land Cruiserjeppi
vegi 1,9 tonn en venjulegur Isuzu
Trooper 2,2 tonn. Þyngd innfluttra
skotelda á árunum 1995 til 1999 jafn-
gildir því 724 Toyota Land Cru-
iserjeppum eða 626 Isuzu Trooper-
jeppum. Auk þessa hefur íslensk
framleiðsla flugelda einnig aukist á
seinustu árum og farið úr 78.692
stykkjum árið 1995 í 123.605 stykki í
fyrra.
Tæp 1400 tonn sprengd í loft upp
Meöaljeppi vegur um 2 tonn svo
heildarþyngd innfluttra skotelda til
landsins á síöustu fimm árum jafn-
gildir þyngd um 700 meöaljeppa.
„Þetta er með ólíkindum og
þekkist sjálfsagt hvergi annars
staðar i heiminum. Skoteldasýn-
ingar eru alls staðar en að almenn-
ingur sé með þetta i svona miklum
mæli þekkist ekki,“ sagði Snorri
Sigurjónsson, lögreglufulltrúi hjá
áfengis- og vopnalagadeild Ríkis-
lögreglustjóraembættisins.
Þetta er sprengiefni
„Það er fyllsta ástæða til þess að
vara fólk við hættunni af skoteld-
um. Þetta er sprengiefni, mikið
púður í þeim, og sérstaklega ber að
vara fólk við skoteldum sem ekki
koma frá viðurkenndum sölustöð-
um því þar er trúlega eitthvað sem
ekki hefur verið skoðað af lög-
reglu. Óvíst er að það hafi komið
eftir réttum leiðum til landsins og
getur verið hættulegt," sagði
Snorri og bætti því við að um hver
áramót væri mikið um smáslys
vegna flugelda.
Hann útskýrði að hluta þessarar
miklu aukningar sem orðið hefur í
innflutningi skotelda á siðustu
flmm árum megi rekja til aldamót-
anna. Það er þó ekki eina ástæðan
þvi stígandi hefur verið í vinsæld-
um skotelda. Að sögn Snorra er
ekki búið að fara yfir innflutnings-
tölur fyrir árið 2000 en hann gerði
þó ráð fyrir því að sú tala væri eitt-
hvað lægri en í fyrra.
„í huga þjóðarinnar voru alda-
mótin um síðustu áramót en ekki
eru allir sammála um það og ég
veit að skoteldasalar myndu gjarn-
an vilja önnur aldamót þvi þetta
skiptir verulegu máli fyrir skátana
og slysavarnafélögin," sagði Snorri
kíminn.
27. desember til 6. janúar
Tólf aðilar höfðu leyfi til þess að
flytja skotelda inn til landsins i
fyrra en 114 félagasamtök og fyrir-
tæki höfðu smásöluleyfi skotelda.
Fjöldi þessara aðila er svipaður í
ár.
Snorri sagði fólk oft virðast vera
illa að sér í sambandi við lög og
reglur varðandi skotelda. Til dæm-
is má almenningur eingöngu
kaupa og skjóta upp skoteldum á
tímabilinu 27. desember til 6. janú-
ar en utan þess tíma þarf að fá sér-
stakt leyfi fyrir skoteldasýningum.
Sýningarskotelda má ekki selja til
almennings.
„Við erum að fjalla um sprengi-
efni. Þetta er gríðarlega hættulegt
og hættan eykst eftir því sem
magnið er meira. Af öryggisástæð-
um hefur orðið sátt um mjög
þröngt sölutímabil svo menn séu
ekki að safna þessu,“ sagði Snorri.
Auk þess er sala einungis heim-
il á viðurkenndum sölustöðum.
Sums staðar tO sveita hefur tiðkast
að sölumenn aki með flugeldana
frá bæ til bæjar. Snorri útskýrði að
þessi akstur væri bannaður og
falli undir lög um flutning á hættu-
legum farmi. Ekki má selja yngri
en 16 ára skotelda og öll meðferð
skotelda er bönnuð við brennur en
kveikja má á stjörnuljósum og
blysum, öðrum en skotblysum.
-SMK
Áhrif verkfallsins alvarlegri með degi hverjum:
Margir nem-
endur hætta
námi
DV, AKUREYRI:
„Það eru engin
merki þess að
samningar séu á
næsta leiti og það er
orðið ljóst að hér
verða engin próf
fyrir jól og engin
brautskráning stúd-
enta. Hér áttu um
40 nemendur að út-
skrifast fyrir jólin
en af því verður ekki,“ segir Hjalti
Jón Sveinsson, skólameistari Verk-
menntaskólans á Akureyri, um áhrif
kennaraverkfallsins sem enn stend-
Hjalti Jón
Sveinsson.
ur.
Hjalti Jón segir að menn hafi
bundið vonir við að samningar gætu
tekist nú í vikunni og hægt yrði að
kenna í tvær vikur fyrir jól en ekk-
ert benti tU þess að svo yrði. En veit
hann tU þess að nemendur hafi þeg-
ar horfið frá námi vegna verkfalls-
ins?
„Já, ég veit tU þess. Ég á erfitt
með að segja nákvæmlega tU um í
hve miklum mæli það er því ekki
hafa margir tilkynnt það formlega.
Ég veit hins vegar af mörgum nem-
endum sem eru mjög tvístígandi og
öðrum sem hafa tekið ákvörðun um
að hætta. Þetta eru ekki síst krakk-
ar sem koma annars staðar frá og
margir nýnemar sem komu í skól-
ann með semingi í haust og var far-
ið að líða vel í náminu munu hætta.
Þeir segja sem svo að það sé ekkert
á þessa skóla að treysta. Þessir nem-
endur flosna upp, margir endanlega
en sumir koma e.t.v. aftur síðar.“
Hjalti Jón segir að það sé í sjálfu
sér hægt að skUja þá stöðu sem þeir
nemendur eru í sem koma annars
staðar frá og þurfa að leigja húsnæði
á Akureyri og halda sér uppi með
tilheyrandi kostnaði. „Kostnaðurinn
við námið verður meiri því auðvitað
lengist skólaárið og því er i sjálfu
sér hægt að skUja þessa krakka."
- Hvernig verður náminu hagað
ef verkfahið leysist ekki fyrr en eft-
ir áramót?
„Ég veit það varla en skólastjórn-
endur verða tilbúnir að gera allt
sem í þeirra valdi stendur tU að
bjarga þvi sem bjargað verður og ég
veit að það mun eiga við um kenn-
ara líka ef þeir standa sæmUega
ánægðir upp frá þessu verkfalli.
Málið lítur vissulega ekki vel út ef
við þurfum að byrja á því að kenna
í nokkrar vikur eftir áramót áður en
við getum haldið próf og lokið önn-
inni. En það er óhjákvæmUegt ann-
að en að við stöndum við skuldbind-
ingar okkar gagnvart þeim nemend-
um sem eiga að útskrifast. Auðvitað
verður þetta leyst á einhvern hátt,
og vonandi sem ahra fyrst,“ segir
Hjalti Jón. -gk
DV-MYND SIGRÚN BJÖRGVINSDÓTTIR
Þetta jólatré mun vera hæsta íslenska jólatréö í ár. Þaö er höggvið í Hall-
ormsstaöarskógi og stendur aö venju fyrir framan verslun Kaupfélags Hér-
aðsbúa á Egilsstööum. Tréö mældist 15 metrar á hæö og tíu sentímetrum
betur. Þaö hefur greinilega staöiö í þéttum lundi því greinarnar eru heldur
rytjulegar.
m&M
vfm
• * 'f*# *
m <m
w * \JI •
. • # #
T • ,
* • %- *
•*** .“V
. ® * € .*
4* ... m
-# * ••
• ? « wH m
\ m *
• 4 -tÞ
f É » »
héraðsbúa
Hæsta íslenska
jólatréö er á
Egilsstööum
M. Benz C 220d elegance ‘94,
brúnsans., ssk., ek. 101 þ. km, ABS,
loftpúði.V. 1.970.000. Góður dísilbíll.
Bmw
,
Fjöldi Musso-jeppa á staðnum
á fínu verði.
Einnig fjöldi góðra bíla og
jeppa á fínu verði.
Greiðslukjör við allra hæfi, t.d.
Visa/Euro-raðgreiðslur,
skuldabréf, bílalán.
Tökum ódýrari bíla upp í.
BSMic
TOYOTA HI-LUX D/C 2,4 BENSÍN '92,
GRÁR, 5 GÍRA, EK. 139 Þ. KM, 31 “,
DRKRÓKUR, ÁLF., UPPHÆKKUN O.FL.
V.950.000.
FIAT MAREA WEEKEND SX ST. 03/97,
GRÁR, 5 GlRA, EK. 41 Þ. KM, ABS,
RAFDR. RÚÐUR O.FL. GÓÐUR BÍLL.
V.950.000.
DAEWOO MUSSO TDI GR. LUXE
HI-OUTPUT '99,
BLÁR, EK. 22 Þ. KM, EINN M/ÖLLU
NEMA LEÐRI, 31".
V. 2.900.000.
TOYOTA COROLLA L/B GL11600 '93,
HVITUR, EK. 134 Þ. KM, SSK.,
RAFDR. RÚÐUR.
V 650.000.
JEEP GRAND CHEROKEE
LAREDO, 4,01, '95,
VlNR., EK. 85 Þ. KM, SSK.
V. 1.790.000.
PEUGEOT 406 2,0 '97,
BLÁR, EK. 46 Þ. KM, 5 Gl'RA,
RAFDR. RÚÐUR, ABS O.FL.
V. 1.180.000.
BMW 540Í, 286 hö., '97, blásans., ssk.,
ek. 145 þ. km, einn m/öllu. V. 3.850.000.
VW Polo 1400,3 dyra, 12/98, grásans.,
5 gíra, ek. 61 þ. km, álf.o.fl. V. 900.000.
Renault Mégane RT, 5 dyra, '97,10/96,
grár, 5 gíra, ek. 45 þ. km, álf.,loftpúði,
drkrókur, ABS o.fl. V. 920.000.
öubaru Impreza gt turbo '94, U2/yb,
rauður, 5 gíra, ek. 62 þ. km. Toppbíll eins
og hann kemur úr kúnni. V. 1.500.000.
ek. 22 þ. km, álf. rafdr.
rúður.þjófavörn o.fl. V. 1.080.000.