Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2000, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2000, Page 14
14 LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2000 Fréttir I>V Enn er mögulegt að notkun fiskimjöls verði bönnuð í Evrópu: Tíu milljarða útflutningur í húfi - langsótt getur verið að krefjast skaðabóta Umræöa innan Evrópusambands- ins vegna banns á notkun kjöt- og fiskimjöls vegna kúariðu leiddi ekki til þess að lokað var að öllu leyti fyr- ir viðskipti með fiskimjöl. Slíkt hefði hæglega getað stórskaðað tíu milljarða atvinnuveg á íslandi. Þó í þessu máli hafi unnist áfangasigur, m.a. vegna skeleggrar baráttu utan- ríkisþjónustunnar, þá standa íslend- ingar nú frammi fyrir enn stærri vanda. Þar er um að ræða umræðu um díoxíneitrun í fiskimjöli og lýsi. íslenskt lýsi datt t.d. út af markaði í Svíþjóð fyrir nærri áratug vegna dí- oxínmengunar. Það mál leystist þeg- ar menn komust upp á lag með að hreinsa díoxín úr lýsinu. Þetta er í þriðja sinn á tveim árum sem atlaga er gerð að físki- mjölsframleiðslu. Um mitt sumar 1999 var slegið á frest ákvarðana- töku um mörk á magn díoxíns í flskimjöli og lýsi sem notað er í dýrafóður. Mjög móðursýkisleg um- ræða fór í gang í kjölfar díoxíneitr- unar sem fannst í kjúklingum og mjólk í Belgíu sumarið 1999. Komu þá fram hugmyndir um að setja mörk á matvæli sem í raun var ekki möguleiki á að standa við. Var þá umræðunni slegið á frest meðan frekari gagna væri aflað og verður þráðurinn tekinn upp að nýju hjá ESB nk. fimmtudag. Innlent fréttaljós Hörður Kristjánsson blaöamaður Nýr samningur um bann á 12 efnum Á Islandi var sett í gang mikil rannsókn á díoxíni í sjávarfangi sumarið 1999 en þá voru engin gögn til um máliö. Á tiltölulega skömm- um tíma fengust 50 niðurstöður sem hafa m.a. verið eitt af helstu tækjum ESB viö sína skýrslugerð sem lokið var við í síðasta mánuði. Þær niður- stöður veröa teknar fyrir 14. desem- ber. Að sögn Magnúsar Jóhannes- sonar, ráðuneytisstjóra í umhverfis- ráðuneytinu, hafa íslendingar lagt ýmislegt til málanna í þessum efn- um. I gær átti t.d. að ljúka gerð samnings á fundi í Jóhannesarborg í Suður-Afríku þar sem bæði bann og takmörkun er lögð á framleiðslu og losun 12 hættulegra efna. Grunnur að þessum samningi, sem undirrita Gná ehf. SR-Mjöl hf. ^ SR-Mjöl hf. ^ Hraöfrystistöö Þórshafnar hf. ísfélag Vestmannaeyja hf. 'Mjölverksmiöjan hf. Flsklmjölsverksmlöja Grundarfjaröar ehf. Sklnnflskur ehf. Barðsnes ehf. Samherjl hf. ^ Haraldur Böðvarsson hf. Faxamjöl hf. SR-Mjöl hf. 0«. 'Faxamjöl hf. <* sfélag Vestmannaeyja hf. ' Vinnslustööin hf. I Tangi hf. L>SR-MJöl hf. jSíldarvinnslan hf. Iraöfrystlhús skifjaröar hf. [ SR-MJöl hf. Coönuvinnslan hf. iGautavík hf. "Arnarey ehf. Búlandstlndur hf. ^Qsland ehf. fiskimjölsverksmiðja EEk!2 Lýsis- og fiskimjölsverksmidjur Magnus Jóhannesson. Guðjón Atll Auðunsson. Emil Thorarensen. Gunnar G. Schram. á í Stokkhólmi í lok maí á næsta ári, var lagður að undirlagi íslendinga á ráðstefnu um mengun hafsins í Reykjavík í mars 1995. Díoxín er hliðarefni sem verður til við notkun margra þessara efna. Hér á landi er stöðug vöktun og mælingar á stöðu þessara efna í umhverfinu en styrk- ur m.a. PCB og DDT fer, að sögn Magnúsar, minnkandi í okkar um- hverfi. Hann telur samninginn í Jó- hannesarborg þó mjög mikilvægt skref. Barátta við almenningsálit Stærsta mál íslenskra stjórnmála- manna næstu vikurnar hlýtur því að vera að róa að því öllum árum að koma þeim skilaboðum á framfæri til almennings í Evrópu að ekki þurfi að óttast mengun í fiski. Gagn- vart evrópsku almenningsáliti dug- ar ekki að segja að díoxínmengun í norðurhöfum sé Evrópumönnum sjálfum að kenna. Sú staðreynd að stærsti hluti dí- oxínmengunar á okkar hafsvæði er upprunninn hjá iðnríkjum Evrópu og víðar getur þó hugsanlega gagn- ast okkur ef illa fer að mati sjávar- útvegsráðherrans, Árna M. Mathiesen. Hann telur okkur alla- vega eiga siðferðilegan rétt til skaða- bóta i slíku máli. Gunnar G. Schram lagaprófessor telur að hægt sé að krefjast bóta á grunni alþjóðlegra laga um losun úrgangsefna í hafið. Langsótt að krefjast skaðabóta Magnús Jóhannesson telur slika málshöfðun þó geta verið æði langsótta og erfitt geti verið að sækja slíkt mál. „Langsamlega stærsti hluti þessarar mengunar er kominn langt að og spurning hvað menn eru tilbúnir að viðurkenna siðferðilega. Lagalega og þjóðréttar- lega eru mjög fátækleg ákvæði um þessi mál. Við íslendingar höfum um alllangt skeið reynt að auka skilning á að það þurfi að takmarka losun þessara efna á alheimsvett- vangi. Það er vonandi að skila sér nú í gerð alþjóðlegs samnings i Jó- hannesarborg. Þá skiptir miklu máli að fá þróunarríkin inn í þetta líka því þar er mikiö af þessu framleitt." Með eitruöustu efnum Díoxín er eitt af tveim eða þrem eitruðustu efnasamböndum sem þekkt eru, að sögn Guðjóns Atla Auðunssonar, eins helsta sérfræð- ings íslendinga á þessu sviði. Það var ekki fyrr en með norrænum rannsóknum 1989 sem eiturefnið dí- oxín fór að vekja eftirtekt manna að einhverju marki. Þá var gert fyrsta eiturefnamatið á díoxíni og kom í ljós að þetta er líklega annað eða þriðja eitraðasta efnasambandið sem menn þekkja. Díoxín er saman- sett úr um 210 efnum en af þeim eru 17 eitruð. Loðnuveiðar á íslandsmiðum [yiikiö fiefur veriö fjárfest í nótaskipum og vinnslu á fiskimjöli á undanförnum árum. Fáein, en áhrifamikil kíló Árni M. Mathiesen sjávarútvegs- ráðherra segir að Islendingar hafi lagt ríka áherslu á að ráðast yrði að rótum uppruna díoxínmengunarinn- ar. Það yrði að minnka losun þess- ara eiturefna út í umhverfið. Aðgerðir til að sporna við losun á díoxini hjá iðnaðarþjóðum eru, að sögn Guðjóns Atla Auðunssonar, þegar famar að hafa umtalsverð mælanleg áhrif til minnkunar á eit- urefnaupptöku í mönnum á norð- lægum slóðum. Þjóðverjar, Bretar og Svíar hafa gengið einna lengst í þessum efnum. Í Svíþjóð hafa menn t.d. minnkað árslosunina úr 300 grömmum í 50 grömm. Þetta hefur skilað sér í helmingun á styrk dí- oxíns í móðurmjólk á tíu árum. í Bretlandi hefur losunin verið um 500-600 grömm á ári. Þó losun eitur- efnanna í Evrópu teljist ekki mikil í kílóum talið á ári þá veldur þetta litla magn samt gríðarlegum áhrif- um í umhverfinu vegna styrkleika eitursins. Starfsemi 26 lýsis- og loðnuverksmiðja í húfi Alls eru 26 lýsis- og fiskimjölsverk- smiðjur með starfsleyfi á landinu öllu. Eru þær dreifðar víða um land en flestar á Austfjörðum. Framleiðsla þeirra skiptir miklu máli fyrir af- komu útgerðarbæjanna og því mikið í húfi að notkun fiskimjöls verði ekki takmörkuð. Heildarútflutningur íslendinga á fiskimjöli mánuðina janúar til októ- berloka á þessu ári nam rúmum 8.309 milljónum króna. Er það hátt í millj- arði meira en á sama tíma í fyrra, en þá nam þessi útflutningur rúmum 7.392 milljónum króna. í október var búið að flytja út lýsi fyrir tæplega 1.541 milljón, á móti 2.169 milljónum króna á sama tíma í fyrra. Heildarút- flutningur þessara afurða samanlagt fyrstu tíu mánuði þessa árs nam þvi 9.850 milljónum króna sem er tæpum 300 milljónum meira en á sama tima árið áður. Ljóst er því að gríðarlegir hags- munir eru í veði að útflutningur á þessum afurðum geti haldið áfram. Mikið hefur verið fjárfest í mjölvinnslum og ekki síður skipum til veiða á uppsjávarfiski. Ólíklegt er talið að útgerðir þeirra þoli stór affoll á verði þessara afurða. Það er því æði margt sem hangir á spýtunni og mikill fjöldi sjómanna og starfs- manna hér á landi á allt sitt undir að þessi framleiðsla gangi áfram. Emil K. Thorarensen, útgerðar- stjóri hjá Hraðfrystihúsi Eskifjarðar, segir gríðarlega mikiö í húfi og mik- ið búið að fjárfesta í verksmiðjum og skipum undanfarin ár. Þá sé fjöldi manns að vinna við þetta. „Það er ekki hlaupið á nýja markaði. Við erum þó með nýja og fullkomna verk- smiðju og getum farið í aukna fram- leiðslu á hágæðamjöli sem notað er í laxeldi. Viðbúið er þó að framleiðsla á því aukist ef bann verður að veru- leika.“ Díoxínumrœðan gæti gert usla Umræðan um díoxín gæti þó gert allar vonir manna um að breyta framleiðslu á hefðbundnu fiskimjöli yfir í hágæðaframleiðslu á laxafóðri að engu á svipstundu. Ef almenning- ur í Evrópuríkjum tekur það í sig á annað borð að fiskimjöl, og þar með fiskur, séu hættulegar afurðir vegna díoxínmengunar þá er virkilega fjandinn laus fyrir íslendinga. Það gæti þýtt algjört hrun fiskveiða og vinnslu um lengri eða skemmri tíma. Þar með er hætt viö að hrikti illilega í efnahagskerfi íslendinga. Magnús Jóhannesson segir þó óþarft á þessu stigi að draga upp svona dökka mynd af málinu. Mengun hafanna er eigi að síður sú staöreynd sem blasir nú við íslenskum stjórnmálamönnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.