Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2000, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2000, Síða 26
26 LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2000 Helgarblað Roseanne er enn vinsæl leikkona Fullyrt er aö hún hafi veriö klippt burt úr heilli mynd án þess aö hún væri látin vita. Var Roseanne klippt burt? Hin þéttvaxna og meinfyndna Roseanne Barr er stööugt i ljósi fréttanna vestanhafs. Hún fæst við að leika í kvikmyndum, meðal ann- ars, og síðasta kvikmyndin sem hún lék í heitir The Adventures of Joe Dirt. Þar lék Roseanne á móti leik- aranum Gary Busey og segja slúður- dálkar í Hollywood að frammistaða þeirra hafi verið með slíkum ein- dæmum að framleiðendur sáu þann kost vænstan að láta skærin vaða á allt starf og henda því í ruslið. Síð- an voru ráðnir aðrir leikarar í þeirra stað og allt heila klabbið tek- ið upp á nýtt. Það eina sem er athugavert við þetta er að hin burtklipptu, Ros- eanne og Gary Busey, munu ekki hafa hugmynd um þetta tiltæki og telja enn að þau séu meðal leikara i téðri kvikmynd. Vestur í Hollywood er talið öruggt að þessu verði ekki tekið með þögn af hálfu Roseanne, að minnsta kosti sem hefur getið sér gott orð sem kjaftaskur og frekju- dallur. Dýralíf í Garðabænum: Börnin hennar Gerðar eru hundar - Gulli er í fóstri en Bjartur heima Þeir eru ófá- ir hundarnir í Garðabæ sem verður að telj- ast mjög hundavænn staður. Þar hef- ur Gerður Pálmarsdóttir búið alla sína hunds- og kattartíð. Síðustu tólf árin hefur hún átt hundinn Guðlaug Þór Blómsturberg Bessason sem yfírleitt er kallaður Gulli. Þegar Gerður flutti í eigin hús varð Gulli eftir hjá foreldrum hennar og skipar hlutverk örverpis og einkabarns hjá þeim. Náskyld En það er auðvitað ekki hægt að vera án hunds þannig að jff Gerður sló til í s' ' m. sumar þegar henni stóð til boða að taka að sér faUegan blandaðan hvolp sem hét Bjartur. Gerður segir að hann hafi verið „náskyldur“ sér. „Bróðir minn og > fjölskylda eiga bæði !i- ; "í föður hans og móður 'J en að öðru leyti eru Æ ættir hans mér ekki kunnar," segir Gerður. Litlar Ijósmæð- ur Bjartur er einn af sex systkinum. Og í rgríf kringum nafnið hans er auðvitað til lítil saga. „Sagan er væmin. Litlu frændur mínir voru ljósmæður þegar hann fæddist. Við fæðingu var einn hvolpurinn andvana. Það var rokið til og hann nuddaður og blásið í hann lífi. Þá birti auðvitað yflr og frændur mínir urðu mjög glaðir. Vegna þessa nefndu þeir hann Bjart. Hann heitir því ekki í höfuðið á mér en ég heiti Gerð- ur Björt.“ Afskap- lega vel gefinn Bjart- ur er byrjaður á skóla- göngu mjög mikið.“ Akademísk framtíð hunda Af ofantöldu mætti ráða að Gerð- ur talaði mikið við hundinn sinn og það gerir hún. „Ekki þó um daginn og veginn," segir Gerður. „Ég ræði við hann um það sem við erum að fara að gera: út að labba, borða og þess háttar. Hann skilur það fullkomlega." Það er hægt að falla í hlýðniskóla. Ef illa gengur geta hundar Hann þarf ekki aukatíma og þykir ljóst að hann geti farið í framhalds- nám standi hugur hans til þess. Svefnlausar nætur Það er ekkert lítið mál að eiga hund. Það þarf til dæmis að fara með hann á ættarmót og fleira fé- lagslegt. Bjartur þarf líka að fara í göngutúr á hverjum degi. „Fyrstu vikurnar með hvolp eru mjög erflðar. Það er oft talað um svefnlausar nætur hjá foreldrum ungbarna. Þær eru ekki síður svefn- lausar með lítinn hvolp. Hann míg- ur alls staðar, vælir og étur hluti og svo mætti lengi telja.“ Ekki þýðir að skilja Bjart eftir einan heima frekar en ungbarn. Það er því þannig að þegar hvorki Gerð- ur né maðurinn hennar eru heima koma foreldrar Gerðar og ná í Bjart og hafa hann hjá sér og Gulla þar til Gerður kemur heim úr vinnunni. Þá leika Gulli og Bjartur sér saman þótt stundum slettist upp á vinskapinn. -sm Bjartur, Geröur og Gulli Gulli fékk að koma í heimsókn til Bjarts í tilefni myndatökunn- ar. Annars er þaö yfirleitt Bjartur sem fer í dag- vist til Gulla. sinni þrátt fyrir að vera ungur að árum. Hann er í Hlýðni I: einu sinni í viku fer hann á námskeið þar sem hann lærir að ganga við hæl og haga sér í alla staði vel. „Hann er sérstaklega hlýðinn. Hann er líka blíður og góður og ein- staklega greindur. Hann skilur v' fengið aukatíma og '.HSSIW bjargað þannig akademískri framtíð sinni. Gerður hefur ekki áhyggjur af námi Bjarts. Heygarðshornið Fiskim j ölsf áriö Guömundur Andri Thorsson skrífar í Helgarblaö DV. Fiskimjölsfárið á dögunum er býsna lærdómsríkt, en maður veit bara ekki alveg hvaða lærdóm mað- ur á að draga af því. Það fer senni- lega eftir því í hvaða stellingum maður er, hvort maður hugsar sem neytandi eða almennur borgari. Fyrst þegar fór að heyrast af þessu máli var það sett fram eins og um væri að ræða enn eina atlögu umhverfisverndarsinna að íslend- ingum, en ef marka má fréttaflutn- ing hér er það algjört forgangsmál umhverfisvemdarsamtaka í heim- inum að koma þessu landi á kaldan klaka og klekkja á islensku þjóðinni með öllum ráðum. Aldrei kom fram að bannið á fiskimjöli var ekki síst til komið vegna þess að menn hafa stundað það um skeið í Evrópu að blanda beinamjöli í fiskimjölið sem meðal annars hefur verið keypt héð- an. Það er ljótur leikur sem erfitt er að varast. Lærdómurinn af málinu: Allt fár- ið kringum sjúkdóminn með þýska nöfnunum tveimur (af hverju má ekki bara kalla hann mannariðu?) gerir að verkum að maður andar léttar yfir einangrun landsins og fagnar ströngum höftum á innflutn- ingi á kjöti frá öðrum löndum. Ekki er það síður ánægjuefni að hafa hér haft strangan og nákvæman yfir- dýralækni sem var nógu framsýnn fyrir mörgum árum að banna beina- mjöl í skepnufóður. Við eigum því láni að fagna að landbúnaður er hér á landi frumstæðari og skemmra á veg kominn en víðast hvar í heimin- um - við búum eins og kunnugt er við einhvers konar íslenskt afbrigði af hirðingjabúskap - og einmitt þessi skortur á fjöldaframleiðslu matvörunnar og stóriðjulegum vinnubrögðum veldur því að kjöt er hér hreinna en víðast hvar, hollara og betra - að minnsta kosti lamba- kjöt. Þannig sýnist manni blasa við að íslendingar eiga ekkert erindi í Evr- ópusambandið. En áður en fögnuðurinn yfir ein- angrun landsins í Evrópu keyrir um þverbak hlýtur maður þó að staldra við þegar maöur leiðir hug- ann að því að það voru Danir sem á elleftu stundu björguðu íslenskum fiskimjölsframleiðendum. Það er illt fyrir þjóðina að þurfa í sífellu að Vid eigum því láni að fagna að landbúnaður er hér á landi frumstæðari og skemmra á veg kom- inn en víðast hvar í heiminum - við búum eins og kunnugt er við einhvers konar íslenskt afbrigði af hirðingjabú- skap - og einmitt þessi skortur á fjöldafram- leiðslu matvörunnar og stóriðjulegum vinnu- brögðum veldur því að kjöt er hér hreinna en víðast hvar, hollara og betra - að minnsta kosti lambakjöt. treysta á velvild þjóða sem innan- garðs eru. Og það er sérlega illt fyr- ir þjóðarkríli á borð við Islendinga að eiga allt sitt undir duttlungum Ritt Bjærregaard. Þarna voru Danir fyrst og fremst að hugsa um sína eigin hagsmuni og ef til vill Færey- inga líka. Þetta mál allt var skýrasta dæmið sem enn hefur komið upp um að úti í Brussel eru teknar ákvarðanir sem varða þjóð- arhagsmuni íslendinga án þess þó að íslendingar sjálflr komi þar frek- ar við sögu en að híma með bæna- skrár frammi á gangi. Það virðist því blasa við að ís- lendingar verða að ganga í Evrópu- sambandið. Og er þá þessi þjóð enn í sporum hetjunnar úr Islendingasögunum: að eiga um tvo kosti að velja og báða illa. Og aðeins eitt til ráða eins og fyrri daginn: að heyra erkibisk- ups boðskap og vera ráðinn í að hafa hann að engu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.