Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2000, Page 38

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2000, Page 38
Enginn íslenskur athafhamaður átti sér stærri drauma í upphafi aldar en Einar Benediktsson, ekkert skáld hugsaði hærra og enginn persónuleiki var margslungnari. En eftir umbrotamikinn áratug, þegar glæstar borgir hrynja og háleitar hugsjónir verða að víkja fyrir bláköldum veruleikanum, er hafáttin farin að hleypa skammdegisbrúnum að skáldjöffinum. Smám saman fykur í skjólin og stoðirnar bresta þótt enn eigi eldhuginn Einar Benediktsson til þann töffakraft sem hrífur og heillar. Slíkir menn hverfa ekki þegjandi og hljóðalaust af sjónarsviðinu og kannski var Einar sjaldan stærri í sniðum en eftir að halla tók undan fæti í lífi hans, skuldum vafinn heimsborgari sem lauk að lokum ævinni á afskekktum sveitabæ. Guðjón Friðriksson sagnffæðingur lýkur hér hinni miklu ævisögu þjóðskáldsins, hugsjónamannsins og snillingsins dáða og umdeilda, Einars Benediktssonar, sem um leið er saga íslensks þjóðfélags í árdaga nýrrar aldar. Með umfangsmikilli heimildarvinnu, heilsteyptri úrvinnslu og skáldlegu innsæi dregur hann upp áhrifamikla mynd af manni sem átti stærri og viðburðaríkari sögu en nokkur samtímamaður hans. Guðjón Friðriksson hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir fyrsta bindi ævisögu Einars Benediktssonar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.