Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2001, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2001, Page 16
LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2001 I>V Helgarblað Síðasta kvöldmáltíöin dv mynd þok „ Werner Schwab liföi mjög hratt, geröi líf sitt aö verkefni: Werner Schwab verkefninu. Hann afkastaöi mjög miklu á stuttum tíma. Honum lá svo mikiö á. Svaf lítiö, tvo til þrjá tíma á sóiar- hring og brenndi líf sitt upp í báöa enda. Fuöraöi upp á nýársnótt 1994 aöeins 35 ára,“ segir Viöar Eggertsson leikstjóri sem situr fyrir miöju við borðiö meö „lærisveinunum“, Elfari Bjarna- syni Ijósahönnuöi (t.v.), Ólafi Erni Thoroddsen hljóöstjórnanda, Snorra Frey Hilmarssyni og Christopher Astridge leikmunaveröi. Innrás undirmáls- kvenna á leiksviðið Viðar Eggertsson leikstýrir Öndvegiskonum Werners Schwab hjá Leikfélagi Reykjavíkur Næsta föstudag frumsýnir Leikfélag Reykjavíkur verk Werners Schwab, Öndveg- iskonur, á litla sviði Borgarleik- hússins. Leikstjóri er Viðar Egg- ertsson en með hlutverk öndveg- iskvennanna þriggja fara þrjár af bestu leikkonum landsins: Hanna María Karlsdóttir, Margrét Helga Jóhannsdóttir og Sigrún Edda Björnsdóttir. Á fimmtudaginn verður einnig hátíðarsýning í til- efni af 104 ára afmæli Leikfélags Reykjavíkur. Viðar Eggertsson er búinn að vera á leiksviðinu í 25 ár en er nú í fyrsta sinn að leikstýra hjá LR. Hann er þó ekki ókunnur félaginu því hann var senumaður niðri í Iðnó þegar hann var sautján ára, lék nokkuð með leikfélaginu auk þess sem hann var til skamms tíma leikhússtjóri í Borgarleikhús- inu. Mannsorpið „Öndvegiskonur lýsa heimi sem er vanalega ekki sýndur í leik- húsi,“ segir Viðar Eggertsson. „Verkið gerist á sorphaugum lífs- ins og lýsir því allra lægsta í mannlegu samfélagi. „En Guð á margan gimstein þann sem glóir í mannsorpinu". Heimurinn sem Wemer skapar er raunsannur og það eru konurnar í verkinu einnig. Hann byggir persónurnar á raunverulegum manneskjum. Fyrirmynd Ernu í verkinu er móð- ir Werners þannig að hann þekkir þessar konur vel. Konumar minna mig á alþýðu- konumar í Tangasögum Guðbergs Bergssonar og Djöflaeyju Einars Kárasonar. Þær eru af sama meiði. í Austurríki eru þær úti um allt og málfar þeirra er mjög sérstakt." Viðar segir að Þorgeiri Þorgeir- syni, sem þýddi verkið, hafi tekist einkar vel upp. „Þorgeir fann raunverulegt tungumál fyrir verkið; tungumálið sem talað var í Camp Knox, tungu- tak eftirstríðsáranna á íslandi. Þorgeir er mjög næmur á þetta tungutak og nær í skottið á þess- um konum og kippir þeim inn í ís- lenskan raunveruleika." Schwab nemur land Nokkuð er liðið frá því Viðar kynntist verkum Wemers Schwab. „Werner Schwab varð á einni nóttu heimsfrægur, árið 1991 þeg- ar leikritið Þjóðarmorð eða mitt tilgangslausa móðurlíf var sýnt í Kammerspiele leikhúsinu í Múnchen. Öndvegiskonur eru annað þeirra verka sem mest hafa verið leikin. Þau eru öðrum þræði mjög fyndin. Ég lít á öndvegis- konur sem hrollkaldan gaman- leik, gamansamt verk um hrylli- legt líf. í verkum Werners var nýr og djarfur tónn, hárbeittur og öðru- vísi en fólk átti að venjast. Húmor hans er rakblaðsbeittur." Þegar Viðar gegndi stöðu leik- hússtjóra i Borgarleikhúsinu hafði hann áhuga á að setja Önd- vegiskonur upp en ætlaði ekki að leikstýra því sjálfur. „Þó náði ég að afreka það að fá Þorgeir til að þýða verkið. Og það er ég ánægður með, því þýðing hans á orðfæri Öndvegiskvenna er hreint metfé. Fimm árum síðar bað Guðjón Pedersen leikhússtjóri mig um að setja verkið á svið. Það er gaman að Werner Schwab hefur loks numið land.“ Líffti hratt og stutt Werner Schwab fæddist í Graz 4. febrúar 1958 og var því aðeins 29 ára gamall þegar hann skrifaði Öndvegiskonur. Áfengis- og eitur- lyfjaneysla léku stór hlutverk í lífi hans. „Werner Schwab lifði mjög hratt, gerði líf sitt að verkefni: Werner Schwab verkefninu. Hann afkastaði mjög miklu á stuttum tíma. Honum lá svo mik- ið á. Svaf lítið, tvo til þrjá tíma á sólarhring og brenndi líf sitt upp í báða enda. Fuðraði upp á nýársnótt 1994 aðeins 35 ára. Mér finnst ég skilja Werner Schwab mjög vel. Hann gæti hafa verið bróöir minn því ég er sprottinn upp af svipuðum ruslahaug - bara á 65. gráðu norðlægrar breiddar." Afhjúpandi miskunnarleysi Öndvegiskonur heitir á frum- málinu Die Prásidentinnen og vís- ar titillinn til forsetafrúa sem er tær andstæöa við það sem konur verksins eru í raun. Erna, Gréta og Mæja hafa allar starfað við að þrífa skít annarra og sú yngsta, Mæja, leggur metnað sinn í að losa stíflur úr klósettum ríka fólksins. „Líkt og Guðbergur Bergsson skrifar Werner af miskunnarleysi um fólkið sem hann þekkir svo vel, einmitt vegna náinna kynna sinna. Hann upphefur það um leið og hann afhjúpar það; veikleika þess, tilgerð, hégóma og drauma. Ef manni þykir nógu vænt um fólk þá getur maður sagt því sann- leikann. Werner kemur þessu öllu til skila en ýkir þaö á súrrealísk- an hátt. Konur verksins verða fyndnar og hlægilegar. Þær tala í frösum um lífið. Frösum sem þær læra úr pólitískri orðræðu og blöðum. Þær gera allt til að reyna að upphefja sig.“ Mæja af Örk Viðar segir að verkið sé öðrum þræði trúarlegt. í öðrum þætti verksins eru hugarórar kvenn- anna þriggja aðalatriðið. Hvernig smáborgaraskapur Ernu og Grétu stækkar þær með því að finna einhvern smærri. „Erna upphefur sig á siðprúð- an hátt en Gréta á lostafullan. Þær dreymir um hjónabönd, um að komast burt. Dóttir Grétu flúði misnotkun föður síns og Erna er viss um að sonur hennar vill ekki fjölga sér af einskærri óvild við hana. Þegar þær hafa hafið sig yfir Mæju ráðast þær á hana. Mæja heldur áfram að hreinsa skitinn og verður næstum eins og Jóhanna af Örk í hlutverki „En langflestir dýrðling- anna eru einmitt mann- eskjur sem í œsku sinni huldu ásjónu sína fyrir heiminum.“ Mceja í Öndvegiskonum Wemers Schwab. sínu. Við árás Ernu og Grétu um- snýst Mæja og ræðst að fals- myndum þeirra og rífur þær al- gjörlega niður; sviptir þær blekk- ingunni og slengir veruleikanum framan í þær. Hún fær enda mak- leg málagjöld." Öndvegislelkkonur „Leikritið gæti eins heitið Öndvegisleikkonur," segir Viðar. „Hlutverkaskipanin er frábær. Það er ólýsanlegt að eiga kost á að skipa svona leikkonum sam- an. Hluti ástæðunnar fyrir því að ég tók verkefnið að mér var sá að ég vissi að innan LR væru leikkonur sem réðu við þetta verkefni. Mig hefur alltaf langað til að vinna með þessu leikkon- um. Ég vann með Hönnu Maríu í Tobacco Road á Akureyri síðasta vetur en með hinum hef ég aldrei unnið þótt ég hafi kynnst þeim.“ Þær ryðjast inn „Þetta verk gæti allt eins gerst á íslandi. Ég þekki þessar konur. Ég hef tekið þátt í uppfærslu Tangasagna Guðbergs og Djöfla- eyju Einars og finnst ég þekkja fólk af sama meiði. Mér finnst að allt í einu hafi stigið á svið konur sem við tök- um ekki eftir. Þær eru á sviðinu af því þær eiga erindi við okkur og hafa stigið upp úr samfélaginu þar sem við viljum ekki kannast við þær. Öndvegiskonurnar ryðj- ast inn á borgaraleg leiksvið. Þær vilja vera þar líka. Það er ákveðin pólitisk ákvörð- un sem liggur að baki því að hleypa þeim inn. Þær gera innrás á nýrri öld. Þeirra tími er kom- inn.“ -sm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.