Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2001, Page 38

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2001, Page 38
-£46______ Tilvera LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2001 DV Stórborgin París: Heillandi og rómantísk Rómantíkin svífur yfir vötnum í París og þar er hægt að eyða mörg- um dögum í að skoða stórfenglegar byggingar, borða mat á heimsmæli- kvarða og upplifa ekta kaffihúsa- menningu. Þvi er ekki auðvelt verk að ákveða hvaða staði á heimsækja þegar stoppað er nokkra daga í borginni. Hvert hverfi borgarinnar er ævintýri út af fyrir sig og auðvelt er að ferðast á milli þeirra með því að nota Metro neðanjarðarlestirnar því þær eru bæði öruggur og fljót- legur ferðamáti. Hentugast er að kaupa 10 miða hefti sem kallast „carnet“ og kostar um 60 franka. Ljósadýrð Eiffelturnsins Sú bygging sem dregur flesta ferðamenn að sér í Paris er tákn borgarinnar, sjálfur Eiffelturninn La Défense La Défense, þar sem fjármálahverfi borgarinnar er, verður sífellt vin- sælla meðal ferðamanna enda er þar að finna nútímalegan og sérstakan arkitektúr. sem gnæflr yfir henni. Hægt er að fara upp í þrjár hæðir á tuminum, sem er 317 metra hár, og njóta út- sýnisins en menn verða að vera þol- inmóðir því oftast eru langar biðraðir. Á kvöldin er turninn lýst- ur upp og blikkandi Ijós birtast ann- aö slagið og einna helst er eins og turninn sé þakinn demöntum. Um > áramótin voru sett upp ný blá ljós sem eiga að lýsa næsta hálfa árið. Annað aöaleinkenni Parísar er Sigurboginn, hið tignarlega minnis- merki um þá hermenn sem féflu í Place de la Concorde Eitt fallegasta torgið í París er Concorde-torgið sem stendur við enda breiögötunnar Champs Elysées. Napóleónsstríðinu sem stendur við eina stærstu breiðgötu heimsins, Champs Elysées. Á þeirri götu er auðvelt að eyða heilum degi i búðar- ráp því þar er að finna fjölbreytileg- ar verslanir. Við enda hennar er Concorde-torgið sem er eitt falleg- asta torgið í París. Þar var á síðasta ári sett upp „Árþúsunda" parísar- hjól og ef farið er í hjólið má sjá borgina frá skemmtilegu sjónar- homi, sérstaklega á kvöldin þegar hún er upplýst. Við sólarlag er út- sýnið ógleymanlegt, fyrir þá sem eru svo heppnir að upplifa það. Hin- um megin við Concorde-torgið eru Louvre-garðamir og safnið sem er í gömlum kastala. Þar gefur meðal annars augum að lita hið fræga mál- verk af Mónu Lísu. Einstakar kirkjur Kirkjumar í Parísarborg eru ein- stakar og þekktust þeirra er Notre Dame sem var byggð á ámnum 1163 til 1330 og er hún vitnisburður um marga af merkustu viðburðum i sögu landsins. Á Montmartre- hæðinni í Bastillu-hverfinu er Sacré Coeur, eða Hvita kirkj- an, einkar glæsi- leg þar sem hún stendur. Þegar komið er upp á hæðina sést borg- in vel og fyrir aft- an kirkjuna era litlar götur sem eru fuflar af veit- ingastöðum og listamönnum sem vflja ólmir mála þá sem þar fara um. Á bökkum Signu er hægt að labba um í róleg- heitum og kíkja á varninginn hjá götusölunum sem eru víða við ána með básana sína. Hjá þeim má kaupa ýmsa gamla hluti, tfl að mynda bækur, kort, myndir og minjabækur. Fyr- ir þá sem eru meira fyrir fram- tíðina er hægt að mæla með Pompi- dou-nýlistasafninu og þeir ættu líka að heimsækja La Défense-fjármála- hverfið þar sem er finna margar ný- tískubyggingar sem sumar hverjar eru allsérstakar eins og Grand Arche. Kvöldsigling á Signu Á kvöldin iðar allt af lífi í París og meðal þess sem er í boði eru ótal barir, næturklúbbar, leikhús, óper- ur, diskótek og frægir dansstaðir. Veitingastaðirnir eru lika fjölbreytt- ir og í Latínuhverfinu og við Place Italie er að fmna góða staði þar sem verðlagningin er hófleg. Allir ættu svo auðvitað að smakka franskan mat enda eru Frakkar heimsfrægir í matargerð. Einn helsti staðurinn í París þessa dagana er Buddha Bar sem er við götuna Boissy d’Anglas, sem er rétt við Concorde-torgiö, og þangað flykkist fræga og rika fólkið. Staðurinn er á nokkrum hæðum og er matsalurinn næstum því 700 fer- metrar. Staðurinn býður upp á jap- anskan mat sem hefur yfir sér Kali- fomíublæ og er borinn fram undir eftirliti hins mikla Buddha. Á efri hæðinni er bar þar sem hægt er að hlusta á tónlist og gæða sér á góðum vínum. Þeim sem vilja hins vegar upplifa París á sérstakan hátt er bent á að fara í kvöldsiglingu um Signu. Á meðan siglt eru um og farþegamir njóta þess besta sem borgin býður upp á, er framreidd glæsfleg þriggja rétta máltíð. París er borg sem heifl- ar ferðamenn upp úr skónum og flestir sem fara einu sinni til París- ar fara þangað aftur enda er alltaf eitthvað nýtt að skoða. Það er því ekki skrýtið að á síðasta ári heim- sóttu 26 milljónir ferðamanna París og hafa aldrei áður svo margir heimsótt borgina á einu ári. -MA Parísarborg Útsýnið úr Eiffelturninum er ekki amalegt en feröamenn verða þó að vera þoiinmóðir ef þeir ætla upp því biðraðirnar eru oftast mjög langar. Hjartavél á Heathrow Yfirvöld á Heathrow í London hafa sett upp hjartavélar á flugvell- inum til að auka lífslíkur þeir sem fá hjartaáfall á vellinum. Tuttugu og átta vélum hefur verið komið fyr- ir til reynslu viðs vegar um völlinn í þeim tilgcmgi að veita fyrstu hjálp áður en sjúkrabill kemst á svæðið. Áttatíu flugvaflarstarfsmenn hafa fengið sérstaka þjálfun í meöferð hjartavélanna og réttindi til að nota þau í neyðartilfellum. Uppsetning vélanna er hluti af langtímaáætlun breskra stjórnvalda til að fækka dauðsföllum vegna hjartaáfalla og ef hún tekst vel munu fleiri hjartavél- ar verða settar upp víðar á Englandi. Mörg flugfélög hafa hjartavélar um borð í flugvélum á löngum flug- leiðum og þykir það hafa gefið góða raun. Letilff íbúar eyjunnar Tobago í Karíba- hafmu era frægir fyrir hversu af- slappaðir þeir eru. Þeir eru vin- gjamlegir og taka lífinu með ró, eitt helsta tómstundargaman íbúanna er að „chilla" í skugga pálmatrjáa með kókóssafa í hönd. Flestir eru smábændur sem eiga fáeinar hæn- ur, tvær til þrjár geitur og nokkur ávaxtatré. Sjórinn i kringum eyjuna er gjöfull, stutt á miðin og menn veiða gjarnan í fjörunni með því að kasta neti í sjóinn, ef þeir nenna því. Sér til skemmtunnar drekka íbúamir ómælt magn af rommi og veiða litlar eðlur sem lifa í skógin- um. Fáir bílar eru á eyjunni og þyk- ir lífið þar einstaklega afslappandi. Islendingar gætu án efa lært ýmis- legt af eyjaskeggjum þrátt fyrir ólíkt veðurfar. Kína í tísku Svo virðist sem Kína sé að kom- ast í tísku sem áfangastaður ís- lenskra ferðamanna. Þeir sem ætla í slíka ferð ættu að gæta þess timan- lega að hafa samband við heilsu- verndarstöö og láta bólusetja sig. Kínverjar era í flestum tilfellum þrifalegir en ýmislegt getur þó kom- ið á óvart. Salemisaðstaða getur t.d. verið mjög breytileg milli svæða, á hótelum eru yfirleitt klósett en al- menningssalemi eru yfirleitt bara gat í gólfínu. Víða er bannað að henda pappír í salemin en þess í stað er sérstök fata við hliðina á kló- settinu. Ferðamenn ættu einnig að gæta sín á því að drekka kranavatn og halda sig við soðið vatn og vatn úr flöskum. -Kip

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.