Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2002, Side 12
12
LAUGARÐAGUR 23. MARS 2002
Helgarblað
DV
ísland - Noregur og ESB:
Norðmenn á nálum
Torbjörn Jagland
Torbjöm Jagtand, fyrrum forsætis- og utanríkisráöherra Noregs og núverandi for-
maöur Verkamannafiokksins, var fyrstur stjórnmálamanna í Noregi til aö tjá
skoöanir sinar eftir ESB-byltinguna á íslandi.
Fullt af ESB-fréttum frá íslandi í norskum blöðum
Norsk blöö hafa á undanförnum dögum fjaiiaö heilmikið um aukinn áhuga
aimennings á íslandi fyrir inngöngu í ESB og sagöi Jan Petersen, utanríkis-
ráöherra Noregs, í viötali viö Aftenposten aö Norömenn veröi aö fylgjast vel
meö þróun umræöunnar á íslandi á næstunni.
„Ef það er eitthvað sem við verðum
að fylgjast vel með á næstunni er það
þróun ESB-umræðunnar á íslandi.”
Þetta eru orð Jan Petersen, utanríkis-
ráðherra Norömanna, í Aftenposten
föstudaginn 15. mars síðastliðinn. Um-
mæli ráðherrans staðfesta rækilega
orðtakið oft veltir lítil þúfa þungu
hlassi. Orðrómurinn um áhuga ís-
lendinga á viðræðum við ESB, um
væntanlega inngöngu i samtökin, hef-
ur sannarlega raskað ró norskra
stjórnmálamanna sem ekki eru til-
búnir til draga sverðin úr slíðrum og
hefja ESB-baráttuna á ný.
Jagland reið á vaðið
Fyrrum forsætis- og utanríkisráð-
herra Noregs, Torbjörn Jagland, for-
maður Verkamannaflokksins, var
fyrstur stjórnmálamanna til að tjá
skoðanir sínar eftir ESB-byltinguna á
íslandi. Á ársþingi Verkamanna-
flokksins í Buskerud sagði Jagland, á
laugardaginn, að ef íslendingar
fengju kröfum sínum um fiskveiðar
framfylgt og sæktu síðan um aðild aö
Evrópusambandinu yrði staða Norð-
mann öll önnur en hún er i dag. Síð-
an hefur Jagland sagt að Noregur og
ísland veröi að vera samstiga i við-
leitni sinni til að nálgast ESB því sam-
eiginlegir hagsmunir ríkjanna séu
það miklir að ef annað landið stæði
utan ESB þyrfti það að endurskoða
stöðu sína í samfélagi Evrópuþjóð-
anna.
Torbjörn Jagland á sér marga skoð-
anabræður í Verkamannaflokknum
en þar finnast líka þungarvigtarmenn
sem eru algerlega andvígir hugsanleg-
um viðræðum Norðmanna um aðild
að ESB.
Trond Giske, menntamálaráðherra
í Stoltenbergstjórninni sálugu, er einn
harðasti ESB-andstæðingurinn í
Verkamannaflokknum. Hann sagði á
mánudaginn að það væru ekki nein
ný tíðindi sem nú bærust frá Islandi
því þessi söngur hefið heyrst með
jöfnu millibili siðastliðin tíu ár. Hann
bað félaga sína í flokknum um að láta
ekki ESB-umræðuna á íslandi raska
ró sinni núna frekar en áður þegar
þessi boðskapur hefur borist austur
yfir Atlantsála.
Fyrrum þingmaður Verkamanna-
flokksins og núverandi meðlimur í
miðstjórn hans, Grethe Fossum, gagn-
rýnir líka Jagland fyrir ummæli sín
um Island og ESB. Hún segir að ef
flokkurinn vflji fækka félögum sínum
enn frekar en orðið er sé besta leiðin
að hefja ESB-umræðuna strax.
Skiptar skoðanir
í þriggja flokka ríkisstjórn kon-
ungsrikisins er það aðeins sá stærsti,
Hægriflokkurinn, sem er hlynntur
inngöngu Noregs í ESB. Hinir tveir,
Kristilegi þjóðarflokkurinn, flokkur
Kjell Magne Bondeviks forsætisráð-
herra og dvergflokkurinn, Vinstri,
sem eiginlega er miðjuflokkur, eru
báðir á móti inngöngu landsins í
bandalagið og telja ekki tímabært að
hefja umræður um málið að sinni.
Þrátt fyrir að Jan Petersen, utan-
rikisráðherra og formaður Hægri-
flokksins, sé sammála bæði Torbjörn
Jagland og Jens Stoltenberg, um að
Noregur geti ekki látið það kyrrt
liggja ef ísland æskir aðildar að Evr-
ópusambandinu, eru hendur hans
bundnar af ríkisstjórnarsáttmálanum.
Þegar Kjell Magne Bondevik sleit
stjórnarmyndunarviðræðunum, sem
Petersen hafði forgöngu um, til þess
eins að hefja sjálfur nýjar viðræður
með sömu flokkum, gekk hann frá því
að engar umræöur um aðfld að ESB
kæmu á borð ríkisstjómarinnar á
kjörtímabflinu. Jan Petersen lítur því
á að með því að flokkur hans hefji
ESB-umræðuna af alvöru núna, í kjöl-
far skoðanakönnunarinnar á íslandi,
sé hann að brjóta grunninn undan
ríkisstjóminni. Til þess að sefa for-
sætisráðherrann og félaga sina í
stjórninni, hefur hann sagt að Norð-
mönnum liggi ekki lífið á, því ljóst sé
að ísland sé ekkert aö hoppa í eina
sæng með Evrópusambandinu á næst-
unni. Hálmstrá Petersens er að ís-
lenski forsætisráðherrann, Davíð
Oddsson, sé harðasti andstæðingur
ESB á Islandi og hann sé sterkari en
svo að níutíu og eitt prósent þjóðar-
innar gangi yfir hann og inn um hin-
ar breiðu dyr í Brussel.
Hræðsla við höfnun
Þrátt fyrir að bæði Verkamanna-
flokkurinn og Hægri séu því fylgjandi
að Norðmenn sæki um aðfld að Evr-
ópusambandinu, í náinni framtíð,
nálgast báðir flokkamir umræðuna af
varfærni í þetta skiptið. Stjórnarsátt-
málinn heftir Hægriflokkinn meðan
Verkamannaflokkurinn stendur í
innbyrðis styrjöld um hver eigi að
leiða flokkinn í framtíðinni. Hvorug-
ur flnkkurinn er því í stakk búinn,
sem stendur, til að takast á við Evr-
ópuumræðuna.
En það er ekki aðeins niðumjörv-
aður málefnasamningur og hausa-
veiðar í Verkamannaflokknum sem
vefst fyrir stuðningsmönnum ESB-að-
ildar. Þeim er einnig minnisstætt að í
þjóðaratkvæðagreiðslum árin 1972 og
aftur 1994 hafnaði norska þjóðin aðild
að Evrópusambandinu. Fylgjendur að-
ildar eru sammála um að höfnun, í
þriðja sinn, hefði öllu alvarlegri af-
leiðingar en fólk flest getur séð fyrir.
Torbjörn Jagland og Jens Stolten-
berg eru þó báðir á því að óvarlegt
væri að láta umræðuna á Islandi sem
vind um eyru þjóta: Þeir hvetja
norsku þjóðina til að fylgjast vel með
íslendingum tfl að vera tflbúna í slag-
inn þegar sú stund rennur upp að hún
vflja knýja dyra hjá stórbændunum í
ESB.
Bull og vitleysa
Odd Roger Enoksen, formaður Mið-
flokksins og ráðherra í fyrri Bonde-
viksstjórninni, er, ásamt flokki sín-
um, harður andstæðingur aðildar
Noregs að Evrópubandalaginu. Hann
gerir lítið úr áhyggjum þeirra stjórn-
málamanna sem vflja fylgja íslending-
um á leiðinni til Evrópu. Enoksen seg-
ir að málflutningur Stoltenbergs og
Jaglands sé bull og vitleysa og kemur
ekki auga á að afstaða íslendinga til
ESB hafi nokkuð með norsk stjórnmál
að gera. Hann gerir þá kröfu til félaga
sinna á Stórþinginu að þeir taki af-
stöðu í Evrópumálunum óháð þvi
hvað gerist í öðrum ríkjum álfunnar.
Hann telur að staða Norðmanna sé
sterk og þeir þurfi ekki að láta aðra
draga vagninn fyrir sig.
Afstaða Karls I. Hagen og Fram-
faraflokksins er einkar athyglisverð í
afstöðunni tfl ESB. Flokkurinn hefur
afla tíð verið í fylkingarbrjósti Evr-
ópusinna, þar tfl í síðustu kosninga-
baráttu. Þá snérist flokkurinn á sveif
með þeim sem sögðu að ekkert lægi á
að hefja umræður um aðild að ESB og
alls ekki tímabært að kveðja dyra í
höfuðstöðvunum. Framfaraflokkur-
inn tók þvi afstöðu með naumum
meirihluta þjóðarinnar og aflaði sér
með því fjölda atkvæða frá andstæð-
ingum ESB-aðildar. Nú, þegar ESB-
umræðan gýs upp aftur, hefur lítið
sem ekkert heyrst frá flokknum og
alls ekkert sem hönd á festir.
Sósialíski Vinstri flokkurinn, undir
forsæti Kristinar Halvorsen, hefur
vaxið frá því að vera smáflokkur á
vinstri væng norskra stjórnmála, upp
í að vera sterkasta afl vinstri hreyf-
ingarinnnar. SV er svarinn ESB-
andstæðingur en hefur þrátt fyrir það
ekki fjallað mikið um umræðu líðandi
stundar. Engum blandast þó hugur
um að flokkurinn hefur ekki skipt um
skoðun og telur ekki tímabært að
ræða Evrópumálin, með hliðsjón af
inngöngu, fyrr en ljóst verður hvort
íslendingar gera alvöru úr áhuga sín-
um um inngöngu i ESB.
Fiskur undir steini
í bæði skiptin sem Norðmenn
fefldu aðild að ESB í þjóðaratkvæða-
greiðslunum var óttinn við að missa
yfirráðin yfir fiskveiðunum mikils
ráðandi í afstöðu þjóðarinnar. Árið
1972 var Noregur ekki orðið að auð-
ugu olíuríki og 1994 voru Norðmenn
enn hræddir við að olíuævintýrið
gæti endað þá og þegar. Þeir hættu
því ekki á að hinn fjölþjóða togarafloti
Evrópubandalagsins umgengist auð-
lindir strandríkisins með lítilsvirð-
ingu og ryksuguðu fiskimiðin með
alltof mörgum fiskiskipum.
Nú er öldin önnur. Tiðindin frá ís-
landi hafa kallað fram stökkbreytingu
í viðhorfi fiskimannanna í Norður-
Noregi sem nú vilja fylgja íslending-
um náið í Evrópumálunum. Og Tor-
bjöm Jagland tekur undir áhyggjur
Norðlendinganna. Hann bendir á tvö
atriði sem skipta verulegu máli fyrir
Norðmenn, standi þeir utan ESB, eftir
að ísland er komið inn úr Ishafskuld-
anum.
í fyrsta lagi er hætt við að Norð-
menn, sem ein af mestu fiskveiðiþjóð-
um heimsins, fái mun óhagstæðari að-
gang að fiskmarkaði Evrópulandanna
en ísland.
í öðru lagi og það sem erfiðara er
fyrir Norðmenn að kyngja: íslending-
ar sætu þá hinum megin samninga-
borðsins þegar Norðmenn bæri að
garði, til að semja um aðgengi að fisk-
mörkuðunum, i stað þess að sitja við
hlið frænda sinna eins og hingað til.
Þá gætu íslendingar, sem aðili að
ESB, haft ráð norsks sjávarútvegs í
höndum sér.
Gallinn er bara sá að Torbjöm Jag-
land fær ekki aðra stjórnmálaleiðtoga
til að hefja ESB-umræðuna af alvöru
nú. Kjell Magne Bondevik forsætis-
ráðherra hringdi í starfsbróður sinn á
íslandi og fékk þau skilaboð að ekkert
lægi á. ísland væri ekkert á leiðinni i
ESB.
Troms í ESB
Það er víðar en í Verkamanna-
flokknum sem menn tákast innbyrð-
is á um aðildina að ESB. Miðflokkur-
inn á fylkisstjórann í Tromsfylki,
Ronald Rindestu. Sá er ekki á sama
máli og Enoksen flokksformaður um
að málflutningur Torbjöms Jagland í
Evrópu-umræðunni sé bull og vit-
leysa. Hann vill að Tromsfylki sæki
um aðild að samvinnu strandríkja
Evrópu sem er einn angi af ESB.
Rindestu var áður harður andstæð-
ingur þess að Noregur sækti um aðild
að ESB. Hann hefur skipt um skoðun
og nú vill hann annað og meira en
molana sem hrynja af borðunum i
Brussel. „Yfir áttatíu og fimm prósent
af sjávarafurðum okkar fer á Evrópu-
markaðinn. Því verðum við að vera á
staönum þar sem ákvarðanirnar eru
teknar,“ segir Ronald Rindestu.
' : LlJ'
Ottast skálmöld
ítalir óttast þessa
dagana að ef til sé
hafin ný skálmöld
pólitískra ofbeldis-
verka eftir að hátt-
settur ráðgjafi at-
vinnumálaráðherra
landsins var myrtur
í Bologna á þriðju-
dagskvöld. Þar voru að verki samtök
sem era eins konar kvísl úr hinum
frægu Rauðu herdeildum sem stóðu
fyrir fiölda morða og hryðjuverka á
áttunda og niunda áratug síðustu ald-
ar. Ráðgjafinn var tekinn af lífi, eins
og herdeildarmenn sögöu sjálfir, fyrir
þátt hans í umdeildum tillögum um
breytta vinnumálalöggjöf á Ítalíu.
Zinni gert erfitt fyrir
Anthony Zinni,
sendimanni Banda-
ríkjasfiórnar sem
reynir að koma á
vopnahléi í átökum
ísraela og Palest-
ínumanna, var gert
erfitt fyrir í vik-
unni með sjálfsmorðsárásum palest-
ínskra hryðjuverkamanna þar sem aö
minnsta kosti tíu manns létu lífið.
Zinni var hins vegar staðráðinn í að
halda friöarumleitunum sínum áfram.
ísraelar héldu áfram að kalla heim
hersveitir sínar frá heimastjórnar-
svæðum Palestínumanna í vikunni
vegna þrýstings frá Bandaríkjastjóm
og fleirum. Dick Cheney, varaforseti
Bandaríkjanna, er talinn hafa lagt
hart að Ariel Sharon, forsætisráð-
herra ísraels, að kalla hermennina
heim. Cheney var í ísrael í vikunni.
Sprengjutilræði í Lima
Grunur leikur á að vinstrisinnuðu
skæruliðasamtökin Skínandi stígur
hafi staðið fyrir sprengjutilræði
skammt frá bandaríska sendiráðinu í
Lima, höfuðborg Perú, á miðvikudag
þar sem níu manns fórust. Öryggis-
gæsla var þegar hert til mikilla muna
í borginni, enda George W. Bush
Bandaríkjaforseti væntanlegur þang-
að í heimsókn um helgina, fyrstur
sitjandi Bandaríkjaforseta. Bush sagði
á fimmtudag að „smáskitlegir hryðju-
verkamenn" myndu ekki fá hann til
að breyta ferðaáætlun sinni. Sklnandi
stígur stóð fyrir mörgum tilræðum á
níunda og tiunda áratug 20. aldar.
Ríkir hvattir til gjafmildi
Rikar þjóðir
heims voru i vik-
unni hvattar til að
láta meira fé af
hendi rakna til að-
stoðar við þau ríki
sem ekki eru jafn vel
stæð. Hver fundar-
maðurinn á fætur öðrum á ráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna um þróunarað-
stoð, sem haldin var i Mexíkó, mælt-
ist til þess í ræðu sinni að framlög til
þróunaraðstoðar yrðu aukin verulega.
Á fundinum kom upp metingur milli
Bandarikjanna og Evrópusambands-
þjóða um hvorir legðu meira af mörk-
Öll sek í Orderud-málinu
Kviðdómur í Noregi komst að
þeirri niðurstöðu í vikunni að allir
sakborningarnir fiórir í svokölluðu
Orderud-máli væru sekir um að hafa
skipulagt og framið morðin á hinum
öldruðu Orderud-hjónum og dóttur
þeirra vorið 1999. Hinir seku eru Per,
sonur hjónanna, og eiginkona hans,
hálfsystir eiginkonunnar og sambýlis-
maður hennar. Fjórmenningarnir
höfðu áður verið fundnir sekir í und-
irrétti. Réttarhöldin vöktu mikla at-
hygli og var íslenski réttarsálfræðing-
urinn Gísli Guðjónsson í London með-
al annars kallaður fyrir til að meta
sannleiksgildi framburðar sakborn-
inga.
Boöað til kosninga
Anfinn Kallsberg, lögmaður Fær-
eyja, boðaði formlega í vikubyrjun til
lögþingskosninga þann 30. aprU næst-
komandi. Við það tækifæri hvatti
hann stjórnmálamenn tU að heyja
málefnalega kosningabaráttu. Sjálf-
stæðismálin verða helsta kosninga-
málið að þessu sinni.