Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2002, Qupperneq 17
LAUGARDAGUR 23. MARS 2002
17
DV
Helgarblað
Óskarsverðlaunin afhent í 74. skipti annað kvöld:
Pólitík, peningar
og baktal
Pólltísk afstaöa
Og eitt og annaö ergrafiö upp. Þannig fór kurr um hommasamfélagiö þegar
Ijóst var aö samkynhneigö John Nash, geöveillar söguhetjunnar í myndinni A
Beautiful Mind, var stungiö undir stól í myndinni.
Óskarsverðlaunin verða afhent á
morgun í 74. skipti. Eftirvæntingin er
mikil enda mikið í húfl fyrir alla að-
standendur myndanna sem keppa um
hin eftirsóttu verðlaun. Spennan verð-
ur líka mikil heima í stofunum þegar
fóngulegt fólkið stígur á svið til að til-
kynna sigurvegarana. Hver hreppir
óskarinn? Færri vita hins vegar, eða
vilja ekki vita svo ekkert skyggi nú á
glamúrinn, að á bak við hverja verð-
launaafhendingu er blóð, sviti og tár.
Og mikið af hverju. Og þá er ekki átt
við þá dropa sem runnið hafa við gerð
myndanna heldur í aðdraganda þess
að 5700 meðlimir bandarísku kvik-
myndaakademíunnar greiddu atkvæði
sín.
Það er ekki neinum blöðum um það
að fletta að óskarsverðlaunahátíðin
verður stærri og stærri með hverju ár-
inu sem líður. Peningamir hafa aldrei
verið meiri og pólitikin hefúr aldrei
verið eins grimm. Sagt er að fólk „fai“
ekki bara óskarinn sisona af þvi að
það sé svo hæflleikaríkt og hafi staðið
sig svo vel heldur verði það að beijast
fyrir þeim með öllum tiltækum ráðum.
í þeirri baráttu beita framleiðendur
fyrir sig her ráðgjafa og annarra
klækjarefa og milljónum bandaríkja-
dala. En ólíkt pólitíkusunum koma
þeir sem vinna að því að fáóÓsk-
arsverðlaunin ekki fram í kappræðu-
þáttum eða öðru hanaati heldur vinna
þeir sleitulaust á bak við tjöldin. Þar
er baktalað, hvíslað og grafið upp eitt
og annað misjafnt sem getur komið
keppinautunum í koll. Aðalleikurum,
aukaleikurum og leikstjórum er hins
vegar dröslað úr einum kjaftaþættin-
um í annan. Þar brosa þeir, eru kurt-
eisir og er uppálagt að segja orðið
„American" eða bandarísk(ur) eins oft
og þeir geta. Það er töfraorðið þetta
misserið enda 11. september enn í
fersku minni og mikil þjóðemisvakn-
ing í gangi vestanhafs.
7 milljarðar
í hasar síðustu vikna hefur ekki
verið spurt svo mikið um gæði mynd-
anna eða yfirleitt rætt um myndimar
sem slíkar heidur hefur miklu púðri
verið eytt í vangaveltur um hver sé
inni og hver úti. Og í því írafári öllu
em haldnar sérstakar sýningar fyrir
meðlimi akademiunnar á þeim mynd-
um sem keppa um óskarinn. Og und-
antekningarlaust em haldin boð eftir
sýningamar og stjömumar sjálfar
jafnvel mættar. Það má strangt tU tek-
ið ekki. En það er bara vinur framleið-
andans eða frænka sem heldur boðið
og þangað niega allir koma, líka stjöm-
umar. Reiknað er með aö hátt í 7 millj-
örðum íslenskra króna sé eytt í auglýs-
ingar, sýningar mynda og boð af öllum
stærðargráðum vikumar fyrir ósk-
arsverðlaunahátíðina.
Ekki ár bresku leikaranna
Lokafrestur meðlima akademíunn-
ar til að skila inn atkvæðum mun hafa
runnið út um liðna helgi og nú þegar
er ljóst hver mun vinna hvað. Og þar
virðast þeir sem gerst þekkja vera á
einu máli um að þetta verði ekki ár
bresku leikaranna, hversu vel sem
þeir hafa nú staðið sig í myndum eins
og Goshford Park eða Lord of the
Rings. Það muni ekki verða álitið þjóð-
hollt að velja annað en ameriska mynd
eða ameríska leikara í þeiri þjóðemis-
bylgju sem riðið hefúr yfir Bandaríkin
frá þvi í september. Haft er eftir mönn-
um í innsta hring vestur í Hollywood
að kapphlaupið um óskarinn hafi
reyndar ekki verið eins tvísýnt síðan
John Wayne var tilnefndur fyrir mynd
sína, The Alamo. Hann sagði þá að
þeir sem greiddu myndum eins og The
Apartment atkvæði sitt væri úrkynjað
frjálslyndispakk. En The Apartment
hrifsaði samt til sín öll aðalverðlaunin.
f dag er lævísari aðferðum beitt og
mun áhrifameiri. Hluti af því er baktal
eða hvísl i homum. Þannig era skipu-
lagðar hringingar til meðlima akadeí-
unnar þar sem leikarar, leikstjórar og
myndir era rakkaðar niður.
Samkynhneigð
og gyðingahatur
Og eitt og annað er grafið upp.
Þannig fór kurr um hommasamfélagið
þegar ljóst var að samkynhneigð John
Nash, geðveillar söguhetjunnar í
myndinni A Beautiful Mind, var
stungið undir stól í myndinni. Vora
framleiðendur sakaðir um að hafa
þannig ætlað myndinni að höfða til
fleiri áhofenda. Ron Howard reyndi að
veijast áskökununum með því að segja
að menn hefðu ekki viljað að áhorfend-
ur tengdu þetta tvennt saman, geðveilu
og samkynhneigð.
En þar með var sagan ekki öO. f bók-
inni sem myndin byggist á kemur
fram að Nash var litt um gyðinga gef-
ið. Sagði þá reyndar orsök alls ills í
sínu lífi. Þetta féll ekki í góðan jarðveg
í akademíunni enda margir gyðingar
þar á meðal. „Því ætti ég að gefa gyð-
ingahatara atkvæði mitt?“ var haft eft-
ir ævareiðum meðlimi akademíunnar.
Talið er að möguleikar Russel
Crowe hafi dalað mjög við þetta og
Denzel Washnington eigi nú meiri
möguleika á óskamum. Julia Roberts
er mikifl vinur þess síðamefnda og
styður hann með ráðum og dáð.
Þetta gefur aðeins litla hugmynd um
hvað verið hefur á seyði bak við tjöldin
síðustu vikumar. Hátíðin annað kvöld
verður ákveðið antiklímax fyrir þá sem
fylgst hafa náið með aðdragandanum
undanfamar vikur. Því slagurinn er bú-
inn, atkvæðin hafa verið greidd og ekk-
ert eftir nema tilkynna hver fær óskar-
inn. Hætt er við að fáar styttur fari yfir
Atlantshafið nema ef vera skyldi litla
yndið hún Amélie. -hlh
á skirdag, laugard.,
og 2. í páskum.
m
Krakkar komið og sjáið
kaninurnar, hamstrana og vini
. þetrra i ævintýralandinu
CÆLUDÝR I
HEIMSÓKN
QDDuD |JX?öás]DQCfi]§
Svavar og Steinunn
leiðbeina þér varðandi
trjáklippingar og
moltugerð...
Kvenfélagskaffi
laugardag og sunnudag
Kvenfélag Hvammshrepp
Vík í Mýrdal verður með
kaffi og kökusölu
HEIMSENDINGAR-
ÞJÓNUSTA
540 33 20
...og ekki ónýtt að
fá góð ráð hjá Guggu
varðandi laukana og
fræin.
Tilboð: HlbOÖ: Tilboð:
Trjákurlarar • Moltukassar • Mold • Téte á téte skreytingar
Limgerðisklippur • Fræ • Gæludýraleikföng • Páskavendir
Greinaklippur • Laukar • Rósabúnt • Páskaliljubúnt
Begoníur • Chrysanthemum
o
GARÐHEIMAR
Heimur skemmtilegra hugmynda og hluta
Stekkjarbakka 6 • Mjódd • Sími: 540 33 00 • www.gardheimar.is
OPNUNARTÍMI
YPIR PÁSKANA
Skírdag: 10.00-21.00
FöstucL langi: lokað
Laugardag: 10.00-21.00
Pásicadag: lokað
Annan [ páskum: 10.00-21.00