Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2002, Side 30
30
LAUGARDAGUR 23. MARS 2002
Helgarblað
U‘Vr
Forboðin æskuást
Jessica Lang - ung og ástfangin
Jessica Lang galt ást sína á plötusnúðnum Mick Bloom dýru verði en hún
var myrt á hryllilegan hátt aðeins átta dögum eftir að samband þeirra hófst,
sama dag og hún ætlaði að hitta hann á fyrsta alvöru stefnumótinu.
hvað það olli henni miklu hugar-
angri að missa Mick en gerði mér
ekki grein fyrir því hvað hatrið var
orðið sjúklegt. Ég hafði ekki hitt
hana i nokkra daga þegar ég kom
heim til hennar og þegar ég kom
inn í herbergið hennar sá ég kapell-
una sem hún hafði útbúið fyrir sig
og Mick. Það var eins og hún væri
að syrgja ástvin sem hefði dáið. Eitt-
hvað meira en venjuleg ástarsorg,"
sagði Remy.
Blóðugur veiðihnífur
Remy kom aftur í heimsókn til
Kellyar þar sem hún var ein heima
á morðdaginn og þar sem þær sátu
í eldhúsinu og drukku kaffi sagðist
Kelly allt í einu þurfa að skreppa út
I búð til þess að versla. Kelly var i
yfirhöfn og Remy horfði á hana
setja upp svarta ullarhanska. Þegar
Kelly sneri sér við sá Remy að hún
hélt á blóðugum veiðihníf fóður
sins. „Þegar ég spurði hana hvað
hún heföi gert sagðist hún hafa
drepið Jessicu," sagði Remy þegar
lögreglan yfirheyrði hana. „Hún var
allt í einu skjálfandi og hamslaus
þar sem hún stóð fyrir framan mig
með hnífinn í höndunum. Hún var
óöamála og það var erfitt að skilja
hana. Ég gat engan veginn róað
hana og hún talaði eins og hún
hefði verið að ljúka einhverju mik-
ilvægu ætlunarverki sem hún varð
að ljúka. Hún sagði líka að hún ætti
eftir að gjalda fyrir það sem hún
hefði gert,“ sagði Remy.
Blóðugar spjarirnar
Þegar hér var komið sögu klæddi
Kelly sig úr yfirhöfninni og þá
komu blóðug fotin og skrámur á
hálsi og handleggjum hennar í ljós.
„Hún fór að tína af sér blóðugar
spjarirnar og tróð þeim inn í þvotta-
vélina. Hún lýsti síðan fyrir mér
hvernig hún hefði ekið heim til
Jessicu og barið að dyrum með hníf-
inn falinn innan klæða. Hún sagðist
hafa sagt Jessicu að þær þyrftu að
tala saman. Að hennar sögn hleypti
Jessica henni strax inn og þá sá hún
blómvönd sem Mick hafði nýlega
sent Jessicu. Kelly sagði að Jessica
hefði lyft upp bolnum til að sýna sér
sogbletti eftir Mick á maganum og
brjóstum og þá hefði hún algjörlega
misst stjórn á skapi sínu og gripið
til hnífsins. Hún sagðist hafa stung-
ið Jessicu margsinnis í hálsinn en
það hafi verið eins og hún ætlaði
aldrei að deyja,“ sagði Remy.
Baðst vægðar
Að sögn Remyar sagði Kelly
henni að Jessica hefði beðið sér
vægðar og oftar en einu sinni hróp-
að að hún mætti fá Mick aftur áður
en hún missti máttinn og féll í gólf-
ið. „En það var ekki Mick sem ég
vildi á þessari stundu, heldur vildi
ég ná mér niðri á Jessicu," hafði
Kelly sagt.
Eftir að hafa létt á sér við vin-
konu sina róðaðist Kelly til muna
eins og þungu fargi væri af henni
létt og gerði eins og hún hafði áður
talað um - fór út í búð að versla. En
þrátt fyrir að vera besta vinkona
Kellyar fór Remy Bridger á meðan
beint til lögreglunnar og sagði alla
söguna og í kjölfarið var Kelly
handtekin.
Við réttarhöldin sem fram fóru í
apríl 1999 viðurkenndi Kelly á sig
morðið og staðfesti söguna sem
Remy vinkona hennar hafði sagt
lögreglunni. Hún var síðan dæmd i
lifstíðarfangelsi og sagðist dómar-
inn Brian Wells ekki sjá tilefni til
mildari dóms, þrátt fyrir ungan ald-
ur sakbomings, áður óaðfinnanlega
hegðun og brostin hjörtu, þar sem
um svo grimmilegan verknað væri
að ræða. „Þessi unga kona skipu-
lagði og framkvæmdi þetta hræði-
lega morð. Hún fór vopnuð heim til
fórnariambsins í þeim eina tilgangi
að myrða það. Blómvöndur frá fyrr-
um kærasta á morðstaðnum er eng-
in afsökun. Þetta er því ekkert ann-
að en kaldrifiað og grimmilegt
morð. Myndimar sem við höfum
séð af líkinu sanna það, svo ekki
verður um villst," sagði dómarinn.
Heiðarleg ung stúlka
Móðir Jessicu sagði eftir dóminn
að það hefði verið skelfilegt að
hlusta á verjendur Kellyar gera til-
raun til að sverta orðstír dóttur
sinnar. „Það var allt tínt til, alls
konar þvættingur og meðal annars
sogblettirnir á líkama hennar. Þeim
tókst ekki ætlunarverkið, enda vita
allir sem þekktu Jessicu hvemig
manneskja hún var. Hún var yndis-
leg stúlka, ósköp venjulegur ung-
lingur sem lagði mikið á sig til að
láta draumana rætast. Hún var
heiðarleg og vildi engum illt. Nú er
lífi hennar lokið áður en hún hafði
tækifæri til að láta draumana ræt-
ast. Það var rétt að byrja,“ sagði
móðirin.
Hjólaskauta-
höllin í Bicton
Ástin
blómstraði í
hjólaskauta-
höllinni en þar
byrjuðu
örlagarík
ástarævintýri
Jessicu Lang
og Kelly Fuller
með plötusnúð
staðarins.
Liggjandi í blóði sínu
John Lang, 45 ára, kom snemma
heim úr vinnunni þann 24. septem-
ber, í grenjandi rigningu og roki.
Þegar hann var kominn inn úr dyr-
unum á vistlegu heimili fiölskyld-
unnar í Bicton, sem er eitt af út-
hverfum Perth í vesturhluta Ástral-
íu, kallaði hann á dóttur sína en
fékk ekkert svar.
Hann ályktaði því að hún væri
einhvers staðar úti með vinkonum
sínum og með venjulegu brosi á vör
klæddi hann sig úr blautri yfirhöfn-
inni og gekk inn i eldhúsið þar sem
hann ætlaði að undirbúa kvöldverð
handa sér og dóttur sinni sem hann
taldi að kæmi fljótlega heim.
En brosið átti eftir að frjósa á
andliti hans því þegar hann opnaði
eldhúsdyrnar sá hann dóttur sína
liggja hreyfingarlausa í blóðpolli á
miðju eldhúsgólfinu.
Hrottafengið morð
Þaulreyndir rannsóknarlögreglu-
Sjúklegt hatur náðl tökum á Kelly
Fuller
Kelly Fuller var dæmd í
lífstíðarfangelsi fyrir að myrða
Jessicu Lang með köldu blóði vegna
sjúklegrar afbrýðisemi.
Hin fimmtán ára gamla Jessica
Lang hafði hitt fyrstu alvöru ástina
sína en aðeins átta dögum eftir
fyrsta stefnumótið með sínum
heittelskaða, sem var hinn svali
plötusnúður Mick Bloom, var hún
myrt á hrottafenginn hátt.
Hún hafði nýlega hætt í skóla og
var að búa sig undir nám í hár-
greiðslu, sem átti að heflast eftir að-
eins fióra daga, en í miUitíðinni
hafði hún unnið hjá foður sínum,
John Lang, í verksmiðju sem hann
stjórnaði. En á fimmtudagsmorgni,
þann 24. september árið 1998, ákvað
faðirinn að leyfa dóttur sinni að
sofa út án þess þó að draga það frá
laununum hennar, þar sem Jessica
lagði alla áherslu á að vinna sér
sjálf inn fyrir náminu.
Síðasta samtalið
Móðir hennar, Karen Lang, 43ja
ára, hafði brugðið sér í draumaferð
með vinkonum sínum til indónes-
ísku eyjarinnar Bali og höfðu
mæðgumar verið í símasambandi
daginn fyrir morðið þar sem Jessica
sagði móður sinni mjög spennt frá
því hve mikið hún hefði sparað af
laununum sínum og hvaða föt hún
ætlaði að kaupa sér áður en hún
byrjaði hárgreiðslunámið.
En mest spennandi fréttirnar
geymdi hún þar til síðast. „Mamma,
ég er að fara á stefnumót með Mick
annað kvöld. Hann er yndislegur og
er ofsalega hrifinn af mér. Ég gat
varla sofið i nótt fyrir spenningi og
bað pabba því um frí í vinnunni á
morgun," sagði Jessica við móður
sína sem hlustaði brosandi á þetta
spennandi tal dóttur sinnar um
fyrsta alvöru stefnumótið hennar.
En það sem Karen vissi ekki var
að þetta var hennar síðasta samtal
við ástkæra dóttur sína og það sorg-
lega fyrir föður hennar var að hann
samþykkti að gefa henni fri eins og
áður hefur komið fram.
menn með langa starfsreynslu
höfðu sjaldan eða aldrei séð annað
eins. Hin myndarlega Jessica hafði
verið stungin 47 sinnum í hálsinn.
Engin merki voru um innbrot í
húsið eða að athæfismaðurinn hefði
þröngvað sér inn á heimilið, þannig
að lögreglan dró þá ályktun að það
hlyti að vera einhver sem hún
þekkti vel. En hvern þekkti hún
sem hataði hana i raun svona mik-
ið? Hver gat það verið?
Sögusagnir fóru strax á kreik þeg-
ar fréttin um morðið barst um bæ-
inn og talað var um ástríðuglæp.
Sögunum fylgdu svo getgátur og
hugrenningar fólks um það hvem-
ing saklaus æskuástin getur snúist
upp í gegndarlaust hatur sem fram-
kallaði slíkan verknað. Hinn nítján
ára gamli plötusnúður, Mick Bloom,
lenti auðvitað í miðri hringiðunni
sem hinn grunaði, þar sem vitað
var um nýlegt samband þeirra og
fyrirhugað stefnumót að kvöldi
morðdagsins.
Ekki beint draumaprins
Mick, lágvaxinn og óframfærinn,
passaði ekki beint inn í hlutverk
draumaprinsins en þar sem hann
sneri skífunum í hjólaskautahöll
bæjarins vakti hann athygli stúlkn-
anna.
Fyrrum kærasta hans, hin átján
ára gamla Kelly Fuller, var ein
þeirra sem féll fyrir töfrum hans við
plötuspilarann og þegar hann sagði
henni upp eftir sjö mánaða sam-
band var hún óhuggandi. Eftir
„hryggbrotið" hélt hún að mestu til
einsömul I herberginu sinu þar sem
hún hafði útbúið kapellu með mynd
af Mick. Þar eyddi hún lunganum
úr deginum þyljandi ljóð til Micks
við kertaljós og reyndi síðan einn
daginn að fá hann aftur til lags við
sig.
Sjúklegt hatur
Háttalag hennar var því þegar
farið að taka á sig mynd ólæknandi
þráhyggju þegar hún heyrði af því
að Mick væri orðinn meira en lítið
hrifinn af Jessicu. Það varð til þess
að hatrið og afbrýðisemin blossaði
upp hjá Kelly og um leið breyttist
þráhyggjan í sjúklegt hatur til
Jessicu.
Þær þekktust lítillega en voru
engar vinkonur þar sem þrjú ár
voru á milli þeirra. Þær hittust þó
oft í hjólaskautahöllinni þar sem
þær umgengust sama unglingahóp-
inn sem sótti höllina ílestallar helg-
ar en Jessica vann einmitt þar i
hlutastarfi til að safna fyrir hár-
greiðslunáminu. Ekki var langt á
milli heimila þeirra og þrátt fyrir
þriggja ára aldursmun höfðu þær
samtímis stundað nám í Iona-
kvennaskólanum.
Ein vinkona Kellyar, hin átján
ára gamla Remy Bridger, sem oft
kom í heimsókn til hennar, hafði
eftirfarandi sögu að segja eftir
morðið: „Hún sagði mér hve mikið
hún hataði Jessicu. Ég vissi því