Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2002, Qupperneq 34
42
LAUGARDAGUR 23. MARS 2002
Helgarblað
DV
55
Shut up and split your legs
- íslensk kona fer hallloka á Keflavíkurflugvelli
CC
Því er stundum haldið fram að
vændi sé elsta atvinnugrein mann-
kynsins og má eflaust satt vera þótt
líklegt sé að þörfin til þess að afla
sér matar standi framar í röðinni en
löngunin til þess að lifa kynlífi og
viðhalda þannig kynstofninum. Af
þessu mætti síðan draga þá ályktun
að líklegt sé að fyrsta vændiskona
mannkynsins hafi fengið greitt í
mat.
Vændi hefur án efa verið til á Is-
landi í einhverri mynd allt frá land-
námi en frægasta tímabil sögunnar
í því tilliti er áreiðanlega að finna í
samskiptum íslendinga við setulið
Breta og síðar Bandaríkjamanna á
árum síðari heimsstyrjaldarinnar.
Þá varð til það sem í daglegu tali og
siðari tíma umfjöllun var jafnan
kallað „ástandið" og fólst í nánum
samskiptum íslenskra kvenna við
erlenda setuliðsmenn, án efa gegn
borgun i sumum tilvikum.
Þótt íslensk stjómvöld hafl gert
allt sem í þeirra valdi stóð til þess
að halda samskiptum íslendinga við
erlent setulið á Keflavíkurflugvelli
eftir stríðið í algeru lágmarki hefur
alltaf verið til einhver hópur fólks
af báðum kynjum sem sækir í náin
samskipti við hermennina. I þeim
hópi er að finna stúlkur og konur
sem í munni íslenskrar alþýðu hafa
verið kallaðar „kanamellur". Þetta
er ekki hlýleg nafngift eða alúðleg
og hún þykir ekki par fin.
Sú frásögn sem hér fer á eftir ber
það með sér að samskipti karla og
kvenna af ólíkum uppruna eru ekki
afltaf slétt og felld og hin elsta at-
vinnugrein felur í sér ákveönar
hættur á átökum og ofbeldi.
Það gerðist eina nótt seint í októ-
ber 1952 að afar glatt var á hjalla í
herskálum nokkrum á Keflavíkur-
flugvelli. Sérstaklega stóð gleðin
hátt í herskála þar sem bjuggu
slökkviliðsmenn af bæði íslensku og
erlendu bergi brotnir. Þar var
einnig stödd íslensk stúlka sem við
skulum kalla Möggu sem er þó ekki
hennar rétta nafn.
Magga var í heimsókn í skálan-
um undir því yfirskini að hún væri
að heimsækja mann sem hún þekkti
í íslenska slökkviliðinu. Þau skötu-
hjúin sátu saman við drykkju og
spil alllangt fram eftir nóttu og
klukkan var orðin rúmlega eitt þeg-
ar hún fór ásamt þessum meinta
vini sínum yflr í setustofu í hinum
endanum á skálanum og hann
kynnti hana fyrir nokkrum Amerík-
önum sem þar sátu að drykkju.
Þannig hagaði til aö inn af setu-
stofunni var gangur með nokkrum
herbergjum og við enda hans var
salemi. Þangað vildi Magga komast
eftir að hafa setið að drykkju með
Ameríkönunum langa hríð. Hún
stóð upp og slagaði inn eftir gangin-
um því hún var orðin talsvert
drukkin.
Skyndilega var þrifið í hana og
hún dregin inn í eitt af herbergjun-
um. Þama var kominn íbúi her-
bergisins, amerískur setuliðsmaður
sem sótti það nú allfast að fá að hafa
samfarir við Möggu og reyndi með-
Svo kom Kaninn...
Þegar ísland var hernumiö í seinni heimsstyrjöldinni var landinu kippt inn í nútímann. Samskipti þjóöanna uröu
uppspretta mikilla deilna og voru síöur en svo slétt og felld eins og meöfylgjandi frásögn ber meö sér.
al annars að rífa utan af henni fot-
in. Hún veitti allmikla mótspymu
og varðist árásarmanninum eftir
megni en hann tók þá til við að slá
hana í andlitið og æpa að henni.
Samskiptum þeirra lyktaði svo
með þvi að maðurinn hætti árásum
sinum en Magga komst við iflan
leik út úr herberginu og fram í setu-
stofuna á ný. Hún fékk að sofa
þarna í skálanum en um morguninn
fóru menn með henni á slökkvistöð
flugvallarins og þaðan til læknis í
Keflavík sem rannsakaði meiðsli
hennar og þaðan til lögreglunnar.
Magga hélt því fram að hún
myndi bera kennsl á árásarmann-
inn og hún fór upp á Keflavíkurflug-
völl um morguninn í fylgd tveggja
lögreglumanna og þar fór fram
nokkurs konar sakbending þar sem
litlum hópi amerískra hermanna
var raöað upp og bar Magga kennsl
á manninn þegar í stað.
Hermaðurinn sem valdur var aö
árásinni var nú yfirheyrður og með-
gekk hann í fyrstu að hafa fengið kon-
una inn á herbergi til sín í þeim til-
gangi að hafa við hana samfarir.
Hann kvað stúlkuna hafa legið í rúmi
þar sem hann kom inn og hún hefði
verið talsvert drukkin. Hann sagði
hana ekki hafa viljað þýðast sig og
því hefði ekkert orðið úr neinu.
í fyrstu neitaði hermaðurinn al-
gerlega að hafa barið stúlkuna í
andlitið eða misþyrmt henni á
nokkurn hátt. Við endurteknar yflr-
heyrslur breytti hann hins vegar
þessum framburði og játaði að hafa
slegið stúlkuna með flötum lófa
hægri handar og hafi höggið lent á
vinstri kjálka hennar. Hann sagði
stúlkuna hafa klórað sig og hann
reiðst nokkuð við það. Ekki taldi
hann þetta eina högg sem hann
veitti stúlkunni hafa valdið henni
neinum teljandi áverkum.
í vottorði héraðslæknis, sem
skoðaði Möggu morguninn eftir
árásina, er áverkum hennar lýst
svo:
„Glóðarauga á hægra auga. Mar-
blettir eftir högg á enni hægra meg-
in. Hægra kinnbein og allur andlits-
helmingur rauður og mjög bólginn
og helaumur viðkomu. Báðar varir
stokkbólgnar. Vinstra neðra kjálka-
bein bólgið og mjög aumt viðkomu.
Hægri öxl marin og aum og mar-
blettir á hægra brjósti og brjóst-
beini. Hreyfingar í axlarlið sárar.“
Þetta sýnast vera öllu meiri
áverkar en hafi getað stafað af einu
höggi með flötum lófa. Fyrir réttinn
komu þessu næst nokkur vitni sem
stödd voru í herskálanum þessa
nótt.
Tveir amerískir slökkviliðsmenn
sem bjuggu í skálanum báru að þeir
hefðu heyrt óp og köll frá herbergj-
um Islendinganna. Framburði ann-
ars vitnisins er svo lýst í dómsskjöl-
um.
„Heyrði vitnið þá hávaða og karl-
mannsrödd segja:
„Shut up or I will hit you again“
og síðar „Shut up and split your
legs.“
Þetta útleggst: „Þegiðu eða ég lem
þig aftur.“ og í síðara skiptið: „Þeg-
iðu og glenntu þig.“
Heyrði vitnið þá kvenmannsrödd
æpa: „No, no, no, no en karlsmanns-
rödd segja: „Be quiet.“
Tveir aðrir slökkviliðsmenn, báð-
ir amerískir, báru vitni og sagðist
annar þeirra hafa heyrt konugrát og
karlmannsrödd segja:
„Shut up and open your legs.“
Fjórði slökkviliðsmaðurinn bar
að hann hefði heyrt kvenmanns-
rödd segja: „Don’t do that to me.“
um likt leyti og hin vitnin töldu sig
heyra neyðarópin og skipanirnar
sem áður er getið.
Af því sem rakið varð í þessu
málið taldi rétturinn sannað að her-
maðurinn, sem ákærður var, hefði
veitt stúlkunni alla þá áverka sem
læknirinn lýsti í vottorði sinu og
ástæðan hefði verið sú að hún neit-
aði honum um líkamlegt samneyti.
Rétturinn taldi hæfilegt að her-
maðurinn skyldi sæta fangelsisvist í
þrjá mánuði vegna þessa og kom
fangelsisvist hans á Keflavíkurflug-
velli í tæplega tvo mánuði í kjölfar
þessara atburða til frádráttar.
Stúlkan Magga fór fram á miska-
bætur alls að upphæð 10.470 krónur.
Vó þar þyngst miski, þjáningar og
óþægindi fyrir 10 þúsund en að auki
læknisskoðun, röntgenmyndir og
smíði á gervigóm.
Rétturinn lækkaði miskabæturn-
ar verulega og taldi rétt að ákærði
greiddi 3.970 krónur samtals innan
15 daga frá lögbirtingu dómsins.
Hermaðurinn var einnig dæmdur
tfl að greiða allan kostnað sakarinn-
ar sem var þóknun skipaðs sækj-
anda, skipaðs verjanda og umboðs-
manns fjármálaráðherra en þetta
reyndust samtals 2.050 krónur sem
lögðust við sektina.
Þó vissulega sé engin ástæða til
þess að taka upp hanskann fyrir of-
beldi af neinu tagi er freistandi að
álykta sem svo að í þessu tilviki
hafi stúlkan Magga ef til vill slopp-
ið með skrekkinn. Það hlýtur að
teljast ferðalag á hættusvæði að
vera ein, varnarlaus og drukkin
kona um miöja nótt í herskála með
hóp af ölóðum slökkviliðsmönnum
og hermönnum sem sumir hafa ekki
séð kvenmann svo.mánuðum skipt-
Lastabællð á Velllnum.
Keflavíkurflugvöllur hefur allt veriö eins og eyland í íslensku samfélagi og sennilega haft á sér ímynd lastabælis í hugum margra. Aö minnsta kosti var ekki
horft jákvætt til þeirra kvenna sem sóttust eftir nánum samskiptum viö setuliöiö. Þær voru kallaöar kanamellur.
Fréttir fortíðar • 19
^4 *«*•.*•*>. ni-ROJ!
5?
fllaaa ■
Hvar er suðurskautið?
I maí 1911 er sagt
frá því á forsíðu í
Vísi að kapphlaupið
um suðurskautið
standi sem hæst. Á
þessum tíma hafði
enginn maður stigið
fæti sínum þangað
svo sannað væri og
kepptu menn hart
um að verða fyrstir tfl þess. Fréttin seg-
ir frá japönskum leiðangri undir stjóm
Sirase hershöfðingja sem lagði af stað
með lúðraþyt og söng á skútunni Kain-
an Maru sem blaðið segir að þýði opn-
ari suðursins.
Þessi leiðangur fór algerlega út um
þúfur og má skilja málflutning Vísis á
þann veg að það hafi ekki beinlínis
komið neinum á óvart þar sem útbúnað-
ur allur hafi verið frumstæður og ónðg-
I þessari frétt er ekkert minnst á
frændur okkar og vini, Norðmenn, en
það kom í hlut eins þeirra að stíga fyrst-
ur manna fæti á suðurskautið en haust-
ið 1911 sigldi Roald Amundsen skútunni
Fram til Antarktíku og þeysti þaðan á
hundasleðum á pólinn í kapp við
kollega sinn R.F. Scott. Amundsen varð
heflum mánuði á undan honum á stað-
Minnsta loftfar heimsins
I febrúar
1911 er á for-
síðu Vísis for-
vitnileg frétt
um minnsta
loftfar í heimi. Það hefur sænskur
verkfræðingur að nafni Vilhelm
Forssmann látið smíða í Þýskalandi
og er belgur þess sagður aðeins 35
stikur á lengd og rúmar 800 tenings-
stikur af gasi. Hreyfivjelin, eins og
aflvél loftfarsins er köfluð í blaðinu,
er sögð vega aðeins 76 pund. Sagt er
að neðan í þessu örsmáa loftfari
hangi setubekkur sem tveir menn
rúmist í en ekki bátur eins og gerist
á hefðbundnum loftförum. Það fylgir
sögunni að loftfarið hafi veriö reynt í
Augsburg með afbragðsgóðum ár-
angri. Jafnframt kemur fram að rúss-
neski herinn hafi þegar pantað fjöru-
tíu slík loftför til nota í hemaði.
Dónalegar myndir til sölu
Sumarið
1911, nánar til-
tekið í júní,
sést í gegnum
auglýsingar í
Vísi glitta i ein-
kennilegt mál
sem ætla má
að hafi verið
talsvert hita-
mál i bænum
þótt ekki hafi
farið hátt. Þá
birtist í blað-
inu svohljóðandi auglýsing á áber-
andi stað:
„Bann. Það er í almæli að borgar-
stjóri vor hafi lagt blátt barm við því
að karlmenn fengju að vera við sund-
próf kvenna sem haldið var í laugun-
um í gær. Hvað máttu þeir ekki sjá?
Kabínettsljósmynd af kvennasund-
inu fæst á afgreiðslu Vísis. Kostar að-
eins 50 aura. Komið í tíma.“
Þetta minnir óneitanlega á fréttir
dagsins í dag þegar tekist er á um
það fyrir dómstólum hvort sýna megi
opinberlega myndir sem teknar vom
bak við tjöldin í fegurðarsamkeppni.
Það er augljóst að þá eins og nú hafa
konur ekki alltaf kært sig um að
myndir af þeim við öll möguleg og
ómöguleg tækifæri væra birtar opin-
berlega.
íslandsbanki brennur
I Vísi í ágúst 1911 er sagt frá því
undir fyrirsögninni: Utan af landi að
aflstórt hús sem íslandsbanki átti í
Brekkugötu 13 á Akureyri hafi
brunnið til kaldra kola. Húsið sjálft
var vátryggt en eignir íbúanna, sem
vom flölmargir, vom það ekki og
stóðu þeir eftir slyppir og snauðir.
Veður var hið besta meðan á slökkvi-
starfi stóð og varð það til þess að eld-
urinn komst ekki í nærliggjandi hús
en um tima var allt útlit fyrir að svo
yrði.