Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2002, Page 45
LAUGARDAGUR 23. MARS 2002
53
DV
Helgarblað
aldrei verið eins harður og núna í
vissu minni um að við eigum að
koma þessu máli í höfn. Við eigum
að taka á öllu mótlæti af ákveðni
og klára málið.“
Spilað með Austfirðinga?
- Andstæðingar þessa verk-
efnis hafa oft sagt að það sé ver-
ið að spila með Austfirðinga þ.e.
að það sé verið að fá þá til að
styðja virkjunarframkvæmdir
við Kárahnjúka á þeirri for-
sendu að nýta eigi orkuna til at-
vinnuuppbyggingar í íjórðungn-
um en í raun ætli stjórnvöld að
virkja við Kárahnjúka og leiða
orkuna annað til notkunar.
Ertu ekkert hræddur við þetta?
„Ég held að allir skynsamir
menn sjái að þetta er glórulaus
málflutningur. Það er afskaplega
ólíklegt að íslensk stjórnvöld hafi
fengið Norsk Hydro til þess að
leggja fram milljarða króna í und-
irbúning verkefnis eins og álvers á
Reyðarfirði í þeim tilgangi einum
að blekkja Austfirðinga. Það er
auðvitað þvílíkur einfeldnings-
háttur að halda þessu fram að það
er engu lagi líkt. Með svona mál-
flutningi er verið að reyna að
skapa ugg og leiðindi varðandi
þetta mál og sennilega er tilgang-
urinn að reyna að sundra þeim
Austfirðingum sem styðja um-
ræddar framkvæmdir."
- Hefur harkan í umræðunni
um stóriðju- og virkjunarmál á
Austurlandi komið þér á óvart?
„Já, mjög. Ef þú ferð í gegnum
umræðuna varðandi álverið á
Reyðarfirði þá er málflutningur-
inn þannig, einkum hjá sumum
syðra, að það virðist vera að það
ætti ekki nokkurt kvikt að geta lif-
að í Reyðarfirði eftir að álverið
yrði reist. Þetta fólk er með álver
við bæjardyrnar hjá sér í Straums-
vík! Þegar harkan var sem mest í
deilunni um Eyjabakkalón var ný-
búið að stækka það álver og mér
er til efs að þjóðin hafi almennt
vitað af því. Það er nýverið búiö
að byggja álver í Hvalflrði og ný-
búið að stækka það. Sú stækkun
varð reyndar ekki að veruleika
fyrr en þessi umræða var um garð
gengin en það heyrðist vart múkk
í þeim sem létu hæst í deilunum
um Eyjabakkalón og álverið 1
Reyðarfirði. Sú umræða varð svo
móðursýkisleg að það var engu
lagi líkt ekki síst í ljósi þess að
umhverfiskröfurnar til álversins á
Reyðarfirði eru meiri heldur en til
annarra sambærilegra verksmiðja
hér á landi. Þannig að ég tel að
umræðan bæði þá og nú sé fyrir
neðan allar hellur og ekki virð-
ingu þjóðarinnar samboðin."
Vinstriflokkarnir hafa ver-
ið á villigötum
Umræðan um stóriðju- og virkj-
unarframkvæmdir á Austurlandi
hefur breytt afstöðu Smára til
stjórnmála ekki síst vegna þess að
fyrrum samherjar hans hafa löng-
um í hans huga barist gegn helstu
baráttu- og framfaramálum fjórö-
ungsins. Þegar hinir „nýju“
vinstriflokkar eru ræddir verður
manni fljótt ljóst að hrifning
Smára er takmörkuð. I fyrsta sinn
á ævinni segist hann ekki geta
horft til næstu alþingiskosninga
með fullri vitneskju um hvað hann
eigi að kjósa á kjördag.
„Það er auðvitað ekkert laun-
ungarmál að ég hef orðið fyrir
miklum vonbrigðum með þá
vinstriílokka sem starfa i landinu
í dag. Ég tel að þeir hafi verið á
gríðarlegum villigötum. Sérstak-
lega tel ég að vinstri-grænir standi
vart undir nafni sem vinstriflokk-
ur. Það virðist vera að þar ráði
sjónarmið sem snerta ekki hag al-
þýðufólks. Það er auðvitað nauð-
synlegt að menn haldi á lofti um-
hverfisumræðu en ég tel að þessi
flokkur hafi farið algeru offari á
því sviði. Þegar flokkur leggur alla
áherslu á umhverfishlið mála eins
og þegar orku- og stóriðjumál hér
eystra eru til umræðu en horfir
fram hjá félagslegu hliðinni, þá er
illa komið - ekki síst fyrir vinstri-
flokki.
Mér finnst að þeir hafi algerlega
gleymt því að þeir séu til vinstri
en þeir muna bara að þeir eru
grænir. Ég held að þeir hafi verið
að stíla inn á það að græn viðhorf
ættu upp á pallborðið og þar væru
ákveðin sóknarfæri. Ef menn ætla
að aðhyllast þau sjónarmið að
hvergi megi velta við steini í land-
inu þá sjá menn það fljótt að það
eru óraunsæ sjónarmið. Lífsaf-
koma þjóðarinnar byggist einfald-
lega að miklu leyti á nýtingu nátt-
úruauðlinda en vissulega þarf sú
nýting að vera skynsamleg og ekki
má hún vera takmarkalaus.
Hvað varðar Samfylkinguna þá
hefur þann flokk yfirleitt skort
stefnufestu og stundum hefur bor-
ið á því að ýmsir þingmenn hans
hafi reynt að fylgja vinstri-græn-
um út í umhverfisofstækisfenið.
Hvað varðar stóru málin hér
eystra þá virðist þó meirihluti
þingflokksins eitthvað vera að átta
sig og þess vegna má kannski
segja að batnandi mönnum er best
að lifa.“
í Ijósi þessa lék blaðamanni for-
vitni á að vita hvaða flokk þessi
gamli „kommi“ muni kjósa í
næstu alþingiskosningum. Þegar
Smári Geirsson blæs í saxófón á sínum yngri árum
„Ég fer aldrei til Reykjavíkur bara til þess aö vera þar. Ég var þar í námi í mörg ár og ég beiö í raun alltaf eftir því aö
komast í burtu. Þaö var ekkert þarna sem ég sóttist sérstaklega eftir. Ég hef aldrei gengiö meö þær grillur í höföinu
aö hamingjan eigi lögheimili í Grafarvoginum. “
spumingin var borin upp svaraði
hann og brosti breitt að tilraunum
blaðamanns: „Ég gef engar yfirlýs-
ingar en þú mátt hafa eftir mér að
bæði framsóknar- og sjálfstæðis-
menn hafa verið að bjóða mig vel-
kominn í þeirra raðir."
Grúskari af guðs náð
Vinir Smára og kunningjar telja
að hann vilji ekkert fremur en
helga sig alfarið sagnfræðigrúski
en eftir hann liggja fimm bækur
sagnfræðilegs eðlis og fjöldamarg-
ar greinar. Þótt litill tími hafi gef-
ist til skrifta á undanförnum árum
er hann samt með tvær bækur í
smíðum núna sem hann vonast til
að klára einhvern timann í náinni
framtíð. „Þetta er alveg rétt hjá
vinum mínum,“ segir Smári, og
bætir við, dreyminn á svip, að fátt
sé betra en að sitja fyrir utan
skarkala heimsins og grúska. „Ég
hef haft sagnfræðilegan áhuga frá
því að ég var ungur drengur. í
menntaskóla var ég alveg ákveð-
inn í því að nema sagnfræði í há-
skóla. Ég byrjaði þar og ætlaði að
taka félagsfræði með sem auka-
grein en það var svo gaman í fé-
lagsfræðinni og mikið fjör á þess-
um árum að ég festist þar. En
sagnfræðin er engu að síður mikið
áhugamál og mér finnst hún af-
skaplega spennandi og áhugaverð.
Ég er eiginlega hrjáður vanlíðan
að geta ekki sinnt þessu betur en
staðreyndin er sú að á meðan ég
sinni kennslu í fullu starfi og er í
sveitarstjórnarmálum, bæði sem
forseti bæjarstjórnar og formaður
SSA, þá er ekki mikill timi aflögu.
Svo reyni ég líka að sinna ein-
hverju í lífinu fyrir utan störfin
sem veitir mér sérstaka gleði og
tryggir umgengni við skemmtilegt
fólk.“
Hallærislegur hljómsveit-
artöffari
Eitt af því sem veitir Smára sér-
staka gleði er tónlistin en hann
hefur verið virkur í tónlistarlífi
Norðfjarðar rúma þrjá áratugi þótt
það sé nokkuð liðið síðan hann
spilaði í hljómsveit. „Ég var ellefu
ára gamall þegar ég eignaðist mitt
fyrsta hljóðfæri en það var saxó-
fónn. Byrjaði þá í lúðrasveit og
spilaði síðan í hljómsveitum á
böllum með hljómsveitum
framundir 1990 og hafði af þessu
mikla ánægju. Ég hef dregið úr
þessu en þegar mér gefst kostur þá
sleppi ég ekki tækifæri til að taka
þátt í tónlistarstarfi. Tónlistarfólk
er nefnilega mjög skemmtilegt,
það er bara staðreynd. Núna er ég
félagi í félagsskap sem nefnist
Brján (Blús, rokk- og jassklúbbur-
inn á Nesi) og fæ stundum að taka
þátt í tónlistarsýningum sem sá
klúbbur efnir til. Þessar sýningar
hafa veitt manni margar ánægju-
stundimar auk þess sem þær eru
frábært menningarframtak."
- Varstu hljómsveitartöffari?
„Ég var ógurlega lélegur hljóm-
sveitartöffari. Var mjög jarðbund-
inn og hegðaði mér ekki með þeim
hætti sem menn töldu að popparar
ættu að hegða sér. Ég var frekar
hallærislegur hvað þetta varðar."
Gamlir hljómsveitarfélagar
hans geta staðfest þetta en einn
þeirra tjáði blaðamanni að þegar
gömlu félagarnir hittust og rifjuðu
upp gömlu dagana þá hefði Smári
aldrei ástæðu til þess að roðna
enda hefði hann aldrei gert neitt af
sér og bætti við aö Smári hefði
verið þá sem nú i hlutverki
diplómatsins. En þegar félagar
hans eru spurðir að því hvort
Smári geti ekki verið svolítið
„þurr“ vegna þessarar miklu jarð-
bindingar þá þvemeita þeir því.
„Heldur þú að það sé algengt i bæj-
arfélögum að helstu grínistarnir
séu bæjarstjórinn og forseti bæjar-
stjórnar?“ spurði einn þeirra á
móti og var að vísa í árlegt uppi-
stand þeirra félaga á „allaballa-
þorrablótinu", sem ávallt vekur
mikla lukku. Nei, það er líklegast
rétt, hugsar maður með sjálfum
sér, sveitarstjórnarmenn eru yfir-
leitt ekki aðal þorpsgrínistarnir,
nema þá kannski óvart.
Fátt betra en að vera
heima við
Það er ýmislegt annað sem veit-
ir Smára „sérstaka gleði“, eins og
hann orðar það. Hann segir blaða-
manni að fátt jafnist á að vera
heima í stofu í faðmi fjölskyldunn-
ar. „Mér finnst óskaplega gott að
vera heima hjá mér,“ segir hann
líkt og í trúnaði og bætir við „ég
er hins vegar ekkert sérlega dug-
legur á heimili og ég hef verið
skammarlega lítið með börnunum
mínum. Ég hef samt sem áður
mjög gott samband viö þau en ég
sinni það mörgu fyrir utan mitt
fasta starf að fjölskyldan hefur oft
mætt afgangi."
Þótt Smári sé mikill landsbyggð-
arvargur og sæki lítið til Reykja'
víkur þá sótti hann samt sem áður
eiginkonu sína þangað en hann
kynntist henni á balli á Reyðar-
firði. Aðspurður hvort hún hafi
fallið fyrir hljómsveitartöffaran-
um svarar hann um hæl: „Ég efast
um að hún hafi gert það. Þetta var
að vísu hljómsveitarmaður en af-
skaplega litið töff.“
Hamingjan á ekki lög-
heimili i Grafarvoginum
Sennilega gerast menn ekki
meiri landsbyggðarmenn en Smári
Geirsson. Vinur hans og sam-
starfsmaður til margra ára, Guð-
mundur Bjarnason, bæjarstjóri í <*
Fjarðabyggð, gat þess við blaöa-
mann að þegar þeir félagar heim-
sóttu Kringluna í fyrsta sinn
skömmu eftir að hún var opnuð þá
hefði Smári hlaupið út eftir stutt
búðarráp og kastað upp. Hvort
sagan er sönn skal ósagt látið en
Smári viðurkennir alveg að hann
stoppi ætíð mjög stutt þegar hann
sækir höfuðborgina heim. „Mér
finnst allt í lagi að koma til
Reykjavíkur en ég stoppa þar eins
stutt og ég get. Ég á þar ákveðin
erindi og á þar vini en ég fer
aldrei til Reykjavíkur bara til þess
að vera þar. Ég var þar í námi í
mörg ár og ég beið i raun alltaf eft-
ir því að komast i burtu. Það var
ekkert þama sem ég sóttist sér-
staklega eftir. Ég hef aldrei gengið
meö þær grillur í höfðinu að ham-
ingjan eigi lögheimili í Grafarvog-
inum.“
DV-Neskaupstaó. mmj
Jón Knútur Ásmundsson