Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2002, Page 48
56
LAUGARDAGUR 23. MARS 2002
Helgarblað
DV
Danir stela
okkar mönnum
- Bertel, Gunnar, Einar Már, Ólafur, Mikael, Tryggvi og Böðvar í hættu
Þaö hefur lengi veriö viðurkennd
söguskoðun á íslandi að Danir hafi
verið vond herraþjóð. Þeir haíi
stolið nærri öllum handritum Is-
lendinga og ýmist sökkt þeim í hafi
eða fordjarfað þeim í stórkostlegum
brunum sem hafa steðjað yflr Kaup-
inhafn með reglulegu millibili. Alla
kirkjugripi góða og fagra gerðu þeir
upptæka og bræddu i silfur eða
settu á sín eigin söfn.
íslenskir gáfu-
menn undu svo
illa í höfuðborg
Danaveldis að
hvur eftir annan
steyptu þeir sér í
næsta kanal og
drekktu sér frek-
ar en að lifa við
þann ókost sem
líf meðal danskra
var talið.
Þetta allt gerðu
Danir meðan þeir
með hinni hend-
inni arðrændu ís-
lendinga inn í bein, seldu okkur
maðkað mjöl i einokun á upp-
sprengdu verði og útdeildu réttlæti
og ranglæti á báðar hendur.
Það er ekki fyrr en á seinni árum
sem sú skoðun hefur farið að ryðja
sér til rúms að Danir hafi í það
heila tekið verið hin vænsta herra-
þjóð sem hafi umgengist mörlanda
sina við heimskautsbaug af meiri
sanngimi og umburðarlyndi en
Gunnar
Gunnarsson
Það aö skrifa á
dönsku gerir
engan danskan.
Einar Már Guö-
mundsson
Einn fjöimargra
sem Danir hafa
reynt aö stela.
annars tíðkaðist
meðal herraþjóða
og nýlenda. Þessi
skoðun segir að
íslendingar hafi
verið sjálfum sér
verstir og hefðu
án efa saumað
skó úr þeim
handritum sem
þeir átu ekki ef
Danir hefðu ekki
flutt þau úr landi
og borgið þeim
þannig.
Þeir verða „okkar“
Allt er þetta auðvitað umdeilan-
legt en eitt stendur þó eftir og það er
að hverjum þykir sinn fugl fagur og
allar þjóðir lita á listamenn sína
með líkum hætti og stoltir foreldrar
horfa á bam sitt. Við viljum gjam-
an trúa því að þeir íslendingar sem
ná langt á sínu sviði á alþjóðlegum
vettvangi séu með einhverjum hætti
afsprengi elds og ísa og það sé að
einhverju leyti þjóðemi þeirra sem
hefur gefið þeim þá hæfileika í
vöggugjöf sem raun ber vitni.
Þetta fólk eigum við hvert og eitt
og þetta birtist hvergi á fallegri hátt
að Björk Guðmundsdóttir, söngkona
og tónlistarmaður, sem einu sinni
hneykslaði þjóðina þegar hún dans-
aði með óléttubumbuna bera
frammi fyrir alþjóð, er aldrei kölluð
annað en hún Björk okkar. Jafnvel
virðulegustu fjölmiðlar eins og
Morgunblað og Ríkisútvarp beygja
sig í hnjánum eins og rosknar
maddömur og kjá framan í lista-
manninn eins og smábam. Þetta er
hún Björk litla okkar.
Reikna verður með því að okkur
þætti freklega gengið á rétt okkar
sem þjóðar ef einhver önnur þjóð
ætlaði að eigna sér Björk. Það væri
landhelgisbrot af ósvífnara tagi en
við hefðum áður orðið vitni að og er
reyndar nær óhugsandi.
Hann Bertel okkar
Þetta er eitt af því sem stendur
alltaf eins og fleinn milli fomrar
Bengtsson
Hann er
kannski ekki
eins frægur og
Björk en þaö
hefur ekki
hindraö Dani í
aö eigna sér
hann.
herraþjóðar og
áður undirgef-
innar nýlendu.
Danir hafa und-
arlega tihneig-
ingu til þess að
horfa fram hjá
uppruna lista-
manna ef þeim
hentar og eigna
sér efnilegt fólk
sem þeir vita vel
að er af öðrum og
ólíkum uppruna.
Þannig hefur
lengi verið deilt
um uppmna eins
frægasta lista-
manns Dana, eða
tmhusgogn.is
Allt í röð og reglu
Mán. - lös. 10.00 -18.1» • Laugard. 11.00 -10.00 • Sunnud. 13.00 -10.00
W
TM - HUSOOON
Sí&umúla 30 - Slmi 568 6822
- œvintyri Uhust
12.000kr
svartur
blár
rauður
CD standur
7.700kr
Beyki, Eik, Mahoni
og Tekk
29.000kr
Beyki, Hlynur og Kirsuber
Beyki og Kirsuber
Dýnur í öllum
stærðum og
gerðum fyrir
fólk sem er
að stækka.
______________Jcr_;
Beyki og Kirsuber
Bertel Thorvaldsen
Hann var Skagfiröingur.
íslendinga, sem er myndhöggvarinn
Bertel Thorvaldsen. Það er naglíost
staðreynd í huga allra Dana að
Thorvaldsen er eins danskur og
grænn Tuborg og það stendur. ís-
lendingar hafa alltaf vitað að Bertel
litli er ættaður úr Skagafirði og síð-
ast í haust var lærð grein í Lesbók
Morgunblaðsins þar sem reynt var
að færa sönnur á að hann hefði
fæðst um borð i dönsku kaupskipi
innan landhelgi. Að vísu danskrar
landhelgi sem þá náði upp í fjöru í
Skagafirði. Flest sem stóð þama var
reyndar hrakið af öðrum fræði-
manni, ekki heyrðist afsökunarbofs
frá Dönum. Þeir kannski sjá ekki
Lesbókina.
Bertel er íslenskur. Við eigum
götu sem heitir eftir honum, font í
Dómkirkjunni og styttu af kallinum
einhvers staðar á afviknum stað.
Eitt sinn stóð hún á Austurvelli og
var eina styttan sem þjóðin átti en
svo varð hún að víkja fyrir þjóðhetj-
unni Jóni Sigurðssyni.
Við eigum þá víst
Danir halda því enn þá fram að
Gunnar Gunnarsson rithöfundur
sem bjó og skrifaði í landi þeirra á
þriðja og ijórða áratugnum hafi ver-
ið danskur. Gunnar var austan af
Héraði, ekta íslendingur.
Danir halda því miskunnarlaust
fram að Erling Blöndal Bengtsson,
heimsfrægur sellóleikari, sé dansk-
ur. Þetta er dellumakarí af fyrstu
gráðu og byggir á þeirri ranghug-
mynd Dana að ef einhver búi í Dan-
mörku nógu lengi þá verði hann
danskur.
Þegar Einar Már Guðmundsson
fékk bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs þá var sagt i dönsku blöð-
unum að þetta væri sigur fyrir Dan-
mörku. Einar væri meira og minna
Ólafur Elíasson
Hann er eins íslenskur og
sauöskinnsskór, alveg sama hvaö
Danir segja.
danskur því hann hefði dvalist þar
við nám óg störf árum saman.
Fyrir fáeinum vikum var risa-
stórt viðtal í menningarblaði Politi-
ken viö myndlistarmanninn Ólaf El-
íasson sem er sennilega frægastur
íslenskra listamanna núlifandi á al-
þjóðlegan mælikvarða.
I þvi viðtali var lýst undrun á því
að menn vildu skilgreina Ólaf sem
þýskan listamann þegar allir vissu
að hann væri danskur. Þess var þó
látið getið að hann væri af íslensk-
um ættum.
Frá okkar sjónarhóli er Ólafur
hins vegar alíslenskur og við erum
stolt af honum þótt hann hafi dvalið
lengi í Danmörku.
Hér mætti bæta því við að í Dan-
mörku búa um þessar mundir öflug-
ir listamenn íslenskir og nægir að
nefna Tryggva Ólafsson listmálara
og rithöfundana Böðvar Guðmunds-
son og Mikael Torfason því til stað-
festingar. Rétt er að árétta að þeir
veröa áfram íslenskir þótt Danir
muni eigna sér þá. Þessu verður að
linna. -PÁÁ
Kóngsins Kaupmannahöfn
Þetta var höfuöborg okkar í mörg hundruö ár. Sumir segja aö Danir hafi
kúgaö okkur og arörænt en aörir telja aö þeir hafi veriö blíö herraþjóö.