Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2002, Page 51
LAUGARDAGUR 23. MARS 2002
Helgarblað
59
DV
Reyk j avíkurskákmótið:
Helgi Áss og Stefán menn mótsins
Sigurvegarar mótsins sem haldið
var í Ráðhúsinu urðu eistneski stór-
meistarinn Jaan Ehlvest og rússneski
stórmeistarinn Oleg Korneev með 7 v.
af 9. Sigur þeirra þarf ekki að koma
óvart. Ehlvest var um tíma einn
sterkasti stórmeistari heims og er enn
sterkur skákmaður þrátt fyrir að hafa
lækkað aðeins í stigum að undan-
fömu. En hann getur komist á skrið
aftur eins og dæmin sanna.. Komeev
er mun sterkari skákmaður en skák-
stigin gefa til kynna. Hann er búsett-
ur á Spáni og teflir mikið á opnum
mótum þar.
Lífsbaráttan hjá þokkalegum stór-
meistara er oft og tíðum hörð, margir
eru um hituna. Það vantar aðila til að
styðja betur við menn í íremstu röð og
það er gott til þess að vita að hug-
myndir sem bandaríski stórmeistar-
inn Yasser Seirawan er að viðra um
þessar mundir við fjármálamenn
vestra og við sjálfan Kasparov hafa
fengið góðan hljómgrunn og vonandi
verður þar einhver umtalsverður ár-
angur sem er alls ekki svo fjarlægur
draumur.
Menn mótsins
Menn mótsins voru ótvírætt Helgi
Áss Grétarsson sem náði afar góðum
árangri þrátt fyrir minnkandi tafl-
mennsku undanfarin misseri vegna
laganáms og Stefán Kristjánsson sem
náði lokaáfanganum að alþjóðlegum
meistaratitli og var skammt frá því að
ná áfanga að stórmeistaratitli.
Helgi Áss Grétarsson varð í 3.-6.
sæti með 6,5 v.ásamt þremur öðrum
stórmeisturum, þeim Valery Neverov
frá Úkraníu, Jonathan Rowson frá
Skotlandi og Mikhail Ivanov frá Rúss-
landi sem átti afar gott mót en Ivanov
hefur verið nokkuð brottgengur stór-
meistari í gegnum árin en sýndi á sér
sínar bestu hliðar í lokaumferðunum.
íslensku stórmeistaramir stóðu sig
allir betur en skákstig þeirra segja til
um nema Hannes Hlífar. Sé stigaár-
angur þeirra skoðaður er Helgi Áss
hæstur með árangur upp á 2624 stig
sem er langt yfir stórmeistaraáfanga
en hann miðast við árangur upp á
2600 stig, Stefán annar með árangur
upp á 2585, Hannes Hlífar Stefánsson
þriðji með árangur upp á 2533, Helgi
Ólafsson fjórði með árangur upp á
2512 og Þröstur Þórhallsson fimmti
með árangur upp á 2483.
Nýr alþjóðameistari
Árangur Stefáns Kristjánssonar var
afar góður og hann var afar nálægt
stórmeistaraáfanga, þurfti jafntefli
gegn Korneev i lokaumferðinni en tap-
aði. Stefán hefur náð þremur áföngum
að alþjóðlegum meistaratitli og fer yfir
2400 skákstig á næsta stigalista sem
kemur út í byrjun næsta mánaðar.
Hann verður formlega útnefndur al-
þjóðlegur skákmeistari á næstu FIDE-
samkomu. Bragi Þorfinnsson var að-
eins jafntefli frá sínum lokaáfanga að
alþjóðlegum meistaratitli og hann nær
honum fljótlega. Styrkleikann hefur
hann svo sannarlega.
Það er gaman að skoða hverjir tefla
mest yfir skákstigastyrkleika. Stefán
er hæstur með 2,4 vinninga, Guð-
mundur Kjartansson er næstur með
1,84, Tómas Bjömsson þriðji með 1,36,
Helgi Áss fjórði með 1,19 og Bragi Þor-
finnsson fimmti með 0,95. Allir þessir
skákmenn hækka töluvert í alþjóðleg-
um stigum.
Þátttaka margra kvenna setti
skemmtilegan svip á mótið. Baráttan
var hörð á milli þeirra um hver yrði
efst, en Antoneata Stefanova hin
búlgarska kom, sá og sigraði. í 2. sæti
varð hin finnska Johanna Paasikan-
gas og í 3.^4. fjórða sæti varð banda-
ríski kvennameistarinn Jennifer
Shahade og Lenka Ptacnikova, sam-
býliskona Helga Áss.
Breytínga er þörf
Framkvæmd mótsins var að mörgu
leyti ágæt, þó fannst mér og fleirum
eins og það væri verið að halda mótið
af gömlum vana, en árið 2004 eru
fjörutíu ár síðan Reykjavikurskákmót-
in byrjuðu. Þau hafa verið haldin
reglulega á tveggja ára fresti, voru lok-
uð alþjóðleg skákmót fram til 1982 en
þá var fyrsta opna Reykjavikurskák-
mótið haldið. Síðan hafa mótin verið
opin með einni undantekningu, 1992.
Það er alkunna að margar breytingar
hafa orðið i skákinni sem og í mörgu
öðru og e.t.v. tími til kominn að brjóta
mótin eitthvað upp, leyfa frjórri fram-
kvæmdagleði að njóta sin og ekki vera
með svipaða útgáfu af mótunum of
lengi. Það eru margir efniiegir skák-
menn sem eru við þröskuld alþjóða- og
stórmeistaraáfanga og það þarf að
skoða hvernig er best að halda áfram,
þeim og íslensku skáklifi til framdrátt-
ar. T.d. hefði verið óhætt að sleppa
stigalausum keppendum og þeim sem
hafa undir 2200 stigum með kvenlegri
undantekningu. Það sýnir sig að ef
menn þurfa að hafa fyrir hlutunum og
uppfylla lágmarkskröfur um þátttöku
þá tefla þeir meira á innlendum mót-
um eða alls ekki.
Bragi Þorfinnsson hefði léttilega
orðið alþjóðlegur meistari líka og Stef-
án Kristjánsson, sem tefldi við stór-
meistara í hverri umferð að þeirri
fyrstu og fjórðu undanskilinni, hefði
sennilega náð sínum fyrsta stórmeist-
araáfanga. Alþjóðlegu Reykjavíkur-
skákmótin eiga að vera fyrir „skákel-
ituna" í landinu en ekki fyrir alla sem
áhuga hafa á að vera með. Við erum
því miður of fáir íslenskir skákmenn
og skjótum okkur aðeins i fótinn með
því að gera ekki sanngjarnar kröfur til
keppenda á alþjóðlegum mótum. Mót-
in eins og þau eru framkvæmd núna
eru í hrópandi ósamræmi við þá
stefnu skáksambandsins að fjölga titil-
höfum. Fyrir utan það að spamaður
við að reyna að ná fleiri titilhöfum er
augljós þegar tii lengdar lætur. Það er
ekki hægt að gera öllum til hæfis, það
verður að velja og hafna. Mér finnst
því miður hugmyndaskortur einkenna
skákhreyfinguna um þessar mundir
með örfáum undantekningum. Hrafn
Jökulsson hefur t.d. sýnt að ef áhugi,
elja, skapandi hugsun og vinnusemi er
fyrir hendi þá er hægt að lyfta
grettistaki. Það er óþarfi að líta allar
nýjungar gagnrýnisaugum og ætla sér
að setja hoð og bönn. Betra er að koma
þá með aðrar ferskar hugmyndir.
Hrannar Bjöm Amarsson, forseti
skáksambandsins, er ágætt dæmi líka
um mann sem er með, að mörgu leyti,
svipaða afstöðu og Hrafn. Og þeir eru
reyndar fleiri til. En því miður eru að-
ilar í mótsnefndum og stjóm sam-
bandsins, menn sem fyrir löngu eru
uppumir af hugmyndum og ættu að
þekkja sinn vitjunartíma. En það er
erfitt að sjá bjálkann fyrir flísinni.
Sigur á dönskum
Það er alltaf gaman (er það ekki?)
þegar íslendingar gera Dönum skrá-
veifu! Henrik er dæmigerður Dani af
skemmtilegri „sortinni". Hann er stór-
meistari að atvinnu en hér vinnur Stef-
án það sem Bent Larsen kallar
„arbejdssejer". Það þarf að hafa fyrir
hlutunum og skákin er ekki augnayndi
á sama hátt og snarpar sóknarskákir.
En skemmtileg baráttuskák engu að
síður. Fyrsti leikurinn er kostulegur
hjá hvítum, svona tefla menn eins og
Kasparov við tölvur. En Stefán er ís-
lenskur piltur af holdi og blóði!
Hvítt: Henrik Danielsen (2520)
Svart: Stefán Kristjánsson (2389)
Danielsen-byrjun!
Reykjavíkurskákmótiö (5), 11.03. 2002
1. d3 g6 2. f4 Bg7 3. g3 d6 4. Bg2
c6 5. Rf3 Rd7 6. Rc3 b5 7. 0-0 b4 8.
Re4 Bb7 9. Del Db6+ 10. Khl c5 11.
Red2 e6 12. e4 Re7 13. Rc4 Dc7
Eftir nokkurt japl, jaml og fuður er
komin upp ósköp venjuleg staða. En
í staö þess að planta riddara á d6
hefði verið skynsamlegra að leika 14.
a3 eða 14. Bd2. En skynsemi er best í
hófi, sköpunarkrafturinn verður að
Sævar
Bjarnason
skrifar um
skák
Skákþátturinn
fá að njóta sín líka. Stefán fær ágætt
peð að hamast á. 14. e5 dxe5 15.
fxe5 0-0 16. De2 Rf5 17. Bf4 Rb6
Hvert ætlar þú, riddari góður? 18.
Rd6 Rxd6 19. exd6 Dc6 20. Hf2 Rd5
21. Re5 Dxd6 22. Rxf7
Já, svona vill hann hafa það. En
strákurinn úr vesturbænum er
óhræddur við flækjurnar. Ég þóttist
sjá það 1 Skákskóla íslands fyrir um
8-9 árum að þarna væri mikið efni á
ferðinni. Sem betur fer hefur maður
stundum rétt fyrir sér! 22. - Rxf4 23.
Hxf4 Bxg2+ 24. Dxg2 Dd5 25. Hafl
Dxg2+ 26. Kxg2 Bxb2 Jahá, þarna
lágu Danir í því. Peð fyrir borð! En
það er margra tíma vinna fram und-
an. 27. g4 Bg7 28. h4 Hac8 29. H4f3
Hc7 30. Rg5 Hxf3 31. Hxf3 Hc6 32.
He3 e5 33. He2 Ha6 34. c3
Bíddu hægur, dauði! Svartur
tryggir sér langvarandi frumkvæði
með þrýstingi á d-peðið og með tvö
peð á móti einu á a- og b-línunni. 34.
- Hd6! 35. cxb4 cxb4 36. Hc2 h6 37.
Hc8+ Bf3 38. Re4 Ha6 39. Hc2 Be7
40. h5 gxh5 41. gxh5 Ha3 42. Rf2
Bg5 43. Kg3 Kf7 44. Re4 Þar fellur
peð nr. 2. En þrjóskir eru sumir Dan-
ir lika. 44. - Hxd3+ 45. Kg4 Bf4 46.
Kf5 Ke7 47. Hc7+ Hd7 48. Hc6 Hb7
49. Hg6 Kd8 Þeir eru stórvarasamir,
riddararnir. Henrik hefur náð
„sprikli“ en Stefán er með athyglina
í lagi! 50. Rc5 Hb5 51. Hc6 Be3 52.
Re4 Kd7 53. Hc2 a5 54. Rf6+ Kd6
55. Ke4 Bg5 56. Re8+ Kd7 57. Rc7
Hb7 58. Ra6 Hb6 59. Rc5+ Kd6
Þetta heitir vandvirkni. 60. Hc4 Hb5
61. Rd3 Hd5 62. Rb2 Hd2 63. Ra4
Hér fellur næstsíðasta peðið og
skákinni er í raun lokið. En menn
vinna ekki skák á því að gefa hana!
63. - Hxa2 64. Rb6 He2+ 65. Kd3
He3+ 66. Kc2 Ke6 67. Hc5 b3+ 68.
Kb2 e4 69. Hc6+ Kf5 70. Rc4 Hg3 71.
Ka3 Be7+ 72. Ka4 e3 73. Hg6 e2 74.
Hxg3 elD 75. Hxb3 Bb4 76. Hd3 De2
77. Hd5+ Ke6 78. Hd4 Bc3 79. Hd6+
Ke7 80. Hc6 Da2+ 81. Kb5 Db3+ 82.
Ka6 a4 83. Rb6 Bd4 84. Hxh6 Dxb6+
85. Hxb6 Bxb6 86. h6 Bd4 0-1 Loks-
ins, en þeir eru ólseigir, þessir Danir!
IS22
Ejin vinsælusta fermingarstæða
síðustu þrjú ár
59.900
14” sjónvarp með
veggfestingu
22.900
20” sjónvarp og
myndbandstæki
46.900
OLYMPUS
OLYMPUS
Stafræn myndavél
Beint í tölvuna
49.900
Ein snotrasta filmuvélin sem í
boði er
15.900
UUeHe
möbei
ROVO
CASH skrifborð 160x80
Listaverð: 20.500,-
Armar á
mynd ekki
innifaldir
Skrifstofustóll með háu baki.
Listaverð:21.900,-
12.900
15.900
SHARR
MiniDisk spilari
Draumatæki tónlistarmannsins
Smekklegar kraftmiklar
toppgræjur frá SHARP
23.900
29.900
Þetta er aðeins brot af því úrvali sem í boði er
Sjón er sögu ríkari O/"
1922 ( j( / 2002
BRÆÐURNIR
ORMSSON
Lágmúla 8 • Sfmi 530 2800