Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2002, Síða 52
60
LAUGARDAGUR 23. MARS 2002
zzzz
HVERFISGATA
laugavegur
Tradarkot
er góður kostur
Framkvæmdir við endurnýjun neðri hluta Skólavörðustígs
og hluta Bankastrætis standa yfir. Verslanir og þjónustu-
stofnanir eru öllum opnar og er vinnusvæðið greiðfært
gangandi vegfarendum en lokað fyrir bílaumferð.
Bílahús og miðastæði eru í næsta nágrenni og mælum
við með Traðarkoti við Hverfisgötu sem góðum kosti.
3 Atvinna
Zl Smáauglýsingadeild
Útgáfufélagið DV leitar að starfsmanni til framtíðarstarfa á
smáauglýsingadeild. Unnið er á vöktum. Leitað er eftir áreiðanlegum og
stundvísum starfsmanni sem er lipur í mannlegum samskiptum. Góð
íslensku- og tölvukunnátta nauðsynleg auk þess sem reynsla af sölustörfum
er talin kostur.
Ráðið verður í stöðuna strax.
Alla tíð hefur DV verið lifandi hluti af lífi þjóðarinnar með ábyrgri og
kjarkmikilli fréttamennsku, vönduðum skrifum og þjónustu við lesendur sína.
Hjá DV starfar öflugur og samstilltur hópur starfsmanna sem htur til framtíðar
með sóknarhug. Vilt þú starfa með okkur? Sendu þá skriflega umsókn með
almennum upplýsingum og haldgóðri lýsingu á fyrri störfum til:
Útgáfufélagsins DV
Þverholti 11
105 Reykjavík
merkt „DVatvinna“
eða á netfangið selma@dv.is
Helgarblað_________X>V
Kryddskörin fær-
ist upp í bekkinn
Beckinghamhöll. Nei, þetta er
ekki misritun á Buckinghamhöll
Bretadrottningar, heldur nafnið á
nýuppgerðri glæsihöll hjónanna
Davids Beckhams sparkmanns og
söngkonurmar Victoriu Adams.
Staður við við hæfi mikillar
veislu sem David ætlar að halda fé-
lögum sinum i enska landsliðinu áð-
ur en lagt er upp í Japansferðina í
sumar til að taka þátt í HM í knatt-
spyrnu. Að sjálfsögðu verður sushi
og annars konar japanskur og aust-
rænn matur á boðstólum.
Æfingabúningar og aðrir
krumpugallar verða bannaðir.
Beckhamarnir hafa sett það skilyrði
fyrir inngöngu að gestir verði með
hvítt bindi, eins og það er víst kall-
að upp á ensku, eða skreyttir
demöntum. Rétt eins og í veislum
hjá alvörukóngum og drottningum.
Auk fótboltastráka verða í veisl-
unni nokkrir popparar, til dæmis
Kryddpíumar og Elton John.
Elns og kóngafólk
Beckhamarnir David og Victoria
eru farin að líta stórt á sig.
REUTER-MYND
De Niro og Russo á frumsýningu
Robert De Niro og Renee Russo komu saman á frumsýningu kvikmyndarinn-
ar Showtime vestur í Los Angeles í vikubyrjun. Eddie Murphy, háöfuglinn sá,
kom líka á frumsýninguna og talaöi viö fréttamenn.
Pamela Anderson smituð af lifrarbólgu C:
Deildi húð-
flúrsnál
með Tommy
Sílikonbomban Pamela Anderson
hefur upplýst að hún hafi smitast af
lifrarbólgu C, sjúkdómi sem getur
verið lífshættulegur.
Pamela staðhæfm að hún hafi
smitast við það að deila húðflúrsnál
með Tommy Lee, , fyrrum eigin-
manni sínum og bamsfoður.
„Tommy sagði aldrei frá því á
meðan við vorum gift að hann væri
smitaður,“ segir Pamela.
Það var í desember á siðasta ári
að leikkonan vinsæla fékk ótíðindin
frá lækni sínum. Hún er nú í með-
ferð við sjúkdóminum á háskóla-
sjúkrahúsinu í Los Angeles.
Lifrarbólga C smitast með blóði.
Oftast nær gerist það þegar fólk
deilir sprautum. Sjúkdómurinn get-
ur þó einnig smitast við samfarir.
Sænska Aftonbladet segir að
Pamela hafi fengið algjört sjokk þeg-
ar hún komst að hinu sanna.
Strandvarðagellan fyrrverandi mun
óttast það mest að fá ekki að fylgjast
með sonum sínum, þeim Brandon, 4
ára, og Dylan, 5 ára, vaxa úr grasi.
„Hún var alveg niðurbrotin og
hringdi margoft í móður sína og
grét stjómlaust," segir tveir góðvin-
ir Pamelu, þau Clyde Hamm og Jul-
ia Bennett.
í herbúðum Tommys er því hald-
ið fram að þessi tíðindi séu sett
fram til þess eins að skaða málstað
hans í harðvítugri baráttu þeirra
Pamelu um forræði yfir drengjun-
um þeirra tveimur.
Pamela Anderson
Kvikmyndastjarnan er smituö af
lífshættulegri lifrarbólgu.