Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2002, Side 53
LAUGARDAGUR 23. MARS 2002
61
DV
Helgarblað
Bridge
EM í para- og parasveitakeppni 2002:
Slakt gengi
íslensku kepp-
endanna
Þegar þetta er skrifað hefir gengi
íslensku keppendanna á EM í
Ostende verið mjög lélegt. Aðeins
eitt par náði að komast í úrslita-
keppnina, Bryndís Þorsteinsdóttir
og Ómar Olgeirsson, en þau náðu
76. sæti í undankeppni para.
Þrettán pör svöruðu kalli
Bridgesambands íslands um að skrá
sig til þáttöku á Evrópumótið og
virðist ljóst að einu aðgönguskilyrð-
in voru að hafa aðgang að síma eða
tölvu.
Bryndís og Ómar höfnuðu síðan í
116. sæti af 130, enda við ramman
reip að draga, því aðrar Evrópu-
þjóðir virðast nota annan mæli-
kvarða við val á sínum þátttakend-
um en Bridgesambandið.
I Sárabótatvímenningi, sem hald-
inn var fyrir þá sem ekki náðu í úr-
slitin, tók
ekki betra við hjá okkar keppend-
um. Þrjú pör báru þó af, Ragnheið-
ur Nielsen og ísak Sigurðsson náðu
22. sæti, Anna ívarsdóttir og Þorlák-
ur Jónsson náðu 39. sæti og Hjördís
Sigurjónsdóttir og Kristján Blöndal
náðu 40. sæti, enda allt spilarar úr
fremstu röð. Hin pörin fengu mörg
hver hörmulega útreið og lítið meir
um það að segja.
Evrópumeistarar urðu Hollend-
ingarnir Hedwig Van Glabbeek og
Jan Willen Maas.
Parasveitakeppnin hófst síðan 20.
mars, en mótið stendur til 22. mars.
Vonandi gengur okkar fólki betur í
henni, en sex íslenskar sveitir taka
þátt. Nánar um það í næsta þætti.
ísak og Ragnheiður náðu athygli
mótsblaðsins í eftirfarandi spili frá
upphafi parasveitakeppni mótsins.
Stefán
Guðjohnsen
skrifar um bridge
wmmr
inn að sjá kónginn birtast. En aug-
ljóslega þurfti meira tii. Hann drap
á ásinn, spilaði litlu laufi, nían og
tían. Norður gaf, en ísak var með
stöðuna á hreinu. Hann spilaði lauf-
kóng og þegar drottningin kom frá
suðri voru níu slagir í höfn.
Á hinu borðinu spiluðu a-v 4
hjörtu og urðu einn niður. Það voru
10 impar til íslands.
En pistlahöfundur mótsblaðsins
sér meira í spilinu og hugleiðir
hvað gerist ef ísak spilar hjarta-
drottningu í öðrum slag. Hjartaás-
inn drepur slaginn og laufiferðin er
sú sama. En er spilið virkilega tap-
að? Sagnhafi tekur laufslagina, ás
og kóng í spaða og hjartagosa. Síðan
spilar hann tíguldrottningu. Þá er
staðan þessi:
A/A-V
4 -
•» -
4 Á654
* -
4 -
«4 53
4 D7
4-
4 -
«* 108
4 G9
4 -
A/A-V
4 96
•> K
4 Á65432
4 Á543
4 G8743
•» Á942
4 8
4 872
4 D1052
V 10876
4 G109
4 D9
4 AK
•f DG53
4 KD7
4 KG106
Ekki eru andstæðingar þeirra
nafngreindir, en Ragnheiður og ísak
sátu í a-v. Sagnir gengu á þessa leið:
Austur Suður Vestur Norður
pass pass 14 14
pass pass
Norður spilaði út fjórða besta
tígli og ísak átti fyrsta slaginn á
kónginn.
Hans næsti leikur var rökréttur,
hann spilaði litlu hjarta og var feg-
Norður verður að drepa, því ann-
ars er vestur búinn að fá níunda
slaginn.
Hann spilar tígli aftur og suður
verður að gefa níunda slaginn á
hjartaníu.
Svokölluð „stiklusteinsþvingun",
ef ég man það rétt. Og ísak hefði
áreiðanlega fundið hana.
Smáauglýsingar
Allt til alls
►I 550 5000
Sumarið er
tíminn
Að loknum hrímköldum vetri
er vorið loks á leiðinni. Sumar-
ið er tíminn, sagði Bubbi en
vorið er ekki síðra. A.m.k. er
það kærkomið í kjölfar fimbul-
frosts eins og varði nánast allan
febrúar. Rok og rigning er
hvimleitt veður en fullt af
hreyfingu og örvun. Frostið
drepur hins vegar allt f dróma.
Þá bíður þjóöin á gulu ljósi og
gerir sem minnst.
Biðin er á enda en íslenska
veðrið verður þó aldrei betra en
svo að ferðaskrifstofurnar sjá
fram á gríðarlegan útflutning
íslendinga næstu mánuði. Sum-
ar þeirra eru reyndar marg-
dæmdar fyrir svindl og pretti en
áfram senda þær út fólk og
fleira fólk og hafa nóg fyrir
stafni. Sumarið er svo stutt í
þessu landi að margir freistast
til að bóka ferð 1 garanteraða
blíðu. Lyktin af sólollu er nefni-
lega himnesk í nösum íslend-
ings.
Nöldur vegna kuldatíðarinnar
undanfarið minnir hins vegar á
þá hættu að maðurinn telji sig
svo máttugan að hann þykist
geta átt sökótt við veðurguðina.
Mannskepnan hefur beislað
tæknina og stóran hluta jarð-
neskrar náttúru til að létta sér
lífið en mikið vill meira. Hverj-
ir eru við aumir nútímamenn að
röfla undan einum sultardropa
nú þegar hálf íslenska þjóðin
horféll á frostavetrum fyrri alda
og gat ekkert við því gert?
Það þarf ekki nema einn með-
alstóran jarðskjálfta eða einn
stormsveip til að minna íslend-
inga á að ekkert er gefið í þess-
um heimi og hver dagur er í
raun lítið kraftaverk. Réttast er
að njóta hans í botn. Og til þess
eru helgar hvað snjallastar.
Sandkorn
Umsjón: Höröur Kristjánsson » Netfang: sandkorn@dv.is
Margir efuöust um að HaU-
dóri Jónssyni, fyrrum bæjarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins á ísafirði,
/æri alvara í því
að stýra sérfram-
boði í kosningun-
um í vor. Nú virð-
ist Halldóri vera
full alvara og mun
stofna bæjarmála-
félag um framboð-
ið þar sem sótt
verður í stuðn-
ingsmenn bæði frá hægri og vinstri.
Halldór hefur verið óvæginn í skrif-
um að undaníornu, ekki sist gegn
HaUdóri HaUdórssyni, bæjarstjóra
og oddvita sjálfstæðismanna. Þó
mótherjar Halldórs Jónssonar geri
góðlátlegt grín að framboðsbrölti
hans, þá er ekki laust við ótta hjá
leiðtogum „gömlu“ flokkanna.
Menn vita nefnilega af biturri
reynslu að sprengiframboð hafa oft
komið mjög á óvart í bænum. Næg-
ir þar að minnast Funklistans sem
kom inn tveim mönnum í bæjar-
stjórn i þarsíðustu kosningum ...
f ljÓSÍ frétta af flokkaruglingi
manna úr Sjálfstæðisflokki yfir á
lista framsóknarmanna í Árborg er
ekki laust
við að menn
sé famir að
efast um að
flokksgirð-
ingar haldi
víðar um land. I Vestmannaeyjum
eru menn ekki vissir um að gömlu
framboðin haldi. í Eyjafréttum er
getum leitt að því að kurr sé innan
raða stuðningsmanna Vestmanna-
eyjalistans, sem er sambræðingur á
vinstri vængnum. Það séu helst
framsóknarmenn innan listans sem
séu óhressir. Er vísað til þess að
Stefán Jónasson sé hugsanlega að
skoða sérframboð Framsóknar-
flokksins. Vegna fréttar þess efnis
sendi Stefán frá sér yfirlýsingu: „Ég
er framsóknarmaður en ég styð
Vestmannaeyjalistann." - Þar hafa
menn það ...!
NÚ geta Reykvíkingar væntan-
lega andað léttar eftir yflrlýsingu
borgarstjórnar Reykjavikur í vik-
unni. Þar var samþykkti einróma
að banna alla geymslu og umferð
kjarnorku-, efna-
og sýklavopna i
borgarlandinu.
Friðarsinnar telja
þetta mikil tíðindi
á meðan öðrum
þykir fátt um
finnast og tíman-
um borgarstjórn-
ar væri betur var-
ið til annarra hluta. Með samþykkt-
inni er Reykjavík komin í hóp 46
sveitarfélaga hérlendis sem banna
kjarnorkuvopn. Meðal þeirra eru
Akranes, Akureyri, Húsavík, ísa-
fjörður, Árborg, Fjarðabyggð og
Snæfellsbær. Velta gárungar reynd-
ar fyrir sér hvort samþykktin í
Reykjavík hafi ekki verið afglöp.
Með henni raskist ógnarjafnvægið á
meðan ekki sé ljóst hvort öll ná-
grannasveitarfélögin lýsi einnig yfir
kjamorkuvopnabanni...
hljóði
Ráðherrastóllinn hjá
Sturlu Böðvarssynl er af sumum
talinn vera farinn að hitna hressi-
; lega í kjölfar fjölda
skandalmála sem
heyra undir ráðu-
neyti hans. Eru
það þó talin
hreystimerki ráð-
herrans að sitja
enn þó rjúki úr
I sessunni. Margir
munu þó bölva í
ekki álpast til að
sækjast eftir virðingarstöðum sem
falla undir verkstjórn samgönguráð-
herrans og vísa þar til nýjustu
frétta. Ekki er langt síðan ráðherr-
ann kom þjóðinni á óvart með vel-
vilja sínum í garð nýrra stjórnar-
manna í Landssímanum með því að
tvöfalda laun þeirra. Þótti hann þar
toppa allt sem toppað verður. Hefur
það þó greinilega ekki þótt tiltöku-
mál í ljósi frétta af formanni rann-
sóknanefndar sjóslysa. Hann hækk-
aði að því er virðist óumbeðið í
launum um 300 prósent. Bíða menn
nú spenntir eftir því hvort þetta
verði toppað ..!
Myndasögur
i
Þá er líka rétt að vera þakklát-
ur fyrir að geta gert fullt af
mistökum á nýju ári.
Gamlárskvöld er rétti tíminn til að
hugsa um allt það sem miður hefur
farið á liðnu ári.
-X.
Eq keypti
kanarífugl.
Farðu með hann inn í eldhúe
oq ef eitthvað eem þú eldar
sleppir frá sér eitruöu gasi
líður yfir fualinn oq ég get
forðað mérí
ÍHvað er í
[matinn?
'uglakjöt.