Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2002, Page 64
FR ÉTTAS KOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
LAUGARDAGUR 23. MARS 2002
Sjálfvirka STK-tilkynningaskyldan enn í klúðri:
Stór hluti vestfirska
bátaflotans tækjalaus
- sjötíu og einn bátur í fjóröungnum án lögboðins búnaöar
Samkvæmt heimildum DV er eng-
inn sjálfvirkur tilkynningaskyldubún-
aður í svokölluðu STK-kerfi í að
minnsta kosti 71 fiski- og vinnuskipi á
Vestíjörðum undir 24 metrum að
lengd. Er það þrátt fyrir að búnaður-
inn sé lögboðinn og að ekki megi veita
skipum haffæmisskirteini nema þau
hafi þenna búnað um borð.
Samkvæmt heimildum DV vantar
> sjálfVirkan STK-tilkynningaskyldubún-
að í 30 báta sem sigla undir einkennis-
stöfunum BA á Vestfjörðum. Þá vantar
búnað í 28 báta sem eru með einkennis-
staflna ÍS og 13 báta með einkennisstaf-
ina ST. Þá mun skoðunarmönnum Sigl-
ingastofnunar vera kunnugt um tæki
um borð í hokkrum bátum vestra til
viðbótar sem verið hafa biluð um iengri
eða skemmri tíma. Þetta kemur fram í
tölvupósti sem sendur var frá ísaflrði til
skoðunarsviðs Siglingastofhunar í gær
og er undirritaður með nafni Heiðars
Kristinssonar, umdæmisstjóra Siglinga-
málastofnunar Islands á Isaflrði.
Frá Isafjaröarhöfn
Sjötíu og einn bátur á Vestfjörðum
viröist vera án iögboöna sjálfvirka
STK-tilkynningabúnaðarins.
I samtali við DV i gær vfldi Heiðar
ekki kannast við slíka orðsendingu, né
að hann hefði staðið fyrir úttekt á mál-
inu á Vestfjörðum. „Ég held að ástand-
ið hér á Vestfjörðum sé eins og annar
staðar og allir voða hamingjusamir,
sagði Heiðar Kristinsson.
Samkvæmt lögum og reglugerð frá
árinu 1997 og breytingum frá 1999 um
tilkynningaskyldu islenskra skipa var
tekið upp svokallað STK-kerfi hérlend-
is. Þetta kerfi var formlega tekiö í
notkun á íslandi 15. maí 2000. Kerflð
byggist á notkun einkaleyfisvarins
búnaðar frá Raycall Decca en umboðs-
aðili er VAKI-DNG. ísland er eina
landið í heiminum þar sem slíkt til-
kynningaskyldukerfi hefúr verið tekið
upp. Mikil umræða var um málið eftir
að Bjarmi VE fórst í lok febrúar. Kom
fram að sjálfvirka tilkynningaskyldan
hefði ítrekað brugðist og komið hefðu
allt að 40 falskar meldingar á dag. Val-
geir Elíasson, upplýsingaftilltrúi
Landsbjargar, upplýsti um 6.300 falsk-
ar meldingar á síðasta ári þar sem bát-
ar detta út af skjánum hjá Tilkynn-
ingaskyldunni.
Ef tölumar samkvæmt tölvupóstin-
um eru réttar má leiða likum að því að
hundruð báta á landinu öllu séu án
þessa lögboðna öryggisbúnaðar eða
með biluð tæki um borð.
Ekki náðist í talsmenn skoðunar-
sviðs Siglingamálastofiiunar í Reykja-
vík í gær þar sem þeir voru á fuindi
hjá Landhelgisgæslunni. -HKr.
Norsk Hydro ekki á áætlun vegna Reyðaráls:
Rætt verður við aðra
Bónus á ísafirði:
Fjórir reknir
Fjórum starfsmönnum Bónuss á
Isafirði var í gær vikið frá störfum
vegna gruns um þjófitað. Þetta var í
hádeginu í gær og var starfsmönnun-
um gert að hætta þegar störfum.
Fréttavefur BB á ísafirði segir að
meintur þjófhaður hafl staðið yflr í
eitt og hálft ár hjá þeim starfsmönn-
um sem unnið hafa lengst hjá fyrir-
tækinu. Stjómendur Bónuss lita mál-
ið alvarlegum augum en þeir komu
vestur í gær vegna málsins. -sbs
Skúli ók strætó
Guðlaugur Þór
Þórðarson borgar-
fulltrúi hefur dregið
í efa hæfi Skúla
Bjamasonar hrl. til
að sinna tímabund-
ið stöðu fram-
kvæmdastjóra
Strætó. Hann hafi
enga sérhæfingu í
almenningssamgöngum. Skúli sagði
hins vegar við DV að hann hefði viðað
að sér mikilli reynslu um breytingu á
rekstrarformi þó hann hafi enga há-
skólagráðu í fræðunum. „En ég starfaði
sem strætisvagnabílstjóri á skólaárun-
um. Það er ekki háskólapróf en ég þekki
til greinarinnar og hef alltaf haft áhuga
á þessu sviði.“ -BÞ
„Aðalatriðið er að nú er opnað á
möguleikann til viðræðna við fleiri
aðila,“ sagði Valgerður Sverrisdótt-
ir iðnaðarráðherra í gær,
eftir að hafa farið yfir á Al-
þingi sameiginlega yfirlýs-
ingu iönaðarráðuneytisins
og Norsk Hydro, þar sem
fram kom að Norsk Hydro
treystir sér ekki til að
standa við þá tímaáætlun
sem sett hafði verið varð-
andi Noralverkefnið. Átti
endanleg ákvörðun að
liggja fyrir 1. september nk.
Valgerður benti á sjö atriði sem
hún taldi miklu skipta varðandi
þessa yfirlýsingu. I fyrsta lagi að
samstarfið við Norsk Hydro héldi
áfram og menn myndu reyna að
komast að því sem fyrst hver fjár-
festingarstaða Hydro væri vegna
fjárfestingarinnar í VAW. I ööru
lagi bendir hún á að aðilar séu sam-
mála um að verkið sé hagkvæmt. I
þriðja lagi segir hún staðfest að
Hydro geti ekki tekið afstöðu til
málsins fyrir 1. september. I fjóröa
að Hydro og Hæfi, eigendur Reyðar-
áls, muni klára sín mál um mat á
stöðii álversins. I fimmta lagi að það
sé sérstaklega mikilvægt að íslend-
ingar geti nú leitað hófanna hjá öðr-
um en Hydro um framhald þessa
verkefnis. I sjötta lagi verði sett upp
vinnuáætlun fyrir Noral svo fljótt
sem hægt sé Loks liggi fyrir
að aðilar, þar með Norsk
Hydro, hittist í júni til að
ákveða um framhaldið.
Valgerður þvertekur fyr-
ir að Noralverkefninu sé
lokið og lagði ráðherra á
þinginu í gær ríka áherslu á
að frumvarpið um Kára-
hnjúkavirkjun yrði afgreitt
á þinginu, enda myndi slíkt
auðvelda mjög eftirleikinn,
ekki síst ef menn hygðust ná inn
nýjum samstarfsaðilum.
Steingrímur J. Sigfússon sagði
ljóst aö Noralverkefnið hefði verið
slegið af. I yfirlýsingunni væri ekki
verið að tala um seinkun á tímaá-
ætlun, það væri engin tímaáætlun.
Hann hvatti til þess að menn hættu
að ræöa um Kárahnjúkafrumvarp-
ið, ræddu frekar aðrar aðgerðir til
að koma til móts við Austfirðinga.
Athygli vekur að Samfylkingin er
klofin í málinu. Talaði Rannveig
Guðmundsdóttir gegn frumvarpinu.
-BG
Sjá einnig fréttaviðtal við
HaHdór Ásgrímsson, bls. 4
Valgerður
Sverrisdóttir.
’IMAR MR
Kattþrifinn kvenmaöur
Stundum er taiaö um aö fóik sé kattþrifiö og á þaö áreiöanlega viö um
þessu stúlku sem pússaöi bílinn sinn af mikilli kostgæfni. Kisinn á þakinu
fylgdist vel meö og hefur áreiöanlega kunnaö aö meta vinnubrögöin.
Menningarmálaráðherra Breta meðal gesta á opnun Listahátíðar í Reykjavík:
Silkihúfur á Listahátíð
Nú er afráðið að nýr menningar-
málaráöherra Breta, Tessa Black-
stone, verði gestur Tómasar Inga
Olrich menntamálaráðherra á
opnun Listahátíðar í Reykjavík
helgina 11.-12. maí. Þá mun hún
meöal annars vera á setningu há-
tíðarinnar í Borgarleikhúsinu, sjá
ballettinn Sölku Völku sem Is-
lenski dansflokkurinn frumsýnir
síðdegis þann 11. og frumsýningu
á óperunni Hollendingnum fljúg-
andi um kvöldið í Þjóðleikhúsinu.
Þar fær menningarmálaráðherr-
ann að sjá landa sinn í aðalhlut-
verki því
breski bassa-
barítóninn
Matthew Best
syngur Hol-
lendinginn.
Tessa
Blackstone er
þekkt kona í
ensku menn-
ingarlífi. Hún
sat í stjórn
Tessa Blackstone Konunglegu
Menningarmálaráö- óperunnar og
herra Breta. Konunglega
ballettsins í London í tíu ár og hef-
ur komið við sögu ýmissa fleiri
menningarstofnana. Hún er þó tal-
in hlynntari því að fé fari til lista-
mannanna sjálfra en í stjórnir og
aðra yfirbyggingu.
Brian McMaster, aðalstjómandi
Edinborgarhátíðarinnar, er einnig
væntanlegur á Listahátíð í Reykja-
vík og margir fleiri fulltrúar koma
hingað frá listahátíðum víðs vegar
um heiminn.
Miðasala á Listahátíð hefst
strax eftir páska, eða 2. apríl.
-SA
IBrother PT-2450 merkivélin
Mögnuðvél
sem, með þlnni hjálp,
hefur hlutina (röð
og roglu.
Snjöll og góð lausn á
óreglunni.
Nýbýlavegi 14 • sími 554 4443 •