Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2002, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2002, Blaðsíða 48
56 HelQctrhlað lö'V" LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002 á netinu AJy BÍLASALAN <3fi> SKEIFAN . BÍLDSHÓFÐA 10 • Ú&’ S: 577 2800 / 587 1000 www.benni.is Opnunartími: Virka daga 10-19, Laugardaga 11-16 Akureyri: Bílasalan Ós, Hjalteyrargötu 10, Sími 462 1430 _nna . með bíHnn Þ'”n Mnn g Við augiy .nnLis VW Polo 1400 CC, 11/96, ek 63 þ. km, 3 dyra, beinskiptur Verð kr. 580.000 Nissan Primera 1600 cc, 04/99, ek 39 þ. km, 5 dyra, beinskiptur. Verð kr. 1.120.000 Lul m . MMC Lancer EXE 1500 cc, 09/91, ek. 168 þ. km, beinskiptur, 4 dyra. Verð kr. 270.000 VW Golf Cl 1400 cc, ek. 94 þ. km, 3 dyra, Verð kr. 450.000 Dodge Ram 2500 V10. 8000 cc, 01/95, ek. 79 þ. km, sjálfskiptur, 38“ breyttur, loftpúðafjöðrun, hús á palli og margt fleira. Verð kr. 1.990.000 Dodge Caravan Se 3000 cc, 01/95, sjálfskiptur, 7 manna, ek. 99 þ. km. Verð kr. 890.000 * l ■ I * i I k « i « i « « « « « « « « » « « « R » « » « » R « B » « « BÍÓTILBOÐ 500 kr. í bíó gegn framvísun þessa miða. Hámark 2 miðar. Gildir frá föstudegi til mánudags í Reykjavík og á Akureyri. Þau hafa 45 mínútur til að bjarga heiminum. En þau þurfa 46 mínútur. Umsjón Sævar Bjamason Nýir íslenskir titilhafar Fimm nýir íslenskir titilhafar hafa verið samþykktir af FIDE. Stefán Kristjánsson var útnefndur alþjóðlegur meistari og þeir Bragi Þorfinnsson, Björn Þorfinnsson, Sigurbjörn J. Björnsson og Magn- ús Örn Úlfarsson voru svo út- nefndir FIDE-meistarar. Þetta er sérstakt gleðiefni og allir eiga FIDE-meistararnir ágæta mögu- leika á því að ná alþjóðlegum meistaratitli, sem og Jón Garðar Viðarsson FIDE-meistari og Arn- ar Gunnarsson, en þeir eru báðir með 2 áfanga að titlinum eins og Bragi Þorfinnsson. FIDE-meistar- ar geta þeir orðið sem hafa náð 2300 alþjóðlegum Elo-stigum. ís- lenskir alþjóðlegir meistarar eru 7 talsins og þeir eru: Björgvin Jónsson, Haukur Angantýsson, Héðinn Steingrímsson, Ingi R. Jó- hannsson, Jón Viktor Gunnars- son, Stefán Kristjánsson og Sævar Bjarnason. Áhuginn að dala Stórmeistararnir eru 9 talsins en liklegt verður að teljast næsta árið a.m.k. að alþjóðlegum meist- urum fjölgi frekar en stórmeistur- um. Þó veit maður aldrei, „það er erfitt að spá, sérstaklega um fram- tíðina,“ eins og Daninn Storm Pedersen sagði um árið. Þó vekur það athygli mína og fleiri að áhugi á skák á íslandi hefur dalað allnokkuð síðasta áratuginn. Hvað veldur er erfitt að segja um: „Stórmeistarasprengjan íslenska" hélt auðvitað áhuganum gangandi en þá sprengju má rekja að mörgu leyti til heimsmeistaraeinvígis þeirra Fischers og Spasskís 1972 og þeirrar þekkingar og reynslu sem skákmenn og skákfrömuðir öðluðust þá. Ekki má heldur gleyma að Friðrik Ólafsson hefur lagt mörg lóð á vogarskálarnar, beint og óbeint, fyrst sem fyrsti ís- lenski stórmeistarinn og síðar sem forseti FIDE 1978 til 1982. Per- sónulega finnst mér það skrýtið að á sama tima sem skákin á miklum vinsældum og auknum að fagna í Evrópu, sérstaklega Þýskalandi og Frakklandi, þá hef- ur áhugi á henni dvínað á íslandi. Mér liggur við að nefna Efnahags- bandalagið margfræga sem ein- kennandi dæmi um framgang skákarinnar. Svo er skákin í óg- urlegri framför i stærstu og fjöl- mennustu ríkjunum i þriðja heim- inum, Kína sérstaklega og Ind- landi. Bara fyrir nörda í Bandaríkjunum er í gangi mikið átak til að koma skákinni betur á kortið og þar er mikið gert úr uppeldisgildi skákarinnar og jákvæðra þátta hennar í mótun persónuleika ungs fólks. Svo hef- ur taflmennska aukist hjá kven- þjóðinni alls staðar nema á ís- landi. Á Islandi er sú hugsun í gangi hjá allt of mörgu ungu kvenfólki að skák sé eingöngu fyr- ir svokallaða „nörda“. Mér er það minnisstætt þegar ég frétti nýlega að einn fremsti ungi íslenski skákmaðurinn hefði komið fram í „delluþættinum" í djúpu lauginni á Skjá einum og var spurður um áhugamál sín og þá nefndi hann ekki skák, sem hann hefur verið í frá barnæsku og er enn að fást við með mjög góðum árangri. Hann hefur líklega haldið að það færi illa í dömuna sem átti að velja sér herramann! Skjár einn hefur þó t.d. haldið skákmót af miklum myndarskap og fengið sjálfan Garrí Kasparov til landsins svo ekki er við hann að sakast. Og glæsilegar stúlkur flykkjast að skákborðinu úti i hin- um stóra heimi, svokallaðar feg- urðardísir þar á meðal, og láta sí- fellt meira að sér kveða. Ég man tímana tvenna í þessum málum og á alþjóðlegum skákmótum, sem ég hef tekið þátt í síðasta áratug- inn, hef ég orðið var við aukna þátttöku kvenna. Hvenær ætli maður heyri í Fegurðarsam- keppni íslands, sem er víst fyrir konur, orðin „ég hef áhuga á skák“ þegar dísirnar eru spurðar um áhugamál sín? Framtíðin er á Netinu Framtíð skákarinnar liggur að einhverju leyti á Netinu, fyrir utan keppnir víðs vegar um heim- inn. Menn sem eru framarlega í markaðssetningu skákarinnar halda þessu fram og segja: „Lát- um íþróttirnar og sófaáhorfend- unum eftir sjónvarpið, þetta er hvort eð er hnignunartæki þar sem einskis er krafist af áhorfand- anum. Veraldarvefurinn er krefj- andi og er fyrir manneskjur í framþróun! Ég er tilbúinn að taka undir þessi orð! íslendingarnir í keppni erlendis um þessar mundir eru ekki að gera neinar rósir svo við róum á önnur mið til að ná í skákir! Þessi skák er á milli erkióvin- anna Kortsnojs og Petrosjans og er frá einvígi þeirra 1980. Kortsnoj var þá búinn að tapa tvisvar í einvígi fyrir Karpov og er hér á leiðinni í þriðja einvígið í Merano 1982, þar sem Guðmund- ur Arnlaugsson rektor heitinn var einn af dómurum. Merkileg skák í einvígi sem Kortsnoj vann. Maður finnur þungann i tafl- mennskunni enn og illskuna sem kraumaði undir! Hvítt: Viktor Kortsnoj Svart: Tigran Petrosjan Drottningarbragð. Kandídataeinvígi. Velden, Austurríki (5), 1980. 1. c4 e6 2. Rc3 d5 3. d4 Rf6 4. Rf3 Be7 5. Bf4 0-0 6. e3 b6 7. cxd5 exd5 8. Bd3 Bb7 9. h3 c5 10. 0-0 Rbd7 11. De2 Þessu afbrigði hefur t.d. Helgi Áss stórmeistari oft beitt með ágætum árangri. Petrosjan ákveð- ur að fara í sókn á drottningar- vængnum og sjá til hvað Kortsnoj kemst áleiðis á miðborðinu og kóngsvæng. Takið eftir því hversu varfærnislega þeir tefla báðir - Petrosjan af gömlum vana og vegna þess að það var hans skákstíll - og Kortsnoj, sem enn er að tefla með góðum árangri um sjötugt, gat ekki hugsað sér að tapa. Friðrik Ólafsson var forseti FIDE, Brésnef var í Kréml, Jim- my Carter var um það bil að láta Ronald Reagan hirða forsetatign- ina af sér og Vigdís var kjörin hér uppi á Fróni. 11. - c4 12. Bc2 a6 13. Hadl b5 14. a3 He8 15. Re5 Rf8 16. Bh2 Db6 17. f3 a5. Enn er varfærnislega teflt, eða e.t.v. er rétt að segja: Undirbúningurinn á að vera hárnákvæmur! 18. Khl b4 19. Ra4 Db5 20. Hal R6d7 21. Rxd7 Dxd7 Loksins lætur hvítur til skarar skríða á miðborðinu. Ekki gat svartur unnið riddaran á a4 með b3 vegna millileiksins Rc3. En Petrosjan bíður samt róiegur og leitar færis að opna miðborðið á móti með peðsvinningi. 22. e4 Rf8 23. Bgl Bc6 24. Hfel Hab8 25. axb4 axb4 26. b3 c3 27. Bd3 Db7 28. Ba6 Dd7 29. Bh2 Það er Petrosjan sem getur ekki beðið boðanna og fórnar skipta- mun - nokkuð sem hann var fræg- ur fyrir. Líklega hefur honum ekki litist of vel á 29. - Bd6 30. Rc5 - þá þarf hann að hörfa sem virð- ist vera í lagi en er óþægilegt sál- fræðilega!? 29. - dxe4 30. fxe4 Dxd4 31. Hadl! Da7 32. Bxb8 Hxb8 33. Bc4 Be8 34. Hfl Bg5? Sóknarþungi hvíts beinist að f7- peðinu. En eftir 34. Hd8 er staðan nokkurn veginn í jafnvægi. Hvít- ur nær nokkrum leikvinningum og þá verður þokkaleg staða að góðri! 35. Hd5 De7 36. Rc5 g6 37. Df2 Bh6 38. e5 Bg7 Hvítur hleð- ur mönnum sinum sem næst svarta kónginum og hann ókyrrist nokkuð (Petrosjan) - hálfgert umsátur sem fer að verða frekar óþægilegt! 39. Re4 Bxe5 40. Hel Kg7. Næsti leikur Kortsnojs er vænt- anlega biðleikur hans. Svona var þetta nú einu sinni, eða e.t.v. er ég að segja einhverjum nýjar fréttir - við skákmenn erum hætt- ir með biðskákir eftir að skákfor- ritin sterku komu til sögunnar. Þau eru nefnilega óþreytandi að reikna út afbrigði og verða ekki syfjuð eins og aðstoðarliðið hér áður fyrr! En lið Kortsnojs og hann sjálfur hafa fínpússað þetta heima. Rússamir reyna drottn- ingarfórn sem er mislukkuð. 41. Rd6! Bxd6 42. Hxe7 Bxe7 43. Hdl Bf6? Hér var 43. - Hb7 skárri leikur en svarta staðan er í mol- um. 44. Hfl Rd7 45. g4 Hc8?? Enn var hægt að berjast með 45. - h6 46. Bd5 Hc8 47. h4 Hc5 og ekki er öll nótt úti enn. En nú kemur náðarhöggið: 46. Bb5. 1-0.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.